Taormina |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Peysa með gatamynstri, hringlaga berustykki, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS BabyMerino. Stærð S - XXXL.
DROPS 186-18 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veljið mynstur fyrir þína stærð (á við um A.1 til A.3). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu á berustykki): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 143 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur = 133 lykkjur) og deilið með fjölda lykkja sem eftir er með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 5,54. Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca til skiptis 5. og 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri), aukið svona út við bæði prjónamerkin (= alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umferð, það á ekki að myndast gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir í lok umferðar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 1½-2 cm. Síðan er fellt af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 126-130-136-142-149-154 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með BabyMerino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 5 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan), 22-23-25-26-27-29 lykkjur slétt og aukið út um 1-3-1-2-3-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið ÚTAUKNING-1, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2-2-1-1-1-1 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 14 lykkjur (= 7-7-14-14-14-14 lykkjur fleiri), 44-46-48-52-57-58 lykkjur slétt og aukið út um 1-5-1-5-8-5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2-2-1-1-1-1 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 14 lykkjurnar (= 7-7-14-14-14-14 lykkjur fleiri), 22-23-25-26-27-29 lykkjur slétt og aukið út um 1-3-1-2-3-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur og endið með 5 lykkjum garðaprjón (= kantur að framan) = 143-155-167-179-191-191 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: prjónið 5 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan), A.1a (= 12 lykkjur), prjónið A.2a (= 12 lykkjur) yfir næstu 108-120-132-144-156-156 lykkjur (= 9-10-11-12-13-13 sinnum á breidd), A.3a (= 13 lykkjur) og endið með 5 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan). Haldið svona áfram með mynstur JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir í hverri umferð merktri með útauknings ör þannig: Í hvert skipti sem aukið er út um 12 lykkjur er prjónað A.2 alls 1 sinni fleiri á breiddina. Í hvert skipti sem aukið er út um 24 lykkjur er prjónað A.2 alls 2 sinnum fleiri á breiddina. Í hvert skipti sem aukið er út um 36 lykkjur er prjónað A.2 alls 3 sinnum fleiri á breiddina. ÚTAUKNING 1: Aukið út um 24-24-24-24-24-36 lykkjur = 167-179-191-203-215-227 lykkjur. ÚTAUKNING 2: Aukið út um 24-24-24-24-24-36 lykkjur = 191-203-215-227-239-263 lykkjur. ÚTAUKNING 3: Aukið út um 24 lykkjur = 215-227-239-251-263-287 lykkjur. ÚTAUKNING 4: Aukið út um = 239-251-263-275-287-311 lykkjur. ÚTAUKNING 5: Aukið út um 24 lykkjur = 263-275-287-299-311-335 lykkjur. ÚTAUKNING 6: Aukið út um 24 lykkjur = 287-299-311-323-335-359 lykkjur. Þegar A.1a til A.3a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 14 cm frá kanti í hálsmáli. Nú er prjónað A.1b yfir A.1a, A.2b yfir A.2a og A.3b yfir A.3a og útaukning heldur áfram þannig: ÚTAUKNING 7: Aukið út um 12-24-24-24-24-24 lykkjur = 299-323-335-347-359-383 lykkjur. ÚTAUKNING 8: Aukið út um 12-12-24-24-24-24 lykkjur = 311-335-359-371-383-407 lykkjur. ÚTAUKNING 9: Aukið út um 12-12-24-24-24-24 lykkjur = 323-347-383-395-407-431 lykkjur. ÚTAUKNING 10: Aukið út um 12-12-12-12-24-24 lykkjur = 335-359-395-407-431-455 lykkjur. Útaukning á nú að vera lokið í stærð S, M og L, en heldur áfram í stærð XL, XXL og XXXL svo þannig: ÚTAUKNING 11: Aukið út um 12-24-24 lykkjur = 419-455-479 lykkjur. ÚTAUKNING 12: Aukið út um 12-12-24 lykkjur = 431-467-503 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: = 335-359-395-431-467-503 lykkjur (A.2b er nú endurtekið 25-27-30-33-36-39 sinnum á breidd). Prjónið mynstur þar til stykkið mælist 20-22-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð frá réttu þannig: (Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar eins og fyrsta lykkja í A.1b). Prjónið 5 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan), mynstur eins og áður yfir næstu 44-49-53-60-66-73 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 74-76-86-90-96-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 89-99-107-121-133-147 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 74-76-86-90-96-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjóni mynstur eins og áður yfir næstu 44-49-53-60-66-73 lykkjur og endið með 5 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan = framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 207-227-243-271-295-323 lykkjur. Prjónið síðan mynstur með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki, lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri undir ermum eru prjónaðar eins og fyrsta lykkja í A.1b. Þegar A.1b til A.3b hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 27-27-27-30-30-30 cm. Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Setjið 1 prjónamerki 54-59-63-70-76-83 lykkjur inn frá hvorri hlið (= framstykki = 99-109-117-131-143-157 lykkjur á bakstykki). Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – lesið ÚTAUKNING-2! Aukið svona út í 4. hverri umferð þar til stykkið mælist 32-32-33-33-33-33 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum = ca 287-311-335-359-391-423 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 5 lykkjur garðaprjón, prjónið A.4 þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið A.5 yfir næstu lykkju og 5 lykkjur garðaprjón. Þegar A.4 og A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 35-35-36-36-36-36 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum og ca 55-57-59-61-63-65 cm frá kanti í hálsmáli. Fellið af (passið uppá að fella af nægilega laust, fellið jafnvel af með 1 númeri grófari prjónum). ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Setjið 74-76-86-90-96-100 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 3 og takið upp 1 lykkju í hverja af 10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 84-86-96-100-106-110 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja. Prjónið síðan A.2b yfir lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri, lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri mitt undir ermi eru prjónaðar brugðið þegar lykkjurnar eru prjónaðar brugðið og sléttar þegar lykkjur eru prjónaðar sléttar. Þegar A.2b hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist ermin ca 7-5-4-5-3-1 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 1½-1½-1-1-1-1 cm millibili alls 14-15-19-20-22-23 sinnum = 56-56-58-60-62-64 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 33-32-31-29-28-26 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið A.4 yfir allar lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru allar lykkjur felldar af (passið uppá að fella nægilega laust af, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum). Ermin mælist ca 36-35-34-32-31-29 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (42)
Josiane wrote:
Bonjour je me suis trompée , j\'ai tricoter le 2eme diagramme en 1er. peut- on tricoter le 1er diagramme en suivant conte tenu que les augmentations ne sont pas au même endroit . Merci
20.02.2024 - 13:01DROPS Design answered:
Bonjour Josiane, pour obtenir la bonne forme avec les augmentations au bon endroit pour l'empiècement, il est sûrement préférable de tricoter les diagrammes dans le bon ordre, je suis désolée. Bon tricot!
20.02.2024 - 15:43Joan Høst wrote:
Jeg spurgte tidligere om knaphul. Jeg har nu tænkt mig om. Det er selvfølgelig fordi jeg strikker oppefra og ned. Det har jeg ikke prøvet før. Nu giver det mening.
27.02.2023 - 19:00Joan Høst wrote:
Knaphul skal laves i højre side. Skal laves fra retsiden. Der står det skal laves i slutningen af retpinden. Bliver det så ikke i venstre forkant. Eller misforstår jeg noget?
26.02.2023 - 20:30DROPS Design answered:
Hej Joan, ikke når du strikker oppefra, fra retsiden starter du med venstre forstykke, strikker rundt og kommer om til højre forstykke og her laver du knaphullet :)
28.02.2023 - 15:01Catherine wrote:
Comment adapter le modèle taormina en 6/8 ans
11.04.2022 - 16:25DROPS Design answered:
Bonjour Catherine, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir ajuster chacun de nos modèles à chaque demande individuelle. Pour toute assistance complémentaire, vous pouvez vous adresser à votre magasin DROPS qui saura vous conseiller et vous renseigner. Bon tricot!
12.04.2022 - 08:57Christiane wrote:
Is the whole pattern worked with needles 2,5mm? I guess I’m confused because the gauge (trial sample) is worked with needle 3 mm.
03.07.2021 - 21:23DROPS Design answered:
Dear Christiane, you do change the needles to 3 mm doing the youke, and sleeves are started with 3 mm as well, only changing at the last part to 2,5 mm. Happy Knitting!
04.07.2021 - 00:45Lorraine wrote:
Are the increases in the body meant to make holes as in the instructions? I do not understand why there should be holes down each side of the garment
12.06.2021 - 07:39DROPS Design answered:
Dear Lorraine, the holes used as a design element, to emphasize the lines of teh sweater. Of course, if it bothers you, and / or you'd prefer not to have them there, you can always knit the yarnover twisted in the next row. Happy Stitching!
13.06.2021 - 09:48Janne Feldstedt wrote:
Hvorfor skal der strikke 2 masker sammen og derefter omslag på pind 51 i rapport A 3b str. XL når der i rapport A 2b og A 1b først laves omslag og derefter en maske løs af som trækkes over næste maske? Kan det være rigtigt at jeg skal strikke på pinde nr 4 for at få strikkefastheden til at passe? Der står i opskriften at udtagningstips 2 skal bruges til udtagning på for- og bagstykke, men der bliver da hul hvis man ikke strikker masken drejet på næste pind.,
11.04.2021 - 22:30DROPS Design answered:
Hej Janne, for at det skal blive ens på hver side mod midt foran. Det er muligt, du skal få 24 masker i glatstrik på 10 cm. Ja det stemmer, vi har små huller ved udtagningerne i siderne, men du gør selvfølgelig som du vil :)
12.04.2021 - 14:18Christine MONNIER wrote:
Bonjour Modele 186.18 Après avoir tricoté A4 et A5 pour dos devant et manches, vous indiquez rabattre souplement. Sur le modèle cela paraît plus large après le dernier rang et ça ne roulotte pas. Que préconisez vous ? Cordialement
12.03.2021 - 14:37DROPS Design answered:
Bonjour Mme Monnier, vous pouvez tricoter une ou plusieurs autres côtes mousse supplémentaires si vous le souhaitez (avant et après le point ajouré au milieu de A.5 ou bien avant ou bien après seulement, au choix). Quand le gilet est terminé, humidifiez-le ou lavez-le (en suivant très attentivement les consignes de l'étiquette + ces quelques généralités), laissez le sécher bien à plat en épinglant les bords si besoin. Bon tricot!
12.03.2021 - 15:33Francesca Antonelli wrote:
Scusate ma ho scritto di fretta e forse non mi sono spiegata bene ..le maglie che mi ritrovo in più che non rientrano nei diagrammi le lavoro a maglia rasata giusto ?
24.02.2021 - 23:07DROPS Design answered:
Buongiorno Francesca, nelle spiegazioni è indicato di lavorare le maglie in eccesso come la prima maglia di A.1b, quindi deve seguire il diagramma. Buon lavoro!
27.02.2021 - 11:05Francesca Antonelli wrote:
Lavorare le maglie che non rientrano nel motivo come la prima maglia in A.1b). Lavorare 5 maglie a maglia legaccio (= bordo), motivo come prima sulle 44-49-53-60-66-73 maglie successive buongiorno volevo sapere come lavorare a questo punto..se ho 53 maglie =davanti come faccio a fare gli schemi abbastanza a2b e a3b se 12 +12+12 +12 arrivo a 48 maglie se aggiungo a1b cioè 13 maglie arrivo a 61 maglie ..ho 6 maglie in più x il davanti come le lavoro se non rientrano negli schemi? Buona giornata
24.02.2021 - 07:35DROPS Design answered:
Buonasera Francesca, se abbiamo capito bene la sua richiesta, può lavorare le maglie che non rientrano nel motivo come la 1° maglia di A.1b. Buon lavoro!
24.02.2021 - 21:54