Rosewood Jacket |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri, A-formi og ¾ ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 201-3 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Öll útaukning er gerð frá réttu! Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 107 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 38) = 2,6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca aðra hverja og 3. hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 8 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 8 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-3 (á við um mitt undir ermar): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn(= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermar): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar eftir eru 3 lykkjur á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroffið í kanti í hálsi mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-6-7-7 næstu hnappagötum með ca 8-8-8½-8½-8-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 107-112-112-117-122-127 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3,5 með litnum ljós fjólublár. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið er lokið er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 38-40-42-42-44-46 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 145-152-154-159-166-173 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón fram og til baka með litnum ljós fjólublár og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5-5-5-5-5-6 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 44-46-50-50-52-52 lykkjur jafnt yfir = 189-198-204-209-218-225 lykkjur. Þegar stykkið mælist 7-7-7-7-7-9 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 38-41-47-40-42-44 lykkjur jafnt yfir = 227-239-251-249-260-269 lykkjur. Útaukning hefur nú verið gerð til loka í S, M og L. XL, XXL og XXXL: Þegar stykkið mælist 9-10-12 cm frá uppfitjunarkanti er aukið út um 38-39-42 lykkjur jafnt yfir = 287-299-311 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: = 227-239-251-287-299-311 lykkjur. Prjónið síðan án útaukninga þar til stykkið mælist 8-9-10-11-13-15 cm frá uppfitjunarkanti. Nú byrjar mynstur á berustykki – sjá LEIÐBEININGAR! Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 18-19-20-23-24-25 mynstureiningar með 12 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1A er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan. Í umferð merktri með ör-1 í A.1A er aukið út um 24-36-36-36-48-48 lykkjur jafnt yfir = 251-275-287-323-347-359 lykkjur (nú er pláss fyrir 20-22-23-26-28-29 mynstureiningar með 12 lykkjum). Í umferð merktri með ör-2 í A.1A er aukið út um 24-24-36-36-36-48 lykkjur jafnt yfir = 275-299-323-359-383-407 lykkjur (nú er pláss fyrir 22-24-26-29-31-33 mynstureiningar með 12 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með ljós fjólublár og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 46-49-51-57-62-67 lykkjur í garðaprjóni og sléttprjóni eins og áður (= framstykki), setjið næstu 50-56-64-70-72-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 83-89-93-105-115-125 lykkjur sléttprjón eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 50-56-64-70-72-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 46-49-51-57-62-67 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 191-203-215-239-263-287 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 50-53-56-62-68-74 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 91-97-103-115-127-139 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum. Prjónið sléttprjón fram og til baka með litnum ljós fjólublár og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 2-2-2-1-1-1 cm frá skiptingu, prjónið gatamynstur borða frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 18 lykkjur eru eftir á prjóni (= 14-15-16-18-20-22 mynstureiningar með 12 lykkjum), prjónið A.2B (= 12 lykkjur), prjónið A.2C (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 5 cm millibili alls 5 sinnum í hvorri hlið = 211-223-235-259-283-307 lykkjur. Prjónið nú áfram þar til stykkið mælist 27 cm frá skiptingu í öllum stærðum (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 51-54-57-63-69-75 lykkjur jafnt yfir = 262-277-292-322-352-382 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 50-56-64-70-72-74 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón eða stuttan hringprjón 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-64-74-80-84-88 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós fjólublár. Þegar stykkið mælist 2-2-2-1-1-1 cm frá skiptingu, prjónið næstu umferð þannig: 4-1-0-3-5-1 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2A yfir næstu 36-48-60-60-60-72 lykkjur (= 3-4-5-5-5-6 mynstureiningar með 12 lykkjum), prjónið A.2B (= 12 lykkjur), prjónið A.2C (= 1 lykkja) og endið með 5-2-1-4-6-2 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, haldið áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-2-1-1-1-1 cm millibili alls 4-6-10-11-11-11 sinnum = 50-52-54-58-62-66 lykkjur. Þegar ermin mælist 15-15-15-14-14-14 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-3. Aukið svona út með 3-3-2½-2½-2½-2 cm millibili alls 5 sinnum í öllum stærðum = 60-62-64-68-72-76 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 32-30-29-28-27-25 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 15-13-16-17-18-19 lykkjur jafnt yfir = 75-75-80-85-90-95 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 35-33-32-31-30-28 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (11)
Diana wrote:
I’m sorry I did t specify which pattern I’m doing. I m doing the rosewood cardigan pattern and doing it in the round. I’m making an xl and am at the point of the yolk colorwork design. With 359 stitches on the needles the pattern does not work evenly for me doing 12 section repeats. What am I doing wrong?
11.10.2022 - 20:48DROPS Design answered:
Hi Diana, In size XL, you have 287 stitches on the needle, after all the increases and before starting the pattern. You start the row with 5 band stitches, repeat A.1a 23 times (12 x 23 = 276 stitches), work A.1b (1 stitch) and 5 band stitches. 5+276+1+5 = 287 stitches. Hope this helps and happy knitting!
12.10.2022 - 07:07Diana wrote:
I am making the xl and have 359 stitches now. The design on the yolk ends in only 11 stitches instead of 12. What am I doing wrong?
11.10.2022 - 19:57DROPS Design answered:
Dear Diana, diagram A.1A is worked over 12 stitches all the way - even after arrow-2. Happy knitting!
12.10.2022 - 08:45Benedetta wrote:
Buonasera,ho cominciato il grafico e non capisco come mai si lavora il primo ferro della prima"stellina" a rovescio.Ma il grafico comprende anche i giri a rovescio o tutti i ferri sono da leggere sul diritto del lavoro?Vi ringrazio per l'aiuto
06.01.2020 - 21:40DROPS Design answered:
Buongiorno Benedetta. Nel grafico trova tutti i ferri, sia quelli lavorati sul diritto che quelli lavorati sul rovescio del lavoro. Il motivo jacquard, in una lavorazione in ferri di andata e ritorno, presenta maglie lavorate con i diversi colori sia sul sia diritto che sul rovescio del lavoro. Buon lavoro!
07.01.2020 - 06:45Anna wrote:
Buongiorno, non mi trovo con il numero di maglie per la taglia M. Dopo il il terzo aumento per lo sprone a cm 7 bisogna aumentare 42 maglie quindi il totale fa 241 e non 239 come da voi indicato. Quante maglie quindi bisogna aumentare. Grazie. Buona giornata. Anna
15.09.2019 - 17:20DROPS Design answered:
Buongiorno Anna. Abbiamo corretto il testo: gli aumenti da fare sono 41. Prima degli aumenti c'erano 198 maglie. Alla fine degli aumenti avrà: 198 + 41 = 239 maglie. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!
15.09.2019 - 17:39Mylene wrote:
J’ai commencé ce modèle et j’ai de la difficulté à comprendre ce que je dois faire à l’envers dans la section du jacquard. Est-ce que je dois répéter la ligne à l’envers ou dois-je faire seulement un rang envers? Les motifs ne sont pas similaires à la photo.\r\nMerci
17.07.2019 - 17:00DROPS Design answered:
Bonjour Mylène, sur l'endroit vous lisez les diagrammes de droite à gauche ainsi: 5 m de bordure devant, vous répétez A.1A jusqu'à ce qu'il reste 6 m, vous tricotez A.1B et terminez par 5 m de bordure devant. Sur l'envers, tricotez 5 m point mousse, puis A.1B, et répétez A.1A en lisant le diagramme de gauche à droite, et terminez par 5 m point mousse. Le diagramme se lit de bas en haut, et comme le gilet se tricote de haut en bas, le diagramme est inversé par rapport à la photo. Bon tricot!
18.07.2019 - 10:14Kristina wrote:
Hur gör man om man inte vill ha så vid halsringning
03.04.2019 - 13:16Dominique wrote:
Je ne trouve pas d'explications ,sur les sigles au début du diagramme A.1A et A.2B et A-2A. si je me refaire à la légende ,je déduis que le rond,correspond à un jetée,et que les 2carrés barrés,correspondes à 2 mailles tricotées ensemble .N'aurait il pas été plus clair,de mettre ceci dans la légende.pour moi qui fait mon premier jacquard,c'est pas clair... Merci d'avance de votre réponse. dom.
02.04.2019 - 11:27DROPS Design answered:
Bonjour Dominique, vous retrouvez les 2 carrés barrés dans la légende = 4ème symbole et le jeté est le 3ème symbole de la légende. Tous les symboles du diagramme sont donc bien répertoriés. Bon tricot!
02.04.2019 - 12:42Elvia McCormack wrote:
Thank you for your beautiful free patterns.\r\n\r\nI’m about to the start Chart 1. The instructions say “pattern seen from the right side.”. I understand this to mean when I’m knitting the wrong side, I still read it from right side. How does this work for A1.b? On the wrong side, this is the first stitch after the 5 garter stitch. Am I understanding correctly? Thanks.
31.03.2019 - 14:41DROPS Design answered:
Dear Mrs McCormack, when reading the diagram from the RS you will repeat A.1A then finish with A.1B (before the 5 front band sts). When working from WS, work the 5 front band sts, then work A.1B, and repeat A.1A (reading diagram from the left towards the right). Read more about diagrams here. Happy knitting!
01.04.2019 - 13:11Elvia McCormack wrote:
Hello. Thank you for all your free patterns. I have several in mind to make. Are you done publishing all the Spring & Summer collection? I didn’t see the blue with bell cream/blue striped sleeves or the multicolor poncho. Will these and others be published soon? Thank you.
02.03.2019 - 16:27DROPS Design answered:
Dear Mrs McCormack, more patterns from our Spring & Summer collection will be published in the next weeks/months until approximately July. Happy knitting!
04.03.2019 - 08:35Hennion wrote:
Très beau modèle
31.01.2019 - 16:36