Virginie skrifaði:
Bonjour J’ai tricoté la première manche et sa forme semble être adaptée pour une emmanchure raglan. Hors le modèle n’est pas en raglan du coup ma manche ne s’adapte pas à la veste.
03.10.2021 - 12:09DROPS Design svaraði:
Bonjour Virginie, le haut de la manche ne correspond pas exactement à une manche raglan, mais vous devez diminuer comme indiqué pour que le haut de la manche s'ajuste avec les emmanchures - épinglez si besoin votre manche pour que le milieu soit tout en haut et que le milieu sous la manche se trouver en bas de l'emmanchure. Si vos mesures sont justes, alors la tête de la manche va s'ajuster impeccablement dans le trou formé pour l'emmanchure. Bon tricot!
04.10.2021 - 08:25
Camilla Lenita skrifaði:
Hur utläser jag måttskissen på cirkelstickade plagg? Var kan jag se bystmåttet t.ex.? Är det siffrorna 96, 102, 108 och 112 på denna skiss?
12.05.2020 - 19:28DROPS Design svaraði:
Hej Camilla, siffrorna 96-102-108-112 är diametern på cirklen och 15-12-12-12 är kanterna mot mitt fram, så det mäter på det bredaste 126-126-132-136 cm. Lycka till :)
15.05.2020 - 09:03
Yvonne skrifaði:
Hallo, Ik begrijp de beschrijving van het afkanten voor de mouw niet goed. Is het de bedoeling dat er 3 steken aan het begin van de naald worden afgekant, dus bij de naald heen en bij de naald terug. En dat er 14 keer aan beide kanten op de pen ( dus in 1 naald) 1 steek wordt afgekant. En tot slot nog 7 keer aan het begin van de naald, dus bij de naald heen en terug. Anders kom ik niet op 12 steken over en de 13 cm aan hoogte erbij. Graag uw opheldering.
21.02.2019 - 14:29DROPS Design svaraði:
Dag Yvonne,
Het klopt precies zoals je het begrijpt. Je kant de heengaande en de teruggaande naald af, zodat je aan beide kanten van de mouw afkant.
26.02.2019 - 09:43
Joke Van Ees skrifaði:
Is het patroon over 1 of 2 pennen per hokje.en hoe ga je veder met A2ik begrijp er niks van , zal u mijn dat willen uit leggen .
19.02.2019 - 17:03DROPS Design svaraði:
Dag Joke,
Een hokje is een steek en je begint het telpatroon onderaan en werkt naar boven toe. Je leest de steken in het telpatroon van rechts naar links. Als je 1 rij klaar hebt, lees je de volgende rij weer van rechts naar links, totdat je alle rijen (= naalden) gebreid hebt.
21.02.2019 - 11:11
Yvonne skrifaði:
Bij het breien van het voorpand staat: brei verder in patroon. Mijn vraag is: moet er na elke 10e naald ook gemeerderd worden? Of hoeft dat niet meer?
31.01.2019 - 16:34DROPS Design svaraði:
Dag Yvonne,
Nee, je hoeft dan inderdaad niet meer te meerderen.
03.02.2019 - 11:52
Jantina Strangmann skrifaði:
Graag zou ik willen weten of het aantal gr. klopt met het patroon, lijkt mij dat er meer in gaat dan 250 gr.
04.10.2018 - 13:29
Lizeth skrifaði:
Weten jullie al hoeveel garen erin gaat? Ik heb nog 125 gram BrushedAlpacaSilk en zoek een leuk patroon
25.01.2018 - 13:13
Marea#mareajacket |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð hringpeysa í garðaprjóni. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Brushed Alpaca Silk.
DROPS 188-35 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð í 1 umferð með sléttum lykkjum. Prjónið að sléttu lykkjunni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= 1 lykkja slétt), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið við hverja slétta lykkju (= 32 lykkjur fleiri í umferð). Útauknar lykkjur eru prjónaðar snúnar brugðið í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. Prjónið síðan garðaprjón til loka. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað frá miðju og út. Fyrst er prjónað fram og til baka, síðan er prjónað í hring. Stykkið skiptist, lykkjum er fækkað og prjónað er fram og til baka yfir hvort framstykki. Ermar eru prjónaðar fram og til baka hvor fyrir sig og saumaðar á í lokin. HRINGUR: Fyrst er prjónað fram og til baka á 2 sokkaprjóna, síðan er prjónað í hring með 5 sokkaprjónum. Þegar aukið hefur verið út nægilega mikið þá er skipt yfir á hringprjóna. Fitjið upp 8 lykkjur með Brushed Alpaca Silk á sokkaprjóna 5,5. Prjónað er eftir A.1 (= 8 mynstureiningar með 1 lykkju) fram og til baka. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 á hæðina eru 32 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 8 cm að þvermáli. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan í hring eftir A.2 (= 16 mynstureiningar með 2 lykkjum). Umferðin byrjar við miðju aftan í hnakka. Haldið nú áfram með þetta mynstur, þ.e.a.s. aukið er út um 2 lykkjur í hverri mynstureiningu í 10. hverri umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 36-38-40-42 cm að þvermáli = ca 192-224-224-256 lykkjur (= 32 lykkjur slétt með ca 5-6-6-7 lykkjur með garðaprjóni á milli hverra og einna af þeim). Gerið handveg þannig (stillið af að næstu 2 umferðirnar séu ekki útaukningsumferðir): Prjónið fyrstu 31-33-35-37 lykkjur eins og áður, fellið af næstu 28-32-36-38 lykkjur (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, notið e.t.v. einu númeri grófari prjóna), prjónið eins og áður þar til eftir eru 59-65-71-75 lykkjur (= ca 74-94-82-106 lykkjur), fellið af næstu 28-32-36-38 lykkjur, prjónið síðustu 31-33-35-37 lykkjur eins og áður. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 28-32-36-38 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af í hvorri hlið (passið uppá að uppfitjunarkanturinn verði ekki stífur) = ca 192-224-224-256 lykkjur. Prjónið nú mynstur yfir A.2 þannig: * Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, að 2. lykkju slétt í fyrstu/næstu mynstureiningu af A.2 (= ca 6-7-7-8 lykkjur garðaprjón, þ.e.a.s. prjónið garðaprjón yfir fyrstu sléttu lykkjuna), 1 lykkja slétt eins og áður (= slétt lykkja), garðaprjón yfir síðustu lykkju í A.2 (= 5-6-6-7 lykkjur, þ.e.a.s. það er bara 1 lykkja slétt í hverri endurtekningu) *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (= alls 16 lykkjur slétt í umferð með ca 11-13-13-15 lykkjur garðaprjón á milli hverra og einna af þeim). Haldið áfram með mynstur til loka JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hverja lykkju slétt í 10. hverri umferð eins og áður – lesið ÚTAUKNING. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 96-102-108-112 cm að þvermáli, stillið af að síðasta umferð sé prjónuð brugðið yfir lykkjur í garðaprjóni = ca 480-544-576-608 lykkjur. Nú skiptist stykkið fyrir framstykki þannig: Fellið af fyrstu 40-45-48-51 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 120-135-144-153 lykkjur (= vinstra framstykki), fellið af lykkjur þar til eftir eru 160-180-192-204 lykkjur (= ca 160-184-192-200 lykkjur felldar af), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 120-135-144-153 lykkjur (= hægra framstykki), setjið þær síðan á þráð, fellið af síðustu 40-45-48-51 lykkjur. Klippið frá og festið enda. VINSTRA FRAMSTYKKI: Haldið áfram með mynstur fram og til baka yfir 120-135-144-153 lykkjur (1. umferð = frá röngu) JAFNFRAMT þar sem fyrstu 2-3-3-3 lykkjur í byrjun á hverri umferð eru felldar af (þ.e.a.s. fellið af 2-3-3-3 lykkjur í hvorri hlið). Haldið áfram með mynstur og fellið svona af þar til stykkið mælist alls 63-63-66-68 cm frá miðju á hring (þ.e.a.s. framstykki mælist ca 15-12-12-12 cm) = ca 20-15-24-33 lykkjur eftir. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka á prjón/hringprjón. Fitjið upp 38-42-42-46 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 4,5 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju með GARÐAPRJÓNI – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 5 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 10 cm, stillið af að næsta umferð sé frá réttu, aukið út um 1 lykkju með því að slá einu sinni uppá prjóninn innan við 2 lykkjur í hvorri hlið á stykki = 2 lykkjur fleiri. Uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð (= frá röngu), það eiga ekki að myndast göt. Aukið svona út með 3-2½-2-1½ cm millibili alls 11-12-15-17 sinnum = 60-66-72-80 lykkjur. Þegar stykkið mælist 42-42-40-40 cm fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð (þ.e.a.s. í hvorri hlið á stykki) þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, síðan 1 lykkju alls 14-18-20-26 sinnum, síðan er felld af 1 lykkja í byrjun á annarri hverri umferð í hvorri hlið á stykki alls 7-6-7-5 sinnum = 12 lykkjur. Stykkið mælist ca 55-56-56-57 cm. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermar í og saumið sauma undir ermum innan við 1 kantlykkju. Saumið innsta hringinn saman í ystu lykkjubogana (= ca 3 cm saumur). |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mareajacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.