Sheila Hadfiled skrifaði:
Canary jacket - yoke instructions - after 1st row states there should be 117 sets on needle for sizes small mediumlarge, but I get 121 stitches. I have checked several times and the pattern fits this number - the stitches for on the diagram including the increases add up to this. Am I wrong? If so where am I going wrong?
25.02.2019 - 00:32DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Hadfiled, you work over 109 sts and increase a total of 8 sts for raglan = 117 sts, but you will also make a yarn over in each A.3 (for the small cable), so that you will have 4 sts more due to these yarn overs = 121 sts, but A.3 is here worked and counted over 16 sts even if you will have sometimes 17 due to this YO. Happy knitting!
25.02.2019 - 11:31
Helen Zinhagel skrifaði:
Hallo, Ik wil draag het vest 195-15 gaan breien. Als ik 97 steken opzet, moet ik er dan 10 bij doen voor de voorbies. Bij de hals staat dat in naald 5 in A.1 dat er 2 steken overblijven. Ik hou er maar 1 over. Kunt u mij schrijven wat ik fout doe. Alvast bedankt. Helen.
15.12.2018 - 13:14DROPS Design svaraði:
Dag Helen,
De 97 steken zijn inclusief de steken van de voorbies, dus je hoeft er niet nog 10 bij te doen. Met de instructie voor de 5e naald wordt bedoelt dat je door breit totdat je er nog 2 steken op de naald staan en die laatste 2 steken brei je recht (ipv A.1 te breien)
18.12.2018 - 10:56
Flopée skrifaði:
Merveilleux cardigan.\r\nMon fils attendait avec impatience les explications.\r\nMille mercis.
30.08.2018 - 15:29
Dagmar skrifaði:
Daisy
27.07.2018 - 13:47
Mida skrifaði:
Me encanta!! Alegre y juvenil
28.06.2018 - 09:49
Canari Jacket#canarijacket |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 195-15 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2, A.4, A.5, A.6A og A.8C). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 97 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 7,25. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 7. hverja lykkju. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo að ekki myndast göt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT (ofan frá og niður): Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = prjónið frá réttu eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. ATH: Fyrstu tölunni er hneppt í gegnum gat í A.1 í kanti í hálsmáli, síðan er fellt af fyrir 5-5-6-6-7-7 næstu hnappagötum eins og útskýrt er að ofan með ca 9-9-8-8-7½.-7½.cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. Passið uppá að allur lykkjufjöldi sem gefinn er upp í berustykki og fram- og bakstykki er talinn út frá að A.3 = 16 lykkjur, en A.3 víxlar á milli 16 og 17 lykkjur. Ef þú hefur prjónað nákvæmlega 1.-2.-5. eða 6. umferð í A.3 þegar lykkjufjöldinn er gefinn upp þá ertu með 4 lykkjur fleiri í umferð. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 97-97-101-105-113-113 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju) á hringprjón 3,5 með Karisma. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur í umferð, en í 5. umferð er prjónað A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 2 lykkjur slétt. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 12-12-8-24-16-16 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 109-109-109-129-129-129 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2 (= 3-3-3-8-8-8 lykkjur), A.3 (= 16 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 12 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.3 (= 16 lykkjur), A.4 (= 5-5-5-15-15-15 lykkjur), A.3 (= 16 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 12 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.3 (= 16 lykkjur), A.5 (= 3-3-3-8-8-8 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Nú eru 117-117-117-137-137-137 lykkjur í umferð. Haldið áfram með þetta mynstur. Þ.e.a.s. á fram- og bakstykki er aukið út í hvorri hlið eins og útskýrt er í A.2, A.4 og A.5. Á ermum er aukið út í hvorri hlið með uppslætti hvoru megin við lykkjur í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn í mynsturteikningu prjónaður brugðið (svo að það myndist gat) útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og útskýrt er í A.2, A.4 og A.5 og uppslátturinn á ermum er prjónaður snúinn brugðið (það eiga ekki að myndast göt) og nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.2, A.4 og A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina 261-261-261-281-281-281 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstrið alveg eins, þ.e.a.s. mynstrið endurtekur sig eins og útskýrt er í A.2, A.4 og A.5. Í hvert skipti sem prjónaðar eru 20 umferðir á hæðina er pláss fyrir 1 mynstureiningu fleiri með gatamynstri á breiddina á hvoru framstykki og 2 mynstureiningar fleiri með gatamynstri á breidd á bakstykki. Þegar prjónaðar hafa verið alls 24-29-34-34-39-44 sinnum hvoru megin við A.3 eru 301-341-381-401-441-481 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 19-22-26-26-30-33 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 48-53-58-63-68-73 lykkjur eins og áður (= hægra framstykki), setjið næstu 60-70-80-80-90-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 85-95-105-115-125-135 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 60-70-80-80-90-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 48-53-58-63-68-73 lykkjur eins og áður (= vinstra framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 193-213-233-257-277-301 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það aðeins síðar þegar auka á út. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.6A (= 8-13-8-13-8-13 lykkjur), prjónið A.6B yfir næstu 10-10-20-20-30-30 lykkjur (= 1-1-2-2-3-3 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.6C (= 9 lykkjur), haldið áfram með A.3 yfir næstu 16 lykkjur, prjónið 6-6-6-8-8-10 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6-6-6-8-8-10 lykkjur), haldið áfram með A.3 yfir næstu 16 lykkjur, prjónið A.7A (= 9 lykkjur), prjónið A.7B yfir næstu 30-40-50-60-70-80 lykkjur (= 3-4-5-6-7-8 mynstureiningar með 10 lykkjur), prjónið A.7C (= 14 lykkjur), haldið áfram með A.3 yfir næstu 16 lykkjur, prjónið 6-6-6-8-8-10 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6-6-6-8-8-10 lykkjur), haldið áfram með A.3 yfir næstu 16 lykkjur, prjónið A.8A (= 9 lykkjur), prjónið A.8B yfir næstu 10-10-20-20-30-30 lykkjur (= 1-1-2-2-3-3 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.8C (= 8-13-8-13-8-13 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 = 4 lykkjur fleiri. Aukið út svona með 6-6-5-6-5-5 cm millibili alls 5 sinnum = 213-233-253-277-297-321 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 35-34-32-34-32-31 cm frá skiptingu, eða að óskaðri lengd, en stillið af þannig að endað sé eftir heilt gatamynstur á hæðina. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Skiptið til baka yfir á hringprjón 4. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 60-70-80-80-90-100 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-76-86-88-98-110 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur undir ermi og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað aðeins síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2-1-1-1-1-1 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 1-2-3-3-4-7 sinnum = 64-72-80-82-90-96 lykkjur. Fækkið síðan lykkjum með 3½-2½-2-2-1½-1 cm millibili alls 12-15-18-18-21-23 sinnum = 40-42-44-46-48-50 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 46-44-40-40-37-35 cm frá skiptingu, eða að óskaðri lengd (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 4. Fellið af með sléttum lykkjum, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Ermin mælist ca 47-45-41-41-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #canarijacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.