Crystal Thili skrifaði:
Hello, I am stuck on Round 8 of the diagrams A.2 and A.3. This is my first time crocheting from a diagram. I am not understanding how to increase at the sleeves. thank you!
16.08.2018 - 18:45DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Thili, when increasing on row 8 on sleeve, work A.3 as before and after the markers and increase evenly between the markers = in A.2 - read how to increase evenly here. Happy crocheting!
17.08.2018 - 09:59
Ingrid Cornelissen skrifaði:
Dank je wel nog voor het antwoord op mijn vorige vraag! Als ik A1 tot A3 1 keer in de hoogte heb gehaakt kom ik maar tot 268 steken ipv tot de genoemde 288. Heb me aan het patroon van A1 (en de meerderingen van A3. Wat is er verkeerd gegaan? Opnieuw alvast hartelijk dank voor het antwoord!
25.06.2018 - 20:26DROPS Design svaraði:
Dag Ingrid, Ik heb het voor je nageteld en je zou toch op 288 steken moeten komen. In het begin van A.3 heb je 4 steken en op het eind van A.3 heb je 36 steken, dus 32 steken per A.3 gemeerderd = 128 steken. Daarnaast meerder je voor de mouw op verschillende naalden verdeeld over de steken in totaal 24 steken voor beide mouwen. Dus er komen in totaal (128+24) 152 steken bij. Helaas kan ik vanaf hier niet met je meekijken waar het fout is gegaan. Tel alles nog even goed na. Hopelijk vind je het.
26.06.2018 - 14:45
Ingrid skrifaði:
Hallo, bij de kleur staat nummer 13 raspberry, maar deze kleur bestaat niet... 13 is koraal, 14 is roze. Welke is de kleur vd afbeelding?\r\nAlvast bedankt voor jet antwoord! Hartelijke groeten, Ingrid
24.06.2018 - 01:24DROPS Design svaraði:
Dag Ingrid, Dankjewel voor het doorgeven. Het is inmiddels gecorrigeerd. Het is inderdaad nr 13, koraal.
25.06.2018 - 10:44
Ingrid Cornelissen skrifaði:
Hallo, bij de kleur staat nummer 13 raspberry, maar deze kleur bestaat niet... 13 is koraal, 14 is roze. Welke is de kleur vd afbeelding?\r\nAlvast bedankt voor jet antwoord! Hartelijke groeten, Ingrid
20.06.2018 - 13:51
Sofia skrifaði:
Det verkar vara problem med diagrammen på de flesta av era virkmönster, i ska fall när man kollar på mobilen. Symbolerna har blivit ersatta av vita rutor.
06.05.2018 - 11:14DROPS Design svaraði:
Hei Sofia. Det var ingen problemer med symbolene når jeg sjekket dem nå. Det kan være at de er i et format mobilen ikke klarer å lese og at det er derfor de vises som hvite firkanter.
09.05.2018 - 08:38
Elecia skrifaði:
After completing the increase second row, it says work 6 double crochet over the first 24 double crochet 4 times. Does this mean 6 double crochet in each 24 double crochet? Or, one double crochet in each of the 24 double crochet?
10.04.2018 - 23:07DROPS Design svaraði:
Dear Elecia, A.2 is worked over 6 double crochet, ie when working 1st row (inserting marker), repeat row 1 in A.2 (= the row after the one with a star) a total of 4 times over the first 24 double crochet, when you have to crochet A.2 over the next 12 dc, you will repeat A.2 a total of 2 times in width and so on. Happy crocheting!
11.04.2018 - 09:38
Elecia skrifaði:
I want to make this using a sports weight yarn for someone in Florida. Would I have to go up a size and hook?
02.04.2018 - 16:37DROPS Design svaraði:
Dear Elecia, if you want to do this from a sportweight yarn, and go up a hook-size your crocheted fabric would not have the same densness, it would not hold up, like a thicker yarn. If anything, you should go down and use smaller hooks, make a swatch and recalculate the stitchnumber accordingly. Happy Crafting!
02.04.2018 - 22:31
Kristina skrifaði:
Hej, varv 5 på A3 börjar med st-lm-st i fm. Ska jag virka så även i slutet av A3, innan A2 ärm börjar. Om inte, ska jag då istället göra A3 spegelvänt efter A2 ärm?
08.03.2018 - 06:46DROPS Design svaraði:
Hej Kristina, du virkar endast st-lm-st där det står i diagrammet, du skall inte virka spegelvänt om inte vi skriver det. Lycka till :)
07.05.2018 - 16:18
Inge skrifaði:
Bij de lente patronen van 2018 stond een rood gehaakt jurkje waarvan het patroon beschikbaar zou komen. Nu de lente-boeken er zijn kan ik nergens het rode jurkje meer vinden. Wordt het nog verwacht of wordt het patroon niet meer beschikbaar gesteld.
28.02.2018 - 15:12DROPS Design svaraði:
Hallo Inge, Uiteindelijk zullen alle patronen van de Lente & Zomer collectie vertaald en gepubliceerd worden. Degene met de meeste stemmen zijn als eerste op de site gekomen. Het plaatsen van nieuwe patronen gaat door tot juli. Houd de site dus goed in de gaten voor nieuwe patronen.
04.03.2018 - 19:22
Lene S Berg skrifaði:
186-2 Står i mønsteret øk i 8 omgang. Er det 8 omgang fra mønsterstart eller 8 omgang fra plaggets start?
27.02.2018 - 22:19DROPS Design svaraði:
Hei Lene. Det er fra plaggets start (= 1.omgang). God Fornøyelse!
02.03.2018 - 08:07
Primrose Dress#primrosedress |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Heklaður kjóll úr DROPS Cotton Merino með gatamynstri og hringlaga berustykki, heklaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 186-2 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning A.1 og A.5 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar. Í 7., 11. og 13. umferð kemur ekki A.5 og A.1 í stað fyrstu lykkju í A.4 og A.2, þ.e.a.s. umferðin byrjar með 3 loftlykkjum (koma ekki í stað fyrsta stuðuls) og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju í A.2 og A.4. Í þeim umferðum sem eftir eru, er fyrsta lykkja í A.2 og A.4 skipt út fyrir A.1 og A.5. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjum. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir). Til að reikna út hvernig auka eigi út jafnt yfir, teljið fjölda lykkju í umferð (t.d. 94 stuðlar) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 5,2. Í þessu dæmi þá eru heklaðir 2 stuðlar í ca 5. hvern stuðul. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Heklið þar til 2 stuðlar eru eftir á undan prjónamerki, heklið 2 stuðla í næsta stuðul, heklið 1 stuðul í hvorn af næstu 2 stuðlum (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa stuðla), heklið 2 stuðla í næsta stuðul. Aukið svona út við bæði prjónamerkin (= alls 4 stuðlar fleiri). HEKLIÐ 2 STUÐLA SAMAN: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 stuðull færri). ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki): Fækkið um 1 stuðul hvoru megin við hvort prjónamerki þannig: Heklið þar til 3 stuðlar eru eftir á undan prjónamerki, HEKLIÐ 2 STUÐLA SAMAN – sjá útskýringu að ofan, heklið 1 stuðul í hvorn af næstu 2 stuðlum (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), heklið næstu 2 stuðla saman. Fækkið lykkjum svona við bæði prjónamerkin (= alls 4 stuðlar færri). ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt yfir, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur) og deilið þeim með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 10. Í þessu dæmi eru heklaðar 9. og 10. hver lykkja saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Umferðin byrjar ca við miðju að aftan (þetta fer aðeins eftir stærðum og vegna fjölda mynstureininga á bakstykki). BERUSTYKKI: Heklið 108-108-117-117-124-124 loftlykkjur með heklunál 4 með Cotton Merino og tengið þær saman í 1 hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið fyrstu umferð þannig: Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull) – lesið HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3-3-5-5-5-5 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 6 loftlykkjum *, heklið frá *-* = 94-94-102-102-108-108 stuðlar. Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul og aukið út um 18-18-22-22-28-40 stuðla jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 = 112-112-124-124-136-148 stuðlar. Heklið næstu umferð og setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: A.1 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar – lesið MYNSTUR. Heklið A.2 (= 6 stuðlar) yfir fyrstu 18-18-24-24-24-30 stuðla (= 3-3-4-4-4-5 sinnum á breidd) (= ca hálft bakstykki), A.3 (= 4 stuðlar), setjið 1. prjónamerki, A.2 yfir næstu 12 stuðla (= 2 sinnum á breidd), setjið 2. prjónamerki, A.3 yfir næstu 4 stuðla (= ermi), A.2 yfir næstu 36-36-42-42-48-54 stuðla (= 6-6-7-7-8-9 sinnum á breidd) (= framstykki), A.3 yfir næstu 4 stuðla, setjið 3. prjónamerki, A.2 yfir næstu 12 stuðla (= 2 sinnum á breidd), setjið 4. prjónamerki, A.3 yfir næstu 4 stuðla (= ermi) og endið með A.2 yfir síðustu 18-18-18-18-24-24 stuðla (= 3-3-3-3-4-4 sinnum á breidd). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.3. JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir á ermum (þ.e.a.s. á milli 1. og 2. prjónamerkis og á milli 3. og 4. prjónamerkis) þannig: ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með mynstur svona og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.3. JAFNFRAMT sem aukið er út jafnt yfir á ermum (þ.e.a.s. á milli 1. og 2. prjónamerkis og á milli 3. og 4. prjónamerkis) þannig: UMFERÐ 8: Aukið út um 0-6-6-6-6-6 stuðla á hvorri ermi (= 0-12-12-12-12-12 alls stuðlar fleiri). UMFERÐ 10: Aukið út um 0-0-0-0-6-6 stuðla á hvorri ermi (= 0-0-0-0-12-12 stuðlar fleiri alls). UMFERÐ 14: Aukið út um 0-0-0-0-0-6 stuðla á hvorri ermi (= 0-0-0-0-0-12 alls stuðlar fleiri). Þegar A.1 til A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 240-252-264-264-288-312 stuðlar í síðustu umferð. Stykkið mælist ca 15 cm. Heklið fyrstu 0-0-2-2-4-4 umferð af A.2a yfir allar lykkjur. Stykkið mælist ca 15-15-17-17-19-19 cm. Heklið nú stuðla yfir fram- og bakstykki og mynstur yfir ermar þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 33-33-39-39-39-45 stuðlum og aukið út um 0-2-2-2-2-2 stuðla jafnt yfir (= ca hálft bakstykki), heklið A.4 (= 6 stuðlar) yfir næstu 54-60-60-60-66-72 stuðla (= 9-10-10-10-11-12 sinnum á breidd) (= ermi), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 66-66-72-72-78-84 stuðlum og aukið út um 0-4-4-4-4-4 stuðla jafnt yfir (= framstykki), A.4 yfir næstu 54-60-60-60-66-72 stuðla (= 9-10-10-10-11-12 sinnum á breidd) (= ermi) og endið með 1 stuðul í hvern af síðustu 33-33-33-33-39-39 stuðlum og aukið út um 0-2-2-2-2-2 stuðla jafnt yfir (= ca hálft bakstykki) (= alls 0-8-8-8-8-8 stuðlar fleiri). Aukið svona út í hverri umferð alls 0-2-2-3-4-5 sinnum = 240-268-280-288-320-352 lykkjur. Í umferð 7, 10 og 12 í mynsturteikningu A.4a er hekluð skipting á milli stuðla og mynstur þannig: Heklið stuðla þar til 1 stuðull er eftir á undan mynstri, heklið 2 loftlykkjur og 1 fastalykkju í síðasta stuðul, heklið mynstur eins og áður, heklið 1 fastalykkju í fyrsta stuðul á eftir mynstri og 2 loftlykkjur. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 18-19-21-23-25-27 cm. Nú skiptist ermar og fram- og bakstykki þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 33-37-43-45-47-55 stuðlum (= ca hálft bakstykki), heklið 6-6-6-12-12-12 loftlykkjur, hoppið yfir næstu 54-60-60-60-66-72 lykkjur (= A.4) fyrir ermi, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 66-74-80-84-94-104 stuðlum (= framstykki), heklið 6-6-6-12-12-12 loftlykkjur, hoppið yfir næstu 54-60-60-60-66-72 lykkjur (= A.4) fyrir ermi og endið með 1 stuðul í hvern af síðustu 33-37-37-39-47-49 stuðlum (= ca hálft bakstykki). Ermar og fram- og bakstykki er nú heklað til loka hvort fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 144-160-172-192-212-232 stuðlar/loftlykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja undir hvorri ermi. Haldið áfram með 1 stuðul í hverja lykkju. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, fækkið um 1 stuðul hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 stuðlar færri) – lesið ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 0-3½-6-3½-3½-0 cm millibili alls 1-3-2-3-3-1 sinnum = 140-148-164-180-200-228 stuðlar. Haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar stykkið mælist 37-39-41-43-45-47 cm frá kanti í hálsmáli, aukið út um 1 stuðul hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 stuðlar fleiri) – lesið ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 1½ cm millibili alls 16-17-16-15-19-18 sinnum = 204-216-228-240-276-300 stuðlar. Þegar stykkið mælist 47-48-48-48-48-48 cm frá þar sem stykkið skiptis frá ermum, heklið A.4a yfir allar lykkjur (= 34-36-38-40-46-50 sinum á breidd). Mynsturteikning A.5 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar. Þegar A.4a hefur verið heklað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 59-60-60-60-60-60 cm frá þar sem stykkið skiptist frá ermum. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 77-79-81-83-85-87 cm frá kanti í hálsmáli. ERMI: Ermar eru heklaðar í hring, ofan frá og niður. Heklið 1 fastalykkju í 1. loftlykkju við 6-6-12-12-12-12 loftlykkjur sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki, heklið A.4a yfir loftlykkjur (= 1-1-1-2-2-2 sinnum á breidd), stillið af mynstur við afgang af ermi, heklið síðan mynstur eins og áður yfir 54-60-60-60-66-72 lykkjur (þ.e.a.s. heklið A.4a, A.5 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar) = 60-66-72-72-78-84 lykkjur. Mynsturteikning A.4a er nú hekluð 10-11-12-12-13-14 sinnum á breidd. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem ermar skiptust frá fram- og bakstykki, stillið af að næsta umferð sé 1 umferð með stuðlum, fækkið um 6 stuðla jafnt yfir – lesið ÚRTAKA-1. A.4a er nú heklað 1 sinni færri á breiddina. Fækkið lykkjum svona með 8-6-6-5-5-3 cm millibili alls 2-3-3-3-3-4 sinnum = 48-48-54-54-60-60 stuðlar. A.4a er nú heklað 8-8-9-9-10-10 sinnum á breidd. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 22-22-20-18-17-15 cm frá þar sem ermar skiptust frá fram- og bakstykki, stillið af að næsta umferð sé umferð með stuðlum. Í næstu umferð er aukið út um 24-24-30-30-36-36 stuðla jafnt yfir = 72-72-84-84-96-96 stuðlar. A.4a er nú heklað 12-12-14-14-16-16 sinnum á breidd. Haldið svona áfram þar til ermin mælist 34-34-32-30-29-27 cm frá þar sem stykkið skiptist frá fram- og bakstykki, stillið af að endað sé fallega miðað við mynstur. Klippið frá og festið enda. Ermin mælist ca 52-53-53-53-54-54 cm frá kanti í hálsi. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið kant í kringum hálsmál. Byrjið við miðju að aftan. Heklið * 1 fastalykkju í fyrsta/næsta stuðul, 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1cm *, heklið frá *-* í kringum allt hálsmálið. Passið vel uppá að kanturinn verði ekki stífur, stillið af þannig að endað sé með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #primrosedress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.