Lemon Pie |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL. Prjónuð húfa úr DROPS Karisma með norrænu mynstri og uppábroti í stroffi.
DROPS 195-10 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------ UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 32) = 3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum er prjónuð önnur hver og 3. hver lykkja slétt saman. UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir að hafa upphækkun. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (= miðja að aftan). Byrjið frá réttu með litnum ljós perlugrár og prjónið 15-16-17-18-19-20 lykkjur slétt framhjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 30-32-34-36-38-40 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 45-48-51-54-57-60 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 60-64-68-72-76-80 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 75-80-85-90-95-100 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 90-96-102-108-114-120 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. Mikilvægt er að prjónfestan haldist einnig á hæðina, annars kemur berustykkið til með að verða of stutt og handvegur of þröngur! MYNSTUR: Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1, A.3, A.4, A.5 og A.6). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Húfa: Sjá mynsturteikningu A.7. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki), prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-100-104-112-116-124 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum ljós perlugrár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 32-34-34-34-34-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 128-134-138-146-150-160 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt. Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykkið verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – prjónið UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan, eða farið beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Lesið LEIÐBEININGAR! Prjónið A.1 hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru prjónaðar 2-2-2-2-4-8 umferðir sléttprjón með litnum sítróna – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 32-34-38-46-50-56 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 160-168-176-192-200-216 lykkjur. Prjónið síðan A.2 hringinn (= 20-21-22-24-25-27 mynstureiningar með 8 lykkjum). JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan: Í umferð með ör-1 er aukið út um 40-48-56-56-64-64 lykkjur jafnt yfir = 200-216-232-248-264-280 lykkjur (nú er pláss fyrir 25-27-29-31-33-35 mynstureiningar með 8 lykkjum). Í umferð með ör-2 er aukið út um 32-40-48-48-56-56 lykkjur jafnt yfir = 232-256-280-296-320-336 lykkjur (nú er pláss fyrir 29-32-35-37-40-42 mynstureiningar með 8 lykkjum). Í umferð með ör-3 er aukið út um 20-32-32-40-40-48 lykkjur jafnt yfir = 252-288-312-336-360-384 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.3 hringinn (= 21-24-26-28-30-32 mynstureiningar með 12 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í umferð með ör-4 er aukið út um 20-16-16-20-20-20 lykkjur jafnt yfir = 272-304-328-356-380-404 lykkjur. Prjónið síðan þar til síðasta umferð í A.3 er eftir. Prjónið síðustu umferðina þannig: Prjónið 42-46-49-54-59-64 lykkjur eins og útskýrt er í síðustu umferð í A.3 (= ½ bakstykki), setjið næstu 52-60-66-70-72-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 84-92-98-108-118-128 lykkjur eins og síðasta umferð sýnir (= framstykki), setjið næstu 52-60-66-70-72-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 42-46-49-54-59-64 lykkjur sem eftir eru eins og síðasta umferð í A.3 sýnir (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 184-200-216-236-260-284 lykkjur. STÆRÐ S og M: Prjónið A.4 hringinn (= 46-50 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.5 hringinn. JAFNFRAMT í umferð með ör-5 í A.5 er aukið út um 16 lykkjur jafnt yfir í báðum stærðum = 200-216 lykkjur. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er prjónað áfram eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR! STÆRÐ L: Prjónið A.5 hringinn (= 54 mynstureiningar með 4 lykkjum). JAFNFRAMT í umferð með ör-5 er aukið út um 16 lykkjur jafnt yfir = 232 lykkjur. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er prjónað áfram eins og útskýrt er í ALLAR STÆRÐIR! ALLAR STÆRÐIR Prjónið A.6 hringinn (= 50-54-58-59-65-71 mynstureiningar með 4 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör-5 í A.6 er aukið út um 16 lykkjur jafnt yfir (á einungis við stærð XL, XXL og XXXL og á einungis við í fyrsta skipti sem A.6 er prjónað á hæðina í þessum stærðum) = 200-216-232-252-276-300 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.6 þar til stykkið mælist ca 31 cm frá skiptingu í öllum stærðum. Prjónið 1 umferð slétt með litnum sítróna þar sem aukið er út um 52-56-60-64-68-76 lykkjur jafnt yfir = 252-272-292-316-344-376 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn með litnum sítróna (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 52-60-66-70-72-74 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 60-68-76-80-84-88 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi, þ.e.a.s. setjið prjónamerki í fyrstu lykkju eftir miðju, teljið 29-33-37-39-41-43 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= miðjulykkja). Nú eru 29-33-37-39-41-43 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerki undir ermi á að nota síðar þegar lykkjum er fækkað og prjónamerki mitt ofan á ermi á að nota til að telja hvar mynstrið byrjar. LESIÐ AFGANG AF KAFLA UM ERMI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið síðustu umferð í A.3 þannig að A.3 endi á sama stað eins og á fram- og bakstykki. STÆRÐ S og M: Prjónið A.4 hringinn (= 15-17 mynstureiningar með 4 lykkjum), teljið út frá miðju – miðjulykkjan í A.4 (merkt með þríhyrning) á að passa við lykkju með prjónamerki í mitt ofan á ermi. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.5 hringinn. Eftir A.5 er prjónað A.6 hringinn. A.6 er endurtekið alveg niður að stroffi. STÆRÐ L: Prjónið A.5 hringinn (= 19 mynstureiningar með 4 lykkjum), en teljið út frá miðju – miðjulykkjan í A.5 (merkt með þríhyrning) á að passa við lykkju með prjónamerki mitt ofan á ermi. Eftir A.5 er prjónað A.6 hringinn. A.6 er endurtekið alveg niður að stroffi. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Prjónið A.6 hringinn (= 20-21-22 mynstureiningar með 4 lykkjum), en teljið út frá miðju – miðjulykkja í A.6 (merkt með þríhyrning) á að passa við lykkju með prjónamerki mitt ofan á ermi. Haldið áfram með A.6 alveg niður að stroffi. ÚRTAKA: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2-2-2-2-3-3 cm fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6 -4-2½-2½-2-1½ cm millibili alls 7-10-13-14-15-16 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Þegar ermin mælist ca 40-39-37-35-34-32 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) prjónið 1 umferð slétt með litnum sítróna þar sem aukið er út um 2-0-2-0-2-0 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur (ef affellingarkanturinn verður stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af – uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 45-44-42-40-39-37 cm frá skiptingu og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. ------------------------------------------------------- HÚFA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 132-140 lykkjur á hringprjón 3 með litnum ljós perlugrár. Prjónið stroff í hring (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 36-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 96-104 lykkjur. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið A.7 hringinn (= 12-13 mynstureiningar með 8 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með litnum sítróna. Þegar stykkið mælist 24-24 cm prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-2 lykkjur jafnt yfir = 96-102 lykkjur. Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta prjónamerkið er sett í byrjun á umferð, síðan eru 5 næstu prjónamerki sett með 16-17 lykkja millibili. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki með því að prjóna 2 fyrstu lykkjur á eftir hverju prjónamerki slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 10-10 sinnum og síðan í hverri umferð alls 2-3 sinnum = 24-24 lykkjur eftir. Prjónið 2 sléttar umferðir þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 í báðum umferðum = 6-6 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist alls ca 32-33 cm ofan frá og niður. Brjótið uppá helming af stroffkanti. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (29)
Wat is de kabellengte die ik nodig heb voor de mouwen? Ik kan niet zo goed met 4naalden breien en wil dus een rondbreinaald gebruiken voor de mouwen.
14.12.2018 - 08:17DROPS Design answered:
Dag Krysia,
Hiervoor heb je de korte rondbreinaald van 40 cm nodig.
18.12.2018 - 10:26Gibt es eine Anleitung, wie man den Übergang vom Rumpf zum Ärmel arbeiten soll? Woher kommt der Faden zum Auffassen der zusätzlich angeschlagenen Maschen bzw. wie funktioniert das im 2-farbigen Muster? Ich konnte dazu leider in den Tutorials nichts finden. Eine Hilfe wäre super!
24.09.2018 - 17:44DROPS Design answered:
Liebe Anna, dieses Video zeigt wie man die Maschen der Ärmel stillegt und wie man die neuen Maschen unter den Ärmel anschlägt (timecode ca .6:54) - diese Maschen können Sie dann mit den beiden Farben wie im Diagram anschlagen. Das Video zeigt die Technik mit einem Raglanpullover, aber mit einer runden Passe wird dieser Teil genauso gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
25.09.2018 - 09:47Welche andere Wolle statt Karisma kann man auch verwenden?
27.08.2018 - 19:26DROPS Design answered:
Liebe Frau Hambloch, Sie können alle Garne der Garngruppe B verwenden. Über dem Button "Kommentare" im Kopf der Anleitung finden Sie einen Link zur Garnumrechnung, wenn Sie ein anderes Garn verwenden möchten. Viel Spaß beim Stricken!
29.08.2018 - 10:21Does this sweater pattern mean size small is 56 inches across??\\r\\nThat seems very large
26.08.2018 - 00:37DROPS Design answered:
Hi Judy, The chest measurements in the diagram are in centimetres, so in size small,the jumper is 46 cm (18 1/2 inches) in width. Happy knitting
26.08.2018 - 07:52This is a beautiful jumper in lovely colours. Will you be releasing a cardigan pattern?
21.08.2018 - 11:50Klopt het lijf wel? Ik mis een beschrijving voor mt xl-xxl net na het verdelen van het werk in lijf en mouwen!
12.08.2018 - 12:28DROPS Design answered:
Dag Marije, In de maten xl, xxl en xxxl kun na de pas verder gaan bij de beschrijving voor alle maten in de paragraaf over het LIJF. In deze maten is het Scandinavisch patroon (dat in de kleinere maten nog op het lijf moet worden gebreid) al verwerkt in A.3.
12.08.2018 - 17:25Gillar den här tröjan.
03.08.2018 - 08:19Floar norsk mønster
06.07.2018 - 13:43Gillar norskt och set.
08.06.2018 - 18:49