Anita Krantz skrifaði:
Syns rett å slett dette var en vanskelig måte å strikke på,for målene blir alt for korte. Måtte kjøpe til mere garn i tillegg.
10.08.2019 - 00:17
Marie Slottero skrifaði:
Ingenting stemmer i denne oppskriften, hverken mål eller mengde garn. Genseren ble nydelig, men det er kun min forteneste og fordi jeg strikker mye.
10.05.2019 - 23:15
Liselotte Marie Strikkegal skrifaði:
Ingenting stemmer i denne oppskriften, hverken mål eller mengde garn. Genseren ble nydelig, men det er kun min forteneste og fordi jeg strikker mye.
10.05.2019 - 23:12
Firda skrifaði:
Hej! Det är nåt skumt med måtten i beskrivningen. Om jag tar small som exempel så ska tröjan bli 52 cm lång. Men om man först stickar 18 cm från uppläggningskanten ner till delningen vid ärmhålet, sedan 21 cm ner till resåren och sedan ytterligare 6 cm resår så blir det bara totalt 45 cm. Vilket/vilka mått är det som felar?
05.03.2019 - 16:03DROPS Design svaraði:
Hej. Om du ser på måttskissen längst ner så ska det vara 6+21+18+3+4 = 52. De 4 cm längst upp är det extra som kommer från raglanökningarna. Lycka till!
08.03.2019 - 07:40
Jocelyne skrifaði:
Trop envie de le faire !!!
10.02.2019 - 16:25
Gisela skrifaði:
Dieser Pullover steht auf jeden Fall auf meiner to do Liste. Die air ist so toll
08.02.2019 - 20:36
Anita skrifaði:
Super, håper oppskrift kommer snart
07.02.2019 - 11:37
Mille skrifaði:
Smuk model. Har købt garnet og glæder mig til at strikke den.
19.01.2019 - 22:32
Teresa skrifaði:
Me encanta
18.01.2019 - 11:00
Irena skrifaði:
Wariant rozpinany skradł moje serce ❤️
04.01.2019 - 20:08
Valencia#valenciasweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með laskalínu og röndum. Stykkið er prjónað úr DROPS Air, ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 202-9 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 16) = 5,25. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð ca 4. og 5. hver lykkja slétt saman. RENDUR BERUSTYKKI: Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni, ofan frá og niður þannig: 9-9-10-10-11-11 cm með lit, 10, þoka, 9-9-10-10-11-11 cm með lit 22, gulur, 0-2-2-4-4-6 cm með lit 06, svartur. RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI: Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni, ofan frá og niður þannig: 9-7-8-6-7-5 cm með lit 06, svartur (þ.e.a.s. svarta röndin verður alls 9-9-10-10-11-11 cm meðtalin umferð frá berustykki), 9-9-10-10-11-11 cm með lit 03, perlugrár, 9-11-9-11-9-11 cm (eða til loka) með lit 16, blár. RENDUR ERMI: Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni, ofan frá og niður þannig: 13-11-11-9-9-7 cm með lit 06, svartur (þ.e.a.s. svarta röndin verður alls 13 cm í öllum stærðum meðtalin umferð frá berustykki), 13-13-13-13-13-13 cm með lit 03, perlugrár, 18-19-17-18-16-17 cm (eða að óskuðu máli) með lit 16, blár. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri hvoru megin við prjónamerki og alls 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring, ofan frá og niður til loka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna /stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Allt stykkið er prjónað í sléttprjóni með röndum og stroff kanti. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-88-92-96-100-104 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með litnum þoka. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-20-16-16-20 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 4 prjónamerki í stykkið hér (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, teljið 12-12-14-14-14-14 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 38-40-42-42-44-48 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 12-12-14-14-14-14 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 38-40-42-42-44-48 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= bakstykki). Prjónið RENDUR BERUSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið út svona út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 18-20-21-24-26-28 sinnum = 244-264-280-304-324-348 lykkjur. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 18-20-22-24-26-28 cm frá prjónamerki. Ef stykkið mælist styttra en þetta er prjónað áfram að réttu máli. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 0-0-0-1-2-3 lykkjur slétt, setjið næstu 48-52-56-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 74-80-84-92-100-110 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 74-80-84-91-98-107 lykkjur sem eftir eru slétt (= bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 160-172-184-200-220-240 lykkjur. Byrjið umferð í annarri hlið á fram- og bakstykki, mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Prjónið RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 21 cm frá skiptingu í öllum stærðum er skipt yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm með blár. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur hægt að fella af með hringprjón 5,5. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-52-56-60-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna /stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-68-72-74 lykkjur. Prjónið RENDUR ERMI – sjá útskýringu að ofan, þar til ermin mælist ca 38-37-35-34-32-31 cm frá skiptingu, eða að óskaðri lengd – nú eru eftir ca 6 cm að loka máli (styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-18-20-24-24-26 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm með litnum blár. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur hægt að fella af með hringprjón 5,5. Ermin mælist ca 44-43-41-40-38-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #valenciasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.