Isabell Klein skrifaði:
Habe ein Problem bei der Anleitung Vorderteil: nachdem der Markierer gesetzt wurde 27 cm stricken. Das sind bei 23 R= 10cm 62 Reihen. Je eine Masche am Anfang und Ende in jeder 2. 44M abgenommen-=Reihe abnehmen= 62M. 123 M-62M = 61M. Laut Anleitung aber ca.79M. Das wären aber nur 19cm. Was sehe ich falsch?
15.02.2019 - 17:24DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Klein, in die Grösse XXL stricken Sie von 54 cm bis 73 cm in die Strickrichting (27 cm für die Schulter sind im Diagonal gemessen) = 19 cm = 44 Reihen = 44 M abgenommen. Es waren 123 M - 44 = 79 M. Viel Spaß beim stricken!
19.02.2019 - 08:44
Olivia skrifaði:
Bellissimo! Finalmente un asimmetrico!
12.02.2019 - 20:24
Valeria skrifaði:
Buongiorno, questo lavoro è stupendo! E' possibile avere la traduzione in italiano? Grazie
12.02.2019 - 11:23DROPS Design svaraði:
Buongiorno Valeria. La traduzione arriverà presto. Buon lavoro!
12.02.2019 - 11:30
Raven#ravensweater |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Big Delight. Stykkið er prjónað í vinkil í garðaprjóni og röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 195-26 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. RENDUR: * Prjónið 2 umferðir slétt með gráum, prjónið 2 umferðir slétt með myntusúkkulaði *, prjónið frá *-*. Fyrsta umferð í hverri rönd er alltaf prjónum frá réttu. Þræðirnir fylgja með í stykkinu í hlið, en passið uppá að fylgiþræðirnir herði ekki á stykkinu. OPIÐ GARÐAPRJÓN: Prjónið 2 umferðir garðaprjón (fyrsta umferð = rétta) með gráum. Prjónið 2 umferðir sléttprjón með myntusúkkulaði. Endurtakið þessar 4 umferðir. ÚRTAKA (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju á eftir 2 lykkjum þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið um 1 lykkju á undan 2 lykkjum þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur eins og áður. ÚTAUKNING (á við um laskalínu): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út með því að slá uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. Aukið svona út hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp, með garðaprjóni, hvort fyrir sig. Það er byrjað í einu horninu og lykkjur auknar út fyrir breidd á neðri kanti, síðan er lykkjum fækkað og aukið út fyrir öxl, hálsmáli og hlið. Vinstri ermi er prjónuð fram og til aka í opnu garðaprjóni ofan frá og niður. Hægri ermi er prjónuð fram og til baka ofan frá og niður, fyrst með garðaprjóni, síðan í opnu garðaprjóni. Ermar eru saumaðar á í lokin. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 3 lykkjur á hringprjón 8 með Big Delight. Prjónið 1 umferð slétt (= frá röngu). Prjónið síðan RENDUR – sjá útskýringu að ofan og aukið út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja garðaprjón = 5 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur, uppsláttur er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt! UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið garðaprjón þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja garðaprjón (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt! Prjónið síðan umferð 3 og 4. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 55-59-63-68-74-80 cm mælt meðfram síðustu lykkju frá réttu (= neðri kantur). Stykkið mælist ca 39-42-45-48-52-57 cm, mælt frá horni (= uppfitjunarkanturinn) í prjónstefnu. Nú eru ca 93-99-107-113-123-133 lykkjur í umferð. Breiddin og hæðin hefur nú verið prjónað til loka í stærð XXXL, á meðan það vantar 13-11-9-6-2 cm á hæðina í hinum stærðunum. STÆRÐ S-M-L-XL-XXL: Prjónið nú þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið garðaprjón þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 1 lykkja garðaprjón. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur, uppslátturinn er ekki prjónaður núinn, það eiga að myndast göt! Þ.e.a.s. lykkjufjöldinn verður sá sami (þetta er gert til að stykkið væri hærra en ekki breiðara): Prjónið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76 cm mælt meðfram fyrstu lykkju frá réttu (= hæð á flíkinni). Stykkið mælist ca 48-50-52-52-54-57 cm frá horni (= uppfitjunarkantur) í prjónstefnu. ALLAR STÆRÐIR: = 93-99-107-113-123-133 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju frá réttu. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið garðaprjón þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju garðaprjón (= 2 lykkjur færri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt. Gerð er öxl í byrjun á umferð og hæð í hlið á stykki í lok umferðar frá réttu. Prjónið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 17-19-21-24-27-30 cm frá prjónamerki (mælt í hlið meðfram fyrstu lykkju frá réttu = vinstri öxl). Stykkið mælist ca 60-64-67-69-73-78 cm frá horni (= uppfitjunarkanti) í prjónstefnu. Nú eru ca 65-67-73-73-79-85 lykkjur í umferð. Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið 3 lykkjur garðaprjón, setjið þær síðan á 1 band (= 5 lykkjur settar á þráð), fellið af næstu 16 lykkjur í garðaprjóni (= fyrir hálsmáli), prjónið garðaprjón þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og endið með 1 lykkju garðaprjón = ca 42-44-50-50-56-62 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og endið með 1 lykkju garðaprjóni. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt. Prjónið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 10-10-11-11-13-14 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir hálsmáli, mælt í prjónstefnu og ca 70-74-77-79-81-88 cm frá horni (= uppfitjunarkantur) í prjónstefnu. Nú eru ca 31-33-38-38-41-46 lykkjur í umferð. Fellið lykkjur af með sléttum lykkjum. Setjið til baka 5 lykkjur af þræði á hringprjón 8. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= frá röngu): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= frá réttu): Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) = 3 lykkjur. UMFERÐ 3 (= frá röngu): Prjónið slétt. UMFERÐ 4: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman = 1 lykkja. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjuna. Festið enda. BAKSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og framstykki þar til stykkið mælist 55-59-63-68-74-80 cm mælt meðfram fyrstu lykkju frá réttu. Stykkið mælist ca 39-42-45-48-52-57 cm mælt frá horni (= uppfitjunarkantur) í prjónstefnu. Nú eru ca 93-99-107-113-123-133 lykkjur í umferð. Breiddin og hæðin hefur nú verið prjónað til loka í stærð XXXL, á meðan það vantar 13-11-9-6-2 cm á hæðina í hinum stærðunum. STÆRÐ S-M-L-XL-XXL: Prjónið nú þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið garðaprjón þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja færri), 1 lykkja garðaprjón. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt! Þ.e.a.s. lykkjufjöldinn verður sá sami Prjónið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76 cm mælt meðfram fyrstu lykkju (= hæð á flík). Stykkið mælist ca 48-50-52-52-54-57 cm frá horni (= uppfitjunarkantur) í prjónstefnu. ALLAR STÆRÐIR: = 93-99-107-113-123-133 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið garðaprjón þar til eftir eru 3 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju garðaprjón (= 2 lykkjur færri). UMFERÐ 2(= ranga): Prjónið slétt. Prjónið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 17-19-21-24-27-30 cm frá prjónamerki (mælt í hlið meðfram fyrstu lykkju frá röngu = vinstri öxl). Stykkið mælist ca 60-64-67-69-73-78 cm frá horni (= uppfitjunarkantur) í prjónstefnu. Nú eru ca 65-67-73-73-79-85 lykkjur í umferð. Stillið málið af og lykkjufjölda við framstykki. Prjónið 1. umferð 1 sinni til viðbótar (= frá réttu). Setjið nú lykkjur á þráð fyrir hálsmáli í næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 5 lykkjur, setjið þær síðan á þráð, prjónið sléttar lykkjur út umferðina = ca 58-60-66-66-72-78 lykkjur. Haldið áfram með umferð 1 og 2 (þ.e.a.s. lykkjum fækkar í báðum hliðum á stykki) þar til það eru jafn margar lykkjur og þær lykkjur sem fækkað var um á framstykki (= ca 31-33-38-38-41-46 lykkjur). Stykkið mælist ca 17-17-18-18-19-20 cm, mælt meðfram síðustu lykkju frá réttu, frá þar sem lykkjur voru settar á þráð og ca 70-74-77-79-81-88 cm frá horni (= uppfitjunarkanti) í prjónstefnu. Fellið lykkjur af með sléttum lykkjum. Setjið til baka 5 lykkjur af þræði á hringprjón 8. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) = 3 lykkjur. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið slétt. UMFERÐ 3: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman = 1 lykkja. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjuna. Festið enda. VINSTRI ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka, ofan frá og niður. Fitjið upp 67-72-75-80-85-90 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 8 með grár. Prjónið OPIÐ GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar ermin mælist 2-2-2-2-4-4 cm fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA að ofan. Fækkið lykkjum svona með 2-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 17-19-20-22-24-26 sinnum = 33-34-35-36-37-38 lykkjur. Þegar ermin mælist 41-40-39-38-36-34 cm prjónið garðaprjón og rendur til loka. Fellið af með sléttum lykkjum þegar stykkið mælist alls 46-45-44-43-41-39 cm. HÆGRI ERMI (laskalína): Ermin er prjónuð ofan frá og niður. Fitjið upp 12 lykkjur með grár (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki). Stykkið er prjónað í röndum og garðaprjóni. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Setjið 1 prjónamerki 6 lykkjur inn frá réttu. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið (= 2 lykkjur fleiri) og 1 lykkja hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur fleiri) – sjá ÚTAUKNING. Aukið lykkjum innan við 2 lykkjur með garðaprjóni í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 21-23-25-27-29-32 sinnum. Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í annarri hverri umferð alls 6-6-6-7-7-7 sinnum. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar eru 66-70-74-80-84-90 lykkjur í umferð. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1-2-1-0-1-0 lykkju = 67-72-75-80-85-90 lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju frá réttu. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið síðan opið garðaprjón, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar ermin mælist 2-2-2-2-4-4 cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin á stykki. Fækkið lykkjum svona með 2-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 17-19-20-22-24-26 sinnum = 33-34-35-36-37-38 lykkjur. Þegar ermin mælist 41-40-39-38-36-34 cm, prjónið sléttprjón og rendur til loka. Fellið af með sléttum lykkjum þegar stykkið mælist alls 46-45-44-43-41-39 cm. FRÁGANGUR: Saumið vinstri ermi í fram- og bakstykki ca 25-27-28-30-32-34 cm niður frá öxl með litnum grár. Saumið sauma undir ermum innan við 1 kantlykkju með litnum grár. Saumið hægri ermi í innan við 1 kantlykkju með þeim lit sem fellt var af á fram- og bakstykki. Saumið ermasaum innan við 1 kantlykkju með garðaprjóni með litnum grár. Saumið hliðarsauma ca 8-8-10-10-12-14 cm niður frá þar sem ermar eru saumaðar í fram- og bakstykki, í ystu lykkjubogana með litnum grár (eða að óskaðri lengd) = ca 35-35-34-34-32-32 cm klauf. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ravensweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.