Lisbeth Friberg skrifaði:
Sommerflørt,nydelig
11.02.2019 - 09:30
Aljona skrifaði:
Jätte vacker !
01.02.2019 - 23:30
Jutta skrifaði:
Very nice.........and the length can be adjusted easilz in case one wants a longer piece
30.01.2019 - 11:38
Helene skrifaði:
Ein hübscher Rock ganz mein Stil Name: Sanddüne
25.01.2019 - 17:59
Anne skrifaði:
Super, mal einen Neuen Rock stricken, das wäre super !
21.01.2019 - 21:06
Anja M. skrifaði:
Hübsches Muster!
10.01.2019 - 11:10
Anneli skrifaði:
Mul on plaan see kududa.
14.12.2018 - 12:09
Claudine skrifaði:
Bravo pour ce modèle. Serait-il possible d'avoir déjà maintenant les explications ? D'avance merci.
14.12.2018 - 07:06
Cable Waterfall#cablewaterfallskirt |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónað pils úr DROPS Cotton Light. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með köðlum og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-46 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. A.5 á einungis við um stærð XXXL. LEIÐBEININGAR: Allur lykkjufjöldi sem er gefinn upp þegar kaðlar og gatamynstur er prjónað í pilsi, tekur mið að því að það séu 3 lykkjur í litlu köðlunum, en athugið að lykkjufjöldinn í litlu köðlunum breytist á milli 3 og 2 lykkjur alla leiðina til loka máls og þetta kemur til með að hafa áhrif á lykkjufjölda í umferð. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 184 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 15,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 15. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu í brugðnu einingunum): Aukið út um 1 lykkju í brugðinni einingu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur brugðið. ATH: Það er fallegast ef þú eykur út til skiptis í byrjun og í lok brugðinnar einingar (ekki mitt í). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PILS – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Fyrst er prjónaður faldur fyrir saum í sléttprjóni til að þræða teygjuna í gegn. Síðan er afgangur af pilsinu prjónaður í köðlum og gatamynstri. FALDUR FYRIR SAUM: Fitjið upp 160-184-206-232-256 lykkjur á hringprjón 3 með Cotton Light. Prjónið sléttprjón í 2 cm fyrir fald fyrri saum. Prjónið 1 umferð brugðið (= uppábrot). Prjónið sléttprjón í 2 cm. Prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-12-0-2-0 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 168-196-206-234-256 lykkjur. Prjónið síðan pils eins og útskýrt er að neðan. PILS: Skiptið yfir á hringprjón 4. Fyrsta umferð er prjónuð þannig: STÆRÐ S/M, L, XL og XXL: * Prjónið 1-1-6-6 lykkjur brugðið, A.1 (= 8 lykkjur), A.2 (= 15-19-19-23 lykkjur), A.1 (= 8 lykkjur), A.3 (= 21-27-27-33 lykkjur), A.4 (= 8 lykkjur), A.2 (= 15-19-19-23 lykkjur) og A.4 (= 8 lykkjur) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. STÆRÐ XXXL: * Prjónið A.5 (= 3 lykkjur), 7 lykkjur brugðið, A.1 (= 8 lykkjur), A.2 (= 23 lykkjur), A.1 (= 8 lykkjur), A.3 (= 33 lykkjur), A.4 (= 8 lykkjur), A.2 (= 23 lykkjur), A.4 (= 8 lykkjur) og 7 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. ALLAR STÆRÐIR: Haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er að ofan og lesið LEIÐBEININGAR! Þegar stykkið mælist 8 cm frá uppábroti, er aukið út um 1 lykkju í annarri hverri brugðinni einingu í umferð – sjá ÚTAUKNING-2 (= 15-15-15-15-16 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 12 cm frá uppábroti, en nú er aukið út í brugðnu einingunum þar sem ekki var aukið út síðast = 198-226-236-264-288 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 lykkju fleiri í hverri brugðinni einingu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16 cm frá uppábroti, aukið út um 1 lykkju í annarri hverri brugðinni einingu (= 15-15-15-15-16 lykkjur fleiri). Þegar stykkið mælist 22-22-22-23-23 cm, aukið út um 1 lykkju í þeim brugðnu einingum sem eftir eru (= 15-15-15-15-16 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri brugðinni einingu með 6-6-6-7-7 cm millibili þar til aukið hefur verið út 2 sinnum til viðbótar í hverri brugðinni einingu (alls 4 sinnum meðtaldar útaukningar í brugðnu einingunum í byrjun á pilsi) = 288-316-326-354-384 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 48-51-53-55-57 cm frá uppábroti efst á pilsi (eða að óskaðri lengd, nú er eftir ca 1 cm til loka). Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn yfir allar lykkjurnar – sjá útskýringu að ofan. Skiptið til baka yfir á hringprjón 4 og fellið af með sléttum lykjum (fellt er af með grófari prjónum til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur). Pilsið mælist ca 49-52-54-56-58 cm frá uppábroti og niður. FRÁGANGUR: Brjótið fald fyrir saum að röngu og saumið fallega niður, en skiljið eftir smá op til að þræða teygjunni í gegn. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cablewaterfallskirt eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-46
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.