Sissi skrifaði:
Liebes Drops Team, leider kann den Link nicht öffnen. 😔 Liebe Grüße 💕
11.01.2024 - 09:52DROPS Design svaraði:
Liebe Sissi, Sie können den link hier öffnen. Viel Spaß beim Stricken!
14.01.2024 - 09:30
Sissi skrifaði:
Kann ich dieses Model in XL auch für Herren nehmen. Dann stimmt aber die Passhöhe nicht, da bräuchte ich 30, oder 31? Die Breite mit 60cm würde passen. Wie könnte ich die Länge der Passe verlängern/passend machen bei einer Breite bei 60 cm Rumpfteil? Liebe Grüße 🌟🙏🌟
10.01.2024 - 15:54DROPS Design svaraði:
Liebe Sissi, hier lesen Sie, wie man für einen Mann umrechnen kann. Viel Spaß beim stricken!
11.01.2024 - 07:41
Regina skrifaði:
Ich stricke den Norweger- Pullover Steingard. Ich bin beim Ärmel, der von oben nach unten gestrickt wird. Unter dem Arm, werden mittig Abnahmen getätigt. Mein Problem: Wie strickt man bei Abnahmen das Muster? Es kommt, durch die Abnahme ja nicht mehr hin! Logisch, aber wie Teile ich die Maschen auf? Ich würde mich sehr über eine Antwort freuen! Liebe Grüße Regina
13.05.2020 - 01:23DROPS Design svaraði:
Liebe Regina, korrekt, wenn Sie abnehmen wird das Muster nicht mehr unter den Ärmeln anpassen, aber das Muster muss immer in der Höhe richtig sein, dh einige Maschen vom Diagram am Anfang und am Ende der Runde werden nicht mehr gestrickt, aber muss in der Höhe immer wie zuvor sein. Diese Lektion könnte Ihnen damit weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!
13.05.2020 - 08:39
Tove Riseth skrifaði:
Hei, jeg lurer på hvorfor det skal økes så mye før det skal strikkes vrangbord på bolen ??
08.11.2019 - 11:02DROPS Design svaraði:
Hei Tove. Det er fordi plagget i sin helhet blir penere og ikke en slik innsnervet vrangbord som det ofte var på 80-tallet. mvh DROPS design
11.11.2019 - 14:46
Liesbeth skrifaði:
Hoe voorkom ik bij rondbreien bij het wisselen van kleur in de volgende naald het duidelijke verspringen van kleur bij de start van de nieuwe naald? ( Ik weet dat ik die instructievideo ooit gezien heb, maar ik kan deze nu nergens meer vinden
15.10.2019 - 01:29DROPS Design svaraði:
Dag Liesbeth,
Met Fair Isle breien ontkom je niet aan een verspring. Er is wel een video over strepen in de rondte breien zonder verspring in de overgang (helixbreien), maar dat is niet van toepassing op deze trui.
15.10.2019 - 15:40
Hilde Laugtug skrifaði:
Hei, lurer på om dere har forslag til et annet garn det går an strikke denne genseren i ? Litt tynnere , ullgarn gjerne . Mvh Hilde Laugtug
18.09.2019 - 20:47DROPS Design svaraði:
Hej Hilde, du kan strikke denne skønne trøje i alle vores garner fra garngruppe B Garngruppe B God fornøjelse!
19.09.2019 - 10:00
Myrna Gobjerg skrifaði:
ønsker denne opskrift
19.08.2018 - 18:03Claudia skrifaði:
I would like to made this sweater, it’s beautiful. Are you considering translate this pattern to Spanish? Thanks
16.08.2018 - 05:24DROPS Design svaraði:
Dear Claudia, all new patterns are being translated right now and this one should be translated to Spanish by the end of the month.
16.08.2018 - 19:18Claudia skrifaði:
I would like to made this sweater, it’s beautiful. Are you considering translate this pattern to Spanish? Thanks
16.08.2018 - 05:21
Steingard#steingardsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Puna. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 195-6 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð (= miðja að aftan). Byrjið frá réttu með litnum ljós grár og prjónið að 16-17-18-19-20-21 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 32-34-36-38-40-42 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 48-51-54-57-60-63 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 64-68-72-76-80-84 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 80-85-90-95-100-105 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 96-102-108-114-120-126 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 99 lykkjur og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 29) = 3,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ATH: Við ör-2 og ör-5 er aukið út í flestum stærðum í umferð með mynstri, hér er mikilvægt að stilla útaukningu af þannig að aukið er út í grunnlit í mynsturborða. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 99-105-108-111-117-123 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum grár. Prjónið 1 umferð slétt. Nú er prjónað stroff í hring (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar 1 umferð í stroffi hefur verið prjónuð er skipt yfir í litinn ljós grár. Haldið áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 4 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 29-31-36-41-43-45 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 128-136-144-152-160-168 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt. Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykkið verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmál alveg eins að framan og að aftan – prjónið UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan, eða farið beint áfram í BERUSTYKKI: BERUSTYKKI: Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið A.1 hringinn (= 16-17-18-19-20-21 mynstureiningar með 8 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – sjá ÚTAUKNING og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umferð merktri með ör-1 er aukið út um 24-24-32-32-32-32 lykkjur jafnt yfir = 152-160-176-184-192-200 lykkjur (nú er pláss fyrir 19-20-22-23-24-25 mynstureiningar með 8 lykkjum). Í umferð með ör-2 aukið út um 40-48-56-56-64-72 lykkjur jafnt yfir = 192-208-232-240-256-272 lykkjur (nú er pláss fyrir 24-26-29-30-32-34 mynstureiningar með 8 lykkjum). Í umferð með ör-3 er aukið út um 32-40-40-48-48-56 lykkjur jafnt yfir = 224-248-272-288-304-328 lykkjur (nú er pláss fyrir 28-31-34-36-38-41 mynstureiningar með 8 lykkjum). Í umferð með ör-4 er aukið út um 28-34-34-42-50-50 lykkjur jafnt yfir = 252-282-306-330-354-378 lykkjur (nú er pláss fyrir 42-47-51-55-59-63 mynstureiningar með 6 lykkjum). Í umferð með ör-5 er aukið út um 22-22-20-26-36-40 lykkjur jafnt yfir = 274-304-326-356-390-418 lykkjur. Þegar síðasta umferð í A.1 er eftir mælist stykkið ca 23-23-25-27-29-30 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Ef stykkið mælist minna en þetta er hægt að prjóna áfram með grár (í S, M, L, XL og XXL) eða dökk grár (í XXXL) að réttu máli. Síðasta umferð í A.1 er prjónuð frá miðju að aftan þannig: Prjónið 39-44-47-52-58-63 lykkjur eins og áður (= ½ bakstykki), setjið næstu 58-64-68-74-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 79-89-95-105-117-127 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 58-64-68-74-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 40-44-48-52-59-64 lykkjur sem eftir eru (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 174-192-210-228-258-282 lykkjur. Prjónið A.2 hringinn (= 29-32-35-38-43-47 mynstureiningar með 6 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör-6 í A.2 er aukið út um 24 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 198-216-234-252-282-306 lykkjur (nú er pláss fyrir 33-36-39-42-47-51 mynstureiningar með 6 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með dökk grár. Þegar stykkið mælist 30-32-32-32-32-33 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 48-54-60-66-72-78 lykkjur jafnt yfir = 246-270-294-318-354-384 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 9. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 58-64-68-74-78-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-72-78-84-90-96 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið á að nota síðar þegar úrtaka byrjar undir ermum. Prjónið síðustu umferð í A.1 þannig að A.1 endar alveg eins á ermi og á fram- og bakstykki. Prjónið A.2 hringinn (= 11-12-13-14-15-16 mynstureiningar með 6 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað sléttprjón með dökk grár. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 1 cm millibili alls 0-0-0-5-8-8 sinnum, fækkið lykkjum síðan með 2 cm millibili alls 3-5-7-0-0-0 sinnum og fækkið að lokum með 3½-3-2½-2-2-1½ cm millibili alls 8-8-8-12-11-13 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 36-36-35-33-31-31 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-8-9-7-8-9 lykkjur jafnt yfir = 51-54-57-57-60-63 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 9. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 42-42-41-39-37-37 cm frá skiptingu og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #steingardsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.