Steingard Set |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónuð húfa úr DROPS Puna. Stykkið er prjónað með norrænu mynstri og er með dúsk. Prjónaðar handstúkur úr DROPS Puna. Stykkið er prjónað með norrænu mynstri.
DROPS 195-8 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1. Handstúkur: Sjá mynsturteikningu A.2 og A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman. ÚRTAKA (á við um efst á húfu): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um op fyrir þumal): Opið fyrir þumalin er prjónað með litnum ljós grár. Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Í næsta skipti þegar aukið er út þá er það gert þannig: Prjónið þar til eftir er 1 lykkja á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Haldið svona áfram með útaukningu, þ.e.a.s. aukið út allan tímann utan við útauknar lykkjur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 108-114 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum grár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-2 lykkjur jafnt yfir = 104-112 lykkjur. Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið A.1 hringinn (= 13-14 mynstureiningar með 8 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með litnum ljós grár. Þegar stykkið mælist 21-23 cm frá uppfitjunarkanti eru sett 8 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta prjónamerkið er sett í byrjun á umferð. Næstu 7 prjónamerki eru sett með 13-14 lykkja millibili. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á undan hverju og einu af 8 prjónamerkjum – sjá ÚRTAKA = 8 lykkjur færri. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 4 sinnum = 32-40 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 16-20 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt án úrtöku. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar aftur slétt saman 2 og 2 = 8-10 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 26-28 cm ofan frá og niður. DÚSKUR: Gerið einn dúsk með litnum dökk grár ca 3-4 cm að þvermáli og festið dúskinn á toppinn á húfunni. ------------------------------------------------------- HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. Þumallinn er prjónaður í hring á sokkaprjóna. HÆGRI HANDSTÚKA: Fitjið upp 45-54 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum grár. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 5-6 lykkjur jafnt yfir (prjónið 8. og 9. hverja lykkju slétt saman) = 40-48 lykkjur. Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið A.2 hringinn (= 5-6 mynstureiningar með 8 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 10 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið síðan sléttprjón með litnum ljós grár. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-11 cm er sett 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í byrjun á umferð. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING = 2 lykkjur fleiri. Aukið svona út í 3. hverri umferð alls 4-5 sinnum = 48-58 lykkjur. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 13-15 cm. Prjónið síðan án útaukninga þar til stykkið mælist 15-16 cm. Setjið 9-11 lykkjur fyrir þumal á þráð. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni með litnum ljós grár og fitjið að auki upp 1 nýja lykkju á prjóninn aftan við þumal = 40-48 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 16-18 cm (nú er eftir ca 3 cm til loka – mátið e.t.v. handstúkuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið A.3 hringinn. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er prjónuð 1 umferð slétt með litnum grár þar sem auknar eru út 5-6 lykkjur jafnt yfir (sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. hverja lykkju, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist gat) = 45-54 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Handstúkan mælist ca 19-21 cm ofan frá og niður. ÞUMALL: Setjið til baka 9-11 lykkjur af þræði á sokkaprjón 3,5, prjónið að auki upp 6-7 nýjar lykkjur á bakhlið á þumli með litnum ljós grár = 15-18 lykkjur. Prjónið 3-4 umferðir sléttprjón, en passið uppá að þumallinn sé ekki prjónaður of fast. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm (eða að óskaðri lengd). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. VINSTRI HANDSTÚKA: Fitjið upp 45-54 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum grár. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt) í 2 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 5-6 lykkjur jafnt yfir (prjónið 8. og 9. hverja lykkju slétt saman) = 40-48 lykkjur. Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið A.2 hringinn (= 5-6 mynstureiningar með 8 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 10 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið síðan sléttprjón með litnum ljós grár. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-11 cm er sett 1 prjónamerki í síðustu lykkju í lok á umferð. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING = 2 lykkjur fleiri. Aukið svona út í 3. hverri umferð alls 4-5 sinnum = 48-58 lykkjur. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 13-15 cm. Prjónið síðan án útaukninga þar til stykkið mælist 15-16 cm. Setjið 9-11 lykkjur fyrir þumal á þráð. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni með litnum ljós grár og fitjið að auki upp 1 nýja lykkju á prjóninn aftan við þumal = 40-48 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 16-18 cm (nú er eftir ca 3 cm til loka – mátið e.t.v. handstúkuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið A.3 hringinn. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er prjónuð 1 umferð slétt með litnum grár þar sem auknar eru út 5-6 lykkjur jafnt yfir (sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. hverja lykkju, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist gat) = 45-54 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Handstúkan mælist ca 19-21 cm ofan frá og niður. Prjónið þumal á sama hátt og á hægri handstúku. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (10)
Silvia wrote:
En el pulgar se aumentan 8 p nos quedamos con 48, no puede ser q dejemos en espera para el pulgar9p, y nos quedemos para seguir tejiendo con 40
14.11.2022 - 21:31Ornella wrote:
Ho realizzato il maglione steingard per mia nipote, bellissimo!La mia domanda è perché per il maglione consigliate i ferri nr. 3.5 per le coste e 4 per il resto mentre per il cappello 3 e 3.5? Grazie
18.03.2021 - 19:23DROPS Design answered:
Buonasera Ornella, il cappello ha una struttura più sostenuta, quindi serve una trama più fitta. Buon lavoro!
19.03.2021 - 23:07Monteuuis wrote:
Bonjour peut-on acheter un bonnet déjà tricoté car ils sont magnifiques ! merci de me renseigner.
22.11.2019 - 12:55DROPS Design answered:
Bonjour Mme Monteuuis, nous ne proposons que les explications des modèles, vous pouvez toutefois poser la question aux magasins DROPS ou sur le groupe DROPS Workshop. Merci!
22.11.2019 - 13:24Alice wrote:
Is there also a pattern for the beautiful scarf? Thank you.
04.08.2019 - 23:04DROPS Design answered:
Hi Alice! This scarf is not knitted :( Browse all our patterns by category HERE. I hope you will find something suitable for you. Happy knitting!
05.08.2019 - 08:32Christina H wrote:
Hej Diagrammen på mönstren har fallit bort från sidan. Med vänlig hälsning, Christina H
20.10.2018 - 14:47Mona Lind wrote:
Jag ska sticka mössan men hittar inte antal maskor som ska läggas upp, hur lång den blir, samt hoptagningsvarv. Jag saknar helt enkelt en beskrivning. Vore tacksam om ni snarast kan ge mig en beskrivning. Tack på förhand!
24.09.2018 - 19:49DROPS Design answered:
Hei Mona. Her hadde det skjedd en glipp, så informasjonen til oppskriften hadde blitt lastet opp 2 ganger. Dette er nå fikset og selve oppskriften skal være tilgjengelig. Takk for beskjed, og god fornøyelse.
25.09.2018 - 08:10Nathalie wrote:
Re bonjour, merci d’avoir bien répondu à ma question j’ai bien compris toute fois j’aimerais savoir sur le jacquard quand je tricote et je fais le motifs et je commence avec une nouvelle couleurs comment je fais pour joindre car ma couleur primaire ne suis plus ?? J’espre Que je me fais comprendre ses pas évident d’expliquer. Merci à l’avance
05.09.2018 - 02:07DROPS Design answered:
Bonjour Nathalie, cette vidéo montre comment tricoter le jacquard. Quand une couleur n'est plus tricotée sur quelques rangs (ex le gris foncé), vous pouvez la faire suivre en hauteur (sur l'envers), reprenez-la ensuite quand vous en avez besoin, en veillant à ne pas trop serrer le fil pour ne pas resserrer le motif en hauteur. Bon tricot!
05.09.2018 - 08:51Boucher wrote:
Pour le bonnet quand vous dite tricoter A1 en rond 14 motifs de 8 mailles sa veux tu dire que mes 112 mailles je répète mes 8 mailles dû motifs jusqu’au bout du rang et ainsi de suite? Et placer 8 fils marqueurs à 23 cm? Je comprends pas 8 fils
27.08.2018 - 23:47DROPS Design answered:
Bonjour Mme Boucher, vous allez effectivement répéter 14 fois les 8 mailles du diagramme (vous pouvez placer un marqueur entre chaque diagramme pour bien vous repérer). Ensuite, à 23 cm, vous placez des fils marqueurs (voir ici) ainsi: le 1er au début du tour, *comptez 13 m, placez 1 marqueur*, repétez de *-* jusqu'à la fin du tour. Bon tricot!
04.09.2018 - 13:27Nathalie wrote:
Pour le bonnet quand vous dite tricoter A1 en rond 14 motifs de 8 mailles sa veux tu dire que mes 112 mailles je répète mes 8 mailles dû motifs jusqu’au bout du rang et ainsi de suite? Et placer 8 fils marqueurs à 23 cm? Je comprends pas 8 fils
27.08.2018 - 03:57Nathalie wrote:
J’adore le modèle de tuque et les chauffe mains très hâte d’avoir le patron ....
12.07.2018 - 02:28