DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Valencia Cardigan

Prjónuð peysa með röndum, v-hásmáli og laskalínu. Stykkið er prjónað úr DROPS Air, ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 202-10
DROPS Design: Mynstur ai-200
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-150-150-150-150-150 g litur 16, blár
100-100-100-100-100-100 g litur 03, perlugrár
100-100-100-100-100-100 g litur 06, svartur
50-100-100-100-100-100 g litur 22, gulur
50-50-50-50-50-50 g litur 10, þoka

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPSA HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

DROPS TALA, Hringlaga (stál) NR 542: 3 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

STUTTAR UMFERÐIR-1 (á við um fyrri kant í hálsmáli sem er prjónaður):
Byrjið frá réttu og prjónið þannig: * 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir 4 fyrstu lykkjur, 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar 5 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum.

STUTTAR UMFERÐIR-2 (á við um seinni kant í hálsmáli sem er prjónaður):
Byrjið frá röngu og prjónið þannig: * 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir 4 fyrstu lykkjur, 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar 5 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, prjónið síðan 1 umferð slétt frá röngu yfir allar 5 lykkjur.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 62 lykkjur), mínus kanta í hálsi/kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda lykkja sem eftir er með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 4,3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kanta í hálsi/kanta að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 54 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 14) = 3,9. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 3. og 4. hverja lykkju slétt saman.

RENDUR BERUSTYKKI:
Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni, ofan frá og niður eins og útskýrt er að neðan, en 5 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni (= kantur í hálsmáli):
9-10-10-11-11-12 cm með lit, 10, þoka,
9-10-10-11-11-12 cm með lit 22, gulur,
0-0-2-2-4-4 cm með lit 06, svartur.

RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI:
Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni, ofan frá og niður eins og útskýrt er að neðan, en 5 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni (= kantur að framan):
9-10-8-9-7-8 cm með lit 06, svartur (þ.e.a.s. svarta röndin verður alls 9-10-10-11-11-12 cm meðtalin umferð frá berustykki),
9-10-10-11-11-12 cm með lit 03, perlugrár,
12-10-12-10-12-10 cm (eða til loka) með lit 16, blár.

RENDUR ERMI:
Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni, ofan frá og niður þannig:
13-13-11-11-9-9 cm með lit 06, svartur (þ.e.a.s. svarta röndin verður alls 13 cm í öllum stærðum meðtalin umferð frá berustykki),
13-13-13-13-13-13 cm með lit 03, perlugrár,
20-19-20-18-19-18 cm (eða að óskuðu máli) með lit 16, blár.

V-HÁLSMÁL:
Allar útaukningar eru gerðar frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju innan við 5 kantlykkjur að framan með því að slá 1 sinni uppá prjóninn strax eftir 5 kantlykkjum að framan í byrjun á umferð og á undan 5 kantlykkjum að framan í lok umferðar.
Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri hvoru megin við prjónamerki og alls 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar prjónað hefur verið ca 1 cm á eftir síðustu útaukningu fyrir v-hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 2 næstu hnappagötum með ca 10 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru prjónaðir 2 lausir kantar í hálsi. Þeir eru settir síðan inn á hringprjóninn þegar fitjað er upp fyrir hálsmáli eins og útskýrt er í uppskrift (kantar í hálsmáli eru síðan saumaðir saman við miðju að aftan og síðan saumaðir við hálsmál aftan í hnakka).
Síðan er berustykki prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. JAFNFRAMT er aukið út fyrir v-hálsmáli og laskalínu. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 5 lykkjur á prjón 5,5 með litnum þoka og prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan (1. umferð = rétta).
Þegar kantur í hálsmáli mælist ca 6-6-6-7-7-7 cm prjónið STUTTAR UMFERÐIR-1 – sjá útskýringu að ofan. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka eins og útskýrt er að ofan, prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar 5 lykkjur í 6 cm í öllum stærðum, endið eftir 1 umferð slétt frá röngu (allur kantur í hálsmáli á að mælast ca 14-14-14-15-15-15 cm innst þar sem stykkið er styst). Klippið frá og geymið stykkið.
Prjónið annan kant í hálsmáli alveg eins, en þegar kanturinn mælist ca 6-6-6-7-7-7 cm prjónið STUTTAR UMFERÐIR-2 – sjá útskýringu að ofan. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka eins og útskýrt er að ofan, prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar 5 lykkjur í 6 cm í öllum stærðum, endið eftri 1 umferð slétt frá réttu (allur kantur í hálsmáli á að mælast ca 14-14-14-15-15-15 cm innst þar sem stykkið er styst. Setjið lykkjur á hringprjón 5,5, ekki klippa þráðinn frá, en fitjið upp 52-52-56-58-54-54 lykkjur á sama hringprjón beint á eftir kanti í hálsi og prjónið síðan sléttar lykkjur frá réttu yfir 5 lykkjur frá hinum kanti í hálsi = 62-62-66-68-64-64 lykkjur í umferð.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 12-12-8-10-14-22 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 74-74-74-78-78-86 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantur í hálsi er prjónaður í garðaprjóni eins og áður) síðan er berustykki prjónað eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Teljið 7 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 12 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 36-36-36-40-40-48 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 12 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 7 lykkjur eftir í öllum stærðum á eftir síðasta prjónamerki (= framstykki).
Prjónið RENDUR BERUSTYKKI – sjá útskýringu að ofan.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð (rétta) er aukið út fyrir V-HÁLSMÁLI og LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Aukið svona út fyrir V-hálsmáli (2 lykkjur) og laskalínu (8 lykkjur) í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 18-20-22-24-26-28 sinnum = 254-274-294-318-338-366 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu fyrir v-hálsmáli og laskalínu mælist stykkið ca 22-24-26-28-30-32 cm frá öxl. Ef stykkið mælist styttra en þetta er prjónað áfram að réttu máli án útaukninga. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 42-45-47-51-55-60 lykkjur í garðaprjóni og sléttprjóni eins og áður (= framstykki), setjið næstu 48-52-58-62-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 74-80-84-92-100-110 lykkjur brugðið (= bakstykki), setjið næstu 48-52-58-62-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 42-45-47-51-55-60 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 170-182-194-210-230-250 lykkjur. Prjónið RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan!
Þegar stykkið mælist 23 cm frá skiptingu í öllum stærðum er prjónuð 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni) þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 176-188-200-216-236-256 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu (með blár) þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með hringprjón 5,5. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 48-52-56-60-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna /stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-68-72-74 lykkjur.
Prjónið RENDUR ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar ermin mælist ca 40-39-38-36-35-34 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd – nú eru eftir ca 6 cm að loka máli), prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-18-22-26-26-30 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm með blár. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur hægt að fella af með hringprjón 5,5. Ermin mælist ca 46-45-44-42-41-40 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.
Saumið saman kanti í hálsimáli við miðju að aftan svo að saumurinn snúi inn. Strekkið aðeins á kanti í hálsmáli og saumið við hálsmál aftan í hnakka.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.02.2019
Leiðrétting: KANTUR Í HÁLSI:.. Þegar kantur í hálsi mælist ca 6-6-6-7-7-7 cm prjónið STUTTAR UMFERÐIR-1 – sjá útskýringu að ofan. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka eins og útskýrt er að ofan, prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar 5 lykkjurnar í 6 cm í öllum stærðum (allur kantur í hálsi á að mælast ca 14-14-14-15-15-15 cm innst þar sem stykkið er styst). Klippið frá og geymið stykkið.
Prjóni annan kant í hálsi alveg eins, en þegar kanturinn mælist ca 6-6-6-7-7-7 cm prjónið STUTTAR UMFERÐIR-2 – sjá útskýringu að ofan. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka eins og útskýrt er að ofan, prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar 5 lykkjurnar í 6 cm í öllum stærðum (allur kantur íhálsi á að mælast ca 14-14-14-15-15-15 cm innst þar sem stykkið er styst...
Yfirfarið á vefsvæði: 20.04.2021
BERUSTYKKI:.. teljið 36-36-36-40-40-48 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju...

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag Birsen özgüder wrote:

Guten Tag, \r\nIch möchte bald dieses Cardigan mir stricken aber die Frage, wie und wo ich die Fadenenden, und/oder -reste die waehrend des Farbwechsels entstehen werden, verstecken werde, findet bei mir keine Antwort. Vielleicht haben Sie dafür eine Lösung .\r\n\r\nDanke im Voraus für eine Antwort und\r\nLiebe Grüsse\r\nBirsen özgüder

08.04.2024 - 16:09

DROPS Design answered:

Liebe Frau Özgüder, die Fäden vernähen Sie so: bei kraus rechts und in glatt rechts. Sie könnnen auch den Faden nach der 1. (oder mehr) Maschen - siehe hier. Viel Spaß beim Stricken!

09.04.2024 - 08:28

country flag Carole Dormer wrote:

I would like to knit the Valencia Cardigan - please can you tell me what cast on with FOG means ?

07.08.2023 - 15:45

DROPS Design answered:

Dear Mrs Dormer, "Fog" refers to DROPS Air colour no 10 - read more under shadecard here. Happy knitting!

08.08.2023 - 09:01

country flag Tatiana wrote:

Hola, gracias por el patrón. Quería comentarles que este patrón tiene varios errores en la versión español, por ej: se tejen 6cm de cenefa antes de las filas acortadas, no están los cm tejidos después de las filas acortadas, el orden de los marcadores está desordenado, debería ser delantero, manga, espalda, manga, delantero. Rectifique las instrucciones del patrón en el idioma original, ya que no entendía cómo seguir las instrucciones. Gracias

21.04.2023 - 17:51

country flag Katelijne wrote:

Ik vind het jammer dat je nooit de achterkant van de kraag in foto toont. Dit held voor alle truien Heeft deze trui een doorlopende kraag? Wordt er een deel in het achterpand gebreid? Dank je

26.10.2022 - 10:28

country flag Jo wrote:

I would like to make this in a different color way. If I replaced Blue 16 with Heather 14, kept the Pearl grey 03 then replaced Black 06 with Ruby Red 07 what would you suggest for the last 2 colors? Pink 24 & Off white 01 or maybe Pink sand 33? Thanks

03.11.2021 - 13:57

DROPS Design answered:

Dear Jo, please contact your DROPS store, even per mail or telephone, it will be much easier for them to help you choosing the best matching colours. Happy knitting!

03.11.2021 - 16:42

country flag Karin wrote:

Skal striberne på ærmerne være længere end på kroppen?

18.10.2020 - 17:13

DROPS Design answered:

Hei Karin. Ja, de er litt lengre. Du finner målene i oppskriften, både til bærestykket, bolen og ermene. God Fornøyelse!

19.10.2020 - 21:13

country flag Francina wrote:

Könnte es sein, dass ein Fehler sich eingeschlichen hat? Halsblende am Ende: 74-74-74-78-78-86. FÜR L sind dann 74 Maschen auf dem Nadel. Danach muss mann für die Pässe 38 Maschen für den Rückenteil abzählen. Dafür bräuchte man dann aber 76 Maschen statt 74.

13.07.2020 - 13:54

DROPS Design answered:

Liebe Francina, es sieht so aus, am besten nehmen Sie 10 Maschen (und nicht nur 8 M) damit Sie 76 M für die Passe haben - eine Korrektur erfolgt sicher nach den Sommerferien. Viel Spaß beim stricken!

13.07.2020 - 15:36

country flag Francina wrote:

Welche Grösse hat der Metalknopf 542? Leider finde ich diesen Knopf nicht bei den aufgelisteten Läden.

08.07.2020 - 17:51

DROPS Design answered:

Liebe Francina, hier finden Sie alle Knöpfe, Die Rund (Stahl) Nr542 sind 23 mm. Viel Spaß beim stricken!

09.07.2020 - 09:10

country flag Avila Janssen wrote:

I mean 8 balls seems a lot :)

26.06.2020 - 16:02

country flag Avila Janssen wrote:

Hello, how much yarn (Air) is needed if knitted in one colour only? 16 balls seems a lot...Thank you!

26.06.2020 - 16:01

DROPS Design answered:

Dear Mrs Janssen, this jacket has been worked with stripes, we therefore do not have the amount of yarn in one colour - you can add all colours but you will probably request less - check other patterns with Air to compare and request help from your DROPS store - even per mail or telephone. Happy knitting!

29.06.2020 - 07:17