Janina skrifaði:
Czy można sprzedawać wykonane przez siebie skarpety wg wzoru Dropsa?
01.03.2025 - 23:40DROPS Design svaraði:
Witaj Janino, "Sprzedaż gotowej odzieży wykonanej na bazie wzorów DROPS jest dozwolona, o ile są one wytwarzane jednostkowo lub na zlecenie. Każde inne wykorzystywanie naszych wzorów do celów handlowych jest zabronione. Powinno być wyraźnie zaznaczone, że ubranie zostało wykonane na bazie wzoru DROPS DESIGN. Wykorzystywanie etykietek, których częścią będzie nazwa DROPS DESIGN jest możliwe pod warunkiem dodania następującego tekstu: „Model DROPS DESIGN wykonany przez...”." Pozdrawiamy!
03.03.2025 - 11:03
Mamila skrifaði:
Bonjour, comment arrêter le fil noir des points derrière/ à l'intérieur de la chaussette ? Merci.
10.01.2022 - 14:31DROPS Design svaraði:
Bonjour Mamila, vous pouvez rentrer les fils sur l'envers (sur l'intérieur) comme le montre cette vidéo. Bon tricot!
10.01.2022 - 16:09
Magdalena skrifaði:
Wydaje mi się, że wyjaśnieniach do schematów jest błąd. Pustym kwadratem oznaczono o.p. koloru zachód słońca ale jest to prawda tylko dla schematu A2. Schemat A1 przerabia się kolorem zielone jabłuszko i perłowy szary ale tego w wyjaśnieniu schematów nie ma. Można się oczywiście zreflektować ale wydaje mi się, że warto doprecyzować oznaczenia schematów.
03.10.2020 - 22:04DROPS Design svaraði:
Witaj Magdaleno! Jest to doprecyzowane na samej górze w opisie skarpetek. Koniecznie prześlij zdjęcie gotowych skarpetek do naszej dropsfan gallery, albo zamieść je na naszej grupie na facebooku. Pozdrawiamy!
05.10.2020 - 18:04
Christine skrifaði:
Bonjour je suis en cours de réalisation et arrivée aux points noirs répartis dans le coucher de soleil j ai un problème. On tricote un jeté/ une maille endroit/ un jeté en noir ensuite au rang suivant on tricote ces 3 mailles ensemble mais en noir ou en coucher de soleil au 2 eme rang ? J ai teste les 2 solutions et aucune de 2 ne me satisfait . Pouvez vous m aider ? Merci d avance , Amicalement , Christine
15.09.2020 - 15:44DROPS Design svaraði:
Bonjour Christine, au tour suivant, tricotez ces 3 mailles ensemble à l'endroit en coucher de soleil. Bon tricot!
15.09.2020 - 15:54
Katarina Sundqvist skrifaði:
När får ni in garnet till melonsockorna igen? Hittar inte färgerna ovan... Tack på förhand! Mvh Katarina
27.07.2020 - 09:00DROPS Design svaraði:
Hej Katarina, här ser du färgerna i DROPS Fabel. DROPS Fabel Lycka till
27.07.2020 - 15:49
Marianne skrifaði:
Je les ai tricotées et ... je les adore ! Merci !
07.02.2019 - 07:18
Marianne skrifaði:
Merci pour vos commentaires, je vais donc prendre 2 pelotes de "coucher de soleil" .
15.10.2018 - 18:43
Caroline Worbe skrifaði:
Personnellement j'ai utilisé des aiguilles n°3 (l'échantillon était trop petit sinon) et 2 pelotes de couchées de soleil... Je me suis beaucoup amusée à les faire!
07.09.2018 - 13:06
Satu skrifaði:
Hei, kun tehdään mustalla noita siemeniä, tuleeko langankierrot ohjeessa etu-vai takakautta? Ne silmukat vaan jotenkin liukenee mun neuloksessa sinne enkä saa aikaan muuta kuin reikiä
10.07.2018 - 13:38DROPS Design svaraði:
Hei, langankierrot tehdään tavalliseen tapaan, eli etukautta.
20.07.2018 - 14:11
Andrea skrifaði:
Hi, ich finde das Modell schön, mache es gerade aber ohne Kerne. Die Abnahme an der Spitze verstehe ich nicht. Wenn ich in jeder 2. Runde 4 Maschen abnehme habe ich doch am Schluss keine 16 Maschen übrig, sondern weniger. Das verstehe ich nicht.
17.05.2018 - 06:54DROPS Design svaraði:
Liebe Andrea, es sind jetzt 56-60 Maschen vor der Spitze, Sie nehmen 4 M in jeder 2. Runde insgesamt 7-9 x ab = 56-60 - (4 Abnahme x 7-9= 28-36 Abnahmen) = 28-24 M dann nehmen Sie 4 M in jeder Runde 3-2 x ab = 12-8 Abnahme = 16-16 M bleiben übrig. Viel Spaß beim stricken!
17.05.2018 - 09:07
Fruity Feet#fruityfeetsocks |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaðir sokkar úr DROPS Fabel með vatnsmelónu mynstri. Stærð 35-43.
DROPS 189-26 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LEIÐBEININGAR: Til að styrkja hælinn er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtökuna með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan í og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eina og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 14-16-16 lykkjur eru eftir á prjóni. ÚRTAKA (á við um tá): Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 76-76-76 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með litnum eplagrænn. Prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Prjónið nú eftir A.1 (= 4 mynstureiningar á breidd). Í umferð með ör er skipt yfir í litinn ljós perlugrár. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 60-60-60 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn sólsetur og prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 56-56-64 lykkjur. Prjónið A.2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með A.2 þar til stykkið mælist alls 12-14-16 cm, prjónið 1 umferð slétt og lykkjufjöldinn er jafnaður til 54-58-62 lykkjur í þessari umferð. Nú er haldið eftir fyrstu 13-15-15 lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 28-28-32 lykkjur á þráð (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 13-15-15 lykkjum á prjóni fyrir hæl. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið sléttprjón með litnum sólsetur fram og til baka yfir 26-30-30 hællykkjur í 5-5½-6 cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Þegar hælúrtakan hefur verið gerð eru prjónaðar upp 13-14-16 lykkjur hvoru megin við hæl og 28-28-32 lykkjur af þræði eru settar til baka á prjóninn = 68-72-80 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 28-28-32 lykkjur ofan á fæti. Prjónið A.2 hringinn (haldið áfram með næstu umferð í mynstri þannig að mynstrið passi mitt ofan á fæti) og fækkið lykkjum hvoru megin við 28-28-32 lykkjur ofan á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á UNDAN fyrra prjónamerki ofan á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á EFTIR seinna prjónamerki ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8-8-10 sinnum = 52-56-60 lykkjur. ATH! A.2 kemur ekki til með að ganga jafnt upp vegna úrtöku, prjónið með litnum sólsetur þar sem mynstrið gengur ekki jafnt upp mitt undir fæti. Prjónið A.2 þar til prjónaðar hafa verið 3 umferðir með svörtum kjörnum á eftir hæl, síðan er haldið áfram með litnum sólsetur yfir allar lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 16-17-18 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 6-7-8 cm til loka). Prjónið 1 cm með litnum eplagrænn. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 26-28-30 lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Fækkið nú lykkjum fyrir tá hvoru megin við þessi tvö prjónamerki og haldið áfram með litnum eplagrænn til loka – lesið ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-7-9 sinnum og síðan í hverri umferð alls 6-3-2 sinnum = 12-16-16 lykkjur eftir í umferð. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-8-8 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fruityfeetsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 189-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.