Belle Époque |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð aðsniðin peysa með gatamynstri, laskalínu og ¾ ermum, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Paris. Stærð S - XXXL.
DROPS 186-7 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING-1: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 98 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim fjölda lykkja sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 17) = 5,2. Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverri lykkju (ekki er aukið út yfir kanta að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð (á við um A.2, A.4, A.5, A.7 og A.8). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.3 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni á ermum og eftir mynsturteikningu á fram- og bakstykki. ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermi): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Byrjið 4 lykkjur á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING-2 (á við um brugðnu mynstureiningarnar á fram- og bakstykki): Allar útaukningar eru gerðar frá réttu! Aukið út um 1 lykkju í hverri brugðnu mynstureiningu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan öllum 2 lykkjum brugðið. Í næstu umferð (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Næst þegar aukið er út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir öllum 3 lykkjum brugðið. Haldið svona áfram með útaukningu með því að til skiptis að auka út í byrjun og í lok á brugðinni mynstureiningu. ÚTAUKNING-3 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-4 (á við um mynstureiningu með sléttprjóni yfir A.7/A.8 á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Þegar A.7/A.8 er lokið er prjónað sléttprjón yfir 9-9-9-11-11-11 lykkjurnar með gatamynstri. Aukið yfir þessar 9-9-9-11-11-11 lykkjur þannig: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir með sléttprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu á eftir kanti í hálsi með garðaprjóni. Fellið síðan af 6-6-6-7-7-7 næsta hnappagat með ca 7-7-7½-7-7½-7½ cm á milli hnappagata. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjón ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 98-102-106-110-114-118 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hið við miðju að framan) á hringprjón 4 með Paris. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 17-13-9-15-11-7 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan = 115-115-115-125-125-125 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 7 lykkjur), A.2 (= 10-10-10-12-12-12 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.3 (= 8 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur í sléttprjóni (= ermakúpa), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.3, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.4 (= 35-35-35-41-41-41 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.3, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= ermakúpa), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.3, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.5 (= 10-10-10-12-12-12 lykkjur), prjónið A.6 (= 7 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan = 129-129-129-139-139-139 lykkjur (meðtalinn uppsláttur í A.1/A.3/A.6). Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í hverri umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þar til aukið hefur verið út alls 14-18-20-21-24-26 sinnum hvoru megin við A.3 (meðtalin útaukning í fyrstu umferð frá réttu á eftir kanti í hálsmáli). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ATH: Þegar A.2/A.4/A.5 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með mynstur alveg eins, en næstu útauknar lykkjur hvoru megin við A.3 eru prjónaðar í sléttprjóni. Í stærð S er útaukning fyrir laskalínu lokið þegar eftir eru 3 umferðir í A.2/A.4/A.5, haldið áfram með mynstur án útaukningar eins og útskýrt er að neðan. Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 237-269-285-303-327-343 lykkjur í umferð ef það er í umferð með 7/8/7 lykkjur í A.1/A.3/A.6 eða 243-275-291-309-333-349 lykkjur ef það er í umferð með 8/9/8 lykkjur í A.1/A.3/A.6. Haldið áfram með mynstur eins og áður án útaukningar fyrir laskalínu þar til stykkið mælist 17-19-21-23-25-27 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan, en endið þannig að síðasta umferð sé umferð með 7/8/7 lykkjur í A.1/A.3/A.6. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Haldið áfram með kant að framan, mynstur og sléttprjón eins og áður yfir fyrstu 37-41-43-47-51-55 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 49-57-61-62-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), haldið áfram í sléttprjóni og mynstur eins og áður yfir næstu 65-73-77-85-93-101 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 49-57-61-62-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og haldið áfram í sléttprjóni, mynstur og kant að framan yfir þær 37-41-43-47-51-55 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 153-169-181-197-217-237 lykkjur (meðtalinn uppsláttur í A.1/A.6). Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið og látið prjónamerki fylgja áfram með í stykkinu. Byrjið frá röngu og prjónið 1 umferð garðaprjón yfir garðaprjón, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 (= 7 eða 8 lykkjur), prjónið A.7 yfir næstu 22-22-22-26-26-26 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 11-11-11-13-13-13 lykkjur, haldið áfram með slétta umferð í mynstureiningu þar sem mynstrið endaði við skiptingu), prjónið sléttprjón yfir næstu 13-21-27-26-36-46 lykkjur, A.8 yfir næstu 55-55-55-65-65-65 lykkjur (= 5 mynstureiningar með 11-11-11-13-13-13 lykkjur, haldið áfram með slétta umferð í mynstureiningu), 2 lykkjur brugðið, 13-21-27-26-36-46 lykkjur sléttprjón, A.8 yfir næstu 22-22-22-26-26-26 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 11-11-11-13-13-13 lykkjur, haldið áfram með sléttri umferð í mynsturteikningu), haldið áfram með A.6 (= 7 eða 8 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Haldið svona áfram með mynstur. LESIÐ ALLAN KAFLANN Á FRAM- OG BAKSTYKKI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! ÚRTAKA Á HLIÐUM: Þegar stykkið mælist 1 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 5 sinnum í hvorri hlið = 131-147-159-175-195-215 lykkjur (án uppsláttar í A.1/A.6). ÚTAUKNING Í BRUGÐNUM MYNSTUREININGUM: Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni mynstureiningu merktri með ör í mynsturteikning (þ.e.a.s. aukið út í öllum brugðnum mynstureiningum að frábrugðinni einni brugðinni mynstureiningu sem er næst miðju að framan í hvorri hlið = 12 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 5 cm millibili alls 6 sinnum í hverri brugðinni mynstureiningu (nú eru 8 lykkjur í hverri af þessum brugðnu mynstureiningum). ÚTAUKNING Í HLIÐUM: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 7 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING-3 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið. ÚTAUKNING Í MYNSTUREININGUM MEÐ SLÉTTPRJÓNI: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 15 cm frá skiptingu er A.7 og A.8 endað eftir heila mynstureiningu á hæðina. Síðan eru prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir þessar lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 2 lykkjur í hverri mynstureiningu í sléttprjóni yfir A.7/A.8 – lesið ÚTAUKNING-4 (= 18 lykkjur færri). Endurtakið þessa útaukningu eftir 2 cm (= 18 lykkjur fleiri). Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 251-267-279-295-315-335 lykkjur í umferð (án uppsláttar í A.1/A.6). Prjónið síðan með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist ca 59-61-63-65-67-69 cm frá öxl og niður, en stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 4 umferðir í garðaprjóni fram og til baka yfir allar lykkjur. Skiptið til baka yfir á hringprjón 5 og fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 49-57-61-62-66-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 55-63-69-70-76-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón í hring. Þegar stykkið mælist 2-2-2-2-3-3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-2½-2-1½-1-1 cm millibili alls 7-10-12-12-14-14 sinnum = 41-43-45-46-48-50 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 26-25-24-21-20-19 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 40-40-40-48-48-48 lykkjur. Prjónið A.9 í hring (= 5-5-5-6-6-6 mynstureiningar með 8 lykkjum). Þegar A.9 hefur verið prjónað til loka er skipt yfir á sokkaprjón 4. Prjónið 4 umferð garðaprjón hringinn. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 5 og fellið af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 30-29-28-25-24-23 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (61)
Ellen Kristiansen wrote:
Når jeg har strikket hele diagrammet A2 , A5 og A4 slik det står i mønsteret og skal begynne på nytt til lengden er ok, hvor starter jeg på nytt ? Diagram A1, A3 og A 6 er helt ok og forstå. Veldig fin oppskrift
26.06.2022 - 17:54DROPS Design answered:
Hei Ellen. Jo, du fortsetter med A.2, A.4 og A.5 slik at mønstret gjentar seg. I f.eks str. S+M+L gjentar du de 6 siste radene, (men de neste økte maskene på hver side av A.3 strikkes i glattstrikk). mvh DROPS Design
27.06.2022 - 10:56Ella wrote:
Stl S. Minskn i sida (153 msk + omslag): det är 13 (6 msk med markör) rätmsk. Här ska minskas 10 msk. men 5+6+5=16, inte 13? Då kommer minskn. att omfatta de två avigmsk. på var sida. Vid ökning i de aviga msk, numera 0 och 1, stämmer då inte ökn. (2 +6 ökn=8, utan blir 6/7) avigmsk i varje avigt parti. Minskar jag på de 6 räta msk, stämmer inte ökningarna på dessa sedan. Hur ska jag göra?
26.07.2021 - 13:19DROPS Design answered:
Hej Ella, du har 13 maskor slätstickning i varje sida (markören i mitten). Du minskar i de slätstickade maskor på varje sida av markören, så dina minskningar påverkar inte mönsterrapporterna. God fornøjelse!
25.08.2021 - 10:09Midge Bussing wrote:
I’m going to make this sweater for the measurements of Bust 36” , waist 32”, hips 40”. What size should I make. Thank you Midge
19.04.2021 - 02:18DROPS Design answered:
Dear Midge, you can find the measurements of the finished piece of each size, at the bottom of the pattern, on the schematic drawing. Happy Knitting!
19.04.2021 - 03:40Midge wrote:
I am going to make this sweater for my daughter. Her measurements are bust 36”, waistline 32”, hips 40”. . Do I make a medium or a large. Sweater.
19.04.2021 - 02:13DROPS Design answered:
Dear Mrs Midge, Measure a similar garment she has and likes the shape and compare these measurements to those in the chart at the bottom of the page; this will be the best way to find the matching size. Red more about sizing here. Happy knitting!
19.04.2021 - 08:51Gisèle ROUSSEAU wrote:
Bonjour, après maintes péripéties enfin terminé avec succès, savez vous comment mettre la photo Merci
31.03.2021 - 18:47DROPS Design answered:
Bonjour Mme Rousseau, vous pouvez volontiers la publier dans notre DROPS Workshop ou bien/et partager votre lien pour la galerie ici. Bonne continuation!
07.04.2021 - 08:53Mary Vostal wrote:
On the yoke after completing the 8 rows do we start those charts over again from the bottom up or top down with charts A1, A3 and A6?
19.03.2021 - 01:16DROPS Design answered:
Dear Mrs Vostal, correct, repeat A.1, A.3 and A.6 from first row again. Happy knitting!
19.03.2021 - 07:44Mary Vostal wrote:
For medium size .On theYOKE , WS 2nd row, do we start knitting following the chart with A6 OR A1 like on the RS. Thank you
27.02.2021 - 02:33DROPS Design answered:
Hi Mary, on the wrong side (2nd row) you should start with A.6. Please see the lesson drops How to read knitting diagrams HERE. Happy knitting!
28.02.2021 - 21:58Mary Vostal wrote:
I understand where Row 1 RS gets to 129. It is Row 2 WS that is the problem because the chart stitch total as I showed in my last question only comes to 125. so where do the other 4 stitches come from to get to 129
26.02.2021 - 13:36DROPS Design answered:
Dear Mrs Vostal, on row 2 you should still have 129 sts since the yarn overs in the small diagrams (A.1, A.6 and A.3) will be decreeased only on row 3. It's a bit difficult to know why your are missing stitches, try to add markers and check out the number of sts - or bring/show your work to your store (even a photo can help) so that they can see what you did and can help further, this might help too. Happy knitting!
26.02.2021 - 16:07Mary wrote:
For Medium size. I understand that but after completing RS row one there are 129 stitches. Row 2 WS chart count is only 125 stitches. Band stitches = 10; A1=8; A2=11, 4(A3's=36); 2 stocking stitches x 2 =4; A4 = 37; A5=11; and A6=8. TOTAL STITCHES = 125 so where do the other 4 stitches come from to match Row 1 at 129???
26.02.2021 - 13:02DROPS Design answered:
Dear Mary, you are increasing for raglan with yarn overs as explained on the first row = 8 yarn overs (1 on each side of each A.3) + the yarn overs in diagrams (= 1 yarn over in A.1+ 1 yarn over in A.6 + 1 yarn over in each of the 4 A.3) = 115 + 8 + 6= 129 sts. Happy knitting!
26.02.2021 - 13:23Mary Vostal wrote:
I am going crazy as I have done this 3 x. I knit the first row of the yoke RS and come up with 129 stitches but the second row WS keeps coming up 124 and when I actually count the squares on the WS there are only 125. Shouldn't the 1st and 2nd row be the same amount of stitches and then the 3rd row should be increased by 8 for 137 and the WS should be the same. why cant I get it to work but
26.02.2021 - 02:11DROPS Design answered:
Dear Mrs Vostal, the number of stitches in A.1 and A.6 will varry between 7 and 8 stitches and the one in A.3 will vary between 8 and 9 stitches - since you are working yarn overs (row 1 and 5) that you will decrease on row 3 and 7. So when starting the first row on yoke, you are increasing for raglan + 1 yarn over in each of these diagrams = there are 129 sts at the end of this row, but on row 3 in diagrams you will decrease the yarn overs made in these diagrams. Hope this will help. Happy knitting!
26.02.2021 - 08:33