DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 188-2
DROPS Design: Mynstur w-713
Garnflokkur C + C eða E
-----------------------------------------------------------

Mál:
Ummál: ca 92 cm.
Hæð: ca 46-47 cm.

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250 g litur 100, ljós þveginn
100 g litur 41, sinnep
100 g litur 39, pistasía
100 g litur 11, ópalgrænn
100 g litur 01, apríkósa
100 g litur 06, skær bleikur
100 g litur 07, fjólublár
100 g litur 14, skær gulur
100 g litur 12, rauður

Ef taskan er hekluð með einum lit þá þarf ca 650 g Paris.

DROPS HEKLUNÁL NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 13 stuðlar og 6 umferðir með 2 þráðum verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. Mynsturteikning sýnir liti í mynstri. 1 rúða = 1 stuðull.

TVEIR ÞRÆÐIR:
Notið þráðinn innan úr og utan með dokkunni. Gott er að skipta ekki um báða þræðina í einu, annars verða samskeytin of þykk.

LITAMYNSTUR:
Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðasta stuðul með fyrsta lit, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin. Skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin og heklið næsta stuðul. Þegar heklað er með tveimur litum eru þræðirnir sem ekki er heklað með látnir liggja yfir lykkjum frá fyrri umferð, heklað er utan um þessa þræði þannig að þeir sjáist ekki og fylgja með hringinn.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta stuðli í umferð er skipt út fyrir 3 lykkjur, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Eftir hverja umferð er stykkinu snúið við og heklað er áfram frá hinni hliðinni.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 stuðul með því að hekla næstu 2 stuðla saman þannig:
Heklið 1 stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni). Heklið næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.

KRABBAHEKL:
Heklið eins og fastalykkjur, en í gagnstæða átt. Þ.e.a.s. heklið fastalykkjur frá vinstri til hægri.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Taskan er hekluð með 2 þráðum af hvorum lit – lesið TVEIR ÞRÆÐIR. Stykkið er heklað í hring, en í hverri umferð er stykkinu snúið þannig að í annarri hverri umferð er heklað frá réttu og frá röngu.

TASKA:
Heklið 5 loftlykkjur með 2 þráðum í litnum ópalgrænn með heklunál 5,5.
Tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. Heklið síðan eftir mynsturteikningu A.1 (þar til heklaðar hafa verið 12 mynstureiningar af A.1 á breiddina) – lesið LITAMYNSTUR.
Heklið þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 12 stuðla um hringinn – lesið HEKLLEIÐBEININGAR.
UMFERÐ 2: Heklið 2 stuðla í hvern stuðul = 24 stuðlar.
UMFERÐ 3: Heklið * 1 stuðul í fyrsta stuðul, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 stuðlar.
UMFERÐ 4: Heklið * 1 stuðul í hvorn af fyrstu 2 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 48 stuðlar.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 5-9: Haldið áfram með útaukningu og mynstur eins og áður, þ.e.a.s. í hverri umferð er heklaður 1 stuðull fleiri á milli útaukninga = 108 stuðlar.
UMFERÐ 10: Í þessari umferð er síðasta útaukningin gerð (= 120 stuðlar) og blóm eru hekluð. Blómin eiga að hafa mismunandi liti, þess vegna verður að nota 2 dokkur af hverjum lit til þess að sleppa við að klippa þræðina frá á meðan heklað er.
Litasamsetning á blómunum er þannig:
1. litur 06, skær bleikur
2. litur 07, fjólublár
3. litur 41, sinnep
4. litur 01, apríkósa
5. litur 12, rauður
6. litur 14, skær gulur
7. litur 06, skær bleikur
8. litur 07, fjólublár
9. litur 41, sinnep
10. litur 01, apríkósa
11. litur 12, rauður
12. litur 14, skær gulur

UMFERÐ 11: Klippið frá og festið grunnlit (100, ljós þveginn). Þetta er gert þar sem umferðin á að byrja 3 stuðlum fyrr en fyrri umferð og nýja byrjunin á umferð á að vera mitt á milli 2 blóma. Heklið stuðla og mynstur eftir mynsturteikningu A.2 umferðina hringinn.
UMFERÐ 12-18: Haldið áfram með stuðla og mynsturteikningu A.2.
UMFERÐ 19: Haldið áfram með stuðla og mynsturteikningu A.2, en í þessari umferð eru heklaðir fyrstu stuðlarnir í hverri mynstureiningu saman – þ.e.a.s. fækkað er um 12 stuðla í þessari umferð – lesið ÚRTAKA = 108 stuðlar.
UMFERÐ 20-27: Heklið stuðla og mynstur eftir mynsturteikningu A.3 (nú er eftir 1 umferð af A.3).
UMFERÐ 28: Heklið síðustu umferð í A.3 með fastalykkjum, klippið frá og festið enda.

KANTUR:
Heklið kant efst á töskunni með 2 þráðum í litnum sinnep þannig: Festið þræðina með 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, heklið 1 loftlykkju, heklið síðan KRABBAHEKL – sjá útskýringu að ofan, umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. Klippið frá og festið enda.

AXLARÓL:
Klippið 4 þræði af hverjum lit ca 120 cm = 36 þræðir. Leggið þræðina saman og hnýtið lausan hnút, það eiga að vera eftir ca 12 cm á eftir hnút. Skiptið þráðum í 3 einingar með 12 þráðum í hverri einingu. Fléttið einingarnar þrjár saman þar til fléttan mælist ca 68 cm (fléttið ekki of fast). Skiptið þráðunum í 2 einingar. Þræðið 2 hluta í gegnum töskuna með 1 stuðla millibili, á hinni umferðinni frá affellingarkanti. Hnýtið þræðina saman á framhlið á töskunni. Takið upp hnútinn í byrjun á fléttu og festið endann við töskuna alveg eins nema í gagnstæðri hlið (sjá mynd). Gerið aðra fléttu alveg eins og festið hana í hinni hliðinni á töskunni eins og útskýrt er að ofan. Ef óskað er eftir því er hægt að gera litlar fléttur á endunum á axlarólinni utan á töskunni.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 13.04.2021
Nýtt efnismagn: DROPS PARIS frá Garnstudio 250 g litur 100, ljós þveginn.

Mynstur

symbols = litur ópalgrænn
symbols = litur pistasía
symbols = litur ljós þveginn
symbols = sjá litaröð í uppskrift - hver mynstureining er með mismunandi liti
symbols = litur sinnep
symbols = litur fjólublár
symbols = litur skær bleikur
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Gallienne wrote:

Bonjour, je ne comprends pas comment le diagramme peut faire correspondre des mailles en augmentation, je n’arrive pas à faire coïncider celui-ci, c’est à dire le dessin du diagramme avec les mailles en rond et en augmentation. Cela ne correspond pas pour former le dessin des fleurs… Merci pour votre réponse attendue..,

24.08.2022 - 21:41

DROPS Design answered:

Bonjour Galienne, vous devez répéter 12 fois A.1 en largeur, autrement dit: au 1er rang: 12 x 1 bride dans la bride suivante (= 12 b.); au 2ème rang 12 x (2 brides dans chaque b ) = on a bien 2 mailles dans A.1; au 3ème rang 12 x (1 b dans la b suivante, 2 b dans la suivante = 3 brides dans A.1); et ainsi de suite. Vous crochetez les mailles de A.1 dans la couleur indiquée par le diagramme tout en suivant les indications écrites pour les augmentations. Les fleurs ne seront formées que dans A.2, dans A.1 vous faites le fond puis les tiges et les feuilles. Bon crochet!

25.08.2022 - 09:17

country flag Andrea Tummarello wrote:

Ich habe anstatt der 200gr. Light wash die Farbe Spray Blue genommen - leider haben bei mir die 200 gr auch nicht ausgereicht. Bestellt am besten gleich 300 gr damit euch der Garn während dem Häkeln nicht ausgeht :-)

08.03.2021 - 12:06

country flag Dea wrote:

Buongiorno, 200 gr di colore 100 light wash non bastan nemmeno per finire la borsa. Almeno a me non sono bastati.

26.07.2019 - 14:33

DROPS Design answered:

Buongiorno Dea. Trasmetteremo la sua segnalazione alla casa madre. Buon lavoro!

26.07.2019 - 16:53

country flag Dea wrote:

Vi chiedo comunque di inoltrare a Drops la richiesta di un video per il diagramma A1. Seguendo le indicazioni fedelmente non si può ottenere il disegno come nelle foto sopra. Grazie.

25.07.2019 - 08:16

DROPS Design answered:

Buongiorno Dea, inoltriamo la sua segnalazione alla casa madre. Buon lavoro!

25.07.2019 - 15:18

country flag Dea wrote:

Una domanda: visto che il diagramma A1 bisogna lavorarlo avanti e indietro, se si lavora dal DL da che parte bisogna leggerlo? Da dx verso sx? Quindi il primo in basso (giro 1 = 12 maglie alte) si legge da dx verso sx? Questo è importante per capire come prosegue il lavoro, comunque ho tentato più volte, ma non mi viene come il lavoro nella foto.

23.07.2019 - 20:56

DROPS Design answered:

Buongiorno Dea. Il diagramma A1 viene letto da destra verso sinistra sul diritto del lavoro e da sinistra verso destra sul rovescio del lavoro. Viene letto dal basso verso l’alto. Quindi sulla prima riga avrà 12 ripetizioni di 1 maglia alta l’una; alla seconda riga avrà 2 maglie alte in ogni ripetizione e così via. Buon lavoro!

24.07.2019 - 06:36

country flag Dea wrote:

Non è possibile avere un video che spiega come realizzare il diagramma A1? Putroppo non è semplice capire gli aumenti e come comportarsi con la direzione del lavoro sullo schema. Grazie.

23.07.2019 - 20:15

country flag Elena wrote:

Avevo già provato a chiedere senza risposta. Qual è il senso del lavoro avanti e indietro visto che è in tondo? Grazie.

15.05.2019 - 15:08

DROPS Design answered:

Buongiorno Elena. Viene fatto per avere il risultato che si può vedere nell'ultima fotografia, quella che inquadra meglio i fiori. Se però preferisce e si trova meglio, può lavorare in tondo. Buon lavoro!

15.05.2019 - 15:27

country flag Sylvie wrote:

Bonjour, Merci pour votre aide. J'ai une autre question : je suis arrivée au rang 2 du schéma A2 et je trouve que l'ouvrage fait beaucoup de "vagues", j'ai peur qu'il ne soit pas correct au niveau de la forme ? Est-ce que cette impression s'estompe au fur et à mesure des rangs qui suivent ? Merci par avance et bonne journée. Sylvie

01.04.2019 - 13:12

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, quand on crochète A.1, on forme le fond du sac = une sorte de disque plat (= jusqu'au tour 10 inclus) puis on va crocheter A.2 sans augmenter pour former les côtés montants du sac. Pensez à bien conserver la bonne et surtout la même tension pour que l'ouvrage conserve la bonne forme. Bon crochet!

01.04.2019 - 15:32

country flag Sylvie Nigro wrote:

Bonjour, existe-t-il un schéma complet du sac ? Si on tourne l'ouvrage à chaque changement de rang, ne risque-t-on pas de voir les fils que l'on fait suivre pour faire les dessins au jaquard ? Merci

15.03.2019 - 10:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Nigro, il n'y a pas besoin de diagramme complet, suivez les diagrammes et répétez-les comme indiqué - plus d'infos sur les diagrammes ici, en bas de page pour le jacquard. Veillez bien à ce que les fils soient côté envers pour qu'ils ne se voient pas, que vous travailliez sur l'endroit ou sur l'envers. Bon crochet!

15.03.2019 - 12:45

country flag Carolyn wrote:

Sorry..regarding the previous question, once we turn the work for the second (or even numbered) round, do we then read the chart from left to right?

22.08.2018 - 02:05