Lisa skrifaði:
Det finns bara förklaring på varv 1 på resåren men inte på varv 2. Det hänvisas till rätstickning och där ska alla maskor stickas räta, men då är det ju inte resårstickning?
19.10.2018 - 23:34DROPS Design svaraði:
Hej, från avigsidan stickar du de räta maskorna räta och de aviga maskorna aviga.
22.10.2018 - 18:20
Sigrun Tingbø skrifaði:
Strikker genser nr 2 etter denne oppskriften. Gøy å strikke og den blir så fin. Fulgte oppskriften første gang og genseren ble altfor kort i forhold til det som vises på bildet og slik jeg ønsket den. Denne gangen målte jeg arbeidet 40 cm før jeg begynte på mønster A4, og da ble lengden perfekt for en som liker litt lange kosete gensere !!
06.05.2018 - 12:27
Fulconis skrifaði:
Bonjour,je ne vois pas l'onglet "alternatives". Je trouve aussi très gênant d'être dirigé vers un seul site de vente en ligne au lieu du site drops avec la liste des différents sites de commande possibles quand on clique sur la qualité de laine dans la partie matériel du modèle. Je trouve que cela fait du favoritisme de Drops pour un site au détriment des autres. Ce serait plus juste de revenir à l\'ancien système. En vous remerciant. Bien cordialement.
03.04.2018 - 22:17
Jocelyne skrifaði:
Je suis entrain de tricoter le devant gauche (taille M) , sur les explications vous indiquez 2 m ensemble avant A3 = 1dim. Les explications indiquent également des diminutions avant A6 (5 fs ts les 2 rgs) et 4 fs ts les 4rgs pour l'encolure . Pouvez vous m'aider ? Merci beaucoup .
26.03.2018 - 14:08DROPS Design svaraði:
Bonjour Jocelyne, au 1er rang du devant gauche, on diminue 1 m avant A.3 et on tricote ensuite A.6 (= au-dessus de A.3), puis 2x A.8 et 3 point mousse. On continue ainsi en diminuant 1 ma vant A.6 9 fois au total (= 5 x tous les 2 rangs et 4x tous les 4 rangs), il reste 37 m. Bon tricot!
28.03.2018 - 14:27
Floor skrifaði:
Ik heb een vraag. Ik ben van plan om dit model met katoengaren te breien zodat het wat luchtiger zit (700 gram drops Paris), maar zal het truitje dan nog steeds hetzelfde eruit zien?
12.03.2018 - 12:14DROPS Design svaraði:
Hallo Floor, Als je het met katoengaren maakt ziet het kledingstuk er wel anders uit. Katoen is namelijk zwaarder en het geeft ook een ander stekenbeeld. Je zou een proeflapje kunnen maken om te kijken of het effect je bevalt. Je kunt ook altijd advies vragen in de winkel waar je het garen koopt.
13.03.2018 - 16:20
Bettina skrifaði:
SUPERBE modèle et la couleurs est splendide.
24.02.2018 - 12:20
Corbel skrifaði:
Peux t on avoir les explications
10.02.2018 - 15:47
Kristina Alexandridis skrifaði:
Underbart vacker !!! Den här vill jag verkligen sticka!!! Så nu får ni sätta fart och sätta upp mönstret !!
05.02.2018 - 17:45
Petra skrifaði:
Ich warte schon sehnsüchtig auf die Anleitung. Sehr schön!!!!
02.02.2018 - 13:51
Rosa skrifaði:
Un rêve, vite les explications s'il vous plait !!!
18.01.2018 - 22:21
To the Point#tothepointsweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með v-hálsmáli, köðlum og mynstri. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Air.
DROPS 188-6 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð (á við um A.1, A.2, A.3, A.5, A.6 og A.7) Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 99 lykkjur), mínus kanta að framan/lykkjur sem ekki á að fækka yfir (t.d. 2 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 16) = 6. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 5. og 6. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp og er saumað saman í lokin. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 99-105-114-120-132-144 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja í sléttprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-16-19-19-21-23 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA (jafnt yfir) = 83-89-95-101-111-121 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 28-31-32-35-38-43 lykkjur, A.1 (= 11-11-13-13-15-15 lykkjur), 3 lykkjur sléttprjón, A.2 (= 11-11-13-13-15-15 lykkjur), sléttprjón yfir næstu 28-31-32-35-38-43 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 23-24-25-26-27-28 cm – passið uppá að það hafið verið prjónuð heil mynstureining af A.1/A.2 á hæðina! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú áfram þannig: Prjónið eins og áður þar til eftir eru 2 lykkjur á undan A.1, prjónið 2 lykkjur slétt saman, A.3 (= 10-10-12-12-14-14 lykkjur) yfir fyrstu 10-10-12-12-14-14 lykkjur í A.1, A.4 (= 5 lykkjur), A.5 (= 10-10-12-12-14-14 lykkjur) yfir síðustu 10-10-12-12-14-14 lykkjur í A.2, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og fækkið um 1 lykkju á undan A.3 og á eftir A.5 í annarri hverri umferð (= 14 úrtökur á undan A.3 og á eftir A.5 þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina), JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm fellið af 3-3-4-5-6-6 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum (merkir handveg). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 86-92-96-100-108-118 lykkjur í umferð. Setjið nú síðustu 43-46-48-50-54-59 lykkjur (séð frá réttu) á þráð fyrir hægra framstykki = 43-46-48-50-54-59 lykkjur fyrir vinstra framstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 43-46-48-50-54-59 lykkjur. Prjónið frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.3, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), A.6 (= 12-12-14-14-16-16 lykkjur), A.8 (= 8 lykkjur) 2 sinnum á breidd, 3 lykkjur garðaprjón (= að hálsi). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka og fækkið um 1 lykkju á undan A.6 í annarri hverri umferð alls 4-5-5-5-6-6 sinnum og í 4. hverri umferð 4-4-4-5-5-5 sinnum (= alls 8-9-9-10-11-11 lykkjur færri við háls) = 35-37-39-40-43-48 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá handveg. Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur og fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir 16 lykkjur í mynstri A.8 = 30-32-34-35-38-43 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af. Stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 43-46-48-50-54-59 lykkjur. Prjónið frá réttu þannig, 3 lykkjur garðaprjón (= að hálsi), A.9 (= 8 lykkjur) 2 sinnum á breidd, A.7 (= 12-12-14-14-16-16 lykkjur), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka og fækkið um 1 lykkju á eftir A.7 í annarri hverri umferð alls 4-5-5-5-6-6 sinnum og í 4. hverri umferð 4-4-4-5-6-6 sinnum (= alls 8-9-9-10-11-11 lykkjur færri í hálsmáli) = 35-37-39-40-43-48 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá handveg. Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur og fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir 16 lykkjur í mynstri A.9 = 30-32-34-35-38-43 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af. Stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI: Fitjið upp 99-105-114-120-132-144 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-16-19-19-21-23 lykkjur jafnt yfir = 83-89-95-101-111-121 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm fellið af 3-3-4-5-6-6 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum (merkir handveg) = 77-83-87-91-99-109 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm frá handveg er prjónað sléttprjón yfir miðju 23-25-25-27-29-29 lykkjur. Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju lykkjur. Fellið nú af miðju 17-19-19-21-23-23 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 30-32-34-35-38-43 lykkjur fyrir hvora öxl. Haldið síðan áfram í sléttprjóni með 3 lykkjur garðaprjón við háls og 1 kantlykkja í garðaprjóni við handveg. Þegar handvegur mælist 18-19-20-21-22-23 cm, prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. Stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 41-44-47-50-53-56 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 4-6-6-6-9-9 lykkjur jafnt yfir = 37-38-41-44-44-47 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 10-6-6-6-12-11 cm aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í 6.-6.-6.-6.-4.-4. hverri umferð alls 13-14-14-14-16-16 sinnum = 63-66-69-72-76-79 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til ermin mælist 50-49-49-49-47-45 cm. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermi. Saumið saum undir ermum og haldið síðan áfram niður yfir hlið á fram- og bakstykki niður að stroffi (= 4 cm að klauf). Endurtakið í hinni hliðinni. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tothepointsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.