Virginia Watkins skrifaði:
I am making the medium and have come to divide between body and sleeves. I have 312 stitches. Having trouble though because division for sleeves seems to be right in the middle of A.1 and A.2. Is that correct?Thank you.
09.10.2019 - 21:33DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Watkins, in size M, you keep the first 8 sts in A.1 for back piece (the last 4 sts in A1 = sleeve and the first 4 sts in A.2 = sleeve), the last 8 sts in A.2 = front piece as well as the first 8 sts in A.1, and same for the 2nd sleeve: last 4 sts in A.1 + first 4 sts in A.2 = sleeve and last 8 sts in A.2 belong to the 2nd half back piece. Happy knitting!
10.10.2019 - 08:48
Inge skrifaði:
This one would be nice as a jacket!
05.08.2019 - 16:57
Lilli skrifaði:
Den bliver jeg nødt til at lave 💙🦋
14.07.2019 - 09:23
Abelia skrifaði:
Joli raglan, belle encolure, longueur comme j’aime. Dommage que la largeur des manches déséquilibre l’ensemble. L’originalité c’est bien mais pas au détriment de l’harmonie du modèle.
21.06.2019 - 00:01
I Jensen skrifaði:
Smuk krave, smuk raglan;)
12.06.2019 - 13:03
Sidewalk Café Sweater#sidewalkcafesweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-45 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 88 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 7,3. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 6. og 7. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1/A.2 (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. KRAGI: Fitjið upp 88-92-96-96-100-108 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með Alaska. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-12-12-12-16 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 76-80-84-84-88-92 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á stuttan hringprjón 6. Prjónið nú mynstur frá miðju að aftan þannig: Prjónið 5-6-7-7-8-9 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), A.1 yfir næstu 12 lykkjur, 4 lykkjur slétt (= hægri ermi), A.2 yfir næstu 12 lykkjur, 10-12-14-14-16-18 lykkjur slétt (= framstykki), A.1 yfir næstu 12 lykkjur, 4 lykkjur slétt (= vinstri ermi), A.2 yfir næstu 12 lykkjur, sléttar lykkjur yfir 5-6-7-7-8-9 lykkjur sem eftir eru. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur hringinn. JAFNFRAMT í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 27-29-31-33-35-37 sinnum = 292-312-332-348-368-388 lykkjur. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 34-36-38-40-42-44 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 40-43-46-48-51-54 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 66-70-74-78-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 80-86-92-96-102-108 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 66-70-74-78-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 40-43-46-48-51-54 lykkjur (= hálft bakstykki). Nú er fram- og bakstykki og ermar prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 172-184-200-208-224-236 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 18 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 32-36-36-40-44-44 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 204-220-236-248-268-280 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 61-63-65-67-69-71 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 66-70-74-78-82-86 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 6 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermum = 72-76-82-86-92-96 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi (= 3-3-4-4-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm byrjar úrtaka undir ermum – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6 sinnum, síðan með 6-6-3-2½-2-2 cm millibili 4-4-6-7-8-8 sinnum = 52-56-58-60-64-68 lykkjur. Þegar stykkið mælist 33-31-30-28-27-25 cm aukið út um 12-16-14-16-16-16 lykkjur jafnt yfir = 64-72-72-76-80-84 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 38-36-35-33-32-30 lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sidewalkcafesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-45
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.