DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3828.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Fading Circles

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í garðaprjóni, röndum og stuttum umferðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 195-3
DROPS Design: Mynstur fa-412
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-150-200-200-200 g litur 400, svartur
100-150-150-150-150-200 g litur 913, vetur
50-50-50-50-50-100 g litur 100, natur

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 45 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stykkið.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3828.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 106 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 7,57.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 7. og 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

RENDUR:
Prjónið 1 umferð slétt með litnum svartur.
Prjónið 1 umferð slétt með litnum vetur.
Endurtakið þessar 2 umferðir.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á hringprjón. Síðan er prjónað áfram i garðaprjóni með stuttum umferðum fram og til baka í stykkjum, aukið er út á eftir hverju stykki. Prjónið 2 umferðir garðaprjón hringinn með litnum natur á milli allra stykkja. Aukið er út um alls 6 stykki. Berustykki deilist við ermar og fram- og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 106-110-115-122-127-134 lykkjur á hringprjón 3 með litnum svartur. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 2 umferðir garðaprjón hringinn með litnum natur og aukið út um 14-15-15-8-13-16 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð (= umferð í garðaprjóni) – sjá ÚTAUKNING-1= 120-125-130-130-140-150 lykkjur.

BERUSTYKKI:
Berustykkið er síðan prjónað í stykkjum, fram og til baka með stuttum umferðum í hring í garðaprjóni þannig:

STYKKI 1:
Prjónið áfram með litnum vetur þannig:
Prjónið 4-4-6-8-8-8 umferðir garðaprjón hringinn.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð.
Prjónið nú 1. stykkið með stuttum umferðum fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 115-120-125-125-135-145 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 110-115-120-120-130-140 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 10 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 105-110-115-115-125-135 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 10 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 100-105-110-110-120-130 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 15 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 95-100-105-105-115-125 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 15 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 90-95-100-100-110-120 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 5 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 10-15-10-10-10-10 lykkjur frá röngu (= 22-22-24-24-26-28 umferð í garðaprjóni).
Klippið frá. Prjónið síðan í hring með litnum natur þannig:
Byrjið við prjónamerkið (= byrjun á umferð).
UMFERÐ 1: Prjónið * 5 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn þegar stuttu umferðinni er snúið við) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 lykkjur fleiri) = 144-150-156-156-168-180 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

STYKKI 2:
Færið prjónamerkið 72-75-78-78-84-90 lykkjur (þ.e.a.s. byrjun á umferð færist nú til með 72-75-78-78-84-90 lykkjum, 2. stykkið er prjónað með byrjun frá prjónamerki).
Prjónið með litnum svartur þannig:
Prjónið 4-4-6-8-8-8 umferðir garðaprjón hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umferð (= umferð með sléttum lykkjum) aukið út um 24-25-52-52-56-60 lykkjur jafnt yfir (þ.e.a.s. aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6.-6.-3.-3.-3.-3. hverja lykkju). Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt = 168-175-208-208-224-240 lykkjur.
Prjónið nú 2. stykki með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 7-7-8-8-8-8 lykkjur á undan prjónamerki (= 161-168-200-200-216-232 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 7-7-8-8-8-8 lykkjur á undan prjónamerki (= 154-161-192-192-208-224 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 14-14-16-16-16-16 lykkjur á undan prjónamerki (= 147-154-184-184-200-216 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 14-14-16-16-16-16 lykkjur á undan prjónamerki (= 140-147-176-176-192-208 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 21-21-24-24-24-24 lykkjur á undan prjónamerki (= 133-140-168-168-184-200 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 21-21-24-24-24-24 lykkjur á undan prjónamerki (= 126-133-160-160-176-192 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 7-7-8-8-8-8 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 14-21-16-16-16-16 lykkjur frá röngu (= 22-22-24-24-26-28 umferðir garðaprjón).
Klippið frá.
Prjónið síðan áfram hringinn með litnum natur þannig:
Byrjið við prjónamerkið (= byrjun á umferð).
UMFERÐ 1: Prjónið * 7-7-8-8-8-8 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn þegar stuttu umferðinni er snúið við) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 lykkjur fleiri) = 192-200-234-234-252-270 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt).

STYKKI 3:
Færið prjónamerkið 96-100-117-117-126-135 lykkjur (þ.e.a.s. byrjun á umferð færist nú til með 96-100-117-117-126-135 lykkjur, 3. stykki er prjónað með byrjun frá prjónamerki).
Prjónið nú með litnum vetur þannig:
Prjónið 4-4-6-8-8-8 umferð garðaprjón hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umferð (= umferð með sléttum lykkjum) aukið út um 24-25-26-26-28-30 lykkjur jafnt yfir (þ.e.a.s. aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8.-8.-9.-9.-9.-9. hverja lykkju). Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt = 216-225-260-260-280-300 lykkjur.
Prjónið nú 3. stykki með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 9-9-10-10-10-10 lykkjur á undan prjónamerki (= 207-216-250-250-270-290 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 9-9-10-10-10-10 lykkjur á undan prjónamerki (= 198-207-240-240-260-280 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 18-18-20-20-20-20 lykkjur á undan prjónamerki (= 189-198-230-230-250-270 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 18-18-20-20-20-20 lykkjur á undan prjónamerki (= 180-189-220-220-240-260 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 27-27-30-30-30-30 lykkjur á undan prjónamerki (= 171-180-210-210-230-250 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 27-27-30-30-30-30 lykkjur á undan prjónamerki (= 162-171-200-200-220-240 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 9-9-10-10-10-10 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 18-27-20-20-20-20 lykkjur frá röngu (= 22-22-24-24-26-28 umferðir garðaprjón). Klippið frá.

Prjónið síðan áfram hringinn með litnum natur þannig:
Byrjið við prjónamerkið (= byrjun á umferð).
UMFERÐ 1: Prjónið * 9-9-10-10-10-10 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn þegar stuttu umferðinni er snúið við) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 lykkjur fleiri) = 240-250-286-286-308-330 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt).

STYKKI 4.
Færið prjónamerkið 120-125-143-143-154-165 lykkjur (þ.e.a.s. byrjun á umferð færist nú til með 120-125-143-143-154-165 lykkjur, 4. stykki er prjónað með byrjun frá prjónamerki).
Prjónið nú með litnum svartur þannig:
Prjónið 4-4-6-8-8-8 umferð garðaprjón hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umferð (= umferð með sléttum lykkjum) aukið út um 24-25-26-26-28-30 lykkjur jafnt yfir (þ.e.a.s. aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 10.-10.-11.-11.-11.-11. hverja lykkju). Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt = 264-275-312-312-336-360 lykkjur.
Prjónið nú 4. stykki með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 11-11-12-12-12-12 lykkjur á undan prjónamerki (= 253-264-300-300-324-348 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 11-11-12-12-12-12 lykkjur á undan prjónamerki (= 242-253-288-288-312-336 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 22-22-24-24-24-24 lykkjur á undan prjónamerki (= 231-242-276-276-300-324 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 22-22-24-24-24-24 lykkjur á undan prjónamerki (= 220-231-264-264-288-312 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 33-33-36-36-36-36 lykkjur á undan prjónamerki (= 209-220-252-252-276-300 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 33-33-36-36-36-36 lykkjur á undan prjónamerki (= 198-209-240-240-264-288 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 11-11-12-12-12-12 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 22-33-24-24-24-24 lykkjur frá röngu (= 22-22-24-24-26-28 umferðir garðaprjón). Klippið frá.

Prjónið síðan áfram hringinn með litnum natur þannig:
Byrjið við prjónamerkið (= byrjun á umferð).
UMFERÐ 1: Prjónið * 11-11-12-12-12-12 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn þegar stuttu umferðinni er snúið við) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 lykkjur fleiri) = 288-300-338-338-364-390 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt).

STYKKI 5:
Færið prjónamerkið 144-150-169-169-182-195 lykkjur (þ.e.a.s. byrjun á umferð færist nú til með 144-150-169-169-182-195 lykkjur, 5. stykki er prjónað með byrjun frá prjónamerki).
Prjónið nú með litnum vetur þannig:
Prjónið 4-4-6-8-8-8 umferð garðaprjón hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umferð (= umferð með sléttum lykkjum) aukið út um 0-25-26-26-28-30 lykkjur jafnt yfir (þ.e.a.s. aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 0.-12.-13.-13.-13.-13. hverja lykkju). Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt = 288-325-364-364-392-420 lykkjur.
Prjónið nú 5. stykki með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 12-13-14-14-14-14 lykkjur á undan prjónamerki (= 276-312-350-350-378-406 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 12-13-14-14-14-14 lykkjur á undan prjónamerki (= 264-299-336-336-364-392 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 24-26-28-28-28-28 lykkjur á undan prjónamerki (= 252-286-322-322-350-378 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 24-26-28-28-28-28 lykkjur á undan prjónamerki (= 240-273-308-308-336-364 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 36-39-42-42-42-42 lykkjur á undan prjónamerki (= 228-260-294-294-322-350 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 36-39-42-42-42-42 lykkjur á undan prjónamerki (= 216-247-280-280-308-336 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 12-13-14-14-14-14 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 24-39-28-28-28-28 lykkjur frá röngu (= 22-22-24-24-26-28 umferðir garðaprjón). Klippið frá.

Prjónið síðan áfram hringinn með litnum natur þannig:
Byrjið við prjónamerkið (= byrjun á umferð).
UMFERÐ 1: Prjónið * 12-13-14-14-14-14 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn þegar stuttu umferðinni er snúið við) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 lykkjur fleiri) = 312-350-390-390-420-450 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt).

STYKKI 6:
Færið prjónamerkið 156-175-195-195-210-225 lykkjur (þ.e.a.s. byrjun á umferð færist nú til með 156-175-195-195-210-225 lykkjur, 6. stykki er prjónað með byrjun frá prjónamerki).
Prjónið nú með litnum svartur þannig:
Prjónið 4-4-6-8-8-8 umferð garðaprjón hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umferð (= umferð með sléttum lykkjum) aukið út um 0-0-0-26-28-30 lykkjur jafnt yfir (þ.e.a.s. aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 0-0-0-15.-15.-15. hverja lykkju). Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt = 312-350-390-416-448-480 lykkjur.
Prjónið nú 6. stykki með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 13-14-15-16-16-16 lykkjur á undan prjónamerki (= 299-336-375-400-432-464 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 13-14-15-16-16-16 lykkjur á undan prjónamerki (= 286-322-360-384-416-448 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 26-28-30-32-32-32 lykkjur á undan prjónamerki (= 273-308-345-368-400-432 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 26-28-30-32-32-32 lykkjur á undan prjónamerki (= 260-294-330-352-384-416 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 39-42-45-48-48-48 lykkjur á undan prjónamerki (= 247-280-315-336-368-400 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 39-42-45-48-48-48 lykkjur á undan prjónamerki (= 234-266-300-320-352-384 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 13-14-15-16-16-16 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 26-42-30-32-32-32 lykkjur frá röngu (= 22-22-24-24-26-28 umferðir garðaprjón). Klippið frá.

Prjónið síðan áfram hringinn með litnum natur þannig:
Byrjið við prjónamerkið (= byrjun á umferð).
UMFERÐ 1: Prjónið slétt.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið.
Klippið frá.

Nú eru 312-350-390-416-448-480 lykkjur í umferð. Færið umferðina til 33-37-41-43-44-46 lykkjur fram (þ.e.a.s. farið yfir fyrstu 33-37-41-43-44-46 lykkjur (= hálfa ermin) á hægriprjóni, setjið 1 prjónamerki hér = byrjun á umferð).
Prjónið nú stykkið í hring í RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm frá uppfitjunarkanti deilist stykkið hér:
Prjónið yfir fyrstu 90-101-113-122-136-148 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 66-74-82-86-88-92 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið yfir næstu 90-101-113-122-136-148 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 66-74-82-86-88-92 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi = 196-218-246-264-296-320 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-12 nýrra lykkja undir hvorri ermi og færið umferðina til að einu af prjónamerkinu.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Haldið áfram hringinn með rendur. Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem ermar skiptu fram- og bakstykki, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 4-4-8-6-8-6 cm millibili alls 6-6-3-4-3-4 sinnum = 220-242-258-280-308-336 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og röndum þar til fram- og bakstykkið mælist 30-30-31-31-31-31 cm frá þar sem ermar skiptu fram- og bakstykki. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið nú í garðaprjóni með litnum svartur þar til stykkið mælist 33-33-34-34-34-34 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist við ermar. Fellið af með sléttum lykkjum, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum.

ERMI:
Setjið 66-74-82-86-88-92 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 3,5 og takið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 74-82-92-96-100-104 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-12 lykkja undir ermi. Prjónið nú áfram sléttprjón og rendur. Þegar stykkið mælist 1 cm frá þar sem ermar skiptu fram- og bakstykki, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 13-16-20-20-21-22 sinnum = 48-50-52-56-58-60 lykkjur. Þegar ermin mælist 39-38-37-36-35-33 cm frá þar sem stykkið skipti fram- og bakstykki, skiptið yfir á sokkaprjón 3. Nú er prjónað áfram í garðaprjóni með litnum svartur þar til ermin mælist 42-41-40-39-38-36 cm frá þar sem stykkið skiptist frá fram- og bakstykki. Fellið af með sléttum lykkjum, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 15.08.2018
Nýtt efnismagn, natur DROPS Fabel frá Garnstudio DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50-50-50-100 g litur 100, natur
Yfirfarið á vefsvæði: 14.09.2018
Leiðrétting: ÚTAUKNING-2: Prjónið þar til eftir eru 2 lykkjur á undan prjónamerki... ERMI: Prjónið nú áfram sléttprjón og rendur..

Mynstur

symbols = stykki 1 til 6 – sjá upplýsingar í uppskrift
symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (70)

country flag Milada wrote:

Hello, very nice model. Could you please translate this pattern into Czech? Thank you.. Milada

24.02.2023 - 12:12

DROPS Design answered:

Hi Milada, it is translated to Czech, chage language below the picture :)

07.03.2023 - 15:27

country flag Sanne Lorentzen wrote:

Skal jeg efter at have delt bluse strik ret ( 1 ret 1 vrang eller skal jeg strikke glatstrikning .. et sted står der ret et andet sted glatstrikning .. så jeg er noget forvirret

15.10.2022 - 13:34

DROPS Design answered:

Hei Sanne. Når bolen (ryg&bakstykke) strikkes, strikkes det glattstrikk. Om du ser nærmere på bildet uten hode, kan du se forskjellen der det er er strikket riller over bærestykket og der det er enn er strikket med striper på bolen (ryd&bakstykk). mvh DROPS Design

24.10.2022 - 11:50

country flag Ulrika Nielsen wrote:

Jag blir inte klok på om jag ska flytta maskor 2 gånger, dels när jag gjort färdigt en cirkel, dels efter de 2 varven emellan. Det är väldigt oklart i beskrivningen... "Början av varvet" - var är det? Tacksam för svar!

19.07.2022 - 16:29

DROPS Design answered:

Hei Ulrika. Litt usikker om jeg har forstått spørsmålet ditt riktig, Men når du strikker de 6 bitene ( 1. pinne til 6. pinne + 2 omganger), strikkes hver bit med start og slutt fra der du setter merket, slik at hver bit ( 1. pinne til 6. pinne + 2 omganger) får forskjellige start/stopp steder (= 6 ulike start/stopp steder). mvh DROPS Design

15.08.2022 - 08:25

country flag Kari wrote:

I understand the short rows directions. My question is, are the 3 ridges that are knit before the short rows. Are they counted in the number of ridges for that section? If so, that would mean there are 15 ridges per section. Thanks, kari

17.01.2022 - 16:02

DROPS Design answered:

Dear Kari, yes correct, you will have a total of 15 ridges for each section, 3 before short rows + 12 with short rows (in 3rd size only). Happy knitting!

17.01.2022 - 16:30

country flag Kari Falk wrote:

At the beginning of each section, it says to knit 3 ridges (increasing on the first round). Then start knitting the short rows you knit until you have 12 ridges. In order to follow the number of stitches left in the short rows, I am assuming that there will be 15 total ridges in each section. I hope so, because I am on section 3, and I really don't want to take everything out! Thanks!

17.01.2022 - 00:16

DROPS Design answered:

Dear Mrs Falk, in 3rd size work the short rows in the 3rd section as follows: knit 250 sts, turn and knit 240 sts, turn and knit 230 sts, turn and knit 220 sts and so on, ie you will knit 10 sts less on every row until you have worked the last row = 20 sts from WS. This means you have worked a total of 24 rows = 12 ridges. Can this help?

17.01.2022 - 09:23

country flag Kari Falk wrote:

I am making the Falling Circles sweater. At the end of section 1, the directions say "cut the strand. Continue working in the round as follows: Start at the marker(=start of the round)". Ok, does that mean I go back to the original start in marker, which is approximately 65 stitches from where my needles are? Does this mean that I slide all the needles to the left hand needle and go back to the beginning? I will put the sweater aside until I get clarification of the directions. Thank you.

04.01.2022 - 01:44

DROPS Design answered:

Dear Mrs Falk, correct, slip the stitches without working them until you reach the marker and start next round from here. Happy knitting!

04.01.2022 - 07:42

country flag Marie wrote:

Flot, flot trøje, men måske for svær for mig... Jeg er nu færdig med 1. stykke og har 15 masker på pinden, men jeg skal vel samle nogle masker op for at nå hele vejen rundt med natur?

14.02.2021 - 06:51

DROPS Design answered:

Hej Marie, Ja den er ret så avanceret :). Du bør have alle masker på pinden, men du har strikket flere pinde over de sidste 15 masker. Nu klipper du tråden og starter ved mærket igen og strikker rundt over alle masker med natur. God fornøjelse!

16.02.2021 - 15:43

country flag Christelle wrote:

Bonjour, pour la section 2 il faut décaler le marqueur de 78 mailles. Décale-t-on vers la gauche ( en avançant de 78) ou vers la droite, c'est-à-dire en reculant de 78 ? Merci

18.01.2021 - 22:32

DROPS Design answered:

Bonjour Christelle, ce sera la même chose car vous décalez le début du tour de l'autre côté = au milieu du tour. Vous avez 156 mailles sur l'aiguille, le début du tour doit être maintenant au milieu de ces 156 m soit 78 m avant/après. Bon tricot!

19.01.2021 - 07:21

country flag Lyn Jane Wenman wrote:

Hi, I am on section 2 and it says move the marker78 stitches , begging of round is displaced 78 , section 2 is worked starting at marker, how do I do that?

03.01.2021 - 15:17

DROPS Design answered:

Dear Mrs Wenman, simply slip the 78 sts from the left to the right needles without working them, and insert now the marker here. Happy knitting!

04.01.2021 - 16:15

country flag Becker wrote:

Hallo, Nach der ersten zacke soll ja eine Trennlinie in natur kommen. Dies sieht allerdings nicht gut aus, da die letzte Reihe mit Winter eine Reihe mit rechts gestrickten Maschen ist. Könnte ich evtl eine Reihe mit linken Maschen drüber stricken, damit die Abgrenzung so wie ganz am Anfang aussieht oder wird das dann Zuviel bzw. habe ich evtl was falsch verstanden? Vielen Dank im voraus und liebe Grüsse Becker

22.11.2020 - 21:13

DROPS Design answered:

Liebe Frau Becker, wegen den verkürzten Reihen, werden nicht alle Maschen gleich aussehen (= einige Maschen werden rechts, andere links), die Natur-Streife wird dann über alle Maschen gestrickt um die unterschiedlichen Streifen zu "trennen", gerne können Sie anders stricken, wie Sie es lieber haben. Viel Spaß beim stricken!

23.11.2020 - 09:56