Kiran skrifaði:
Hi! I’m trying do do this pattern but I’m stuck at the first row of A.1: I’ve done it twice but I always end up with 6 stitches left for the band instead of 5. Any ideas on what I could possibly be doing wrong? Thank you very much in advance
09.06.2025 - 12:08DROPS Design svaraði:
Dear Kiran, when working A.1 note that you should first repeat the 5 sts A.1a (after the 5 front band stitches) until 6 sts remain then work the stitch in diagram A.1b and end with 5 front band stitches. Happy knitting!
09.06.2025 - 13:51
Patricia skrifaði:
¿Cuantos puntos debo restar para tejer talla XS?
28.07.2023 - 06:50DROPS Design svaraði:
Hola Patricia, no hay un cálculo fijo para obtener una talla más pequeña. Puedes leer la siguiente lección sobre cómo calcular un patrón https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=25&cid=23; si tienes la misma tensión que la indicada puedes obtener los números a montar a partir de los cm necesarios para tu talla. Para calcular el patrón deberás usar reglas de tres.
29.07.2023 - 16:36
Françoise skrifaði:
Bonjour dans l’explication du devant droit il est indiqué < rabattre pour l'encolure les 15-16-16-16-16-17 premières mailles sur l'endroit et terminer chaque épaule séparément.> or il me semble qu’il n’y a q’une épaule sur le devant droit . Est-ce une erreur: un copier collé des explications du dos? Ou doit on suivre la suite des diminutions qui sont les mêmes qu’au dos?
02.07.2023 - 21:29
Françoise skrifaði:
Bonjour dans l’explication du devant droit il est indiqué < rabattre pour l'encolure les 15-16-16-16-16-17 premières mailles sur l'endroit et terminer chaque épaule séparément.> or il me semble qu’il n’y a q’une épaule sur le devant droit . Est-ce une erreur: un copier collé des explications du dos? Ou doit on suivre la suite des diminutions qui sont les mêmes qu’au dos?
01.07.2023 - 11:09DROPS Design svaraði:
Bonjour Françoise, il s'agit effectivement d'une erreur, qui sera corrigée dès que possible, mais ne prenez pas cette info en compte ici, naturellement, vous n'avez qu'une seule épaule ici. Vous continuez à former l'emmanchure comme indiqué précédemment (comme pour le dos) et formez en même temps l'encolure de l'autre côté. Bonne continuation!
03.07.2023 - 09:54
Angèle skrifaði:
Bonjour Lorsque vous dîtes rabattre 0 fois 3 mailles, 1 fois 2 mailles et 1 fois 1 maille. Faut-il tricoter le rang sans rabattre ou commencer directement en rabattant 1 x 2 mailles. Merci pour votre retour.
13.06.2023 - 15:09DROPS Design svaraði:
Bonjour Angèle, en taille S, on ne rabat pas les 3 mailles, on rabat directement 1 fois 2 mailles puis 1 fois 1 maille. Bon tricot!
13.06.2023 - 16:07
Grace skrifaði:
How do the decreases for the armholes on the back section work? Do you do all of the cast-offs on the same row, consecutive rows, or every other row? For reference, I am making the size S.
25.06.2022 - 05:43DROPS Design svaraði:
Dear Grace, the decreases are worked at the beginning of every row. So, you cast off 3 stitches at the beginning of the row on the RS and on the next row you cast off 3 stitches at the beginning of the row on the WS, e.t.c. Happy knitting!
26.06.2022 - 13:22
Shubhangi Kundu skrifaði:
Hello! In the row marked with an arrow, we are supposed to make an increase or a decrease, but that depends on the adjustment that's supposed to be made. As in, for size L, the 191 stiches are to be adjusted to 190. We minus 10 band stitches so we have 181 sts. Now do we subtract 181 from 190 or 190 from 191? The first case will require an increase of 9 whereas the second case will require a decrease of 1. Which one of the cases is to be followed for size L?
20.02.2022 - 17:29DROPS Design svaraði:
Hi Shubhangi Kundu, in your size you should decrease 1 stitch. Happy knitting!
20.02.2022 - 18:40
Natalie skrifaði:
Hi! For the spacing of the buttonholes, I am wondering where on the piece I should be measuring from (e.g from the band stitches, the longest part of the scalloped edge, or the shorter part of the scalloped edge)? I know it should be when the piece measures 7cm, but would love to know where I should be measuring from. Thanks so much, love the pattern!
23.01.2022 - 08:58DROPS Design svaraði:
Hi Natalie, You measure from the longest point, so the bottom of the scallops. Happy knitting!
24.01.2022 - 08:03
Anneli skrifaði:
Hei på forstykket og felling til hals, stemmer ikke maskeantaller! Vi skal jo ha 70 masker og felle 15 m(minste str) så skal vi ha 11 masker igjen etter å ha felt-får flere masker igjen! Vet ikke hvor det er feil...
06.09.2021 - 15:53
Isuri skrifaði:
What does the pattern refer to as "bands"?
23.08.2021 - 20:56DROPS Design svaraði:
Dear Isuri, the pattern refer the button and button-hole bands as "bands". Happy Stitching!
24.08.2021 - 03:26
Island Dream#islanddreamtop |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Cotton Light með gatamynstri og perluprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 190-42 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út/fækka lykkjum í umferð, teljið fjölda lykkja á prjóni (t.d. 161 l), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda lykkja sem á að auka út/fækka (t.d. 3) = 50,3. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 49. og 50. hverja lykkju slétt saman. Ekki er lykkjum fækkað yfir kanta að framan. Ef auka á út þá er það gert á eftir ca 50. hverja lykkju (aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat). PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. HNAPPAGAT (neðan frá og upp): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 7, 11, 15 og 20 cm M: 7, 12, 17 og 22 cm L: 7, 12, 17 og 23 cm XL: 7, 13, 19 og 25 cm XXL: 1, 12, 17, 22 og 26 cm XXXL: 7, 13, 18, 23 og 28 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að framan, neðan frá og upp að handveg. Síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 161-171-191-211-241-261 lykkjur á hringprjón 4 með Cotton Light. Prjónið 1 umferð slétt (= frá röngu). Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið mynsturteikningu A.1a yfir næstu 150-160-180-200-230-250 lykkjur (= 15-16-18-20-23-25 mynstureiningar með 10 lykkjum), A.1b (= 1 lykkja) og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur fram og til baka þar til A.1 er lokið á hæðina – í umferð merktri með ör í mynsturteikningu er lykkjufjöldinn jafnaður til 158-174-190-210-238-262 lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið 42-46-50-55-62-68 lykkjur inn frá miðju að framan – merkir hliðar (= 74-82-90-100-114-126 lykkjur á bakstykki). Prjónið síðan þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir næstu 148-164-180-200-228-252 lykkjur og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 7 cm byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm prjónið næstu umferð þannig: Prjónið fyrstu 38-42-46-51-58-64 lykkjur, fellið af næstu 8 lykkjur fyrir handveg (= 4 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hlið), prjónið 66-74-82-92-106-118 lykkjur, fellið af næstu 8 lykkjur fyrir handveg, prjónið 38-42-46-51-58-64 lykkjur. Prjónið síðan hvort stykki til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 66-74-82-92-106-118 lykkjur. Haldið áfram í perluprjóni yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg og hálsmáli á sama tíma. HANDVEGUR: Fellið síðan af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-1-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-4-2-4-5 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-5-7-7 sinnum (= 3-6-8-12-18-23 lykkjur færri í hvorri hlið) HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 21-23-24-26-27-29 cm fellið af miðju 20-22-22-22-22-24 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmái í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur alls 3 sinnum og síðan 1 lykkju alls 3-3-5-5-6-6 sinnum. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð eru 11-11-11-12-12-12 lykkjur á prjóni. Haldið áfram fram og til baka yfir öxl þar til stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 38-42-46-51-58-64 lykkjur. Haldið áfram í perluprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg og hálsmáli á sama tíma þannig: HANDVEGUR: Fellið síðan af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-1-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-4-2-4-5 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-5-7-7 sinnum (= 3-6-8-12-18-23 lykkjur færri í hvorri hlið) HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 21-23-24-26-27-29 cm fellið af fyrstu 15-16-16-16-16-17 lykkjur frá réttu fyrir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir hálsmái í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur alls 3 sinnum og síðan 1 lykkju alls 3-3-5-5-6-6 sinnum. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð eru 11-11-11-12-12-12 lykkjur á prjóni. Haldið áfram fram og til baka yfir öxl þar til stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm, fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið eins og hægra framstykki, nema gagnstætt. Þ.e.a.s. fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá röngu. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #islanddreamtop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-42
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.