Rose Marie Bilodeau skrifaði:
Super j'ai justement du moair 200g qui conviendrait
30.01.2019 - 01:32
Margaretha skrifaði:
Skulle gärna vilja se en bättre bild, så man ser modellen
29.01.2019 - 15:22
Britt skrifaði:
Dårlig bilde ser ikke hele genseren, men interesert på grun av hals og garn
29.01.2019 - 14:01
Sysab skrifaði:
Superbe modèle , comment obtenir les explications?
28.01.2019 - 00:22
Sirpa skrifaði:
Juuri tällaisen haluaisin tehdä. Mistä löydän ohjeen tähän?
20.01.2019 - 13:45
MercuryRain skrifaði:
Very Pretty!
12.01.2019 - 19:14
White Feather#whitefeathersweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-43 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka. Framstykkið skiptist við op við miðju framan við hálsmál og héðan er prjónað í 2 hlutum upp að öxlum. Ermar eru prjónaðar fram og til baka. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 62-68-72-78-86-92 lykkjur á prjón 8 með Melody. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan í sléttprjóni með 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm í öllum stærðum er haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm. Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 28-31-33-36-40-43 lykkjur, garðaprjón yfir næstu 6 lykkjur og sléttprjón yfir síðustu 28-31-33-36-40-43 lykkjur. Prjónið þar til prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir 6 miðju lykkjur. Nú á að skipta stykkinu upp við miðju þannig að það myndist op í hálsmáli, setjið helming af lykkjum á þráð. Héðan er hægra og vinstri hluti á framstykki prjónaður hvor fyrir sig = 31-34-36-39-43-46 lykkjur í hvorum hluta. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið sléttprjón með 3 lykkjum í garðaprjóni að miðju þar til stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm. Fellið nú af fyrir handveg í hlið í hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 0-1-2-2-3-3 sinnum og 1 lykkja 4-3-2-1-2-3 sinnum. Nú eru 24-26-27-28-29-31 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón með 3 lykkjum garðaprjón að miðju þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm og næsta umferð er frá réttu. Nú á að setja lykkjur á þráð og fækka lykkjum fyrir hálsmáli við miðu að framan þannig: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón og 3 lykkjur sléttprjón, setjið síðan þessar 6 lykkjur á þráð. Prjónið út umferðina og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Fellið síðan af lykkjur í annarri hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni, fellið af 1 lykkju 3-3-3-4-4-4 sinnum. Nú eru 13-15-16-16-17-19 lykkjur á prjóni fyrir öxl. Fellið af allar lykkjur þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið sléttprjón með 3 lykkjur í garðaprjóni að miðju þar til stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm. Fellið nú af fyrir handvegi í hlið í hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 0-1-2-2-3-3 sinnum og 1 lykkja 4-3-2-1-2-3 sinnum. Nú eru 24-26-27-28-29-31 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón með 3 lykkjur garðaprjón að miðju þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm og næsta umferð er frá röngu. Nú á að setja lykkjur á þráð og fækka lykkjum fyrir hálsmáli við miðu að framan þannig: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón og 3 lykkjur sléttprjón, setjið síðan þessar 6 lykkjur á þráð. Prjónið sléttprjón út umferðina og prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Fellið síðan af lykkjur í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni, fellið af 1 lykkju 3-3-3-4-4-4 sinnum. Nú eru 13-15-16-16-17-19 lykkjur á prjóni fyrir öxl. Fellið af allar lykkjur þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm. BAKSTYKKI: Prjónið eins og framstykki (nema án þess að skipta stykkinu upp fyrir op) þar til stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm. Nú eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli fyrir miðju frá réttu þannig: Prjónið 14-16-17-17-18-20 lykkjur sléttprjón (hægri öxl), fellið af næstu 20-20-20-22-22-22 lykkjur og prjónið 14-16-17-17-18-20 lykkjur sléttprjón (vinstri öxl). Snúið og prjónið brugðið yfir fyrstu 14-16-17-17-18-20 lykkjur, snúið og prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 13-15-16-16-17-19 lykkjur. Snúið og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum í næstu umferð frá réttu. Vinstri öxl er nú tilbúin. Klippið frá, nú á að prjóna og fækka lykkjum á hægri öxl, lykkjurnar eru enn á prjóni. Byrjið frá röngu, prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Snúið og prjónið sléttar lykkjur frá réttu þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman. Snúið og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Snúið og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Hægri öxl er nú tilbúin. ERMI: Fitjið upp 36-38-40-42-44-46 lykkjur á prjón 6 með Melody. Prjónið stroff fram og til baka með 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið þar til stykkið mælist 8 cm í öllum stærðum. Skiptið yfir á prjón 8, prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 12 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 48-50-52-54-56-58 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í sléttprjóni þar til stykkið mælist 14 cm. Fækkið nú um 1 lykkju í hvorri hlið með því að prjóna 2 ystu lykkjurnar slétt saman frá réttu. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 27-27-26-26-25-24 og 40-40-38-38-36-34 cm = 42-44-46-48-50-52 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist 51-50-49-48-46-44 cm. Fellið nú af fyrir ermakúpu í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig: 3 lykkjur 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 2-1-2-2-3-3 sinnum og 1 lykkja 3-3-3-2-3-4 sinnum. Fellið síðan af allar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma, saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið kant í kringum hálsmál, byrjið með að setja lykkjur frá hægra framstykki á prjón 8 án þess að prjóna yfir þessar lykkjur, prjónið upp ca 50-58 lykkjur í kringum hálsmál, setjið lykkjur af vinstra framstykki á prjón og prjónið yfir þessar lykkjur. Nú eru ca 62-70 lykkjur í umferð. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af í næstu umferð frá réttu, klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið ermar í, saumið kant í kant með smáu spori. Saumið saum undir ermum: Byrjið við stroffið og saumið upp að handveg, síðan er hliðarsaumur saumaður þar til eftir eru 12 cm neðst niðri fyrir klauf. Endurtakið á hinni erminn og meðfram hinni hliðinni. Klippið frá og festið enda. TVINNUÐ SNÚRA: Klippið 2 þræði ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Í hvorum enda á snúru eru festar 3 smáar tréperlur, hnýtið hnút í enda þannig að snúran haldist tvinnuð og perlurnar séu fastar. Í enda á snúru á að gera litla skúfa sem eru gerðir þannig: Klippið 8 þræði ca 20 cm, leggið þræðina saman og brjótið uppá fyrir miðju. Hnýtið þá saman með þræði ca 1-2 cm neðan við uppábrotið. Festið skúfinn með því að þræða snúruna í gegnum lykkjurnar í toppi á skúfi og gerði hnút. Að lokum eru snúrunar festar yst í hvora hlið á kanti í hálsmáli við miðju að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whitefeathersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-43
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.