Barbara skrifaði:
Ist das in der Zeichnung angegebene Maß für den Umfang richtig? Es scheint mir etwas eng für die Größen. LG
09.10.2018 - 07:15DROPS Design svaraði:
Liebe Barbara, die cm in die Maßskizze stimmen alle, aber die geben die Breite wenn die Arbeit/der Pullover flach liegt, und nicht den Umfang - mehr lesen Sie hier. Viel Spaß beim stricken!
09.10.2018 - 09:53
Sandra skrifaði:
Autre question : Le pull se tricote au point de blé mais l'échantillon est fait à partir du point de riz. Est-ce une erreur ? Faut-il faire l'échantillon au point de blé ou au point de riz ?
18.09.2018 - 13:39DROPS Design svaraði:
Bonjour Sandra, l'échantillon se fait au point de blé (correction faite, merci). Bon tricot!
18.09.2018 - 15:06
Sandra skrifaði:
Bonjour, j'aime beaucoup ce modèle mais je ne suis pas fan des manches 3/4. Est-il possible de le tricoter avec des manches de longueur normale et si oui quelles modifications apporter ? Merci. Cordialement. Sandra
18.09.2018 - 13:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Sandra, vous pouvez vous aider d'un modèle de même tension avec des manches longues pour ajuster les modifications nécessaire pour votre taille et la longueur souhaitée. Bon tricot!
18.09.2018 - 15:05
Sara skrifaði:
Ciao! Vorrei realizzare questo modello il filato Drops loves you #9. Che è un filato del gruppo A ma il convertitore di filati non me lo ha inserito tra le possibilità. Magari, ho pensato, potrei lavorare con due gomitoli contemporaneamente di Drops love you #9 e ferri numero 6. Posso farlo? E nel caso ci sono modifiche da apportare? Cosa mi consigliate? Grazie
19.04.2018 - 08:57DROPS Design svaraði:
Buongiorno Sara. A questa pagina trova le indicazioni per calcolare la quantità necessaria del filato da lei scelto. Le consigliamo di lavorare con il numero di ferri che le consentono di ottenere lo stesso campione indicato nel modello. In caso contrario potrebbe essere necessario riproporzionare il numero delle maglie. Per un aiuto più personalizzato, può contattare il suo rivenditore Drops di fiducia. Buon lavoro!
19.04.2018 - 12:15
Anne Stendys skrifaði:
Er det korrekt, at der skal tages masker ud før ribkanten nederst på trøjen?
08.04.2018 - 22:07DROPS Design svaraði:
Hej Anne, ja det stemmer du tager ud inden du strikker ribkanten på pinde 6. God fornøjelse!
09.04.2018 - 12:17
Pascale skrifaði:
Bonjour Pour faire le pull Le Conquet , si je prends la couleur Alpaca Gris Aqua ref 8120 quelle couleur puis je associer en kid Silk ? Bien cordialement Pascale
26.03.2018 - 22:38DROPS Design svaraði:
Bonjour Pascale, pour toute aide dans le choix des couleurs, vous pouvez volontiers contacter votre magasin DROPS, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
28.03.2018 - 14:58
Lisa skrifaði:
The three quarter sleeves and light color are perfect for spring!
19.12.2017 - 22:16
AnniePBleau skrifaði:
Mon préféré qui est 1/2 saison. Il est bien dans l'air du temps et facile à enfiler sur une chemise ou un sous pull. Vivement qu'il soit disponible.
14.12.2017 - 17:54
Véronique skrifaði:
Sensualité de la maille et du point . J'aime les modèles aux manches 3/4 et aux emmanchures raglan (fantaisies ) .
11.12.2017 - 16:38
Le Conquet Jumper#leconquetjumper |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð peysa með laskalínu, perluprjóni og ¾ ermum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr 1 þræði DROPS Alpaca og 2 þráðum DROPS Kid-Silk.
DROPS 191-14 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 54 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 4,5. Í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis eftir 4. og 5. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 (perluprjón). LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Prjónið síðan útauknu lykkjurnar jafnóðum inn í mynstur. Þær 2 lykkjur í hverri laskalínu eru prjónaðar í sléttprjóni þar til berustykkið hefur verið prjónað til loka. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki í, takið 2 lykkjur af prjóni óprjónaðar eins og prjóna eigi þær slétt saman, prjónið næstu lykkju eins og útskýrt er í A.1 og steypið 2 óprjónuðu lykkjunum yfir. Með þessu þá kemur A.1 til með að halda fallega áfram yfir úrtöku í næstu umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón ofan frá og niður, skipt er yfir á sokkaprjóna eftir þörf. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 54-54-60-66-69-72 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði Alpaca + 2 þráðum Kid-Silk (= 3 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff í hring (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Eftir stroffið er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14-14-16-14-11-12 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 68-68-76-80-80-84 lykkjur. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið, þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og prjónamerkin eru sett á milli 2 lykkja þannig: Fyrsta prjónamerkið er sett á eftir fyrstu lykkju í umferð, 2. prjónamerkið er sett á eftir næstu 9 lykkjur (= ermi), 3. prjónamerkið er sett á eftir næstu 25-25-29-31-31-33 lykkjur (= framstykki) og 4. prjónamerkið er sett á eftir næstu 9 lykkjur (= ermi). Nú eru 24-24-28-30-30-32 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á bakstykki. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið fyrstu umferð þannig: 2 lykkjur slétt (fyrsta prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), prjónið A.1 yfir næstu 7 lykkjur (byrjið og endið með 1 lykkju slétt), 2 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 23-23-27-29-29-31 lykkjur (byrjið og endið með 1 lykkju slétt), 2 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 7 lykkjur (byrjið og endið með 1 lykkju slétt), 2 lykkjur slétt og A.1 yfir þær 23-23-27-29-29-31 lykkjur sem eftir eru (byrjið og endið með 1 lykkju slétt). Haldið svona áfram. JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 11-15-16-16-19-20 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu eru 156-188-204-208-232-244 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.1 með 2 lykkjur í sléttprjóni meðfram hverri laskalínu þar til stykkið mælist 18-24-25-25-29-30 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Byrjið 1-1-2-2-1-1 lykkjum á undan fyrsta prjónamerki, setjið fyrstu 33-41-45-45-49-49 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-5-7-7-11 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 45-53-57-59-67-73 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 33-41-45-45-49-49 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-5-7-7-11 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 44-52-56-58-66-72 lykkjur sem eftir eru eins og áður. Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 100-116-124-132-148-168 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju af 5-5-5-7-7-11 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Byrjið umferð við eitt af prjónamerkjunum og haldið áfram með A.1 hringinn. Stykkið mælist 19-15-16-18-16-17 cm frá skiptingu og prjónuð er 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14-13-14-15-14-15 lykkjur jafnt yfir = 114-129-138-147-162-183 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið til baka yfir á hringprjón 7 og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 33-41-45-45-49-49 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 7 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 5-5-5-7-7-11 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 38-46-50-52-56-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju á 5-5-5-7-7-11 lykkjur undir ermi. Haldið áfram með A.1 hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 10-3½-3-3-2-1½ cm millibili alls 3-7-8-8-10-11 sinnum = 32-32-34-36-36-38 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 36-31-30-30-27-26 cm frá skiptingu (styttra máli í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-5-3-3-4 lykkjur jafnt yfir = 36-36-39-39-39-42 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 6 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði ekki stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 36-31-30-30-27-26 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #leconquetjumper eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.