DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5852.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Tornade

Prjónuð peysa í garðaprjóni og hringlaga berustykki, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Brushed Alpaca Silk.

DROPS 188-1
DROPS Design: Mynstur as-090
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
175-175-200-225-250-250 g litur 14, ljós grágrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 60 eða 80 cm) NR 4 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 19 lykkjur og 26 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5852.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚTAUKNING-1 (á við um berustykki):
Lykkjur eru auknar út til skiptis á undan og á eftir síðust lykkju slétt í A.1 – sjá ör í mynsturteikningu. Þ.e.a.s. í fyrsta skipti sem aukið er út, er aukið út á eftir síðustu lykkju slétt og í seinna skipti sem aukið er út, er aukið út á undan síðustu lykkju slétt. Aukið út þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð. Útaukna lykkjan er síðan prjónuð í garðaprjóni. Þ.e.a.s. í hvert skipti sem aukið er út verður 1 lykkja fleiri í garðaprjóni í A.1 sem aukið er út í.

ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu í hlið og á fram- og bakstykki og á ermum):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út við bæði prjónamerkin. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Berustykki er prjónað í hring, síðan skiptist stykkið og ermar og fram- og bakstykki er prjónað í hring hvert fyrir sig.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 84-88-94-98-102-104 lykkjur á hringprjón 4. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Umferðin byrjar við miðju að aftan.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 16-17-18-19-20-21 lykkjur slétt og aukið út 3-4-3-4-3-5 lykkjur jafnt yfir (= hálft bakstykki), prjónið * 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* yfir næstu 10 lykkjurnar (= ermi = 10 lykkjur fleiri), 32-34-37-39-41-42 lykkjur slétt og aukið út 6-9-6-8-6-10 lykkjur jafnt yfir (= framstykki), prjónið * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* yfir næstu 10 lykkjurnar (= ermi = 10 lykkjur fleiri), 16-17-19-20-21-21 lykkjur slétt og aukið út 4-5-3-5-4-5 lykkjur jafnt yfir (= hálft bakstykki) = 117-126-126-135-135-144 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan A.1 (= 3 lykkjur) yfir allar lykkjur (= 39-42-42-45-45-48 sinnum á breidd), uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt. JAFNFRAMT er aukið út þannig:

BERUSTYKKI:
Aukið út til skiptis í 3. hverri umferð á A.1 á breidd í 4. hverri umferð, þ.e.a.s. þannig:
FYRSTA ÚTAUKNING: * Aukið út 1 lykkju – lesið ÚTAUKNING-1, í fyrstu A.1, síðan eru 2 næstu mynstureiningar prjónaðar af A.1 á breidd eins og áður *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 13-14-14-15-15-16 lykkjur fleiri. Prjónið 3 umferðir mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
ÖNNUR ÚTAUKNING: * Prjónið 1 mynstureiningu af A.1 eins og áður, aukið út um 1 lykkju í næstu mynstureiningu A.1, prjónið næstu mynstureiningu af A.1 eins og áður *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 13-14-14-15-15-16 lykkjur fleiri. Prjónið 3 umferðir mynstur.
ÞRIÐJA ÚTAUKNING: Prjónið 2 mynstureiningar af A.1 eins og áður, aukið út um 1 lykkju í næstu mynstureiningu A.1 *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 13-14-14-15-15-16 lykkjur fleiri. Prjónið 3 umferðir mynstur.
Endurtakið 1. til 3. útaukningu alls 3-3-3-3-4-4 sinnum (= alls 9-9-9-9-12-12 útauknings umferðir), endurtakið síðan 1. útaukningu 0-1-1-1-1-1 sinni til viðbótar (= alls 9-10-10-10-13-13 útauknar umferðir), endurtakið síðan 2. útaukningu 0-0-1-1-0-1 sinni til viðbótar (= alls 9-10-11-11-13-14 útauknar umferðir) = 234-266-280-300-330-368 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm frá uppfitjunarkanti.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 31-36-38-42-47-55 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 54-60-64-66-70-74 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn, setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa lykkja (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 63-73-76-84-95-110 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 54-60-64-66-70-74 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn, setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa lykkja (= í hlið undir ermi), prjónið 32-37-38-42-48-55 lykkjur slétt (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað áfram hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 142-162-172-188-214-244 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem ermar voru settar á þráð, er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING-2! Aukið svona út með 2½-3-3- 2½-3-5 cm millibili alls 10-9-9-10-9-6 sinnum = 182-198-208-228-250-268 lykkjur. Þegar stykkið mælist 31-31-32-32-32-32 cm frá þar sem ermar voru settar á þráð, prjónið 1 umferð eins og áður þar sem aukið er út um 2-2-0-0-2-0 lykkjur jafnt yfir = 184-200-208-228-252-268 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú stroff (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt). Prjónið svona í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið jafnvel af með 1 númeri grófari prjónum. Stykkið mælist ca 36-36-37-37-37-37 cm frá þar sem ermar skiptu fram- og bakstykki og alls 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.
Setjið til baka 54-60-64-66-70-74 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa nýju lykkja = 62-68-74-76-82-86 lykkjur. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem ermar skiptu fram- og bakstykki er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur færri) – lesið ÚRTAKA! Skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf. Fækkið lykkjum svona með 3 cm millibili alls 4-4-5-5-6-6 sinnum = 54-60-64-66-70-74 lykkjur.
Aukið síðan um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 3-3-3-3-2-2 cm millibili alls 7-6-6-7-7-7 sinnum = 68-72-76-80-84-88 lykkjur. Þegar stykkið mælist 37-37-36-36-34-33 cm frá þar sem ermi skiptist frá fram- og bakstykki, skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið 1 umferð þar sem allar lykkjur voru prjónaðar 2 og 2 slétt saman = 34-36-38-40-42-44 lykkjur. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) JAFNFRAMT er aukið út um 2-0-2-0-2-0 lykkjur jafnt yfir = 36-36-40-40-44-44 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þegar stykkið mælist 42-42-41-41-39-38 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki og alls 63-65-65-67-67-68 cm frá kanti í hálsi.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 18.04.2018
Mynsturteikning hefur verið leiðrétt
Yfirfarið á vefsvæði: 20.04.2018
Mynsturteikning hefur verið leiðrétt, ásamt ÚTAUKNING-1.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = í dálknum um berustykki þá er þetta slétta lykkjan sem auka á út til skiptis á undan og á eftir. Sjá ÚTAUKNING-1
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Tornade

Tatjana, Germany

Tornade

Knitting Andrea, United States

Tornade

Svetlana Shubina, United States

Tornade

Joe, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (77)

country flag Germana Bertuzzi wrote:

Buongiorno, ho incontrato difficoltà con la comprensione degli aumenti, noto che per molti è stata la stessa cosa, forse sarebbe stato opportuno un diagramma più esplicito, come fate solitamente.

15.02.2023 - 10:00

country flag Moh Moh wrote:

Hi, Regarding inc1, inc2 and inc3 for A1, Could you please confirm if my understanding bout A1 repeated 3 times in row and columns in these terms (K=Knit, P=Purl, Y=Yarn over) The Row represents last row of A1 in each repeat and column represents each repeat of A1. PPKY PPK PPK PPPK PPYK PPK PPPK PPPK PPKY PPPKY PPPK PPPK PPPPK PPPYK PPPK PPPPK PPPPK PPPKY PPPPKY PPPPK PPPPK PPPPPK PPPPYK PPPPK PPPPPK PPPPPK PPPPKY Thanks.

27.04.2022 - 10:53

DROPS Design answered:

Dear Moh Moh, on 1st increase you will work: *(YO, 2 sts in garter st, K1), 2 repeats of A.1 over 3 sts*, repeat from *-*. On 2nd increase: *A.1 over 4 sts (with 3 sts in garter st), increase in next A.1 (= YO, 2 sts in garter st, K1), A.1 over 3 sts*, repeat from *-*. On 3rd increase: *2 repeats of A.1 over 4 sts , increase in next A.1 as before*, repeat from *-* all the round. After 3rd increase, there are 3 sts in garter stitch between every stitch in stocking stitch. Happy knitting!

27.04.2022 - 15:15

country flag Anette wrote:

Enig m Birgitte. Jeg løste det slik: 1. økning: kast før rett i 1. rapport. 2. økning: kast etter rett i 1. rapport. 3. økning: kast før rett i 3. rapport. 4. økning: kast etter rett i 3. rapport. 5. økning: kast før rett i 2. rapport. 6. økning: kast etter rett i 2. rapport. Repeat. Måtte tegne og telle. Men nå får jeg det ikke til å stemme med oppskrift for bolen, så jeg tegner og teller videre…:)

10.04.2022 - 23:02

country flag Brigitte wrote:

Takk for svar, men det løste ikke problemet. Det jeg tror er problemet er formuleringen i øketips 1. Det leses som man i samme økerunde bytter fra å øke før og etter siste rettmaske, mens for å få like rapporter etter de tre økeomgangene, må øke på samme sted (før eller etter siste rettemaske) i hver av de 3 økningene i de 3 rapportene. Man kan eventuelt bytte sted neste gang man øker, altså neste 3 økninger i 3 rapporter. Leser jeg det riktig da?

05.04.2022 - 21:29

country flag Brigitte Grov wrote:

Jeg har samme problem som Annette og har både strikket det og tegnet det ut og får samme ujevnhet i antall masker i hver rapport etter økningen når jeg følger øketips 1 i hver omgang det skal økes.

29.03.2022 - 22:31

DROPS Design answered:

Hei Birgitte. På 1. økeomgang økes det i 1.rapport av A.1, strikk 2 rapporter av A.1 uten økning, gjenta dette omgangen rundt (det økes vekselsvis før og etter rettmasken). I 2. økeomgang økes det i 2. rapport av A.1, altså det strikkes 1 rapport av A.1, 1 rapport av A.1 der det økes, 1 rapport av A.1, gjenta dette omgangen ut. I 3. økeomgang økes det i 3. rapport av A.1, altså det strikkes 2 rapporter av A.1, 1 rapport av A.1 der det økes, gjenta dette omgangen ut. Nå er det økt i hver rapport av A.1, men i 3 forskjellige omganger = 3 masker riller + 1 rett maske. Deretter gjentas økningen (se oppskriften hvor mange ganger i den str. du strikker). mvh DROPS Design

04.04.2022 - 12:30

country flag Anette wrote:

Jeg har fulgt øketips 1. I 1. omg. med økning, økte jeg etter rett og neste før rett, omgangen rundt. I 2. omg. med økning, økte jeg i 2. rapport, etter rettmasken; jeg tolket det slik at øketips 1 gjelder for alle omgangene det skal økes. Etter 3. økning, skal det være like mange (3) vrange masker i hver rapport? Hos meg blir det slik: 1. rapport: VVR, 2. og 3. rapport: VVVR, 4. rapport: VVVR, 5. og 6. rapport: VVVR - og så gjentas dette. Gjør jeg det rett?

27.03.2022 - 14:39

DROPS Design answered:

Hei Anette. På 1. økeomgang økes det i 1.rapport av A.1, strikk 2 rapporter av A.1 uten økning, gjenta dette omgangen rundt (det økes vekselsvis før og etter rettmasken). I 2. økeomgang økes det i 2. rapport av A.1, altså det strikkes 1 rapport av A.1, 1 rapport av A.1 der det økes, 1 rapport av A.1, gjenta dette omgangen ut. I 3. økeomgang økes det i 3. rapport av A.1, altså det strikkes 2 rapporter av A.1, 1 rapport av A.1 der det økes, gjenta dette omgangen ut. Nå er det økt i hver rapport av A.1, men i 3 forskjellige omganger = 3 masker riller + 1 rett maske. Deretter gjentas økningen (se oppskriften hvor mange ganger i den str. du strikker). mvh DROPS Design

04.04.2022 - 11:07

country flag Dorrit Jensen wrote:

Model 188-1. Jeg kan ikke få de 140 masker til at passe med med de 3 masker der er i mønsteret - rapport A-1. Jeg starter med 2 vrang og slutter med 2 vrang. Er der en fejl i opskriften eller er det mig der ikke kan forstå den 😊?

01.09.2021 - 21:37

DROPS Design answered:

Hei Dorrit. Hvilken størrelse strikker du? Når du skal starte med diagram A.1 skal du ha 117-126-126-135-135 eller144 masker. Strikk A.1 (= 3 masker) over alle maskene (i str S strikker du A.1 39 ganger, i str M og L strikker du A.1 42 ganger, i str XL og XXL strikker du A.1 45 ganger og i str XXL strikker du A.1 48 ganger). mvh DROPS design

06.09.2021 - 13:44

country flag Inger Lise Pettersen wrote:

DEtte ble vanskelig, kommer ikke videre pga diaram A.1.mangler fremdeles

16.03.2021 - 17:16

DROPS Design answered:

Hei Inger Lise, Nå kan du finne diagrammet til høyre for målskissen i bunnen av oppskriften. God fornøyelse!

17.03.2021 - 08:10

country flag Inger Lise Pettersen wrote:

Hvor er diagrammer A1 i oppskriften

16.03.2021 - 12:44

DROPS Design answered:

Hej Inger. Du finner det längst ner i oppskriften, till høyre om måleskissen. Mvh DROPS Design

17.03.2021 - 08:26

country flag Inger Lise Pettersen wrote:

Jeg finner fremdeles ikke noe diagram A1 som det henvises til

16.03.2021 - 12:41