Guida skrifaði:
Bonjour, pouvez-vous, svp, me dire comment tricoter le diagramme en aller-retour ? J’ai assemblé toutes les parties sur une même aiguille mais je ne vois pas comment continuer le diagramme jusqu’ici tricoté en rond. Merci beaucoup.
16.10.2018 - 10:36DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Guida, quand on tricote l'empiècement, on va tricoter A.1 sur les manches comme avant, l'empiècement se tricote en rond sur toutes les mailles (dos, manche, devant, manche), on va donc tricoter A.1 comme on le faisait avant sur les manches. Bon tricot!
16.10.2018 - 16:00
Eeva Savolainen skrifaði:
Onko neulekaavioon merkitty kaikki kerrokset vai vain oikean puolen kerrokset?
26.09.2018 - 20:14DROPS Design svaraði:
Piirrokseen on merkitty kaikki kerrokset.
27.09.2018 - 14:17
J SERVIANT skrifaði:
Bonjour, Je suis une bonne tricoteuse mais je me lance pour la première fois dans le tricot en rond et j'ai choisi ce modèle. Est ce un choix pas trop compliqué pour une première ? Merci pour les conseils éventuels.
06.09.2018 - 14:01DROPS Design svaraði:
Bonjur Mme Serviant, lisez bien attentivement toutes les explications et suivez-les bien à la lettre. Si vous avez une question ou une hésitation, n'hésitez surtout pas. Le diagramme se lit en commençant en bas à droite, et tous les tours de droite à gauche. Bon tricot!
06.09.2018 - 15:40
Sivet skrifaði:
Bonjour, je vais commencer le pull mais j'aimerais quelque précision sur le diagramme. quand vous dites " glisser 1 maille à l'endroit, tricoter 2 mailles endroit, passer la maille glissée par-dessus les mailles tricotées " cela veut dire qu'il faut tricoté 2 mailles ensemble ou 2 mailles normale ? " pas de maille, sauter cette case " cela veut dire qu'on glisse la maille sans la tricoté ?
24.08.2018 - 14:52DROPS Design svaraði:
Bonjour Sivet! J'ai deja fait ce pull et il est formidable, courage! Et reponse: "glisser 1 maille à l'endroit, tricoter 2 mailles endroit, passer la maille glissée par-dessus les mailles tricotées" >cela veut dire qu'il faut tricoter 2 mailles normales. De cette facon, ces 2 mailles seront entourees par la maille glissee. Il reste 2 mailles (au lieu de 3)>cela explique 'pas de maille, sauter cette case'. Bon travail!
24.08.2018 - 16:11
Buy Essays Online skrifaði:
Looking beautiful. Most suitable for summer days.
23.02.2018 - 11:27
Gunn-May Moen skrifaði:
En fin sommermodell.
29.01.2018 - 18:18
Alona skrifaði:
Zefir
29.01.2018 - 09:14
Barbara skrifaði:
Würde ich gerne nach arbeiten, findet meine Tochter toll.
17.01.2018 - 21:31
Lisette Van Raadshooven skrifaði:
Delicate, lovely.
16.01.2018 - 20:58
Doris skrifaði:
Klasse, möchte ich unbedingt nacharbeiten. Vielleicht sogar zusammen mit der Jacke.
03.01.2018 - 08:33
Early May Sweater#earlymaysweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með gatamynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Muskat.
DROPS 187-22 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring – á við um ermi): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚRTAKA-1: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 210 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 26) = 8,07. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 7. og 8. hver lykkja saman. ÚRTAKA-2 (á við um hliðar): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚTAUKNING (á við um ermi): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Fækkað er um 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Fækkið lykkjum svona frá réttu: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp fyrir handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, síðan eru stykkin sett saman og berustykki prjónað í hring með úrtöku fyrir laskalínu. FRAM- OG BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón. Fitjið upp 210-228-246-276-300-330 lykkjur á hringprjón 3,5 með Muskat. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 3 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 26-28-30-36-36-42 lykkjur jafnt yfir = 184-200-216-240-264-288 lykkjur í umferð – lesið ÚRTAKA-1. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið síðan sléttprjón. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 1 í byrjun á stykki og 1 eftir 92-100-108-120-132-144 lykkjur (= hliðar). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin (= 4 lykkjur færri), fækkið lykkjum með 7 cm millibili alls 4 sinnum – lesið ÚRTAKA-2 = 168-184-200-224-248-272 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-30-31-32-32-32 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Fellið af fyrstu 4-4-5-5-6-6 lykkjur, prjónið þar til eftir eru 4-4-5-5-6-6 lykkjur á undan hinu prjónamerki í hlið, fellið af næstu 8-8-10-10-12-12 lykkjur, prjónið þar til eftir eru 4-4-5-5-6-6 lykkjur, fellið af síðustu 4-4-5-5-6-6 lykkjur. Nú eru 76-84-90-102-112-124 lykkjur á bakstykki/framstykki. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 47-49-51-53-55-57 lykkjur á sokkaprjóna 4 með Muskat. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar. Prjónið síðan þannig: 9-10-11-12-13-14 sléttar lykkjur, A.1 (= 29 lykkjur), 9-10-11-12-13-14 lykkjur slétt. Haldið áfram með þetta mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6-6-8-8-8-6 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚTAUKNING. Aukið út með 3½-2½-1½-1½-1½-1½ cm millibili alls 10-14-18-18-19-20 sinnum = 67-77-87-89-93-97 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 42-41-40-40-38-37 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri laskalínu og víðara hálsmáls) fellið af 4-4-5-5-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki = 59-69-77-79-81-85 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 270-306-334-362-386-418 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram í sléttprjóni yfir lykkjur á fram- og bakstykki og mynstur og sléttprjón eins og áður á ermum, JAFNFRAMT í næstu umferð byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 11-10-8-8-9-8 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 7-12-17-19-20-24 sinnum (alls 18-22-25-27-29-32 sinnum). Eftir allar úrtökur fyrir laskalínu eru 126-130-134-146-154-162 lykkjur eftir í umferð. Prjónið 4 umferðir garðaprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 30-30-30-36-38-42 lykkjur jafnt yfir = 96-100-104-110-116-120 lykkjur – munið eftir ÚRTAKA-1. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #earlymaysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.