Marja Verelst skrifaði:
190-10 Moet ik in patr. A4 aan beide kanten meerderen. Maar wat wordt bedoeld: meerder aan elke kant van elk a4+1 steek aan elke kant? Dat is toch dubbel. Ik zie wel gaatjes op de foto. Maar niet elke 4e naald?
21.04.2021 - 10:50DROPS Design svaraði:
Dag Marja,
Je meerdert inderdaad aan beide kanten van A.4, dus in totaal 8 steken op een toer en dit doe je om de 4 naalden. Als je goed kijkt op de foto zie je ook gaatjes in de zijnaden naast A.4.
25.04.2021 - 13:53
Conny Mortensen skrifaði:
Super godt opskrift. Jeg er blevet rost for den jeg kar strikket. Jeg lavede den i garn der skifter farve. Øverst hvid og sluttede med sort
27.06.2020 - 20:19
Josette skrifaði:
Bonjour, je ne comprends pas les explications de l'épaule droite : "tricoter ainsi jusqu'à ce que 2 côtes mousses aient été tricotées au dessus des 33 mailles centrales". Parlez-vous de 2 barres mousse (4 rangs ). Merci d'avance pour votre réponse !
11.07.2019 - 15:41DROPS Design svaraði:
Bonjour Josette, tout à fait 2 côtes mousse = 4 rangs endroit, vous devez avoir donc 2 côtes mousse (= 4 rangs tricotés sur toutes les mailles avec les 33 m centrales à l'endroit tous les rangs) au-dessus des 33 mailles centrales. Bon tricot!
11.07.2019 - 15:53
Elen WARTEL skrifaði:
I’m not so sure how to understand the 1 increase on each side the A4 + 1 increase on each side. Can you help?
08.04.2019 - 13:42DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Wartel, you will increase on the sides as follows, beginning 1 stitch before A.4: increase 1 stitch (= yarn over), K1, work A.4, K1, increase 1 stitch (= yarn over). Happy knitting!
08.04.2019 - 13:59
Barbara Krause skrifaði:
Moin warum werden bei den vorderen Schultern keine zunahmen für den Ärmel Ausschnitt gestrickt? Gruß Barbara
29.03.2019 - 08:16DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Krause, es wird auch bein dem Vorderteil zugenommen, wenn die Arbeit 17-16 cm misst - siehe am Ende VORDERTEIL/ RECHTE SCHULTER. Viel Spaß beim stricken!
01.04.2019 - 10:16Ekaterina skrifaði:
Sollte es hier vielleicht einen Absatz "Fertigstellen" geben (mit einer Bemerkung, dass die Schulternaehte zu schliessen sind)?
19.07.2018 - 22:39
Chrissie skrifaði:
Zeitlos, elegant, schön, ein Musthave
20.12.2017 - 23:05
Nadine skrifaði:
Stylé, j'aime, plus long en robe aussi
12.12.2017 - 11:49
Chella#chellatop |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaður toppur með gatamynstri og A-formi, prjónaður ofan frá og niður. Stykkið er prjónað úr DROPS Bomull-Lin eða DROPS Paris. Stærð S - XXXL
DROPS 190-10 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um handveg): Aukið út um 1 lykkju innan við 3 lykkjur með garðaprjóni í hvorri hlið. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, það eiga ekki að myndast göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Framstykkin og bakstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig niður að fram- og bakstykki, síðan eru allar lykkjur settar á sama hringprjón og prjónað er í hring. BAKSTYKKI: VINSTRI ÖXL: Fitjið upp 16-17-17-18-18-19 lykkjur á hringprjón 5 með Bomull-Lin eða Paris. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið síðan þannig – frá réttu: 3 lykkjur í garðaprjóni, 10-11-11-12-12-13 lykkjur sléttprjón, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 3 cm, endið eftir 1 umferð frá röngu. Klippið frá og geymið stykkið. HÆGRI ÖXL: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstri öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 3 cm, endið eftir 1 umferð frá röngu. Prjónið 1 umferð frá réttu, fitjið upp 27-27-29-29-31-31 nýjar lykkjur og prjónið til baka lykkjur frá vinstri öxl á prjóninn = 59-61-63-65-67-69 lykkjur. Prjónið þannig – frá röngu: 3 lykkjur garðaprjón,10-11-11-12-12-13 lykkjur brugðið, 33-33-35-35-37-37 lykkjur garðaprjón, 10-11-11-12-12-13 lykkjur brugðið, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 33-33-35-35-37-37 lykkjur, prjónið síðan sléttprjón með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 17-17-17-16-16-16 cm aukið út um 1 lykkju innan við 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu (= önnur hver umferð) alls 2-4-5-7-8-9 sinnum = 63-69-73-79-83-87 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm frá öxl, endið eftir umferð frá röngu. FRAMSTYKKI: VINSTRI ÖXL: Fitjið upp 16-17-17-18-18-19 lykkjur á hringprjón 5 með Bomull-Lin eða Paris. Prjónið 2 umferðir garðaprjón, prjónið síðan þannig – frá réttu: 3 lykkjur garðaprjón, 10-11-11-12-12-13 lykkjur sléttprjón, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 6 cm. Í lok næstu umferðar frá röngu eru fitjaðar upp 15-15-16-16-17-17 nýjar lykkjur = 31-32-33-34-35-36 lykkjur. Prjónið þannig – frá réttu: Prjónið garðaprjón yfir fyrstu 18-18-19-19-20-20 lykkjur, 10-11-11-12-12-13 lykkjur sléttprjón, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir fyrstu 18-18-19-19-20-20 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: A.1 yfir fyrstu 16 lykkjur, sléttprjón yfir næstu 12-13-14-15-16-17 lykkjur, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram þar eftir er 1 umferð í A.1, þ.e.a.s. endið eftir umferð frá röngu. Klippið frá og geymið stykkið. HÆGRI ÖXL: Fitjið upp 16-17-17-18-18-19 lykkjur á hringprjón 5 með Bomull-Lin eða Paris. Prjónið 2 umferðir garðaprjón, prjónið síðan þannig – frá réttu: 3 lykkjur garðaprjón, 10-11-11-12-12-13 lykkjur sléttprjón, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 6 cm. Í lok næstu umferðar frá réttu eru fitjaðar upp 15-15-16-16-17-17 nýjar lykkjur = 31-32-33-34-35-36 lykkjur. Prjónið þannig – frá röngu: Garðaprjón yfir fyrstu 18-18-19-19-20-20 lykkjur, 10-11-11-12-12-13 lykkjur brugðið, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir fyrstu 18-18-19-19-20-20 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið fyrstu 29-30-31-32-33-34 lykkjur eins og áður (nú er prjónuð síðasta umferð í A.2), prjónið næst síðustu lykkju frá hægri öxl slétt saman við fyrstu lykkju frá vinstri öxl, prjónið síðustu lykkju frá hægri öxl slétt saman við aðra lykkju frá vinstri öxl, prjónið 2 næstu lykkjur frá vinstri öxl slétt saman, prjónið þær lykkjur sem eftir eru á vinstri öxl eins og áður (nú er prjónuð síðasta umferð í A.1) = 59-61-63-65-67-69 lykkjur. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 3 lykkjur garðaprjón, brugðnar lykkjur yfir næstu 53-55-57-59-61-63 lykkjur, 3 lykkjur garðaprjón. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 3 lykkjur garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 12-13-14-15-16-17 lykkjur, A.3 (= 29 lykkjur), sléttprjón yfir næstu 12-13-14-15-16-17 lykkjur, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með A.3, sléttprjón og garðaprjón. Þegar stykkið mælist 17-17-17-16-16-16 cm aukið út um 1 lykkju innan við 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið, aukið út á sama hátt og á bakstykki, alls 2-4-5-7-8-9 sinnum á hvorri hlið = 63-69-73-79-83-87 lykkjur. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 63-69-73-79-83-87 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 6-6-8-12-18-24 nýjar lykkjur, prjónið 63-69-73-79-83-87 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 6-6-8-12-18-24 nýjar lykkjur (setjið 1 prjónamerki mitt í þessar lykkjur). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 138-150-162-182-202-222 lykkjur. Prjónið næstu 3 umferðir þannig: Haldið áfram með mynstur og sléttprjón eins og áður, prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir miðju 12-12-14-18-24-30 lykkjur í hvorri hlið (1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið). Klippið frá. Næsta umferð byrjar 7 lykkjum á undan prjónamerki á milli bakstykkis og hægra framstykkis – þetta er núna byrjun á umferð. Prjónið þannig: A.4 (= 15 lykkjur), 12-15-18-23-28-33 lykkjur í sléttprjóni eins og áður, A.3, 12-15-18-23-28-33 lykkjur í sléttprjóni eins og áður, A.4 (= 15 lykkjur), 55-61-67-77-87-97 lykkjur í sléttprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert A.4 + 1 lykkja í hvorri hlið. Endurtakið þessa útaukningu í 4. hverri umferð fram þar til toppurinn er tilbúinn, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það eiga að myndast göt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm frá öxl, nú eru ca 242-258-274-294-318-338 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, fellið síðan af. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma kant í kant, saumið í ystu lykkjuboga í ystu lykkju. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #chellatop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.