DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet Twist

Prjónuð vafningspeysa / með framstykkin í kross. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Alpaca og DROPS Kid- Silk.

DROPS 188-10
DROPS Design: Mynstur z-824
Garnflokkur A + A eða C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-350-400 g litur 100, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
25-50-50-50-50-50 g litur 01, natur
75-100-100-100-125-125 g litur 03, ljós bleikur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð með 1 þræði af Alpaca + 1 þræði af Kid-Silk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (á við um hálsmál):
Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju með því að slá uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Framstykkin krossa hvert annað við miðju að framan. Bæði framstykkin er prjónuð ofan frá og niður, frá annarri öxlinni og yfir gagnstæða mjöðm. Bakstykkið er prjónað neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna neðan frá og upp.

BLEIKT FRAMSTYKKI – PRJÓNAÐ FRÁ HÆGIR ÖXL OG YFIR AÐ VINSTRI MJÖÐM:
Fitjið upp 2 lykkjur með 1 þræði Alpaca + 1 þræði í litnum ljós bleikur Kid-Silk (= 2 þræðir).
Prjónið fram og til baka í sléttprjóni, JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur, fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðið yfir allar lykkjur, fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar.
UMFERÐ 3: Prjónið slétt yfir allar lykkjur, fitjið upp 2 lykkjur í lok umferðar.
UMFERÐ 4: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur, fitjið upp 2 lykkjur í lok umferðar.
Nú hafa verið aukið út 6 lykkjur og það eru 8 lykkjur í umferð.
Endurtakið umferð 1-4 alls 6-7-7-9-10-11 sinnum = 38-44-44-56-62-68 lykkjur.
Stærð XL og XXL er nú lokið.

Prjónið áfram í stærð S, M, L og XXXL þannig:
Haldið áfram í sléttprjóni og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok hverrar umferðar í hvorri hlið 1-1-3-1 sinnum = 40-46-50-70 lykkjur.

Allar stærðir:
Nú eru 40-46-50-56-62-70 lykkjur í umferð. Prjónið nú frá réttu þannig:
Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 3 lykkjur garðaprjón (= að hálsi).
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 3 lykkjur garðaprjóni í hálsi, JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju innan við 3 lykkjur í garðaprjóni að hálsi í annarri hverri umferð alls 9 sinnum og fitjaðar eru upp lykkjur í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 4-4-3-5-3-1 sinnum og 2 lykkjur 5-4-4-2-2-2 sinnum. ATHUGIIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar allar lykkjur hafa verið fitjaðar upp og öll úrtaka í hálsmáli er lokið eru 45-49-52-56-60-66 lykkjur á prjóni. Setjið eitt prjónamerki hér í hægri hlið á stykki séð frá réttu! HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 40-42-45-47-51-541 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, setjið eitt prjónamerki í lok umferðar frá réttu (notað fyrir frágang). Fellið nú af lykkjur í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur.
UMFERÐ 2 (ranga): Fellið af 2 lykkjur, prjónið þær lykkjur sem eftir eru á prjóni.
UMFERÐ 3: Prjónið yfir allar lykkjur.
UMFERÐ 4: Fellið af 3 lykkjur, prjónið þær lykkjur sem eftir eru á prjóni.
Endurtakið umferð 1-4 alls 5-7-6-6-2-2 sinnum, eftir það eru felldar af 2 lykkjur í byrjun á hverjum prjóni frá röngu alveg þar til allar lykkjur hafa verið felldar af.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru á prjóni.

NATUR FRAMSTYKKI – PRJÓNAÐ FRÁ VINSTRI ÖXL OG YFIR AÐ HÆGRI MJÖÐM:
Stykkið er prjónað eins og fyrsta framstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. prjónið þannig:
Fitjið upp 2 lykkjur með 1 þræði Alpaca + 1 þræði í litnum natur Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið fram og til baka í sléttprjóni, JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur, fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðið yfir allar lykkjur, fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar.
UMFERÐ 3: Prjónið slétt yfir allar lykkjur, fitjið upp 2 lykkjur í lok umferðar.
UMFERÐ 4: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur, fitjið upp 2 lykkjur í lok umferðar.
Nú hafa verið aukið út 6 lykkjur og það eru 8 lykkjur í umferð.
Endurtakið umferð 1-4 alls 6-7-7-9-10-11 sinnum = 38-44-44-56-62-68 lykkjur.
Stærð XL og XXL er nú lokið.

Prjónið áfram í stærð S, M, L og XXXL þannig:
Haldið áfram með sléttprjón og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok hverrar umferðar í hvorri hlið 1-1-3-1 sinnum = 40-46-50-70 lykkjur.

Allar stærðir:
Nú eru 40-46-50-56-62-70 lykkjur í umferð. Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón (= að hálsi), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið sléttar lykkjur yfir þær lykkjur sem eftir eru á prjóni.
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 3 lykkjur í garðaprjóni í hálsmáli, JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju innan við 3 lykkjur í garðaprjóni í hálsmáli í annarri hverri umferð alls 9 sinnum og fitjaðar eru upp lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 4-4-3-5-3-1 sinnum og 2 lykkjur 5-4-4-2-2-2 sinnum. ATHUGIIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar fitjaðar hafa verið upp allar lykkjur og öll úrtaka í hálsmáli er lokið eru 45-49-52-56-60-66 lykkjur á prjóni. Setjið eitt prjónamerki hér í vinstri hlið á stykki séð frá réttu! HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 40-42-45-47-51-54 cm – stillið af eftir hinu framstykkinu og að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar frá réttu. Fellið nú af lykkjur í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Fellið af 2 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir þær lykkjur sem eftir eru á prjóni.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðið yfir allar lykkjur í umferð.
UMFERÐ 3: Fellið af 3 lykkjur, prjónið slétt yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð.
UMFERÐ 4: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur í umferð.
Endurtakið umferð 1-4 alls 5-7-6-6-2-2 sinnum, síðan eru felldar af 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð frá réttu alveg þar til allar lykkjur hafa verið felldar af.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkju á prjóni.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 84-90-98-106-117-127 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði í litnum ljós bleikur Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-34 cm setjið eitt prjónamerki í hvora hlið (notað fyrir frágang). Haldið áfram þar til stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm. Setjið eitt nýtt prjónamerki í hvora hlið (notað við frágang – merkir handveg í hvorri hlið). Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Prjónið nú garðaprjón yfir miðju 28-28-30-30-31-31 lykkjur í umferð, aðrar lykkjur í umferð eru prjónaðar í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 4 umferðir í sléttprjóni yfir miðju lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af miðju 24-24-26-26-27-27 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju innan við 3 lykkjur í garðaprjóni í næstu umferð frá hálsi – lesið ÚRTAKA = 29-32-35-39-44-49 lykkjur fyrir öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 38-40-41-43-44-47 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Í litnum ljós bleikur Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 9-7-6-6-6-4 cm er aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni æi hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í 10.-9.-8.-7.-6.-6. hverri umferð alls 9-10-11-12-13-13 sinnum = 56-60-63-67-70-73 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til ermin mælist 49-48-46-45-43-41 cm. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Leggið bakstykkið á borð með réttuna niður að borðinu og rönguna upp.

Frágangur á framstykki í litnum natur:
Leggið framstykkið í litnum natur ofan á bakstykki með röngu niður að bakstykki og réttuna upp. Framstykkið í litnum natur á að liggja þannig að það hallar frá vinstri öxl og niður að hægri mjöðm – sjá teikningu og mynd! Passið uppá að prjónamerkin sem voru sett í vinstri hlið á framstykki í litnum natur passi við prjónamerki sem voru sett við 28-29-30-31-32-33 cm á vinstri hlið á bakstykki og að prjónamerkið sem var sett í hægri hlið á framstykki í litnum natur passi við prjónamerki sem var sett við 28-29-30-31-32-33 cm í hægri hlið á bakstykki.
Saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á bakstykki og innan við affellingarkantinn/uppfitjunarkantinn á framstykki: Saumið saum frá prjónamerki í hægri hlið og niður yfir hlið alveg niður að uppfitjunarkanti á bakstykki (= A – sjá mynsturteikningu). Saumið saum frá prjónamerki í vinstri hlið og upp að prjónamerki sem var sett við handveg á bakstykki (= B – sjá mynsturteikningu).
Nú eru eftir 16-17-18-19-20-21 cm fyrir handveg. Saumið axlasaum (= C – sjá teikningu) innan við affellingarkant/uppfitjunarkant.

Frágangur á framstykki í litnum ljós bleikur:
Leggið framstykki í litnum ljós bleikur ofan á framstykki í litnum natur. Framstykki í litnum ljós bleikur á að halla frá hægri öxl og niður að vinstri mjöðm – sjá teikningu og mynd! Prjónamerkin á framstykki eiga að passa við prjónamerki á bakstykki alveg eins og á framstykki í litnum natur, nema gagnstætt:
Saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á bakstykki og innan við affellingarkantinn/uppfitjunarkantinn á framstykki: Saumið saum frá prjónamerki í vinstri hlið og niður yfir hlið alveg niður að uppfitjunarkanti á bakstykki (= D – sjá mynsturteikningu). Saumið saum frá prjónamerki í hægri hlið og upp að prjónamerki sem var sett við handveg á bakstykki (= E – sjá mynsturteikningu). Nú eru eftir 16-17-18-19-20-21 cm fyrir handveg. Saumið axlasaum (= F – sjá mynsturteikningu) innan við affellingarkant/uppfitjunarkant.

Frágangur:
Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið saum undir ermum. Klippið frá og festið alla enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.04.2018
Leiðrétting: Frágangur á ljós bleika framstykki: Saumið innan við 1 kantlykkju með garðaprjóni á bakstykki og innan við affellingarkantinn/uppfitjunarkantinn á framstykki: Saumið saum frá prjónamerki á vinstri hlið og niður yfir hlið alveg niður að uppfitjunarkanti á bakstykki (= D – sjá teikningu). Saumið saum frá prjónamerki á hægri hlið og upp að prjónamerki sem var sett við handveg á bakstykki (= E – sjá teikningu). Nú eru eftir 16-17-18-19-20-21 cm fyrir handveg. Saumið axlasaum (= F – sjá teikningu) innan við affellingarkant/uppfitjunarkant.
Yfirfarið á vefsvæði: 29.01.2019
Leiðrétting:BLEIKT FRAMSTYKKI:..Þegar allar lykkjurnar hafa verið fitjaðar upp og öll úrtaka að hálsi er lokið eru 45-49-52-56-60-66 lykkjur á prjóni. Setjið eitt prjónamerki hér í hægri hlið á stykki séð frá réttu! HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram fram og til baka með sléttprjóni og 3 lykkjum með garðaprjóni á hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 40-42-45-47-51-541 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, setjið eitt prjónamerki í lok umferðar frá réttu (notað fyrir frágang). Fellið nú af lykkjur í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur.
UMFERÐ 2 (ranga): Fellið af 2 lykkjur, prjónið þær lykkjur sem eftir eru á prjóni.
UMFERÐ 3: Prjónið yfir allar lykkjur.
UMFERÐ 4: Fellið af 3 lykkjur, prjónið þær lykkjur sem eftir eru á prjóni.
Endurtakið umferð 1-4 alls 5-7-6-6-2-2 sinnum, eftir það eru felldar af 2 lykkjur í byrjun á hverjum prjóni frá röngu alveg þar til allar lykkjur hafa verið felldar af.
Klippið frá og dragið bandið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru á prjóni.
NATUR FRAMSTYKKI:..Þegar allar lykkjurnar hafa verið fitjaðar upp og öll úrtaka að hálsi er lokið eru 45-49-52-56-60-66 lykkjur á prjóni. Setjið eitt prjónamerki hér í vinstri hlið á stykki séð frá réttu! HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram fram og til baka með sléttprjóni og 3 lykkjum með garðaprjóni á hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 40-42-45-47-51-54 cm – stillið af eftir hinu framstykkinu og að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar frá réttu. Fellið nú af lykkjur í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Fellið af 2 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir þær lykkjur sem eftir eru á prjóni.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðið yfir allar lykkjur í umferð.
UMFERÐ 3: Fellið af 3 lykkjur, prjónið slétt yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð.
UMFERÐ 4: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur í umferð.
Endurtakið umferð 1-4 alls 5-7-6-6-2-2 sinnum, síðan eru felldar af 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð frá réttu alveg þar til allar lykkjur hafa verið felldar af.
Klippið frá og þræðið bandið í gegnum síðustu lykkju á prjóni.

Mynstur

symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (44)

country flag Thea wrote:

Voor het achterpand moet ik over 30 steken ribbels breien(maat L), Na 2 ribbels 26 steken afkanten, dan houd ik 2 steken ribbels over aan weerskanten. Het patroon heeft het over 3 steken. Heb ik iets over het hoofd gezien of klopt het patroon niet?

14.12.2023 - 09:54

DROPS Design answered:

Dag Thea,

Zo te zien is dat een foutje in het patroon, het moeten inderdaad 2 steken zijn en niet 3. Ik zal het aanpassen!

17.12.2023 - 17:45

country flag Anette Schwarz wrote:

Die Ränder der Diagonalen nicht absolut nicht schön, auf den Bildern usw davon nichts zusehen. Wie ist das gemacht? Danke für eine hilfreiche Antwort im voraus.

20.01.2023 - 10:59

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schwarz, wenn alle Maschen zugenoomment sind, wird es mit 3 Maschen kraus rechts beidseitig gestrickt, so haben Sie Krausrippen beidseitig- davor werden die Maschen glatt rechts gestrickt (keine extra Randmaschen) dann mit 3 Maschen kraus rechts auf der eine Seite (wie danach). Kann das Ihnen helfen? An der Seite, wo die neuen Maschen zugenommen (angeschlagen) werden, wird dann diese Seite genäht (so sieht man es nicht).

20.01.2023 - 11:49

country flag Annamaria Horvath wrote:

A magyar fordítás hibás. Az eleje darab utolsó bekezdésében mind a két helyen (a törtfehér és rózsaszín oldalon is) téves adatok szerepelnek a fogyasztásnál. Kérem javítsák! Előre is köszönöm. :)

18.11.2021 - 11:23

country flag Nadine Angee wrote:

Bonjour, sur ce modèle, DEVANT ROSE : il me semble qu'il y a une erreur, car en taille L, à la fin du 1er paragraphe, je me retrouve avec 56 mailles et non 44... ???? Ou est-ce que je me suis trompée ??? Avez-vous svp une explication. Merci

09.11.2021 - 21:37

DROPS Design answered:

Bonjour Nadine Angee, vous devez répéter 7 fois au total les rangs 1-4, autrement dit, y compris la 1ère fois, vous avez ainsi: 2 m + (6 augmentations x 7) = 44 mailles au total. Bon tricot!

10.11.2021 - 07:33

country flag Linda Förster wrote:

Bei den 9 Abnahmen in jeder 2. Reihe, ist da jede 2. Hinreihe gemeint? Oder jede Hinreihe, so verstehe ich es nämlich.

17.10.2021 - 02:35

DROPS Design answered:

Liebe Frau Förster, bei "in jeder 2. Reihe" ist "in jeder Hinreihe" gemeint. Viel Spaß beim stricken!

18.10.2021 - 09:03

country flag Linna wrote:

Hallo, ich würde die Anleitung gerne in Big Merino (Garngruppe C, mit einem Faden) stricken und auch in zwei Farben. Ich habe Schwierigkeiten die benötigten Mengen auszurechnen. Würden 175g natur und 75g rosa reichen für größe S? Lieben Dank

20.01.2021 - 19:57

DROPS Design answered:

Liebe Linna, hier lesen Sie mehr über Garnalternativen und unter "2 Fäden unterschiedlicher Garne durch 1 Faden ersetzen" wird es erklärt, wie man kalkulieren soll. Viel Spaß beim stricken!

21.01.2021 - 08:17

country flag Barbara wrote:

Proszę o wyjaśnienie dodawania oczek w przodach. W opisie do wzoru jest napisane, że dodajemy tylko na stronie prawej, natomiast w późniejszej części jest informacja,że dodajemy je również na lewej stronie robótki.

21.11.2019 - 03:25

DROPS Design answered:

Witaj Basiu! Masz rację, oczka są dodawane również na lewej stronie robótki, gdy wykonujemy przody. Korekta już została zgłoszona. Dziękuję za wskazanie tej nieścisłości. Pozdrawiamy!

22.11.2019 - 08:40

country flag Aissela Laudo wrote:

Per la fascia davanti da spalla dx a sx quandi dire "FERRO 2 (rovescio del lavoro): Intrecciare 2 maglie, lavorare le rimanenti maglie a rovescio. FERRO 3: Lavorare a diritto", Si continua comunque a fare 3 maglie legaccio da ogni lato per fare bordo ? Grazie mille

11.08.2019 - 13:44

DROPS Design answered:

Buongiorno Aissela, può continuare con il bordo a legaccio. Buon lavoro!

12.08.2019 - 08:59

country flag Aissela Laudo wrote:

Ops.mi accorgo ora che a gennaio avete fstto correzioni al modello, mentre io seguivo una stampa di ottobre 2018. Ora ho capito. Grazieee

06.08.2019 - 19:16

country flag Aissela Laudo wrote:

Le misure sugli schemi indicano maglie, righe, cm? confermate che in taglia S lunghezza 56 cm da incrocio AE a D per davanti- fascia sopra -è corretta? Perché aggiungendo poi le 14x4righe subito dopo sembra troppo lungo.grazie

06.08.2019 - 19:12