Raspberry Delight |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 197-22 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Öll útaukning er gerð frá réttu! Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 9,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 10. hverja lykkju. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. UPPHÆKKUN Í HNAKKA: Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 merkiþráð mitt í umferð = miðja að aftan. Byrjið frá réttu og prjónið 9-10-11-12-13-14 lykkjur slétt framhjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 18-20-22-24-26-28 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið 27-30-33-36-39-42 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 36-40-44-48-52-56 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið 45-50-55-60-65-70 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið út umferðina (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Aukið er út um alls 8 lykkjur í hverri útauknings umferð. MYNSTUR (á við um laskalínu): Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT (ofan frá og niður): Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = Prjónið frá réttu þar til eftir eru þrjár lykkjur á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagati þegar kantur í hálsmáli mælist ca 1½ cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8½-9-8-8-8½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Eftir kant í hálsmáli er prjónuð upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur og að berustykkið verði aðeins hærra aftan í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu í uppskrift. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-112-116-124-128-132 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3,5 með Sky. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 10-14-10-14-10-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 118-126-126-138-138-146 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan, eða farið beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): 1. prjónamerki er sett á eftir fyrstu 25-26-27-28-29-30 lykkjur (= framstykki), 2. prjónamerki er sett á eftir næstu 14-16-14-18-16-18 lykkjur (= ermi), 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 40-42-44-46-48-50 lykkjur (= bakstykki) og 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 14-16-14-18-16-18 lykkjur (= ermi). Nú eru 25-26-27-28-29-30 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki (= framstykki). Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) þar til aukið hefur verið út alls 22-25-28-30-33-35 sinnum hvoru megin við 4 prjónamerkin. Á eftir síðustu útaukningu eru 294-326-350-378-402-426 lykkjur í umferð. Prjónið síðan án útaukningar þar til stykkið mælist 23-25-27-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan, en til að gataröðin haldi áfram meðfram laskalínu eftir að útaukningu lauk er prjónað A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þar til berustykkið hefur verið prjónað til loka (prjónamerki í laskalínu er staðsett mitt í A.1). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 51-55-58-63-68-73 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 50-58-64-68-70-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 92-100-106-116-126-136 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 50-58-64-68-70-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 51-55-58-63-68-73 lykkjur sem eftir eru slétt (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 210-226-242-262-286-310 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 23 cm frá skiptingu í öllum stærðum er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 42-42-46-50-54-62 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 252-268-288-312-340-372 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 5 kantlykkju að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið laust af með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með hringprjón 4,5. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 50-58-64-68-70-72 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjón 4,5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 58-66-74-78-82-86 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi og byrjið á umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2-3-3-3-3-3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 10-13-16-17-18-19 sinnum = 38-40-42-44-46-48 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 39-38-36-36-35-33 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-6-8-6-8 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-52-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með sokkaprjónum 4,5. Ermin mælist ca 44-43-41-41-40-38 cm frá skiptingunni. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (7)
Marica wrote:
Salve , il diagramma mostra che bisogna fare un gettato e poi una diminuzione a 3 m dal marker, e quindi il n di m resta invariato, e allora l’aumento dei raglan dove si fa? E se deve essere aggiunto perché non fare un gettato e basta?
04.05.2022 - 05:31DROPS Design answered:
Buonasera Marica, gli aumenti per il raglan si lavorano in ogni punto di passaggio tra il raglan e il corpo: deve seguire le istruzioni riportate nel paragrafo "RAGLAN" all'inizio delle spiegazioni. Buon lavoro!
07.05.2022 - 17:17Annamaria wrote:
Quando devo iniziare a lavorare il diagramma a1 ? Grazie...
04.04.2022 - 21:01DROPS Design answered:
Buongiorno Annamaria, il diagramma A.1 si lavora sullo sprone sulle linee del raglan. Buon lavoro!
05.04.2022 - 08:14Zette wrote:
La dernière boutonnière se situe avant de tricoter la bordure de côtes, est-ce juste? Il n'y en a pas tout en bas?
05.09.2021 - 17:55DROPS Design answered:
Bonjour Mme Zette, tout à fait, la dernière boutonnière ne se situe pas tout en bas, dans les côtes (cf photo, on voit le bouton même juste avant les côtes sur le devant gauche). Bon tricot!
06.09.2021 - 07:51Hanne Rasmussen wrote:
Hej. Jeg har strikket hele bærestykket, her er noget galt, maskeantallet passer ikke ved deling til ærmer. Når jeg lægger antal udtagningerne sammen med antal masker, hvor mærkerne sættes, er der for mange på ærmer og for få på for og bag stykker. Det samme i norske opskrift, men på bluse 197/23 passer maskeantallet - ikke på cardigan. Str xxxl deles 30-18-50-18-30m =146m 35 udt giver 65-88-120-88-65 m. = 426 m.
25.04.2021 - 17:29DROPS Design answered:
Hej Hanne, jo men det stemmer at du skal tage nogle af ærmemaskerne til forstykket, 73-72-136-72-73= 426. Så når du strikker ryg og forstykke har du 310 masker (73-14-136-14-73) God fornøjelse!
29.04.2021 - 15:36Martina wrote:
Hallo! Müssen die Knopflöcher nicht in der Rückreihe gestrickt werden? Sonst kommt es bei mir nicht auf die richtige Seite.
11.12.2018 - 07:31DROPS Design answered:
Liebe Martina, die Knopflöcher werden am Ende einer Hinreihe gestrickt, damit sie an die richtige Stellen sein werden. Viel Spaß beim stricken!
11.12.2018 - 09:01Murielle wrote:
Très beau modèle
11.07.2018 - 12:43Amparo wrote:
Original y versátil.
21.06.2018 - 23:35