Sharon skrifaði:
Sleeve/body increases on every row or every-other row as is normal? Thanks
04.03.2019 - 11:56DROPS Design svaraði:
Dear Sharon, you increase for raglan every other round 23-27-29-32-34-39 times in total (= 1 round with increase, 1 round without increase, repeat these 2 rounds the number of times applying to your size). Happy knitting!
04.03.2019 - 13:14
Lea Nielsen skrifaði:
Har fundet ud af det. Jeg har troet at min første mærketråd var også der min omgang startede. Så det var min egen fejl. Omgangen starter jo 3 masker før første mærketråd. BINGO!! Så stemmer det hele og jeg beklager mange gange. Hilsen en glad Lea
04.02.2019 - 21:28
Lea Nielsen skrifaði:
Hej. Jeg er ved at strikke modellen i XXL. Når bærestykket er færdig har jeg 380 masker som beskrevet i opskriften. Så er der en rettelse som jeg ikke kan hitte ud af. Skal der være 107 masker foran og 114 masker bag? Det vil nemlig stemme. Men ifgl rettelsen står der 107 masker foran og 107 bag. Ærmerne kommer til at sidde lidt forskud, ifht midt under ærmet, fremmod? Venlig hilsen Lea
04.02.2019 - 11:49DROPS Design svaraði:
Hei Lea. Så flott at du fant ut av det. God fornøyelse videre
08.02.2019 - 13:25
Turid skrifaði:
Skal jeg bruke samme størrelse på strikke pinne som beskrevet på mønster hvis jeg bruker Cotton merino? Bør jeg strikke den 1 størrelse større?
01.02.2019 - 08:44DROPS Design svaraði:
Hei Turid. Igjen, så er det strikkefastheten som avgjør hvilken pinnestørrelse du må bruke. Derfor står det alltid at pinnestørrelsen kun er veiledende. Du må selv justere pinnestørrelsen opp eller ned slik at du får den angitte strikkefasteheten - derfor råder vi alltid til å strikke en prøvelapp. Om ikke strikkefastheten blir overholdt blir målene på plagget annerledes enn på målskissen. Dette er en smal modell, så det er lurt å se på målskissen når du velger størrelse. Overholder du strikkefastheten blir målene som på skissen, uavhengig av hvilket garn du bruker. God fornøyelse.
01.02.2019 - 08:58
Turid skrifaði:
Kan du bruke cotton merino på denne genseren?
31.01.2019 - 22:05DROPS Design svaraði:
Hei Turid. Ja, Cotton Merino og Sky har samme strikkefasthet så du kan bytte de med hverandre. Strikk deg likevel en prøvelapp så du er sikker på du får den angitte strikkefastheten. Vær obs på at Cotton merino ikke er like elastisk som Sky. God fornøyelse.
01.02.2019 - 08:28
Lene Øst skrifaði:
Det er mig med silkemohair garnet, jeg glemte min mail. Mvh Lene Øst
27.01.2019 - 14:24
Lene Øst skrifaði:
Jeg vil gerne strikke denne model. Jeg har 5 nøgler silkemohair jeg vil kombinere med en uldgarn fra jer. Hvad vælger jeg så det passer til opskriften og pindene. Den garn jeg har, beskrives med 210 m/25g og pinde 3,5 til 4. Og 23 masker X 36 pinde måler 10x10 cm.
27.01.2019 - 14:22DROPS Design svaraði:
Hei Lene. Det som er viktig ved bytte av garn er at den angitte strikkefastheten bli overholdt. I denne oppskriften er det 20 masker i bredden og 26 pinner i høyden med glattstrikk = 10 x 10 cm. Det kan virke som det garnet du har er for tykt til å kunne kombineres med et annet garn for å få denne strikkefastheten, samtidig som det er for tynt til å kunne strikkes med alene. Denne modellen er strikket med Sky, som tilhører garngruppe B - våre nest tynneste garn. Å bytte dette med 2 tråder av andre garn blir derfor vanskelig ettersom strikkefastheten er såpass tett. Du kan selvfølgelig prøve deg frem og se om du får det til likevel. God fornøyesle.
29.01.2019 - 13:27
Hannie Van Ballegooy skrifaði:
Hebt u ook tips hoe ik het beste de gaten onder de arm kan dichtmaken?
26.01.2019 - 09:45DROPS Design svaraði:
Dag Hannie
Je kunt beide delen met de goede kant tegen elkaar aan leggen en dan met naald en draad met kleine steken dicht naaien.
27.01.2019 - 13:38
Krista skrifaði:
Na de raglan meerderingen moet ik verder breien tot 23cm. Meet ik dit loodrecht op boord of wordt dit gemeten lzngs de raglanmeerderingen?
04.01.2019 - 22:50DROPS Design svaraði:
Dag Krist,
Dit wordt loodrecht vanaf de boord gemeten.
06.01.2019 - 13:21
Elizabeth Hillier skrifaði:
What are the measurements for the sizes?
31.12.2018 - 15:58DROPS Design svaraði:
Dear Elizabeth, at the bottom of the page you can find a sketch with the sizes measures. Happy knitting!
31.12.2018 - 18:23
Red Sky#redskysweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 197-23 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 12. Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna 11. og 12. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá jafnt yfir þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur og að berustykki verði aðeins hærra í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu aðeins neðar í uppskrift. Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-100-104-112-120-124 lykkjur á hringprjón 3,5 með Sky. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-8-8-12-12-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 88-92-96-100-108-112 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið nú upphækkun aftan í hnakka eða farið beint áfram og prjónið berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun. UPPHÆKKUN Í HNAKKA: Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð = miðja að aftan. Byrjið frá réttu og prjónið 6-6-7-7-8-8 lykkjur slétt framhjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 12-12-14-14-16-16 lykkjur brugðið frá röngu, snúið, herðið á þræði og prjónið 18-18-21-21-24-24 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-28-28-32-32 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið 30-30-35-35-40-40 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 36-36-42-42-48-48 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið 42-42-49-49-56-56 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 48-48-56-56-64-64 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan. Klippið frá. Byrjið næstu umferð (þ.e.a.s. á berustykki) eftir fyrstu 13-14-14-15-16-17 lykkjur í umferð. BERUSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki hér – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið jafnframt er prjónað sléttprjón hringinn frá réttu þannig: Prjónið 3 lykkjur slétt (= 3 lykkjur á bakstykki), setjið 1 prjónamerki hér, prjónið næstu 12-12-14-14-16-16 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki hér, prjónið næstu 32-34-34-36-38-40 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki hér, prjónið 12-12-14-14-16-16 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki hér, prjónið síðustu 29-31-31-33-35-37 lykkjur (= bakstykki) á eftir síðasta prjónamerki (nú eru eftir 3 lykkjur að fyrsta prjónamerki). Næsta umferð er prjónuð þannig: 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6-6-8-8-10-10 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 26-28-28-30-32-34 lykkjur slétt (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6-6-8-8-10-10 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 26-28-28-30-32-34 lykkjur slétt (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Haldið áfram í sléttprjóni og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 23-27-29-32-34-39 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning eins og útskýrt er að ofan). Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 272-308-328-356-380-424 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni án útaukningar þar til stykkið mælist 20-22-23-26-28-31 cm frá prjónamerki í byrjun á berustykki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 4-3-4-5-7-7 lykkjur sléttprjón (= á bakstykki), setjið næstu 56-66-70-74-76-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón yfir næstu 80-88-94-104-114-126 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 56-66-70-74-76-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón yfir síðustu 76-85-90-99-107-119 lykkjur (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 176-192-208-228-252-276 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Byrjið umferð við annað prjónamerkið og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 8 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 17 cm frá skiptingu = 184-200-216-236-260-284 lykkjur. Þegar stykkið mælist 27-27-28-26-26-25 cm frá skiptingu (ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl) prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 36-40-44-48-52-56 lykkjur jafnt yfir = 220-240-260-284-312-340 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, fellið af með prjón 4,5. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. ERMI: Setjið 56-66-70-74-76-86 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjón 4,5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 64-74-80-84-88-98 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjum undir ermi og byrjið á umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 7.-5.-4.-4.-3.-3. hverri umferð alls 13-17-19-20-21-25 sinnum = 38-40-42-44-46-48 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 39-37-37-35-33-31 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-6-8-6-8 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-52-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Ermin mælist ca 44-42-42-40-38-36 cm frá skiptingu. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með sokkaprjónum 4,5. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #redskysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 197-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.