DROPS Muskat uni colour 100% Bómull |
572.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Muskat uni colour 100% Bómull 572.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= slétt frá réttu, brugðið frá röngu | |
= slétt frá röngu, brugðið frá réttu | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn | |
= 4 lykkjur snúnar slétt saman | |
= 4 lykkjur slétt saman | |
= engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Early May |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með gatamynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Muskat.
DROPS 187-21 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring – á við um ermi): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 2, 8, 14, 20, 27, 34, 41 og 48 cm M: 2, 8, 15, 22, 29, 36, 43 og 50 cm L: 2, 9, 16, 23, 30, 37, 44 og 52 cm XL: 2, 9, 16, 23, 30, 38, 46 og 54 cm XXL: 2, 9, 16, 24, 32, 40, 48 og 56 cm XXXL: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 58 cm ÚRTAKA-1: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 223 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 29) = 7,3. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 6. og 7. hver lykkja saman og ekki er lykkjum fækkað yfir kanta að framan. ÚRTAKA-2 (á við um hliðar): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚTAUKNING (á við um ermi): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Fækkað er um 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Fækkið lykkjum svona frá réttu: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, síðan eru stykkin sett saman og berustykkið er prjónað fram og til baka með úrtöku fyrir laskalínu. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 223-241-259-289-313-343 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjón 3,5 með Muskat. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 5 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, stroff 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 3 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 3 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 29-31-33-39-39-45 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA-1 = 194-210-226-250-274-298 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið síðan sléttprjón með 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið (= kantur að framan). Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 51-55-59-65-71-77 lykkjur inn frá hvorri hlið (bakstykki = 92-100-108-120-132-144 lykkjur). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 4 lykkjur færri), fækkið lykkjum með 7 cm millibili alls 4 sinnum – lesið ÚRTAKA-2 = 178-194-210-234-258-282 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-30-31-32-32-32 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið þar til eftir eru 4-4-5-5-6-6 lykkjur á undan fyrsta prjónamerki, fellið síðan af næstu 8-8-10-10-12-12 lykkjur, prjónið þar til eftir eru 4-4-5-5-6-6 lykkjur á undan prjónamerki í hinni hliðinni, fellið af næstu 8-8-10-10-12-12 lykkjur og prjónið út umferðina. Nú eru 76-84-90-102-112-124 lykkjur á bakstykki og 43-47-50-56-61-67 lykkjur á hvoru framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 47-49-51-53-55-57 lykkjur á sokkaprjóna 4 með Muskat. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar. Prjónið síðan þannig: 9-10-11-12-13-14 sléttar lykkjur, A.1 (= 29 lykkjur), 9-10-11-12-13-14 lykkjur slétt. Haldið áfram með þetta mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6-6-8-8-8-6 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚTAUKNING. Aukið út með 3½-2½-1½-1½-1½-1½ cm millibili alls 10-14-18-18-19-20 sinnum = 67-77-87-89-93-97 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 42-41-40-40-38-37 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri laskalínu og víðara hálsmáls) fellið af 4-4-5-5-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki = 59-69-77-79-81-85 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 280-316-344-372-396-428 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram í sléttprjóni yfir lykkjur á fram- og bakstykki, garðaprjón í köntum að framan og mynstur og sléttprjón eins og áður á ermum, JAFNFRAMT í næstu umferð byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 11-10-8-8-9-8 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 7-12-17-19-20-24 sinnum (alls 18-22-25-27-29-32 sinnum). Eftir allar úrtökur fyrir laskalínu eru 136-140-144-156-164-172 lykkjur eftir í umferð. Prjónið 4 umferðir garðaprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 30-30-30-36-38-42 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA-1 = 106-110-114-120-126-130 lykkjur. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6917 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (18)
Ina wrote:
Lt. Schnitt hat das Modell sowohl vorn als auch hinten einen Halsausschnitt, vorn um 4 cm kürzer. In der Anleitung finde ich aber keinen Hinweis darauf, meiner Meinung nach fehlt da was. Viele Grüße Ina
08.12.2023 - 16:26DROPS Design answered:
Liebe Ina, die 4 cm in der Maßskizze sind für die Schulter, Maßskizze ist hier standard, die Halsausschnitt wird hier genausogleich vorne und hinten. Viel Spaß beim stricken!
11.12.2023 - 07:08Joke wrote:
21 steken = 10 cm (2x 44) 88 cm =185 steken + 5 van de bies = 190 steken Klopt het patroon wel? Opzetten: 223 steken Het scheelt 15 cm, wordt zo veel wijder Joke
17.01.2021 - 13:40DROPS Design answered:
Dag Joke,
Na het breien van de boordsteek minder je steken verdeeld, waardoor je wel weer op het juiste aantal uitkomt, passend bij de stekenverhouding, hoewel ietsje meer steken dan jouw berekening.
17.01.2021 - 19:33Katka wrote:
Dobrý deň, vo vzore A1 jeden riadok u pletiem podľa vzoru v diagrame a druhy len prepletiem alebo idem presne podľa diagramu?
22.09.2019 - 09:50DROPS Design answered:
Dobrý den, postupujete podle schématu - jsou v něm zakresleny lícové i rubové řady. Vzor je zobrazen tak, jak vypadá při pohledu z lícové strany. Hodně pohody při pletení! Hana
22.09.2019 - 20:47Fatterné Adamek Ildikó wrote:
A minta leírásában a testrész kezdésénél az első szaporítás valójában fogyasztás?
09.09.2019 - 19:18Debbie Legault wrote:
As far as I can make out, you only present finished measurements. I don't know how to figure out what size to make for a Canadian Size Large, any advise would help. I really don't want to put so much time into knitting it and it not fit.
31.03.2019 - 00:47DROPS Design answered:
Dear Mrs Legault, measure a similar garment you have and like the shape and compare these measurements to the ones in the chart to find out the matching size. read more about sizing here. Happy knitting!
01.04.2019 - 13:00Pani wrote:
Die Passe bin ich dabei und es sieht gut aus. Aber 316 maschen zu 140 maschen ist es für mich schwierig, weil nur maximal 17x Raglanabnahmen gestrickt werden. Sonst die Raglanabnahmen das Ärmel-muster überlappen. Oder habe ich Raglanabnahmen falsch gestrickt, im vergleich zu bilder? Können Sie mir bitte erklären und empfehlen, wie ich reibungslos weiter stricken kann?
07.01.2019 - 23:02DROPS Design answered:
Liebe Pani, Sie nehmen 8 Maschen für den Raglan ab - siehe RAGLANABNAHMEN: in jede 4. Reihe 10 x und in jede 2. Reihe 12 x = es werden 10+12= 22 x 8 M = 176 Maschen abgenommen, so haben Sie 316 - 176 = 140 M übrig. Viel Spaß beim stricken!
08.01.2019 - 09:20Angatahi wrote:
Bonjour, combien mesure le gilet?
08.11.2018 - 19:31DROPS Design answered:
Bonjour Angatahi, vous trouverez toutes les mesures pour chaque taille dans le schéma des mesures à la fin des explications - d'autres infos sur les tailles et les mesures ici. Bon tricot!
09.11.2018 - 08:02PS wrote:
Ich bin am Anfang oder 1. Reihe der Passe (316 Maschen sind auf meinem Nadel).Aber ich kann die Anleitung nicht nachvollziehbaren,wie ich zu 140 Maschen kommen kann.Mit der größe M sollte die 22 mal (22×8=176 maschen abzunehmen) Raglanabnahmen gestrickt werden, ich kann leider nur bis einer länge von 16 cm, NICHT 22 cm. Sollte ich die 316 Maschen ohne abnehmen bis einer Länge von 6 cm weiterstricken und danach fange ich Raglanabnahmen an? Ich bitte bei Ihnen um die detaillierte Erklärung.
17.10.2018 - 22:09DROPS Design answered:
Liebe PS, wenn Ihre Maschenprobe in der Höhe nicht genau stimmt, dann können Sie regelmäßig Reihen ohne Abnahmen zwischen den Raglanabnahmen Reihen stricken. Viel Spaß beim stricken!
18.10.2018 - 10:01Edith wrote:
Mit jelent az SZO? Nem ertem az alabbi akat...mit jelent sikban kotve? BORDA / LUSTAKÖTÉS (oda-vissza haladva - síkban - kötve). 1 borda= 2 sima szemekkel kötött sor. ? BORDA/ LUSTAKÖTÉS: (körben kötve a kéthegyű kötőtűkön- a két ujjához.) 1 borda = 1 kör sima szemekkel, 1 kör fordított szemekkel.
23.09.2018 - 19:54DROPS Design answered:
Kedves Edit, a SZO = színe oldal. A borda a lustakötés során kialakult bordára utal, ami két sima szemekkel kötött sorból alakul ki, ugyanez körben kötve egy sima szemekkel és egy fordított szemekkel kötött sorból alakul ki. Sikeres kézimunkázást!
30.09.2018 - 09:04Fabienne wrote:
Bonjour, j'ai les bras plutôt courts et je voulais faire les manches un peu plus courtes (71 cm est beaucoup trop long, il me faudrait 4 cm de moins). Où est-ce que je dois faire ce "raccourci" ? Est-ce que je commence les augmentations plus tard et je les fais plus rapprochées ? Est-ce que je m'arrête plus tôt avant la fin de la manche ? Merci d'avance de vos conseils.
07.09.2018 - 12:35DROPS Design answered:
Bonjour Fabienne, les manches mesurent 42-41-40-40-38-37 cm depuis la séparation d'avec l'empiècement (71 cm depuis le milieu de l'encolure dos jusqu'au poignet) - si vous lez voulez plus courtes, vous pouvez ajuster les diminutions en les faisant plus tôt ou plus fréquemment. Vous pouvez vérifier les mesures finales d'après un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et ajuster en fonction. Bon tricot!
07.09.2018 - 13:52