Caroline skrifaði:
Rekt de draad niet uit als je iets in de tas steekt en de tas draagt? Maw: is er geen binnenvoering nodig? Mooi patroon! :)
07.07.2018 - 11:13DROPS Design svaraði:
Dag Caroline, De tas zal inderdaad altijd wat uitrekken bij gebruik, dus het is een heel goed idee om er binnenvoering in te naaien.
09.07.2018 - 09:37
Carry Me Home#carrymehomebag |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð taska með hekluðum ferningum. Stykkið er heklað úr DROPS Paris.
DROPS 187-35 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3 sýna hvernig ferningarnir eru heklaðir saman. LITASAMSETTNINGAR: FERNINGUR 1: LOFTLYKKJUHRINGUR + UMFERÐ 1: Mosagrænn UMFERÐ 2: Pistasía UMFERÐ 3: Natur UMFERÐ 4: Sinnep UMFERÐ 5: Kórall UMFERÐ 6: Rústrauður UMFERÐ 7: Gráblár FERNINGUR 2: LOFTLYKKJUHRINGUR + UMFERÐ 1: Rústrauður UMFERÐ 2: Sinnep UMFERÐ 3. Kórall UMFERÐ 4: Natur UMFERÐ 5: Mosagrænn UMFERÐ 6: Pistasía UMFERÐ 7: Gráblár FERNINGUR 3: LOFTLYKKJUHRINGUR + UMFERÐ 1: Sinnep UMFERÐ 2: Kórall UMFERÐ 3: Pistasía UMFERÐ 4: Rústrauður UMFERÐ 5: Mosagrænn UMFERÐ 6: Natur UMFERÐ 7: Gráblár FERNINGUR 4: LOFTLYKKJUHRINGUR + UMFERÐ 1: Pistasía UMFERÐ 2: Natur UMFERÐ 3: Sinnep UMFERÐ 4: Mosagrænn UMFERÐ 5: Rústrauður UMFERÐ 6: Kórall UMFERÐ 7: Gráblár FERNINGUR 5: LOFTLYKKJUHRINGUR + UMFERÐ 1: Kórall UMFERÐ 2: Rústrauður UMFERÐ 3: Mosagrænn UMFERÐ 4: Pistasía UMFERÐ 5: Natur UMFERÐ 6: Sinnep UMFERÐ 7: Gráblár LITASKIPTI: Til að fá fallega litaskiptingu þegar skipt er um lit þá er síðasta keðjulykkjan í umferð hekluð með nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni í síðustu loftlykkjuna frá byrjun umferðar, sækið nýja þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litnum og dragið í gegnum lykkjuna á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Taskan er samansett af 10 ferningum í mismunandi litum. Heklaðir eru 2 ferningar í hverri LITASAMSETTNINGU – sjá útskýringu að ofan. TASKA: Heklið eftir A.1, byrjið þannig: Heklið 7 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Paris og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Haldið áfram eftir mynsturteikningu A.1, skipt er um lit í hverri umferð – lesið LITASKIPTI. ATH! 6. umferð byrjar ekki í horni eins og áður, heldur mitt í hlið á ferningi. FRÁGANGUR: Taskan er hekluð saman með litnum gráblár með heklunál 4,5. Leggið 8 af ferningunum (ferningar í lit 1 til 4) eins og útskýrt er í A.2. Byrjið í hægri hlið og leggið ferning 1 og 2 með rönguna að hvorum öðrum. Byrjið í loftlykkjubogum í horni og heklið 2 fastalykkjur um báða loftlykkjubogana. Haldið áfram með 1 fastalykkju í hverja fastalykkjur frá báðum ferningun, endið með 2 fastalykkjur um báða loftlykkjubogana í horni. Leggið ferning 3 með röngunga að ferning 2, heklið 2 fastalykkjur um báða loftlykkjubogana í horni, haldið áfram með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju frá báðum ferningum, endið með 2 fastalykkjur um báða loftlykkjubogana í horni. Haldið svona áfram þar til 8 ferningar hafa verið heklaðir saman. Að lokim er heklaður ferningur 4 í lok A.2 saman við ferning 1 í byrjun á A.2, þannig að taskan hangi saman á báðum hliðum, endið með eina keðjulykkju í fyrstu fastalykkju sem var hekluð á ferning 1 og 2. Klippið frá og festið enda. Heklið nú tvo síðasta ferningana við botn á tösku eins og útskýrt er í A.3. Byrjið neðst í hægra horni, leggið ferning 5 með röngu að ferning 1, heklið 2 fastalykkjur um báða loftlykkjubogana, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju frá báðum ferningum, endið með 2 fastalykkjur um báða loftlykkjubogana í horni. Leggið næstu hlið á ferning 5 með röngu að ferning 3, heklið 2 fastalykkjur um báða loftlykkjubogana, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju frá báðum ferningum, endið með 2 fastalykkjur um báða loftlykkjubogana í horni. Haldið áfram þar til 2 síðustu ferningarnir hafa verið heklaðir fastir við botn á tösku og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið frá og festið enda. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið nú kant í kringum op á tösku. Heklið með natur með heklunál 4,5 þannig: Heklið 1 fastalykkju þar sem heklaðar voru saman 2 miðju ferningarnir á töskunni (ferningur 2 og 4 í A.3), * hoppið yfir 2 fastalykkjur frá ferning 4, heklið 5 stuðla í næstu fastalykkju, hoppið yfir 2 fastalykkjur, heklið 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, heklið 1 fastalykkju + 3 loftlykkjur + 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, heklið 1 fastalykkju + 3 loftlykkjur + 1 fastalykkju um loftlykkjuboga, heklið 5 stuðla í næstu fastalykkju, hoppið yfir 2 fastalykkjur *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar og endið með 1 fastalykkju þar sem heklaðir voru saman 2 næstu ferningar. Haldið svona áfram í kringum allt opið á töskunni, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. TVINNUÐ SNÚRA: Klippið 8 þræði í litnum natur ca 4 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Festið snúruna í gegnum loftlykkjuboga frá heklaða kantinum á toppnum á einum af ferningunum, hinn endinn er efst á ferning í sömu hlið á tösku. Skiljið eftir ca 8 cm fyrir kögur á eftir hnút. Endurtakið í hinni hliðinni á töskunni. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #carrymehomebag eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.