DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9680.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Ballet in Blue

Prjónuð vafningspeysa með blöðruermum úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.

DROPS 205-49
DROPS Design: Mynstur z-875
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-250-250-250-300-300 g litur 6790, kóngablár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100-125-125-150 g litur 21, kóbaltblár

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og202 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund= 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: Lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: Lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9680.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð (ranga), prjónið uppsláttinn snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan útauknar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2 (á við um mitt undir ermum):
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru síðan prjónaðar í sléttprjóni.

ÚRTAKA-1 (á við um handveg):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum fyrir handveg innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni eins og útskýrt er að neðan.
Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 3 kantlykkjunum og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál að framan og að aftan):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 7 kantlykkjur eins og útskýrt er að neðan (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni á bakstykki og A.1/A.2 á framstykki).
Fækkið lykkjum á eftir 7 kantlykkjum þannig: Takið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan 7 kantlykkjum þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 7 kantlykkjum og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

ÚRTAKA-3 (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

LEIÐBEININGAR (á við um lengd á ermum):
Hægt er að stilla af lengd á ermum að óskaðri lengd, en passið uppá að lengdin á að vera aðeins lengri en venjulega svo að ermin poki aðeins neðst niðri.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VAFNINGSPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykki og framstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp. Ermakúpurnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Síðan er afgangur af ermum prjónaður í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón ofan frá og niður. Stykkið er saumað saman og snúran er prjónuð í lokin. Allt stykkið er prjónað í 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 60-66-72-81-90-99 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4,5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).
Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff svona í 3 cm. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjurnar eru prjónaðar í garðaprjóni).
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 4-5-6-6-7-7 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-1.
Aukið svona út með 3-3-3½-4-4-4½ cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 68-74-80-89-98-107 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 17-18-19-21-23-25 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 6-6-7-7-9-11 lykkjur í hvorri hlið (aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni eins og áður). Eftir 4 umferðir í garðaprjóni í hvorri hlið, fellið af 3-3-4-4-6-8 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 62-68-72-81-86-91 lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar ca 1 cm hefur verið prjónaður á eftir úrtöku fyrir handveg, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg (þetta er gert frá réttu) – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í hvorri hlið í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 2-4-6-9-11-13 sinnum = 58-60-60-63-64-65 lykkjur eftir.
Prjónið síðan sléttprjón með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 33-35-37-40-43-46 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið nú garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur.
Þegar stykkið mælist 34-36-38-41-44-47 cm, fellið af miðju 12-14-14-15-16-17 lykkjurnar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Haldið áfram með garðaprjón og fækkið um 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli – sjá ÚRTAKA-2 = 22-22-22-23-23-23 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 36-38-40-43-46-49 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar stykkið er mátað):
Fitjið upp 47-50-56-62-68-74 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4,5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá miðju að framan): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni).
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 (= 7 lykkjur), prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur. Að aukið á að auka út í hliðum, fækka lykkjum í hálsmáli og fækka lykkjum fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan.
ÚTAUKNING Í HLIÐ:
Þegar stykkið mælist 4-5-6-6-7-7 cm, aukið út um 1 lykkju í hlið – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 3-3-3½-4-4-4½ cm millibili alls 4 sinnum.
ÚRTAKA FYRIR HÁLSMÁLI:
Jafnframt þegar stykkið mælist 5 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 1 lykkju við miðju að framan – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 20-21-24-26-27-29 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 4-4-4-4-5-5 sinnum.
ÚRTAKA FYRIR HANDVEG:
Jafnframt þegar stykkið mælist 17-18-19-21-23-25 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 6-6-7-7-9-11 lykkjur í hlið. Í næstu umferð frá röngu (eftir 4 umferðir garðaprjón) eru felldar af 3-3-4-4-6-8 lykkjur fyrir handveg.
Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka, A.1 við miðju að framan og 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hlið við handveg.
Þegar prjónaðir hafa verið ca 1 cm eftir úrtöku fyrir handvegi, fækkið um 1 lykkju í hlið fyrir handveg (þetta er gert frá réttu) – sjá ÚRTAKA -1. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 2-4-6-9-11-13 sinnum.
Eftir alla útaukningu og úrtöku eru 22-22-22-23-23-23 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 35-37-39-42-45-48 cm frá uppfitjunarkanti. Byrjið frá réttu og prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til aka yfir allar lykkjur. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Framstykkið mælist ca 36-38-40-43-46-49 cm frá uppfitjunarkanti.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 47-50-56-62-68-74 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund.
Prjóni 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hlið): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni).
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með A.2 (= 7 lykkjur).
Haldið svona áfram með mynstur. Að auki er aukið út lykkjum í hlið, lykkjum fækkað fyrir hálsmáli og lykkjum fækkað fyrir handvegi eins og útskýrt er að neðan.
ÚTAUKNING Í HLIÐ:
Þegar stykkið mælist 4-5-6-6-7-7 cm, aukið út um 1 lykkju í hlið – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 3-3-3½-4-4-4½ cm millibili alls 4 sinnum.
ÚRTAKA FYRIR HÁLSMÁLI:
Jafnframt þegar stykkið mælist 5 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 1 lykkju við miðju að framan – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð þannig (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 20-21-24-26-27-29 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 4-4-4-4-5-5 sinnum.
ÚRTAKA FYRIR HANDVEG:
Jafnframt þegar stykkið mælist 17-18-19-21-23-25 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 6-6-7-7-9-11 lykkjur í hlið. Í næstu umferð frá réttu (eftir 4 umferðir garðaprjón) eru felldar af 3-3-4-4-6-8 lykkjur fyrir handveg.
Haldið áfram með sléttprjón fram og til baka, A.2 við miðju að framan og 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hlið við handveg.
Þegar prjónaður hefur verið ca 1 cm eftir affellinguna fyrir handvegi, fækkið um 1 lykkju í hlið fyrir handveg (þetta er gert frá réttu) – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 2-4-6-9-11-13 sinnum.
Eftir alla útaukningu og úrtöku eru 22-22-22-23-23-23 lykkjur eftir á öxl.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 35-37-39-42-45-48 cm frá uppfitjunarkanti. Byrjið frá réttu og prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Framstykkið mælist ca 36-38-40-43-46-49 cm frá uppfitjunarkanti.

ERMI:
Ermin er prjónuð ofan frá og niður.
Fitjið upp 18-22-24-24-26-26 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið sléttprjón fram og til baka fyrir handveg og fitjið jafnframt upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, 2 lykkjur 2-2-3-3-2-2 sinnum í hvorri hlið, 1 lykkja 1-1-1-3-5-7 sinnum í hvorri hlið, 2 lykkjur 3-3-3-3-2-2 sinnum í hvorri hlið og að lokum 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum í hvorri hlið = 52-56-62-66-70-74 lykkjur í umferð. Stykkið mælist nú ca 8-8-9-11-12-14 cm frá uppfitjunarkanti.
Setjið stykkið saman og prjónið síðan í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (þ.e.a.s. þar sem stykkið var sett saman = mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum og auka út mitt undir ermi. Ermin mælist síðan frá þar sem prjónamerkið var sett í. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3-3-2-2-2-2 cm frá þar sem prjónamerkið var sett í, fækkið síðan um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-3: Fækkið lykkjum svona með 4-3-2-1½-1-1 cm millibili alls 3-4-6-7-9-10 sinnum = 46-48-50-52-52-54 lykkjur.
Þegar ermin mælist 16-16-15-15-14-14 cm frá þar sem prjónamerkið var sett í, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 1½-1½-1½-1½-1-1 cm millibili alls 14-14-15-16-17-18 sinnum = 74-76-80-84-86-90 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 47-47-47-45-45-43 cm frá þar sem prjónamerkið var sett í (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna/ermina og prjónið að óskaðri lengd – sjá LEIÐBEININGAR). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað var um 8-4-8-6-8-6 lykkjur jafnt yfir = 66-72-72-78-78-84 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjurnar prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 33-36-36-39-39-42 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Ermin mælist ca 60-60-61-61-62-62 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju, en skiljið eftir smá op á vinstri hlið á peysu (þegar flíkin er mátuð) til að þræða snúruna í gegn – opið á að vera ca 2½ til 3 cm og byrjar beint yfir stroffið.
Setjið ermarnar undir kant í garðaprjóni meðfram handveg og saumið fallega niður frá réttu (saumað er í ystu lykkju í garðaprjóni frá réttu, svo að kanturinn í garðaprjóni liggi fallega utan á ermi).

SNÚRA:
Prjóni upp 7 lykkjur frá réttu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram kanti með stroffi. Notið prjón 4,5 og 1 þráð af hvorri tegund. Prjónið garðaprjón fram og til baka þar til snúran mælist ca 75 til 100 cm, fellið af.
Prjónið aðra snúru á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-49

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Allison wrote:

How do you sew in the sleeves on the outside? I am stuck

07.02.2024 - 01:19

DROPS Design answered:

Dear Allison, in this video, we show how to sew a sleeve under the garter stitch edge. Happy assembly!

07.02.2024 - 08:32

country flag Melody wrote:

Bonjour, pour le dos et les devants on commence les augmentations lorsque l'ouvrage mesure 4 cm pour la taille S. Mais les côtes sont-elles comprises dans ces 4 cm ou il faut compter 4 cm après les côtes, sil vous plaît? merci.

25.01.2024 - 17:47

DROPS Design answered:

Bonjour Melody, mesurez ces 4 cm à partir du rang de montage, autrement dit, 1 cm après les côtes en taille S. Bon tricot!

26.01.2024 - 08:23

country flag Ofra wrote:

Is it possible to make the Wrap-over jacket longer and reach below the tummy? Would you mind writing an alteration to this pattern so I could knit it? Thanks in advance.

27.07.2023 - 19:34

DROPS Design answered:

Hi Ofra, At the moment there is just this shape in this particular pattern. But you can find other wrap-overs which are longer, if you search under Free Patterns. Happy crafting!

28.07.2023 - 06:52

country flag Iris Lüscher wrote:

Bonjour, je ne trouve pas le guide des tailles? A quoi correspond la taille S? Merci

29.04.2023 - 09:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lüscher, pour trouver votre taille, mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme, et comparez ces mesures à celles du schéma, ce sera la façon la plus simple de trouver votre taille. Retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!

02.05.2023 - 08:28

country flag Esther wrote:

Ik kan de plaatjes niet meer zien op de website, ik zou graag de tekening met maten willen terug zien

25.09.2021 - 22:17

country flag Lynn wrote:

Hi thank you for the reply to my question I just wanted to point out that it's the pattern that's incorrect. It says to increase at each end of every row on the sleeve cap but when I asked the question about why my sleeve cap was not measuring 14cm your reply was that the increase should be only on alternate rows. Frustrating as I have already pulled it out once here I go again!

30.05.2021 - 12:54

DROPS Design answered:

Dear Lynn, you will increase on each side, ie at the end of each row on each side ie on each side on every other row. You have to increase 14 times in total = a total of 28 rows in the largest size. Hope this will help. Happy knitting!

31.05.2021 - 08:25

country flag Lynn wrote:

Hi I am knitting the Ballet in Blue cardigan and am on the sleeve. It says in the pattern that when you have done the increases after the cast on when you get to 74 stitches the piece should measure approximately 14 cms from the cast on edge. Mine is nowhere near that and I've ripped it out and done it again and still nowhere near that! HELP! What am I doing wrong? Should i proceed in stockinette until it measures 14cm then join and knit in the round?

29.05.2021 - 21:56

DROPS Design answered:

Dear Lynn, from the 74 stitches I assume, you are making the largest size. If you add up the increases for the sleeve cap, by the time you get to 74 stitches, you should have knitted 28 rows (increasing in every other). If you keep the given gauge = 16 stitches and 20 rows = 10 X 10 cm, with 28 rows you should have about 14 cm length. Check your gauge. Happy Knitting.

29.05.2021 - 22:54

country flag Rosa wrote:

Non riesco a tradurre quello che c'è scritto, non mi dà l' opzione per la traduzione in italiano. Come posso fare? Grazie

09.04.2021 - 15:03

DROPS Design answered:

Buonasera Rosa, nel menù a tendina può scegliere la lingua della traduzione: a questo link trova il modello in italiano. Buon lavoro!

09.04.2021 - 18:04

country flag Margarete Nudel wrote:

Om jag vill sticka denna men utan puffärm - hur tänker jag då kring ökningarna?

30.01.2021 - 15:43

DROPS Design answered:

Hei Margarete. Istedenfor å øke til erme, fortsetter du å felle til ermet måler 47-47-47-45-45-43 cm fra der merketråden ble satt (det gjenstår ca 5 cm til ferdig mål, prøv eventuelt jakken/ermet på og strikk til ønsket lengde og følg resten av oppskriften. vmh DROPS design

01.02.2021 - 14:54

country flag Silvana wrote:

Non so usare i ferri circolari come posso fare x usare i diritti ? Grazie

28.12.2020 - 17:20

DROPS Design answered:

Buonasera Silvana, questo modello è lavorato in piano, può seguire le spiegazioni indicate. Buon lavoro!

28.12.2020 - 22:08