DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6160.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Canari

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 195-16
DROPS Design: Mynstur u-871
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-700-800 g litur 79, sítróna

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir kanta með garðaprjóni.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

Litasamsetning sem sýnd er á mynd er (í sömu litaröð sem gefin er upp í efnismagni að ofan):
A) DROPS Puna 14

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6160.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2).
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 8,8.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 9. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndast göt.
Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður.
Passið uppá að allur lykkjufjöldi sem gefinn er upp í berustykki og fram- og bakstykki er talinn út frá að A.3 = 16 lykkjur, en A.3 víxlar á milli 16 og 17 lykkjur. Ef þú hefur prjónað nákvæmlega 1.-2.-5. eða 6. umferð í A.3 þegar lykkjufjöldinn er gefinn upp þá ertu með 4 lykkjur fleiri í umferð.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 88-88-92-96-104-104 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með Karisma. Prjónið A.1. Eftir A.1 er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-10-6-22-14-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 98-98-98-118-118-118 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2 (= 5-5-5-15-15-15 lykkjur), A.3 (= 16 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 12 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.3 (= 16 lykkjur), A.2 (= 5-5-5-15-15-15 lykkjur), A.3 (= 16 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 12 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.3 (= 16 lykkjur). Nú eru 106-106-106-126-126-126 lykkjur í umferð.
Haldið áfram með þetta mynstur. Þ.e.a.s. á fram- og bakstykki er aukið út í hvorri hlið eins og útskýrt er í A.2. Á ermum er aukið út í hvorri hlið með því að slá uppá prjóninn hvoru megin við lykkjur í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn í mynsturteikningu prjónaður brugðið (svo að það myndist gat) útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og útskýrt er í A.2 og uppslátturinn á ermum er prjónaður snúinn brugðið (það eiga ekki að myndast göt) og nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.2 hefur verið prjóna 1 sinni á hæðina eru 250-250-250-270-270-270 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur alveg eins, þ.e.a.s. mynstrið endurtekur sig eins og útskýrt er í A.2 og í hvert skipti sem prjónaðar hafa verið 10 umferðir á hæðina er pláss fyrir 1 mynstureiningu fleiri með gatamynstri á fram- og bakstykki.
Þegar aukið hefur verið út alls 24-29-34-34-39-44 sinnum hvoru megin við A.3 eru 290-330-370-390-430-470 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 19-22-26-26-30-33 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 69-79-89-99-109-119 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 60-70-80-80-90-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 85-95-105-115-125-135 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 60-70-80-80-90-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 16 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 182-202-222-246-266-290 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar auka á út.
Byrjið umferð við eitt af prjónamerkjunum og prjónið fyrstu umferð þannig: Prjónið 3-3-3-4-4-5 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með A.3 yfir næstu 16 lykkjur, prjónið A.4A (= 9 lykkjur), prjónið A.4B yfir næstu 30-40-50-60-70-80 lykkjur (= 3-4-5-6-7-8 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.4C (= 14 lykkjur), haldið áfram með A.3 yfir næstu 16 lykkjur, prjónið 6-6-6-8-8-10 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6-6-6-8-8-10 lykkja), haldið áfram með A.3 yfir næstu 16 lykkjur, prjónið A.4A (= 9 lykkjur), prjónið A.4B yfir næstu 30-40-50-60-70-80 lykkjur (= 3-4-5-6-7-8 mynstureiningar með 10 lykkjur), prjónið A.4C (= 14 lykkjur), haldið áfram með A.3 yfir næstu 16 lykkjur og endið með 3-3-3-4-4-5 lykkjur sléttprjón.
Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 = 4 lykkjur fleiri. Aukið út svona með 6 -6-5-6-5-5 cm millibili alls 5 sinnum = 202-222-242-266-286-310 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 35-34-32-34-32-31 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), eða að óskaðri lengd, en stillið af þannig að endað sé eftir heilt gatamynstur á hæðina. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið til baka yfir á hringprjón 4. Fellið af með sléttum lykkjum, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 60-70-80-80-90-100 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-76-86-88-98-110 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur undir ermi og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað aðeins síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2-1-1-1-1-1 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 1-2-3-3-4-7 sinnum = 64-72-80-82-90-96 lykkjur. Fækkið síðan lykkjum með 3½-2½-2-2-1½-1 cm millibili alls 12-15-18-18-21-23 sinnum = 40-42-44-46-48-50 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 46-44-40-40-37-35 cm frá skiptingu, eða að óskaðri lengd (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis).
Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 4.
Fellið af með sléttum lykkjum, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Ermin mælist ca 47-45-41-41-38-36 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.10.2018
Leiðrétting: Fram- og bakstykki:.. prjónið A.4C (= 14 lykkjur), haldið áfram með A.3 yfir næstu 16 lykkjurnar og endið með 3-3-3-4-4-5 lykkjur sléttprjón.
Yfirfarið á vefsvæði: 30.01.2019
Leiðrétting: BERUSTYKKI:..Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn í mynsturteikningu prjónaður brugðinn (svo að það myndist gat) útauknu lykkjurnar eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og sýnt er í A.2 og uppslátturinn á ermum er prjónaður snúinn brugðinn (það eiga ekki að myndast göt) og nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt, steypið fyrstu lykkjunni sem var prjónuð yfir 2 síðustu lykkjur þannig að þessi lykkja liggi utan um hinar tvær lykkjurnar (= 1 lykkja færri)
symbols = engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu og prjónið næstu lykkju eins og mynsturteikning sýnir
symbols = sýnir 1 mynstureiningu á hæðina og hvernig gatamynstrið er staðsett yfir hvert annað
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Angela Casna wrote:

Anleitung habe ich keinen Durchblick. Bitte um Hilfe. Vielen Dank

26.02.2024 - 14:14

DROPS Design answered:

Liebe Frau Casna, dieser Pullover wird von oben nach unten mit verschiedenen Muster/Diagrammen gestrickt; man wird für den Raglan in jeder 2. Runde wie gezeigt in den Diagrammen zunehmen. In dieser Lektion erklärt man, wie man einen Pullover von oben nach unten strickt, es kann vielleicht damit helfen, aber sonnst sagen Sie uns gerne mehr, welches Teil Sie nicht verstehen, so kann man versuchen, Ihnen zu helfen. Danke fü Ihr Verständnis!

26.02.2024 - 15:00

country flag Diane wrote:

Bonjour, je tiens à vous remercier pour votre précieuse aide au début de mon projet, je l’ai (enfin) terminé et il est superbe! Très agréable à tricoter, j’ai juste envie d’en tricoter un autre! Merci beaucoup!

15.09.2021 - 13:44

country flag Diane wrote:

Bonjour, je tricote la grandeur XXL, j’ai fini A2, (38 rangs) et A3 (fini au rang 5), donc j’ai 274 m. Lorsque vous dites après 10 rangs de haut, ajoutez un motif ajouré, où dois-je prendre le modèle (diagramme)et à quelle place je le mets? La séquence est: A2,A3, jeté, m en jersey,jeté,A3,A2,A3,jeté, m en jersey,A3. Merci.

03.08.2021 - 04:22

DROPS Design answered:

Bonjour Diane, augmentez maintenant comme avant au début et à la fin de A.2 (= 1 jeté), et en même temps, continuez le point fantaisie comme avant en répétant les rangs encadrés avec l'étoile, vous tricoterez plus de motifs ajourés que dans le diagramme mais commencez et terminez de la même façon que cette partie. Bon tricot!

03.08.2021 - 09:24

country flag Diane wrote:

Bonjour, pourXXL, au rang 3 de l’empiècement, est-ce qu’on tricote:A2 (19m), A3 (16 m), 1 jeté, 12 ou 14 m?, 1 jeté, A3 (16m), A2 (19m), A3 (16m), 1 jeté, 12 ou 14m ? , 1 jeté, A3 (16m)? Dois-je augmenter de 2 mailles chaque côté des mailles en jersey, tous les deux rangs? De plus, que fait-on quand on a fini le diagramme A3 (8 rangs) est-ce qu’il faut le recommencer au rang 1, jusqu’au 38 rangs du diagramme A2? Merci!

25.07.2021 - 01:17

DROPS Design answered:

Bonjour Diane, au 3ème rang de l'empiècement, vous aurez 14 mailles entre les jetés après A.3 et avant A.3 = les 2 jetés du 1er rang. Ainsi, vous aurez toujours 2 mailles en plus après avoir augmenté à chaque nouveau rang sur l'endroit (= manches). Quand A.3 est terminé, reprenez-le au 1er rang effectivement et continuez ainsi. Bon tricot!

26.07.2021 - 08:48

country flag Diane wrote:

Bonjour, une autre question, savez-vous comment je peux être à 132 au lieu de 126 mailles après le premier tour de l’empiètement? J’ai fait A2, A3, 1 jeté, 12 mailles en jersey, 1 jeté, A3, A2, A3, 1 jeté, 12 mailles en jersey, 1 jeté, A3. Au diagramme A2, dois-je toujours faire les jetés au début et à la fin? Merci, je trouve le modèle superbe mais, je commence à penser que je ne suis pas assez compétente pour y arriver!

18.07.2021 - 21:43

DROPS Design answered:

Bonjour Diane, au 1er rang de A.3 vous faites 1 jeté au milieu pour la petite torsade ajourée, vous devez donc avoir 4 mailles en plus sur les tours avec ce jeté (= A.3 se tricote sur 16 m, mais aux rangs 1 et 5 vous faites 1 jeté, vous aurez donc 17 m aux rangs 1, 2, 5, 6 et 16 m aux rangs 3,4, 7, 8. Vous devez donc avoir 130 m: 118 avant ce premier tour + 2 m augmentées dans chaque A.2 x 2 = 4 m + 2 m augmentées sur chaque manche = 8 m = 118+4+4=126 + 4 jetés de A.3 = 130 m. Bon tricot!

19.07.2021 - 09:15

country flag Diane wrote:

Bonjour, je suis un peu perdue, quels jetés dois-je tricoter torse, les jetés des diagrammes ou les jetés chaque côté des 12 mailles en jersey? Lesquels dois-je tricoter à l’endroit (non torse)? Les corrections apportées sont-elles corrigées sur le version que je viens d’imprimer? Merci beaucoup de votre aide.

18.07.2021 - 21:26

DROPS Design answered:

Bonjour Diane, au tour suivant les augmentations du raglan, tricoter les jetés des diagrammes à l'endroit (ils forment des trous) et les augmentations figurent dans A.2 et tricoter les augmentations des manches torse à l'endroit (ils ne forment pas de trous). Regardez aussi AUGMENTATIONS-2 (côtés dos & devant). La version imprimee par toi est deja corrigee. Bon tricot!

18.07.2021 - 21:51

country flag Florencia Collavino wrote:

Podrían explicarme en las mangas como son los aumentos? son 12puntos que se aumentan cada dos vueltas? porque no entiendo como llegar a la cantidad de 250 puntos al final de A2. Muchas gracias

16.09.2020 - 23:53

DROPS Design answered:

Hola Florencia, los aumentos se trabajan de la siguiente manera: Los aumentos en el cuerpo están incluidos en el diagrama A.2. Para la manga trabajamos los aumentos antes y después de los puntos de la manga. En total hay 8 aumentos en cada vuelta con aumentos (18 vueltas), por lo que hay 144 puntos + los 106 iniciales = 250 puntos.

20.11.2020 - 23:19

country flag Rhona Baxter wrote:

Thanks for your reply ,but that will give me 110 after my first row on round ,reference my first question . That gives me 110 not 106.

05.12.2019 - 15:46

DROPS Design answered:

Dear Mrs Baxter, yes that's right, A.3 is counted throughout the pattern with only 16 sts (see previous answer), so that you should have 106 sts at the end of 1st row (with only 16 sts in each A.3), but since you worked a total of 4 yarnovers in A.3 for the mock cables, you have then 106+4 yarn overs (=2 yarn over in each of both A.3 - these yarn overs are not included in increases, only to the mock cables) = 110 sts on needle. happy knitting!

05.12.2019 - 15:58

country flag Rhona Baxter wrote:

Thanks for your reply, but on A3 ,first row in the middle shows 2 knit squares with the centre showing the diagram with between 2 stitches make 1 yarn over ,which increases this to 17.

05.12.2019 - 14:52

DROPS Design answered:

Dear Mrs Baxter, oh yes you are right, in A.3 you will have sometimes 17 stitches instead of 16 on the rows where you make the yarn over for the small mock cables (= rows 1 and 5), but the number of stitches is given with 16 sts in A.3 to make it easier. Happy knitting!

05.12.2019 - 15:41

country flag Rhona Baxter wrote:

Hi, I hope you can help, just trying to get started and having a problem . The first round yoke ,I keeping getting 4 more than the 106( Second size ), start with 98 ,work A2 X 2 =4 stitches, A3 X4 times =4 stitches, sleeves x2 times = 4 which gives me 110 stiches,not 106 as pattern . Can you advise.

05.12.2019 - 13:51

DROPS Design answered:

Dear Mrs Baxter, in size M you start with 98 sts and work: A.2 (= 5 sts + 2 inc), A.3 (= 16 sts), YO, K12 (sleeve), YO, A.3 (= 16 sts), A.2 (= 5 sts + 2 inc), A.3 (= 16 sts), YO, K12 (sleeve), YO, A.3 (= 16 sts) = 7+16+1+12+1+16+7+16+1+12+1+16= 106 sts at the end of first round. Happy knitting!

05.12.2019 - 14:24