Filomena skrifaði:
Vorrei realizzare questo capo con il filato ad un filo solo, chiedo per la tgl.XL quanti grammi mi occorrono e il num. dei ferri adatti. Grazie
24.02.2019 - 17:00DROPS Design svaraði:
Buongiorno Filomena. Per un aiuto così personalizzato, può rivolgersi al suo rivenditore Drops di fiducia. Buon lavoro!
24.02.2019 - 19:09
Marianne Hoffstetter skrifaði:
Hej. Jeg ville gerne lave en sommer top uden v-hals og knapper som på denne model, men mere som en slags undertrøje med en lille ribkant forneden og rund hals og så nogen stroppe der er ca 5 cm brede i bomuld. Har i sådan en opskrift. På forhånd tak :-)
01.02.2019 - 07:16DROPS Design svaraði:
Hei Marianne. Du kan feks se på modell 100-34. Du kan også selv tilpasse en modell med feks hullmønster til å strikkes kun i glattstrikk sulle du finne en annen modell du gjerne vil strikke. God fornøyelse
04.02.2019 - 14:29
Rieke skrifaði:
Achtung! Ich empfehle das Top eine Größe größer zu arbeiten, da die Safran beim waschen stark einläuft.
22.01.2019 - 17:46DROPS Design svaraði:
Liebe Rieke, DROPS Safran sollte nicht einlaufen, die Pflegehinweise auf der Banderolle und der Farbkarte folgen - Hier lesen Sie mehr Tipps über Garnpflege. Viel Spaß beim stricken!
23.01.2019 - 10:12
Laila skrifaði:
Finner ikke strikkeoppskriften på norsk, dessverre. Mangler visst en stor del av teksten. På andre språk er oppskriften komplett. Kommer resten?
22.01.2019 - 09:08DROPS Design svaraði:
Hej Laila, det skal vi få lagt ud. Tak for info :)
24.01.2019 - 14:39
Laila Melkidl skrifaði:
Finner ikke strikkeoppskriften på norsk, dessverre. Mangler visst en del av teksten.
17.01.2019 - 20:53
Gabriele skrifaði:
Luftig und frisch, toll für heisse Tage, freue mich schon jetzt auf die Anleitung (als Grundmodell - wundervoll um eigene Ideen einbringen zu können, Ich stricke sehr gerne Bildermotive auf glatt rechts - kühle Baumwolle in allen möglichen Farben wartet schon). Möge der Sommer kommen. Vielen Dank und macht weiter so🤗😙👍👍👍👍👍
17.01.2019 - 16:46
Nina skrifaði:
Rolig modell,ser skön ut!
16.01.2019 - 16:28
Noanne skrifaði:
Superleuk topje! Hoeveel garen heb je nodig als je het in een kleur wilt breien? Hartelijke groet.
15.01.2019 - 07:07DROPS Design svaraði:
Dag Noanne,
Dit is niet precies bekend, maar Je kan hetzelfde gewicht aanhouden voor je maat en dan 1 a 2 bollen minder nemen.
Overigens kun je bollen die overhoud vaak weer inleveren bij de winkel waar je het garen het gekocht (mits binnen een bepaalde termijn). Informeer bij je verkooppunt hierover.
23.01.2019 - 11:30
Manuela skrifaði:
Sehr schön für den Sommer. Freue mich schon sehr auf die Anleitung
02.01.2019 - 14:56
Manuela skrifaði:
...da kann der Sommer kommen! Freue mich schon auf die Anleitung...
29.12.2018 - 17:09
Block Party#blockpartytop |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður toppur úr 2 þráðum DROPS Safran. Stykkið er prjónað með röndum og v-hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 202-7 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. RENDUR: Þegar prjónaðir hafa verið 3-4-5-5-5-6 cm með 2 þráðum í litnum natur er haldið áfram með rendur þannig: 6-6-6-6-7-7 cm með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum mynta. 3,5 cm með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum appelsínugulur. 8-8-8-9-9-9 cm með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum eyðimerkurrós. 3,5 cm með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum eggjagulur. 2 cm með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum salvíugrænn. 6-6-6-7-7-7 cm með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum mynta. 5 cm með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum hindber. 3,5 cm með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum appelsínugulur. 5 cm með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum eyðimerkurrós. Prjónið síðan með 2 þráðum í litnum natur til loka. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚRTAKA-2 (á við um handveg og hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Fækkið lykkjum á eftir 3 lykkjum í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á undan 3 lykkjum í garðaprjóni þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. HNAPPAGAT (neðan frá og upp): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þ.e.a.s. í byrjun á umferð séð frá réttu). 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 5, 14, 23, 32 og 41 cm M: 6, 15, 24, 33 og 42 cm L: 7, 16, 25, 34 og 43 cm XL: 8, 17, 26, 35 og 44 cm XXL: 5, 15, 25, 35 og 45 cm XXXL: 6, 16, 26, 36 og 46 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón upp að handveg. Síðan er framstykki og bakstykki prjónað hvort fyrir sig. Allt stykkið er prjónað með 2 þráðum Safran. TOPPUR: Fitjið upp 166-178-194-210-230-250 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að aftan) á hringprjón 4,5 með 2 þráðum í litnum natur. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5 og setjið eitt prjónamerki 44-47-51-55-60-65 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 78-84-92-100-110-120 lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki). Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að aftan). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 3-4-5-5-5-6 cm haldið áfram með RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 12 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku í 10.-10.-10.-12.-12.-12. hverjum cm alls 3 sinnum = 154-166-182-198-218-238 lykkjur. Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 12-14-16-20-24-28 lykkjur í hvorri hlið, þ.e.a.s. 6-7-8-10-12-14 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin í hvorri hlið á stykki (= undir ermar), aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður. Í næstu umferð frá réttu á eftir garðaprjóni eru miðju 6-8-10-14-18-22 lykkjur felldar af hvoru megin fyrir handveg og fram- og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 66-70-76-80-86-92 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: 3 lykkjur garðaprjón, 25-27-30-32-35-38 lykkjur sléttprjón, 10 lykkjur garðaprjón, 25-27-30-32-35-38 lykkjur sléttprjón, 3 lykkjur garðaprjón. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir handveg í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona fyrir handveg í annarri hverri umferð alls 4-5-7-8-10-12 sinnum, JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 10 lykkjur í umferð eru felldar af 4 miðju lykkjur fyrir hálsmáli í næstu umferð og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan lykkjum innan við 3 lykkjur garðaprjón við háls – munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 12-12-13-13-14-14 sinnum. Þegar allar úrtökur fyrir hálsmáli og handveg hafa verið gerðar eru 15-16-16-17-17-18 lykkjur eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm frá þar sem fyrstu lykkjur voru felldar af fyrir handveg er fellt af. Allur toppurinn mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. VINSTRA BAKSTYKKI: = 38-40-43-45-48-51 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í röndum með 5 kantlykkjur garðaprjón við miðju að aftan og 3 kantlykkjur garðaprjón við handveg. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir handveg eins og á framstykki og þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón frá skiptingu fyrir fram- og bakstykki eru felldar af 2 ystu lykkjurnar á kanti að framan og lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli þannig: Fækkið um 1 lykkju innan við 3 lykkjur garðaprjón í annarri hverri umferð alls 17-17-18-18-19-19 sinnum. Þegar allar úrtökur fyrir hálsmáli og handveg hafa verið gerðar eru 15-16-16-17-17-18 lykkjur eftir fyrir öxl. Haldið áfram þar til handvegur mælist ca 17-18-19-20-21-22 cm – stillið lengdina af eftir framstykki. Fellið af. Allur toppurinn mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm. HÆGRA BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra bakstykki, nema spegilmynd. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið tölur í kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blockpartytop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.