Libby skrifaði:
Hi, I don’t quiet get the first increase rule. After 9 CO, 2 round of all K, then YO K4 YO K1 YO K4 YO?
24.12.2019 - 05:33DROPS Design svaraði:
Dear Libby, you will increase every other row (= every row from RS) as follows: knit 2, yo, work until middle stitch: yo, knit middle stitch, yo, knit until 2 sts remain, YO, knit 2. Continue like this until there are 57 sts on needle. Happy knitting!
02.01.2020 - 10:46
Ingrid Meyer skrifaði:
Bonjour, en regardant la photo du modèle en détail je ne retrouve pas les motifs que je suis en train de tricoter, est-ce possible que la photo ne corresponde pas aux explications? Merci Ingrid
06.10.2019 - 16:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Meyer, les diagrammes correspondent bien au modèle présenté, le châle se tricote de haut en bas, vérifiez ici comment lire les diagrammes. Bon tricot!
07.10.2019 - 09:48
Mara skrifaði:
Buongiorno, forse non interpreto correttamente i diagrammi... secondo me già a partire da A1-A2-A3 arrivati alla maglia centrale occorre procedere con A3-A2-A1 e non ripetere la sequenza A1-A2-A come indicato. Altrimenti il motivo non viene centrato. Giusto? Grazie
11.08.2019 - 13:09DROPS Design svaraði:
Buongiorno Mara. È corretto come indicato nel testo. In questo modo avrà una maglia gettata sia prima che dopo la maglia centrale. Buon lavoro!
11.08.2019 - 13:35
Orchydee skrifaði:
Je pense que sur le diagramme A3 il manque la maille jetée à tricoter torse pour avoir les 87 mailles😉😉😉
10.08.2019 - 16:43DROPS Design svaraði:
Bonjour Orchydée, on va augmenter 8 m dans chaque A.1 et 7 m seulement dans chaque A.3, on aura ainsi: 57 m + 2 x 8 + 2 x 7 = 87 m. Bon tricot!
12.08.2019 - 09:27
Christine Roderick skrifaði:
Beautiful shawl Present to myself I thnk
05.08.2019 - 13:41
Els Sielias skrifaði:
Vraagje 9 steken opzetten? Een ribbelsteeknaald,daarna gelijk het telpatroon??
13.07.2019 - 17:30DROPS Design svaraði:
Dag Els,
Ja, dat klopt! Je zet 9 steken op, breit 2 naalden recht (= 1 ribbel) en dan ga je verder met het patroon.
15.07.2019 - 13:28
Els Sielias skrifaði:
Vraagje 9 steken opzetten? Een ribbelsteeknaald,daarna gelijk het telpatroon??
13.07.2019 - 17:29
Anja skrifaði:
Was bedeutet der Edelstein auf dem Bild?
07.07.2019 - 22:16DROPS Design svaraði:
Liebe Anja, dieses Modell sieht man auf unserem . Viel Spaß beim stricken!
08.07.2019 - 10:37
PARAVY Aurore skrifaði:
Bonjour, je suis arrivée aux diagrammes A19 à A21. N'y aurait-il pas une erreur à partir du rang 7? Tous les surjets doubles ainsi que les mailles ensembles se font sur des rangs pairs alors que, jusqu'à présent, ils se faisaient sur les rangs impairs. Ne manquerait-il pas un rang jersey avant de faire les rangs ajourés ? Merci d'avance pour votre retour, cordialement
09.06.2019 - 13:50DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Paravy, le 7ème rang de A.19, A.20 et A.21 se tricotent sur l'endroit (commem tous les rangs impairs car le 1er rang du diagramme = sur l'endroit). Au 7ème rang, les 2 dernières mailles de A.19 sont indiquées dans A.20, les 2 dernières mailles de A.20 se tricotent comme les 2 premières m du A.20 suivant puis de A.21. Bon tricot!
11.06.2019 - 11:08
Micheline PAPILLON skrifaði:
Il y a une erreur sur le 23ème rang du diagramme A19-20-21. Il y a une maille en trop avant le surjet double. Je suis en train de le tricoter j'ai rectifier l'erreur de moi-même, mais il faudrait le corriger sur le diagramme si possible pour les autres tricoteuses. Merci pour tous vos jolis modèles et vos traductions. Cordialement.
06.06.2019 - 22:43DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Papillon, merci pour votre retour, les diagrammes vont être corrigés. Bon tricot!
07.06.2019 - 08:57
Lemon Heart#lemonheartshawl |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónað sjal úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og garðaprjóni.
DROPS 200-19 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING: Aukið út með uppslætti, uppslættirnir eru prjónaðir slétt í næstu umferð svo það myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.21. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón til að fá pláss fyrir allar lykkjur. Prjónað er ofan frá og niður með gatamynstri og útaukningu. SJAL: Fitjið upp 9 lykkjur á hringprjón 3 með med BabyAlpaca Silk. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið eitt prjónamerki í miðjulykkjuna. Prjónið síðan garðaprjón – JAFNFRAMT því sem aukið er út um 4 lykkjur í hverri umferð frá réttu þannig – sjá ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju innan við 2 kantlykkjur í hvorri hlið og 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkjuna. Aukið svona út þar til 57 lykkjur eru í umferð (þ.e.a.s. það eru 28 lykkjur hvoru megin við miðjulykkjuna). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan 2 kantlykkjur í hvorri hlið í garðaprjóni og miðjulykkju í sléttprjóni. Prjónið mynsturteikningu A.1-A.3 þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir 2 lykkjur, prjónið A.2 þar til 2 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju, prjónið A.3 yfir 2 lykkjur og prjónið miðjulykkju í sléttprjóni. Prjónið A.1 yfir 2 lykkjur, prjónið A.2 þar til eftir eru 4 lykkjur á prjóni, prjónið A.3 yfir 2 lykkjur og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 87 lykkjur í umferð. Prjónið mynsturteikningu A.4-A.6 þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.4 yfir 9 lykkjur, prjónið A.5 þar til 8 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (4 sinnum á breidd), prjónið A.6 yfir 8 lykkjur, prjónið miðjulykkju í sléttprjóni, prjónið A.4 yfir 9 lykkjur, prjónið A.5 þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð (4 sinnum á breidd). Prjónið A.6 yfir 8 lykkjur og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 111 lykkjur í umferð. Prjónið mynsturteikningu 2 sinnum til viðbótar á hæðina þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.4 yfir 9 lykkjur, A.5 er prjónað 6 sinnum á breiddina, A.6 yfir 8 lykkjur, prjónið miðjulykkju í sléttprjóni, A.4 yfir 9 lykkjur. A.5 er prjónað 6 sinnum á breiddina, A.6 yfir 8 lykkjur og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 135 lykkjur í umferð. Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.4 yfir 9 lykkjur, A.5 er prjónað 8 sinnum á breiddina, A.6 yfir 8 lykkjur, prjónið miðjulykkjuna í sléttprjóni, A.4 yfir 9 lykkjur, A.5 er prjónað 8 sinnum á breiddina, A.6 yfir 8 lykkjur og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 159 lykkjur í umferð. Prjónið mynsturteikningu A.7-A.9 þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.7 yfir 1 lykkju, prjónið A.8 þar til 1 lykkja er eftir á undan miðjulykkju, prjónið A.9 yfir 1 lykkju, prjónið miðjulykkju í sléttprjóni, prjónið A.7 yfir 1 lykkju, prjónið A.8 þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.9 yfir 1 lykkju og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 171 lykkjur í umferð. Prjónið mynsturteikningu A.10-A.12 þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.10 yfir 6 lykkjur, prjónið A.11 þar til 7 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (7 sinnum á breidd), prjónið A.12 yfir 7 lykkjur, prjónið miðjulykkju í sléttprjóni. Prjónið A.10 yfir 6 lykkjur, prjónið A.11 þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð (7 sinnum á breidd), prjónið A.12 yfir 7 lykkjur og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 231 lykkjur í umferð. Prjónið mynsturteikningu A.13-A.15 þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.13 yfir 6 lykkjur, prjónið A.14 þar til 7 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (10 sinnum á breidd), prjónið A.15 yfir 7 lykkjur, prjónið miðjulykkju í sléttprjóni. Prjónið A.13 yfir 6 lykkjur, prjónið A.14 þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð (10 sinnum á breidd), prjónið A.15 yfir 7 lykkjur og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 259 lykkjur í umferð. Prjónið mynsturteikningu A.16-A.18 þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.16 yfir 1 lykkju, prjónið A.17 þar til 2 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju, prjónið A.18 yfir 2 lykkjur, prjónið miðjulykkju í sléttprjóni. Prjónið A.16 yfir 1 lykkju, prjónið A.17 þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.18 yfir 2 lykkjur og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 291 lykkjur í umferð. Prjónið mynsturteikningu A.4-A.6 þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.4 yfir 9 lykkjur, prjónið A.5 þar til 8 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (21 sinnum á breidd), prjónið A.6 yfir 8 lykkjur, prjónið miðjulykkju í sléttprjóni. Prjónið A.4 yfir 9 lykkjur, prjónið A.5 þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð (21 sinnum á breidd), prjónið A.6 yfir 8 lykkjur og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 315 lykkjur í umferð. Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.4 yfir 9 lykkjur, prjónið A.5 þar til 8 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (23 sinnum á breidd), prjónið A.6 yfir 8 lykkjur, prjónið miðjulykkju í sléttprjóni. Prjónið A.4 yfir 9 lykkjur, prjónið A.5 þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð (23 sinnum á breidd), prjónið A.6 yfir 8 lykkjur og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Nú eru 339 lykkjur í umferð. Prjónið mynsturteikningu A.19-A.20 þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.19 yfir 5 lykkjur, prjónið A.20 þar til 6 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (13 sinnum á breidd), prjónið A.21 yfir 6 lykkjur, prjónið miðjulykkju í sléttprjóni. Prjónið A.19 yfir 5 lykkjur, prjónið A.20 þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð (13 sinnum á breidd), prjónið A.21 yfir 6 lykkjur og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 411 lykkjur í umferð. Prjónið mynsturteikningu A.13-A.15 þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.13 yfir 6 lykkjur, prjónið A.14 þar til 7 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (19 sinnum á breidd), prjónið A.15 yfir 6 lykkjur, prjónið miðjulykkju í sléttprjóni. Prjónið A.13 yfir 6 lykkjur, prjónið A.14 þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð (19 sinnum á breidd), prjónið A.15 yfir 7 lykkjur og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 439 lykkjur í umferð. Prjónið nú áfram þannig: * Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur fram að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið miðjulykkju í sléttprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur fram þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu *. Prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Í næstu umferð frá réttu er fellt laust af. Til að kanturinn verði ekki stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju, uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lemonheartshawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 200-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.