Lacassin skrifaði:
Bonjour je ne comprend pas l'histoire des augmentation pour le col en v. Je fais 2 augmentation puis 3 puis 10 et ainsi de suite jusqu'à la fin de mon col v? 10 me semble assez important. Merci d'avance
09.10.2021 - 20:56DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lacassin, vous augmentez pour l'encolure V 1 seule maille à chaque fois (= de chaque côté, autrement dit 2 mailles par rang): 2 fois tous les 6 rangs = augmentez 1 m sur chaque devant, tricotez 5 rangs, augmentez 1 m sur chaque devant. Puis 10 x tous les 4 rangs: *augmentez 1 m de chaque côté, tricotez 3 rangs*, répétez de *-* 9 fois puis augmentez 1 m de chaque côté; et enfin augmentez aux 3 rangs sur l'endroit suivant (= tricotez 1 rang sur l'envers, augmentez au rang suivant sur l'endroit) répétez 3 fois de (à). Bon tricot!
11.10.2021 - 07:32
Paola Pastore skrifaði:
Buongiorno fate dei modelli bellissimi . Purtroppo io lavoro coi 2 ferri e quindi non mi trovo mai con le speigazioni. Peccato. Come potete aiutarmi? Grazie
19.02.2020 - 12:00DROPS Design svaraði:
Buongiorno Paola. A questa pagina trova indicazioni utili per adattare un modello ai ferri dritti. In linea generale, modelli aperti (p.es cardigan), anche se lavorati con i ferri circolari, possono essere adattati facilmente ad una lavorazione in piano e in parti separate. Per ogni ulteriore aiuto, può contattare il suo rivenditore Drops di fiducia. Buon lavoro!
19.02.2020 - 16:17
Asmaa skrifaði:
Hi i hope you all very well 😘 🌼 the pattern says :: ((( increase for V-NECK in each side towards mid front – read explanation above, as follows: Increase every 6th row 2 times in total, every 4th row 10-13-13-13-14-15 times in total and every other row 3-0-1-1-1-0 times in total (= 15-15-16-16-17-17 stitches in total increased in each side towards mid front))) i didn't make v neck sweaters before so i don't understand this part
09.06.2019 - 04:44DROPS Design svaraði:
Dear Asmaa, you work the increases for neck (inside the garter stitch edge on each side - see section V-NECK at the beg. of the pattern): start to increase for V-neck on 6th row from beginning (= 3rd row from RS = at the same time you will increase the 3rd time for raglan), and repeat these increases 1 more time every 6th row then every 4th row 10-13-13-13-14-15 times in total and every other row 3-0-1-1-1-0 times in total (= a total of 15-15-16-16-17-17 stitches will have to be increased on each front piece). Happy knitting!
11.06.2019 - 10:50
Aljona skrifaði:
Jätte fin !!!! Önskar sånt
01.02.2019 - 23:27
Christine skrifaði:
Très bel effet de manches !
13.01.2019 - 22:19
Anett skrifaði:
Schönes Modell!
05.01.2019 - 09:46
Beck skrifaði:
Super gilet pour les soirée d’été et belles manches
12.12.2018 - 12:45
Hamptons Holiday Jacket#hamptonsholidayjacket |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með blöðruermum úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, V-hálsmáli og röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-10 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Það eru auknar út alls 8 lykkjur í hverri útauknings umferð. V-HÁLSMÁL: Öll útaukning er gerð frá réttu! Sláið 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 1 lykkja fleiri) í hvorri hlið. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Auknar eru út alls 2 lykkjur í hverri útauknings umferð. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 198 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 38) = 5,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð 4. og 5. hver lykkja saman. ÚTAUKNING (á við um ermi): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. RENDUR (á við um ermar): 1½ cm með hvítur. 2 cm með ljós mynta. 1½ cm með hvítur. 2 cm með ljós mynta. 7 cm með hvítur. 2 cm með ljós mynta. 1½ cm með hvítur. Prjónið síðan með ljós mynta til loka. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu (fellt er af fyrir hnappagötum á hægri kanti að framan) þannig: 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu 2-2-3-4-3-4 cm frá neðri kanti á peysu. Fellið síðan af fyrir 4-4-4-4-5-5 næstu hnappagötum með ca 7-7-7-7-6-6 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. Síðan er kantur að framan/í hálsi prjónaður meðfram öllum kanti við miðju að framan. BERUSTYKKI: Fitjið upp 64-64-70-70-76-76 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4 með litnum ljós mynta. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Fyrsta prjónamerkið er sett á eftir fyrstu 3-3-3-3-3-3 lykkjur (= framstykki), 2. prjónamerki er sett eftir næstu 12-12-14-14-16-16 lykkjur (= ermi), 3. prjónamerki er sett eftir næstu 34-34-36-36-38-38 lykkjur (= bakstykki) og 4. prjónamerki er sett eftir næstu 12-12-14-14-16-16 lykkjur (= ermi), nú eru 3-3-3-3-3-3 lykkjur eftir síðasta prjónamerki (= framstykki). Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið við miðju að framan – JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) þar til aukið hefur verið út alls 28-31-32-36-38-42 sinnum hvoru megin við 4 prjónamerkin. JAFNFRAMT í 6. umferð (þ.e.a.s. í 3. umferð frá réttu) er aukið út fyrir V-HÁLSMÁLI í hvorri hlið við miðju að framan – sjá útskýringu að ofan, þannig: Aukið út í 6. hverri umferð alls 2 sinnum, í 4. hverri umferð alls 10-13-13-13-14-15 sinnum og í annarri hverri umferð alls 3-0-1-1-1-0 sinnum (= alls 15-15-16-16-17-17 lykkjur fleiri í hvorri hlið við miðju að framan). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu er prjónað áfram án útaukninga þar til stykkið mælist 20-22-23-26-27-31 cm, en haldið áfram með útaukningu fyrir V-hálsmáli eins og áður. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið að fyrsta prjónamerki, prjónið 0-0-1-2-4-6 lykkjur á eftir prjónamerki (= framstykki), setjið næstu 68-74-76-82-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-12-12-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 90-96-102-112-122-134 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 68-74-76-82-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-12-12-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið fram að prjónamerki (= 0-0-1-2-4-6 lykkjur) og prjónið þær lykkjur sem eftir eru í umferð (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Haldið áfram með sléttprjón, 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu) og útaukningu fyrir V-hálsmál eins og áður. Þegar útaukningu fyrir V-hálsmáli er lokið eru 198-214-230-250-270-302 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 4-4-4-2-2-1 cm frá skiptingu (V-kraginn mælist ca 24-26-27-28-29-30 cm frá öxl). Haldið áfram með sléttprjón og 1 kantlykkju að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 29-29-30-28-29-27 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 38-42-46-50-54-62 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 236-256-276-300-324-364 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með hringprjón 4. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. ERMI: Setjið 68-74-76-82-84-88 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-12-12-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 76-84-88-94-96-104 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-10-12-12-12-16 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað síðar þegar auka á út. Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 7 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½-3-2½-3-2½-3 cm millibili alls 12-10-11-10-11-9 sinnum = 100-104-110-114-118-122 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 19-17-17-15-14-12 cm prjónið RENDUR – sjá útaukning að ofan. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 42-40-40-38-37-34 cm frá skiptingu – eða að óskaðri lengd (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 4-0-6-2-6-2 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 96-104-104-112-112-120 lykkjur. Prjónið 1 umferð þar sem lykkjurnar eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 48-52-52-56-56-60 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með hringprjón 4. Prjónið hina ermina á sama hátt. KANTUR AÐ FRAMAN/Í HÁLSMÁLI: Setjið 1 prjónamerki mitt aftan í hnakka á bakstykki, prjónamerkið er notað síðar þegar talinn er helmingur af lykkjum í kanti að framan/kantur í hálsmáli. Byrjið neðst niðri á hægra framstykki frá réttu og prjónið upp ca 161-169-177-185-189-193 lykkjur (deilanlegar með 4 + 1) meðfram öllum kanti að framan og upp að prjónamerki í hnakka, á hringprjón 3 með litnum ljós mynta – látið prjónamerkið sitja hér. Haldið áfram að prjóna upp ca 161-169-177-185-189-193 lykkjur (deilanlegar með 4 + 1) meðfram öllum kanti að framan niður að kanti á vinstra framstykki = 322-338-354-370-378-386 lykkjur. ATH: Ef prjónaðar eru upp fleiri eða færri lykkjur en þetta er lykkjufjöldinn jafnaður út í fyrstu umferð – jafnið út lykkjur á sama hátt hvoru megin við prjónamerki í hnakka. Mikilvægt er að stroffið verði ekki of laust og með of mörgum lykkjum, en það má heldur ekki herða á kanti að framan með of fáum lykkjum. Næsta umferð er prjónuð frá röngu: 2 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 2 lykkjum garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stroffið mælist 1 cm er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til stroffið mælist 2 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með hringprjón 4. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #hamptonsholidayjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.