C Flaherty skrifaði:
I did this pattern but I substituted the seed stitch instead of the garter stitch and it came out beautiful. I may do another one but this time I will substitute the bee stitch which I just fond on line.
13.11.2019 - 12:32
Carol A Flaherty skrifaði:
Is the final row of the sleeves suppose to be bound off or is it to be included in the shoulder neck area.
12.11.2019 - 18:49DROPS Design svaraði:
Hi Carol, The remaining stitches are bound off. Happy knitting!
13.11.2019 - 07:09
FAdeuilhe Doris skrifaði:
Bonjour, je souhaiterais faire ce modele avec un col roulé? pourriez-vous m'aider SVP? merci
08.10.2019 - 17:56DROPS Design svaraði:
Bonjour! Vous devez monter le nombre de mailles comme dans les explications, ensuite tricotez 1 tour envers et quelques tours endroit (plus de tours que dans les explications). Bon tricot!
08.10.2019 - 18:31
Unni Korneliussen skrifaði:
Hei. Har kjøpt garn til Jolina topp i Kid slik. Synes det blir litt for tynt for meg. Kan jeg strikke den med dobbel tråd? Hvor mye må jeg da redusere masketallet i str.m? Mvh Unni Korneliussen
03.07.2019 - 11:26DROPS Design svaraði:
Hej Unni. Vi har dessvärre inte möjlighet att räkna om oppskrifter. Vill du sticka i dubbel tråd kidsilk kan du ser på våra oppskrifter i garngrupp C (A+A), som t.ex den här. Kom ihåg att se till så att stickfastheten stämmer. Lycka till!
03.07.2019 - 12:02
Maria F skrifaði:
Har en fråga. Det står: Lägg upp 87-95-109-119-133-149 maskor (inklusive 1 kantmaska i varje sida) på rundsticka 3,5 med 2 trådar Kid Silk (detta görs för att undvika att uppläggningskanten stramar). Ta bort den ena tråden och sticka sedan med 1 tråd Kid Silk Vad menas med att ta bort den ena tråden?
20.05.2019 - 09:26DROPS Design svaraði:
Hei Maria. Det vil si at du legger opp med 2 tråder, men når du begynner å strikke gjøres dette kun med 1 tråd. Den andre tråden kan du klippe, og etterhvert feste. God fornøyelse
20.05.2019 - 13:41
Mari-Liis Soovik skrifaði:
Juhendis on kirjas, et "koo järgmine rida töö paremal pool järgmiselt: koo 3-3-2-3-2-2 nööbiliistusilmust ripskoes, koo skeemi A.1 (= 4 silmust), skeemi A.2 kuni jääb 8-8-7-8-7-7 silmust reale (= 9-10-12-13-15-17 mustrikordust 8 silmusega), koo skeemi A.3 (= 5 silmust), lõpus tee 3-3-2-3-2-2 nööbiliistusilmust ripskoes." Milleks kududa nööbiliistusilmuseid, kui sellel kudumil pole nööbiliistu?
09.04.2019 - 13:34DROPS Design svaraði:
Tere Mari-Liis! Tegemist on ääresilmustega. Viga parandatud. Tänan teatamast! Head kudumist!
12.09.2019 - 14:12
Charmaine skrifaði:
It reminds me of "arabian nights".
15.02.2019 - 10:14
Mila G. skrifaði:
Hallo, ich finde das Modell wunderschön! Nur, ich möchte wissen, wo die gelbe Farbe Kid Silk zu beziehen ist, ich finde sie auch in der Farbkarte nicht...🤔🙄 Danke!
04.02.2019 - 16:05
Jolina Top#jolinatopsweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROP Kid-Silk. Stykkið er prjónað í garðaprjóni með gatamynstri og ¾ löngum blöðruermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 200-22 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um hliðar á ermum): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju og prjónið 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í hlutum, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman. Síðan er prjónaður kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 87-95-109-119-133-149 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3,5 með 2 þráðum Kid-Silk (þetta er gert til að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði stífur). Takið frá annan þráðinn og prjónið síðan með 1 þræði Kid Silk þannig: Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 3-3-2-3-2-2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 4 lykkjur), prjónið A.2 þar til eftir eru 8-8-7-8-7-7 lykkjur í umferð (= 9-10-12-13-15-17 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.3 (= 5 lykkjur) og endið með 3-3-2-3-2-2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til prjónaðar hafa verið 3 einingar á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið mælist nú ca 9 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið síðan garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 10 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4-4-6-6-8-8 cm millibili alls 4-4-3-3-3-3 sinnum í hvorri hlið = 95-103-115-125-139-155 lykkjur. Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, fellið af lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg. Þ.e.a.s. fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3-4-6-6-7-7 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, 2 lykkjur 0-1-1-2-2-3 sinnum í hvorri hlið og síðan 1 lykkja 2-2-5-6-10-15 sinnum í hvorri hlið = 85-87-89-93-97-99 lykkjur eftir í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm. Felið nú af miðju 35-35-37-37-39-39 lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi = 23-24-24-26-27-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu og 2 þráðum Kid-Silk. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 87-95-109-119-133-149 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3,5 með 2 þráðum Kid-Silk. Takið frá annan þráðinn og prjónið síðan með 1 þræði Kid-Silk þannig: Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 3-3-2-3-2-2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 4 lykkjur), prjónið A.2 þar til eftir eru 8-8-7-8-7-7 lykkjur í umferð (= 9-10-12-13-15-17 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.3 (= 5 lykkjur) og endið með 3-3-2-3-2-2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til prjónaðar hafa verið alls 3 einingar á hæðina. Stykkið mælist nú ca 9 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið síðan garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 10 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4-4-6-6-8-8 cm millibili alls 4-4-3-3-3-3 sinnum í hvorir hlið = 95-103-115-125-139-155 lykkjur. Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, fellið af í hvorri hlið fyrir handveg. Þ.e.a.s. fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3-4-6-6-7-7 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, 2 lykkjur 0-1-1-2-2-3 sinnum í hvorri hlið og síðan 1 lykkja 2-2-5-6-10-15 sinnum í hvorri hlið = 85-87-89-93-97-99 lykkjur eftir í umferð. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm. Setjið nú miðju 15-15-17-17-19-19 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3 sinnum og síðan 1 lykkja 3 sinnum = 23-24-24-26-27-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu og 2 þráðum Kid-Silk. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 56-58-60-62-64-66 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3 með 2 þráðum Kid-Silk. Takið frá annan þráðinn og prjónið síðan með 1 þræði Kid-Silk þannig: Prjónið 10 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju í hverja lykkju með því að prjóna sléttar lykkjur bæði framan í og aftan í allar lykkjur í umferð = 112-116-120-124-128-132 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 5 cm, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 1½ cm millibili þar til fækkað hefur verið alls 18-17-16-15-14-14 sinnum í hvorri hlið = 76-82-88-94-100-104 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 33-33-31-31-30-28 cm. Fellið nú af í hvorri hlið fyrir ermakúpu. Þ.e.a.s. fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, 2 lykkjur 3-3-5-6-6-6 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkja 3-4-6-7-9-16 sinnum í hvorri hlið. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 37-38-38-39-39-40 cm. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið og fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru með sléttum lykkjum frá réttu og 2 þráðum Kid-Silk. Ermin mælist ca 38-39-39-40-40-41 cm ofan frá og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Saumið ermar í – saumið í ystur lykkju meðfram handveg. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 104 til 116 lykkjur í kringum háls (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 3 með 1 þræði Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum og 2 þráðum Kid-Silk. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #jolinatopsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 200-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.