Sanne skrifaði:
Kjempefint 😍
07.02.2018 - 22:23
Dagny skrifaði:
Kommer denne snart? Er så fin!
07.02.2018 - 21:23
Rosa skrifaði:
Il me fait de l'oeil et j'attends les explications avec impatience
18.01.2018 - 22:19
Annalisa skrifaði:
Molto bello!!!
17.01.2018 - 16:43
Herma Schilder skrifaði:
Mooi door z'n eenvoud
03.01.2018 - 17:27
Ingrid skrifaði:
Mein absoluter Favorit
03.01.2018 - 08:40
Anita skrifaði:
Den er virkelig pæn, den må på min strikkeliste.
16.12.2017 - 07:55
Doris skrifaði:
Superschön, möchte ich unbedingt stricken. Bitte, bitte die Anleitung veröffentlichen!
11.12.2017 - 18:00
Skye#skyesweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með köðlum, gatamynstri, klauf í hlið og laskalínu. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Air.
DROPS 188-36 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 40 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 10. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 9. og 10. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING (á við um ermi): Aukið út mitt undir ermi þannig - byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndast göt. LASKALÍNA: * Prjónið yfir bakstykki/framstykki þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki. Prjónið 2 lykkjur brugðið saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið lykkjur á ermi saman þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig upp að klauf. Síðan er prjónað í hring. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 88-92-100-108-108-120 lykkjur á hringprjón 4 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2-0-0-0-0-2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið *-* alls 0-1-2-3-1-2 sinnum, A.4A (= 8 lykkjur) 0-0-0-0-1-1 sinni, A.1A (= 14 lykkjur), A.2A (= 8 lykkjur), A.3A (= 34 lykkjur), A.4A (= 8 lykkjur), A.5A (= 14 lykkjur), A.2A (= 8 lykkjur) 0-0-0-0-1-1 sinnum, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið *-* alls 0-1-2-3-1-2 sinnum, 2-0-0-0-0-2 lykkjur slétt, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið síðan áfram með stroff svona þar til stykkið mælist 8 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir á hringprjón 5. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, 2-0-0-0-0-2 lykkjur sléttprjón, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 0-1-2-3-1-2 sinnum, prjónið mynsturteikningu eins og áður, en prjónið B yfir A, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 0-1-2-3-1-2 sinnum, 2-0-0-0-0-2 lykkjur sléttprjón, 3 lykkjur garðaprjón. Þegar A.1B til A.5B er lokið eru 102-106-114-122-128-140 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2-4-8-12-4-10 lykkjur sléttprjón – fækkið um 0-0-0-1-0-1 lykkjur yfir þessar, A.4C (= 11 lykkjur) 0-0-0-0-1-1 sinni, A.1C (= 15 lykkjur), A.2C (= 11 lykkjur), A.3C (= 40 lykkjur), A.4C (= 11 lykkjur), A.5C (= 15 lykkjur), A.2C (= 11 lykkjur) 0-0-0-0-1-1 sinni, 2-4-8-12-4-10 lykkjur sléttprjón – fækkið um 0-0-0-1-0-1 lykkju yfir þessar, 3 lykkjur garðaprjón = 102-106-114-120-128-138 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 18 cm í öllum stærðum. FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og bakstykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið bakstykki á sama hringprjón og framstykki = 204-212-228-240-256-276 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið er skipt út fyrir sléttprjón héðan. Þegar stykkið mælist 37-37-36-36-37-36 cm fellið af 6-6-8-8-10-10 lykkjur í hvorri hlið (= 3-3-4-4-5-5 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin). Nú eru 96-100-106-112-118-128 lykkjur á bakstykki og framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á stuttan hringprjón þegar nægilega margar lykkjur hafa verið auknar út. Fitjið upp 40-40-44-44-48-48 lykkjur á sokkaprjón 4 með Air. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 2 cm er skipt yfir á sokkaprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-2-4-4-6-4 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA = 36-38-40-40-42-44 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 8-6-9-6-5-9 cm aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½-2½-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 12-13-16-19-20-20 sinnum = 60-64-72-78-82-84 lykkjur. Þegar stykkið mælist 40-39-36-36-36-33 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) fellið af miðju 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi (= 3-3-4-4-5-5 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 54-58-64-70-72-74 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 300-316-340-364-380-404 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram með mynstur eins og áður og fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 22-24-27-28-30-33 sinnum – þær lykkjur sem ekki ganga upp í mynsturteikningu eru prjónaðar slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið JAFNFRAMT þegar eftir er 1 umferð þar til A.1/A.5 mætir laskaúrtöku, fækkið að auki um 4 lykkjur jafnt yfir hvern kaðal í A.1/A.5 (á einungis við mynsturteikningu að laskalínu). Eftir allar úrtökur eru 108-108-108-124-124-124 lykkjur í umferð. Berustykkið mælist ca 20-22-25-26-27-30 cm. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 3 lykkjur yfir hvern kaðal með 6 lykkjum og fækkið um 7 lykkjur yfir hvern kaðal með 14 lykkjum = 82-82-82-98-98-98 lykkjur. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-10-14-6-10-14 lykkjur jafnt yfir = 92-92-96-104-108-112 lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #skyesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.