Gisela Hohn skrifaði:
Hallo, heute habe ich mit der Anleitung begonnen, habe es bis zur 1. Runde nach der Passe geschafft, jetzt muss ich lesen, dass die Zunahmen nur alle 2 Runden gemacht erden. Was passiert in den Runden dazwischen? Grüße aus Burgas
04.09.2020 - 16:55DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Hohn, die Raglanzunahmen werden in jede 2. Runde gestrickt (und unterchiedlich am Vorder-Rückenteil als an den Ärmeln) - bei der Runde nach den Zunahmen stricken Sie wie zuvor - die Umschläge für den Raglan werden verschränkt gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
07.09.2020 - 08:02
Gisela skrifaði:
Ich habe versucht die Anleitung zu drucken, es kommen immer nur 2 Seiten aus dem Drucker mit der Fußzeile 2 von 2 Seiten. Der Beginn der Anleitung fehlt, was mache ich falsch?
13.10.2019 - 17:27DROPS Design svaraði:
Liebe Gisela, die ganze Anleitung sollte gedruckt werden; prüfen Sie mal die Druckereinstellungen damit alle Seiten gedruckt sind; versuchen Sie den Browser-Cache zu löschen und den Browser neu starten, und Sie können auch mal mit einem anderen Browser versuchen . Viel Spaß beim stricken!
14.10.2019 - 10:36
Shosho skrifaði:
We want to see videos for finally patterns
05.05.2019 - 00:58
Martine skrifaði:
Bonjour une fois tricoter le motif n'est pas comme sur la photo,il y a un soucis avec le diagramme ,il ne fait pas de tulipe merci cdt
14.02.2019 - 09:19DROPS Design svaraði:
Bonjour Martine, le diagramme correspond bien au motif sur la photo. Vérifiez bien votre diagramme et vos mailles, n'hésitez pas à demander conseil auprès de votre magasin en leur apportant ou en leur montrant une photo de votre ouvrage. Ce sera plus facile ainsi de vous aider. Bon tricot!
14.02.2019 - 11:51
Maria Jose skrifaði:
Buenas, este patron me parece muy bonito, pero las explicaciones no se corresponden, me parece, con él. En primer lugar, el resorte inclinado no lo veo descrito. En segundo lugar, tampoco veo cómo se hace la forma ondulada de la parte final del jersey (en el croquis está además recta). Muchas gracias. Un cordial saludo.
05.02.2019 - 12:09DROPS Design svaraði:
Hola Maria Jose. El patrón es correcto. Se trabaja de arriba abajo. La forma ondulada en la parte inferior del jersey se consigue después de finalizar los diagramas A.1B y A.3B. El dibujo de este patrón solo se presenta en diagramas, no esta duplicado en el texto.
11.02.2019 - 20:23
Teresa skrifaði:
La descrizione del modello mostra 4 modelli di conteggio. Tuttavia, vedo l'olefina ma i modelli di conteggio A1a, A1b, A3a e A3b. Dove posso trovare gli schemi A2 e A4?
09.01.2019 - 12:21DROPS Design svaraði:
Buongiorno Teresa. Trova i diagrammi A2 e A4 alla fine delle spiegazioni, di fianco al grafico con le misure. Buon lavoro!
09.01.2019 - 14:09
Greet skrifaði:
Misschien iets duidelijker vermelden dat het aantal steken oploop voor en na de omslagen. Vb), 1 omslag (= 1 steek gemeerderd voor de raglan), 2-4-4-6-6-6 steken in tricotsteek, 1 omslag (= 1 steek gemeerderd voor de raglan), De steken 2-4-4-6-6-6 worden dus resp. Steeds 1 of 2 meer. . Altijd voor en na het patroon A2.
10.11.2018 - 20:46
Klazien Modderman-Bijlsma skrifaði:
De patroonbeschrijving vermeld 4 telpatronen. Ik zie echter alkeen maar de telpatronen A1a,A1b, A3a en A3b. Waar kan ik de telpatronen A2 en A4 vinden?
06.11.2018 - 11:05
Wenche Ulvan skrifaði:
Jeg får ikke opp noe bilde av strikkeplaggene
09.09.2018 - 22:10
Red Dream skrifaði:
Bitte bald, möchte gerne schnell damit beginnen`!
07.08.2018 - 12:41
Red Tulip#redtulipsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tilfærslu á stroffi. Stærð S - XXXL.
DROPS 197-9 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning A.1b/A.3b mælist ca 10 cm á breidd. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 4,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður á hringprjóna. Fyrst er prjónað berustykki í hring á hringprjóna. Berustykkið skiptist síðan í fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram hringinn á hringprjóna þar til ca 16 cm eru eftir, þá er framstykki og bakstykki prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig (= klauf í hliðum). Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 88-92-96-104-108-112 lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 2 cm, aukið út um 20-20-24-20-24-28 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð – sjá ÚTAUKNING-1 = 108-112-120-124-132-140 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið þannig (umferðin byrjar við miðju að aftan): Hálft bakstykki: Prjónið A.1a (= 17 lykkjur), 2-2-4-4-6-8 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri fyrir laskalínu): Hægri ermi: Prjónið A.2 (= 7 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri fyrir laskalínu), 2-4-4-6-6-6 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri fyrir laskalínu), A.2 yfir næstu 7 lykkjur. Framstykki: Prjónið 1 uppslátt (= 1 lykkja fleiri fyrir laskalínu), 2-2-4-4-6-8 lykkjur sléttprjón, A.3a (= 17 lykkjur) (= miðja að framan), A.1a yfir næstu 17 lykkjur, 2-2-4-4-6-8 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri fyrir laskalínu). Vinstri ermi: Prjónið A.2 yfir næstu 7 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri fyrir laskalínu), 2-4-4-6-6-6 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri fyrir laskalínu), A.2 yfir næstu 7 lykkjur. Hálft bakstykki: Prjónið 1 uppslátt (= 1 lykkja fleiri fyrir laskalínu), 2-2-4-4-6-8 lykkjur sléttprjón og endið með A.3a yfir síðustu 17 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Uppslátturinn hvoru megin við A.2 á að prjónast snúinn, það eiga ekki að myndast göt! Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu, ekki er aukið út eins á framstykki/bakstykki og ermum (fyrsta útaukningin er útskýrð að ofan), aukið út um lykkjur hvoru megin við A.2 þannig: Framstykki/bakstykki: Aukið út um 1 lykkju í annarri hverri umferð alls 18-22-25-29-32-36 sinnum (= 2 lykkjur fleiri á hvoru framstykki/bakstykki). Ermar: Aukið út um 1 lykkju í annarri hverri umferð alls 20-23-26-27-28-30 sinnum (= 2 lykkjur fleiri á hvorri ermi). Þegar A.1a og A.3a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.1b (= 32 lykkjur) yfir A.1a og A.3b (= 32 lykkjur) yfir A.3a. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar, eru 320-352-384-408-432-464 lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Hálft bakstykki: Prjónið A.1b (= 32 lykkjur), 20-24-29-33-38-44 lykkjur sléttprjón. Hægri ermi: Setjið næstu 56-64-70-74-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi. Framstykki: Prjónið 20-24-29-33-38-44 lykkjur sléttprjón, A.3b (= 32 lykkjur) (= miðja að aftan), A.1b (= 32 lykkjur), 20-24-29-33-38-44 lykkjur sléttprjón. Vinstri ermi: Setjið næstu 56-64-70-74-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi. Hálft bakstykki: Prjónið 20-24-29-33-38-44 lykkjur sléttprjón og endið með A.3b (= 32 lykkjur). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 224-240-264-280-304-328 lykkjur. Prjónið A.3b (= 32 lykkjur) eins og áður, 17-21-27-31-37-43 lykkjur sléttprjón, A.4 (= 14 lykkjur = mitt undir ermi), 17-21-27-31-37-43 lykkjur sléttprjón. A.1b og A.3b eins og áður (= alls 64 lykkjur), 17-21-27-31-37-43 lykkjur sléttprjón, A.4 yfir næstu 14 lykkjur (= mitt undir ermi), 17-21-27-31-37-43 lykkjur sléttprjón og endið með A.1b (= 32 lykkjur) eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 2 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.4 (= 4 lykkjur fleiri) – sjá ÚTAUKNING-2! Aukið svona út í öðrum hverjum cm alls 10 sinnum = 264-280-304-320-344-368 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, skiptist framstykki og bakstykki, þannig að það myndist klauf í hvorri hlið (= ca 16 cm). Skiptið stykkinu mitt í hverju A.4 (= 132-140-152-160-172-184 lykkjur á hvoru framstykki/bakstykki). BAKSTYKKI: Stykkið er nú prjónað áfram fram og til baka. Haldið áfram með hálft mynstur A.4 (= 7 lykkjur), sléttprjón, A.1b og A.3b eins og áður þar til stykkið mælist 36 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í 2 cm (= 16 cm klauf). Fellið af með sléttum lykkjum. Stykkið mælist alls 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl. FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og bakstykki. ERMI: Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Setjið 56-64-70-74-76-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum undir ermi = 64-72-80-84-88-92 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-12 lykkjum undir ermi. Haldið síðan áfram með mynstur A.2 (hvoru megin við prjónamerki) og sléttprjón, en fækka á A.2 þannig: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri), í annarri hverri umferð og aukið út um 1 lykkju í annarri hverri umferð með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir fyrsta A.2 og á undan síðasta A.2 (= 2 lykkjur fleiri), þ.e.a.s. fækkið lykkjum undir ermi og aukið lykkjum í sléttprjónuðu lykkjum. Útauknar lykkjur eru prjónaðar snúnar slétt í næstu umferð, síðan er prjónað sléttprjón. Þegar ermin mælist 2 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, aukið ekki út lykkjur í næstu umferð það á að auka/fækka, þ.e.a.s. það fækkar um 2 lykkjur. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri), í annarri hverri umferð og aukið út um 1 lykkju í annarri hverri umferð með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir fyrsta A.2 og á undan síðasta A.2 (= 2 lykkjur fleiri), þ.e.a.s. lykkjum fækkar undir ermi og lykkjur aukast út í sléttprjónuðu lykkjunum. Útauknar lykkjur eru prjónaðar snúnar slétt í næstu umferð, síðan er prjónað sléttprjón. Þegar ermin mælist 2 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, ekki er aukið út um lykkjur í næstu umferð það á að auka/fækka, þ.e.a.s. fækka um 2 lykkjur. Fækkið lykkjum svona með 3-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 10-13-16-17-18-19 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur (þegar A.2 hefur horfið á báðum hliðum, er ekki lengur aukið út). Þegar ermin mælist 34-33-31-29-28-26 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, aukið út um 1-2-0-1-2-0 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð = 45-48-48-51-54-54 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar ermin mælist 39-38-36-34-33-31 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #redtulipsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 197-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.