Lydia FLEURY BOUGE wrote:
Bonjour à tous, comment faire lorsqu'on fait une taille S et qu'il me faudrait une taille en dessous car les modèle chez drops taille grand et qu'il n'y a pas les explications pour une taille XS C'est un très beau modèle il me fait bien envie dommage qu'il n'y ai pas les explications pour la taille XS Cordialement, très bonne journée. Lydia
06.11.2023 - 15:27DROPS Design answered:
Bonjour Lydia, vous trouverez ici tous nos pulls en taille XS et en laine du groupe de fils B, tout comme celui-ci, ajoutez d'autres filtres si besoin - cela pourra peut-être vous aider à ajuster ou bien à trouver un modèle qui vous conviendra. Bon tricot!
07.11.2023 - 07:50Diana wrote:
Ich stehe auf dem Schlauch Beginne ich beim abmessen der Passe nach Beendigung des Bündchens oder Messe ich das Bündchen mit
19.04.2023 - 19:49DROPS Design answered:
Liebe Diana, messen Sie unter PASSE ab der Anschlagskante, dh mit der Halsblende. Viel Spaß beim stricken!
20.04.2023 - 09:57Diana Walker wrote:
I'm confused on how I complete the pattern correction on the sleeve. Do I work A2A for 60 stitches, then A2B followed by A2C or work A2A , A2B, A2C consecutively all the way round until the last 4 (in my size) stitches. Or A2A for one row, then A2B for one row and then A2C for one row. Thank you.
18.03.2023 - 17:24DROPS Design answered:
Dear Diana, the pattern correction has already been applied to the online pattern, so you can simply read the normal instructions and they have already been corrected (the footnote is mostly a warning in case anyone printed a previous version of the pattern, so that they can apply the necessary corrections). Therefore, work as follows on the next round: 3 stitches in stocking stitch, A.2A over 60 stitches, A.2B, A.2C and finish with 4 stitches in stocking stitch. Happy knitting!
19.03.2023 - 19:39Diana Walker wrote:
I am knitting Drops 201-2 and on diagram A.1. After increasing stitches on line 11 as per diagram, the subsequent pattern does not match up evenly with that already knitted. Do I follow the pattern as per the diagram and have the next section off from the already knitted pattern or try and fit the new pattern to match already knitted? Hope this makes sense.
11.03.2023 - 10:44DROPS Design answered:
Dear Diana, when increasing on the rounds marked with arrows, you will have room for more repeats, so you will work more repeats of the pattern on the round. This pattern will be misaligned from the pattern in previous rows. Happy knitting!
12.03.2023 - 18:34Holtmann wrote:
In der Anleitung sind 2mal Zunahmen in der mit Pfeil1:markierten Runde im MustervA1 angegeben. (Beidesmalb36M bei GrXL. Ich kann aber nur einen Pfeil im Muster A1 feststellen. Wo sollen die zweiten Zunahmen erfolgen?
12.05.2021 - 11:37DROPS Design answered:
Liebe Frau Holtmann, bei A.1 befinden sich 2 Pfeile: die 1. bei der 3. Reihe (mit Pfeil-1) und die 2. bei der 11. Reihe (mit Pfeil-2). Viel Spaß beim stricken!
12.05.2021 - 14:03Dea wrote:
Buongiono il diagramma A2A non è corretto alla terza riga, secondo me manca qualcosa. Se seguissi come è disegnato non combacia il gettato e si sposta, fatelo ricontrollare.
02.05.2021 - 11:04DROPS Design answered:
Buonasera Dea, probabilmente manca una maglia, comunque abbiamo inoltrato la sua richiesta al settore design. Buon lavoro!
02.05.2021 - 20:30Natasja Van Den Bosch wrote:
Hallo, ik ben bij A.2.a gekomen maar begrijp niet zo goed de 3e naald (het open vakje op het einde) ?
19.10.2020 - 09:14DROPS Design answered:
Dag Natasja,
Het is inderdaad vreemd dat lege vakje en ik zal het even navragen bij de ontwerpafdeling. Volgens mij kun je dit gewoon negeren en steeds de 12 steken in A.2a herhalen. Dus bij de derde naald brei je na de omslag en het samen breien nog 10 steken en dit herhaal je steeds in de breedte.
21.10.2020 - 11:23Adriana wrote:
Hola! No entiendo el símbolo de la primera línea del esquema A1, me lo podrían explicar aquí por favor? Gracias!
03.09.2020 - 18:04DROPS Design answered:
Hola Adriana. La primera fila se trabaja como sigue: *1 derecho, trabajar 2 puntos juntos de derecho con lila claro, 1 hebra con lila claro, 2 derechos, trabajar 2 puntos juntos de derecho con lila claro, 1 hebra con lila claro, 2 derechos, trabajar 2 puntos juntos de derecho con lila claro, 1 hebra con lila claro, 1 derecho*, repetir de * a * toda la vuelta.
09.09.2020 - 20:08Yvonne Lasschuit-LeLoux wrote:
Ik ben aanbeland bij patroon A2a en moet na 2 cm vanaf de scheiding beginnen met dit patroon. Ik brei mt M. Nu is dit voor mij na 7 toeren na de scheiding terwijl op de foto het na 5 toeren is (met S waarschijnlijk). Dit is na 1 cm volgens de stekenverhouding. Volgens mij klopt het patroon dus niet. Maten S, M en L zouden na 2 cm moeten beginnen met A2a en XL, XXL en XXXL al na 1 cm. Dit zou toch andersom moeten zijn?
11.08.2020 - 23:04DROPS Design answered:
Dag Yvonne,
1 cm is ongeveer 5 naalden. Als A.1 klaar is op de pas brei je nog een stukje door tot het werk 21-23-25-27-29-31 cm meet vanaf de pas. Het kan zijn dat hier het verschil in zit waardoor je in de grotere maten 1 cm na de scheiding moet beginnen met A2a. Als je meer of minder ruimte wilt tussen A.1 en A.2a dan ben je natuurlijk vrij om meer naalden er tussen te breien.
17.08.2020 - 21:48
Rosewood |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri, A-formi og ¾ ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 201-2 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 95 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 39) = 2,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca aðra hverja og 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 8 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 8 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-3 (á við um mitt undir ermar): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn(= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermar): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 95-100-100-105-110-115 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með litnum ljós fjólublár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 3 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 39-40-42-43-44-47 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 134-140-142-148-154-162 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós fjólublár. JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5-5-5-5-5-6 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 44-46-50-50-52-52 lykkjur jafnt yfir = 178-186-192-198-206-214 lykkjur. Þegar stykkið mælist 7-7-7-7-7-9 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 38-42-48-40-42-44 lykkjur jafnt yfir = 216-228-240-238-248-258 lykkjur. Útaukningu er nú lokið í S, M og L. XL, XXL og XXXL: Þegar stykkið mælist 9-10-12 cm frá uppfitjunarkanti er aukið út um 38-40-42 lykkjur jafnt yfir = 276-288-300 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: = 216-228-240-276-288-300 lykkjur. Prjónið síðan án útaukninga þar til stykkið mælist 8-9-10-11-13-15 cm frá uppfitjunarkanti. Nú byrjar mynstur á berustykki – sjá LEIÐBEININGAR og prjónið A.1 hringinn (= 18-19-20-23-24-25 mynstureiningar með 12 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan. Í umferð merktri með ör-1 í A.1 er aukið út um 24-36-36-36-48-48 lykkjur jafnt yfir = 240-264-276-312-336-348 lykkjur (nú er pláss fyrir 20-22-23-26-28-29 mynstureiningar með 12 lykkjum). Í umferð merktri með ör-2 í A.1 er aukið út um 24-24-36-36-36-48 lykkjur jafnt yfir = 264-288-312-348-372-396 lykkjur (nú er pláss fyrir 22-24-26-29-31-33 mynstureiningar með 12 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón í litnum ljós fjólublár þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 41-44-46-52-57-62 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 50-56-64-70-72-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 82-88-92-104-114-124 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 50-56-64-70-72-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 41-44-46-52-57-62 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig til loka. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 180-192-204-228-252-276 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum. Byrjið umferð við annað prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós fjólublár. Þegar stykkið mælist 2-2-2-1-1-1 cm frá skiptingu, prjónið A.2A hringinn (= 15-16-17-19-21-23 mynstureiningar með 12 lykkjum). Þegar A.2A hefur verið prjónað til loka, haldið áfram í sléttprjóni hringinn. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 5 cm millibili alls 5 sinnum í hvorri hlið = 200-212-224-248-272-296 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 27 cm frá skiptingu í öllum stærðum (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 50-53-56-62-68-74 lykkjur jafnt yfir = 250-265-280-310-340-370 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 50-56-64-70-72-74 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón eða stuttan hringprjón 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-64-74-80-84-88 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós fjólublár. Þegar stykkið mælist 2-2-2-1-1-1 cm frá skiptingu, prjónið næstu umferð þannig: 4-1-0-3-5-1 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2A yfir næstu 36-48-60-60-60-72 lykkjur (= 3-4-5-5-5-6 mynstureiningar með 12 lykkjum), prjónið A.2B (= 12 lykkjur), prjónið A.2C (= 1 lykkja) og endið með 5-2-1-4-6-2 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, haldið áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-2-1-1-1-1 cm millibili alls 4-6-10-11-11-11 sinnum = 50-52-54-58-62-66 lykkjur. Þegar ermin mælist 15-15-15-14-14-14 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-3. Aukið svona út með 3-3-2½-2½-2½-2 cm millibili alls 5 sinnum í öllum stærðum = 60-62-64-68-72-76 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 32-30-29-28-27-25 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 15-13-16-17-18-19 lykkjur jafnt yfir = 75-75-80-85-90-95 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 35-33-32-31-30-28 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Anja wrote:
Dit is een mooi patroon maar ik heb het nu gebreid in sky en Merino extra fine, beide keren bij de eerste keer wassen geruïneerd. Terwijl ik me strikt aan de wasvoorschriften heb gehouden. Zo jammer van al het werk.
01.06.2022 - 09:28