DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5698.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Green Echo

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað með gatamynstri og áferðamynstri. Stærð S – XXXL.

DROPS 196-26
DROPS Design: Mynstur no-012
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-350-400-450-500-550 g litur 19, skógargrænn

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
32 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með áferðamynstri í A.1 = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3: fyrir ermar.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5: fyrir stroff
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 og 80 cm fyrir áferðamynstur/garðaprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5698.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri við hvert prjónamerki = alls 4 lykkjur færri í umferð).

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri).
Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Fram- og bakstykki er prjónað fyrst í hring á hringprjón. Síðan eru ermar prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Ermar og fram- og bakstykki er sett á sama hringprjón og prjónað í hring með áferðarmynstri yfir berustykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 254-272-284-315-336-372 lykkjur á hringprjón 2,5 með Nord. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið síðan sléttprjón.
Umferðin byrjar við miðju að aftan. Prjónið 63-68-71-78-84-93 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið 1 prjónamerki, prjónið 127-136-142-158-168-186 lykkjur slétt (= framstykki), setjið 1 prjónamerki og prjónið síðustu 64-68-71-79-84-93 lykkjur slétt (= hálft bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚRTAKA!
Fækkið lykkjum svona með 2½ cm millibili alls 10 sinnum = 214-232-244-275-296-332 lykkjur. Þegar stykkið mælist 33-33-34-34-34-34 cm fellið af fyrir handveg í næstu umferð þannig:
Prjónið 49-54-56-63-68-77 lykkjur slétt, fellið af næstu 8-8-10-10-12-12 lykkjur, 99-108-112-128-136-154 lykkjur slétt, fellið af næstu 8-8-10-10-12-12 lykkjur og prjónið 50-54-56-64-68-77 lykkjur slétt = 198-216-224-255-272-308 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 57-60-63-66-66-69 lykkjur á sokkaprjón 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 5 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið áfram í sléttprjóni. Í fyrstu umferð er fækkað um 12-11-13-13-10-11 lykkjur jafnt yfir = 45-49-50-53-56-58 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Þegar ermin mælist 8-10-6-12-12-9 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út með 2-1½-1½-1-1-1 cm millibili alls 16-19-23-24-25-26 sinnum = 77-87-96-101-106-110 lykkjur. Þegar stykkið mælist 43-42-41-39-38-36 cm, fellið af fyrstu 4-4-5-5-6-6 lykkjur og síðustu 4-4-5-5-6-6 lykkjur fyrir handveg = 69-79-86-91-94-98 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón 3 og fram- og bakstykki, þar sem fellt var af fyrir handveg = 336-374-396-437-460-504 lykkjur. Prjónið sléttprjón í 0-0-1-0-2-0 cm. Skiptið yfir á hringprjón 2,5.
Prjónið A.1a (= 21-22-22-23-23-24 lykkjur) yfir allar lykkjur (= 16-17-18-19-20-21 sinnum á breiddina).

Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 304-340-360-399-420-504 lykkjur í umferð. Nú er prjónað A.1b yfir A.1a. Þegar A.1b hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 112-119-126-133-140-147 lykkjur í umferð. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Berustykki mælist ca 22-24-25-27-29-31 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið saman undir ermum, kant í kant í ysta boga á ystu lykkju.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 23.10.2018
Leiðrétting: FRÁGANGUR: Saumið saman undir ermum, kant í kant í ysta boga á ystu lykkju.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = lyftið 2 lykkjum af prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga að myndast göt
symbols = prjónstefna
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Birte Hee wrote:

Har ,strikket ryg og forstykke. Har nu 437 m pinden. Strikker størrelse XL. Mit spørgsmål er hvor starter jeg i diagrammet til bærestykket i størrelse XL. Har prøvet mange gange og kan ikke få mønsteret til at passe. Det er første gang jeg strikker efter en DROPS opskrift.

18.04.2024 - 16:41

DROPS Design answered:

Hej Birte, hvis du deler bærestykket ind, så du har 23 masker mellem hvert mærke, da vil du få 19 rapporter med 23 masker = 437 masker :)

19.04.2024 - 15:01

country flag Anne-Charlotte Persson wrote:

Hej! Jag ställde en fråga igår angående mönster A1a storlek M. Fick svar att jag bara ska följa mönstret på varv 6, men det fungerar inte. Om jag avslutar varv 5 med 2 aviga maskor och den fösta maskan på varv 6 är en avig maska så sker ingen förändring i mönstret. Det blir aviga på aviga och räta på räta maskor. I mitten av rapporten ska man sticka en avig en rät, en avig. Det är exakt samma som på varv 5. Tacksam för bättre förklaring än att bara följa mönstret.

03.10.2023 - 20:15

DROPS Design answered:

Hej Anne-Charlotte, jo men det ska bli aviga på aviga och räta på räta, de 5 mittersta räta blir till 3 räta (med am på varje sida). Du kan även titta på bilden med mönstret. Är du osäker så sticka upp rapporten över de 28 maskorna, så du ser hur det ser ut :)

17.10.2023 - 11:45

country flag Anne-Charlotte Persson wrote:

Hej! Jag ska sticka enligt mönster A1a men när jag stickar varv 6 får jag inte ihop mönstret. Enligt mönstrets varv 5 minskar man 2 maskor i mitten av rapporten , men på varv 6 är det en maska mindre i början och slutet av rapporten. Jag kan inte sticka avig, rät, avig över den maska som på varv 5 blivit en av tre maskor (i mitten av rapporten). Kan ni snälla förklara hur jag ska sticka? Vänliga hälsningar Anne-Charlotte

02.10.2023 - 14:42

DROPS Design answered:

Hej Anne-Charlotte. Börja bara med att sticka första maskan enligt diagram på varv 6 och följ diagrammet så blir mönstret riktigt. Mvh DROPS Design

03.10.2023 - 14:09

country flag Isabella Dahl wrote:

Hej ! Drops 196-26: Jag följer diagram A 1a i storlek xxxl, jag vet att man följer diagrammet nerifrån o från höger till vänster. Jag har både stickat och virkat många av Drops mönster tidigare och aldrig haft problem med dem men denna gång lyckas jag inte få det att stämma😥 Isabella

26.10.2022 - 14:54

DROPS Design answered:

Hej Isabelle, På pind 8 i A.1a har du 30 masker, sæt et mærke på hver side af de 30 masker i diagrammet (gør det hele vejen rundt), så strikker du varv 8: 1am, 1r, 1am, 1r, 2am, 1r osv over de 30 masker og starter forfra ved næste mærke :)

27.10.2022 - 10:05

country flag Isabella Dahl wrote:

Detta gäller Drops 196-2 Jag håller på med oket och får inte diagrammet att stämma , stickar storlek xxxl. Är på varav 8 och de blir inte rätt, första maskan avig sedan två räta om jag stickar omslaget rätstickat blir det ju tre rätmaskor om det ska bli förskjutning mot mitten. Förstår inte heller om det ska bli fler maskor under tiden, en maska mindre eftersom man ska ta in en vid mitten men det borde ju bli två fler i samband med omslagen ( två stycken) mvh Isabella

25.10.2022 - 16:58

DROPS Design answered:

Hej Isabella, du ved at du starter nederst i diagrammet og tager ind ifølge diagrammet? Hvilket diagram er det du ikke får til at stemme?

26.10.2022 - 09:18

country flag Ioana wrote:

I knitted the blouse in size S and the upper part , the yoke, came out shorter than I expected, shorter than is in the pattern . What I did wrong?

27.11.2020 - 19:42

DROPS Design answered:

Dear Iona, is your knitting tension matching in height? You should have 32 rows in stocking stitch and in pattern A.1 = 10 cm with the larger needles - read more about tension here. Hope this can help. Happy knitting!

30.11.2020 - 08:10

country flag Pernille Taubee wrote:

Hej Jeg strikker opskriften i str. XXXL, men kan ikke få mønster A.1a til at passe. Jeg er kommet til pind 6, altså efter 1 udtagning. Pind 5 passer, men ikke pind 6. Hjælp, så jeg kan komme videre tak

23.11.2020 - 05:53

DROPS Design answered:

Hei Pernille. Hva er det som ikke stemmer? Husk å strikke diagrammet som tilhører din størelse. Om du ser på diagrammet så forskyver rett og vrangmaskene seg et hakk inn mot senter av diagrammet. mvh DROPS design

24.11.2020 - 12:26

country flag Svetlana wrote:

Bonjour,je fais la taille XL. Pour les manches, je commence par 53 mailles après les côtes et j’ajoute 2 mailles à chaque rang. A la fin, je dois avoir 106 mailles. Comment peut-on avoir un nombre pair en partan par un nombre impair, y ajoutant 2 mailles chaque fois?

10.01.2020 - 16:38

country flag Hanne-Merete wrote:

Hej Drops, jeg har strikket mønstre, men dette giver mig problemer. Jeg strikker en small, men A1 ser ud til at være op til 25 masker fra højre mod.venstre. er det det?. Der står nemlig 21 over alle masker i opskriften. Eller skal man kun strikke de 21 og så slutte med en ret og begynde med en ret på pind 3-5 f.eks.? Gør jeg det, passer mønstret dog ikke. jeg har brug for at vide, hvor pinden begynder og sluttter? .Tak på forhånd

02.10.2019 - 21:07

DROPS Design answered:

Hej Hanne-Merete, Du skal vælge det diagram der står A.1a = 21 masker S (for small). Og det skal du gentage, sæt gerne et lille mærke imellem hver rapport, så du er sikker på at få alle udtagninger og indtagninger med ifølge diagrammet. God fornøjelse!

03.10.2019 - 11:44

country flag Małgorzata wrote:

Cześć ! Wydziergałam ten sweterek.Na początku wydawał się trudny.Ale udało się.Mam go dzięki Wam.

26.02.2019 - 18:19