France skrifaði:
Bonjour, je suis au tout début du modèle et je suis déjà bloqué. Pour la deuxième augmentation, il faut faire 13 augmentations seulement on a 130 mailles et 130 n est pas un multiple de 9 ( soit 3 motifs A1) pourriez vous m'éclairer ? Merci par avance
10.03.2018 - 22:36DROPS Design svaraði:
Bonjour France, on augmente dans un motif de A.1 sur 3, c'est-à-dire qu'à la 1ère augmentation, on augmente dans le 1er A.1 (= 4 m dans ce A.1) et on tricote les 2 A.1 suivants comme avant (= 2 x sur 3 m comme avant) et on répète ces 3 motifs de A.1 ainsi tout le tour, on va augmenter dans seulement 13 motifs de A.1 sur les 39 (taille S), donc on aura 13 A.1 de 4 m et tous les autres auront toujours 3 m (2 motifs de A.1 de 3 m entre chaque motif de A.1 de 4 m). On augmente ensuite dans chaque 2ème A.1 sur 3 puis dans le 3ème, on va donc toujours augmenter 13 m à chaque augmentation. Bon tricot!
12.03.2018 - 09:09
Helle Po skrifaði:
Jeg er næsten færdig med denne model. Jeg synes ikke at ser er overensstemmelse mellem billedet og det mønster som er beskrevet i opskriften. Er der ikke fejl i beskrivelsen og diagrammet? Det er en meget bred trøje med meget vide ærmer. Jeg ville ønske at modellerne blev vist med flere billeder bl, a hvor man kan se helt trøjen så man kan bedømme slutresultatet bedre..
23.02.2018 - 13:39
Liga skrifaði:
Dear Garnsthdio, Why is this kind of pattern not calling for back elevation? I really like the design but i'm worried that finished item might be pulling backwards. Thank you.
12.02.2018 - 21:08DROPS Design svaraði:
Dear Liga, no this pullover does not have back elevation as it was meant to be a summer piece that is looser, with somewhat larger neckline. If you worried and still would like to raise the neckline, you can add shortrows, right after the neck edge, starting at the middle of the back, Make sure you do the pattern (vertically ribbed) on these short rows also. Happy Knitting.
12.02.2018 - 21:23
Josefina skrifaði:
No entiendo la explicaciones ¿Hay algún video explicativo para este patrón en concreto?
05.02.2018 - 15:22DROPS Design svaraði:
Hola Josefina. Todavía no están colgados los vídeos para las prendas de la nueva colección. Debajo del patrón tienes una selección de vídeos que te pueden ayudar a trabajar este modelo. Cada semana publicamos nuevos vídeos en Facebook y la pagina de Garnstudio.
05.02.2018 - 20:32
Marijke Slakhorst skrifaði:
Is het aantal steken (14 x 26) met NLD 4 correct? Bij gebruik NLD 5 is dit 17 X 22.
03.02.2018 - 19:16DROPS Design svaraði:
Hoi Marijke, Bedankt voor het doorgeven, er stond inderdaad een fout in en het is nu aangepast van 14 naar 19
16.02.2018 - 11:42
MARIAGIOVANNA MUGNANO skrifaði:
Buongiorno. Non ho mai lavorato con i ferri circolari .. si possono usare anche i ferri diritti per i modelli che usano invece i circolari? Se si, come si legge la spiegazione? Grazie!
25.01.2018 - 14:12DROPS Design svaraði:
Buongiorno MariaGiovanna. Al seguente link trova tutte le indicazioni utili per lavorare con i ferri dritti un modello le cui spiegazioni sono date per essere lavorato con i ferri circolari. Buon lavoro!
25.01.2018 - 14:45
Bastien Odile skrifaði:
Bravo pour vos modèles de pull quasiment sans couture. Merci à bientôt. Amicalement.
16.01.2018 - 20:41
Pascale skrifaði:
Modèle intéressant! Pourquoi les explications ou le modèle ne peut pas encore être trouvé... je voulais le mettre dans mes favoris! Merci.
16.01.2018 - 15:28
Betty Leeman skrifaði:
Charmant door de soepele lijnen en eenvoud. Ik wil hem heel graag maken.
07.01.2018 - 14:57
Géraldine skrifaði:
J’adore💕
02.01.2018 - 23:52
Tornade#tornadesweater |
||||||||||
|
||||||||||
Prjónuð peysa í garðaprjóni og hringlaga berustykki, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Brushed Alpaca Silk.
DROPS 188-1 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING-1 (á við um berustykki): Lykkjur eru auknar út til skiptis á undan og á eftir síðust lykkju slétt í A.1 – sjá ör í mynsturteikningu. Þ.e.a.s. í fyrsta skipti sem aukið er út, er aukið út á eftir síðustu lykkju slétt og í seinna skipti sem aukið er út, er aukið út á undan síðustu lykkju slétt. Aukið út þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð. Útaukna lykkjan er síðan prjónuð í garðaprjóni. Þ.e.a.s. í hvert skipti sem aukið er út verður 1 lykkja fleiri í garðaprjóni í A.1 sem aukið er út í. ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu í hlið og á fram- og bakstykki og á ermum): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út við bæði prjónamerkin. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. ÚRTAKA (á við um ermar): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Berustykki er prjónað í hring, síðan skiptist stykkið og ermar og fram- og bakstykki er prjónað í hring hvert fyrir sig. BERUSTYKKI: Fitjið upp 84-88-94-98-102-104 lykkjur á hringprjón 4. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Umferðin byrjar við miðju að aftan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 16-17-18-19-20-21 lykkjur slétt og aukið út 3-4-3-4-3-5 lykkjur jafnt yfir (= hálft bakstykki), prjónið * 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* yfir næstu 10 lykkjurnar (= ermi = 10 lykkjur fleiri), 32-34-37-39-41-42 lykkjur slétt og aukið út 6-9-6-8-6-10 lykkjur jafnt yfir (= framstykki), prjónið * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* yfir næstu 10 lykkjurnar (= ermi = 10 lykkjur fleiri), 16-17-19-20-21-21 lykkjur slétt og aukið út 4-5-3-5-4-5 lykkjur jafnt yfir (= hálft bakstykki) = 117-126-126-135-135-144 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan A.1 (= 3 lykkjur) yfir allar lykkjur (= 39-42-42-45-45-48 sinnum á breidd), uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt. JAFNFRAMT er aukið út þannig: BERUSTYKKI: Aukið út til skiptis í 3. hverri umferð á A.1 á breidd í 4. hverri umferð, þ.e.a.s. þannig: FYRSTA ÚTAUKNING: * Aukið út 1 lykkju – lesið ÚTAUKNING-1, í fyrstu A.1, síðan eru 2 næstu mynstureiningar prjónaðar af A.1 á breidd eins og áður *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 13-14-14-15-15-16 lykkjur fleiri. Prjónið 3 umferðir mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ÖNNUR ÚTAUKNING: * Prjónið 1 mynstureiningu af A.1 eins og áður, aukið út um 1 lykkju í næstu mynstureiningu A.1, prjónið næstu mynstureiningu af A.1 eins og áður *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 13-14-14-15-15-16 lykkjur fleiri. Prjónið 3 umferðir mynstur. ÞRIÐJA ÚTAUKNING: Prjónið 2 mynstureiningar af A.1 eins og áður, aukið út um 1 lykkju í næstu mynstureiningu A.1 *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 13-14-14-15-15-16 lykkjur fleiri. Prjónið 3 umferðir mynstur. Endurtakið 1. til 3. útaukningu alls 3-3-3-3-4-4 sinnum (= alls 9-9-9-9-12-12 útauknings umferðir), endurtakið síðan 1. útaukningu 0-1-1-1-1-1 sinni til viðbótar (= alls 9-10-10-10-13-13 útauknar umferðir), endurtakið síðan 2. útaukningu 0-0-1-1-0-1 sinni til viðbótar (= alls 9-10-11-11-13-14 útauknar umferðir) = 234-266-280-300-330-368 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 31-36-38-42-47-55 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 54-60-64-66-70-74 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn, setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa lykkja (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 63-73-76-84-95-110 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 54-60-64-66-70-74 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn, setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa lykkja (= í hlið undir ermi), prjónið 32-37-38-42-48-55 lykkjur slétt (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað áfram hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 142-162-172-188-214-244 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem ermar voru settar á þráð, er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING-2! Aukið svona út með 2½-3-3-2½-3-5 cm millibili alls 10-9-9-10-9-6 sinnum = 182-198-208-228-250-268 lykkjur. Þegar stykkið mælist 31-31-32-32-32-32 cm frá þar sem ermar voru settar á þráð, prjónið 1 umferð eins og áður þar sem aukið er út um 2-2-0-0-2-0 lykkjur jafnt yfir = 184-200-208-228-252-268 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú stroff (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt). Prjónið svona í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið jafnvel af með 1 númeri grófari prjónum. Stykkið mælist ca 36-36-37-37-37-37 cm frá þar sem ermar skiptu fram- og bakstykki og alls 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. Setjið til baka 54-60-64-66-70-74 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa nýju lykkja = 62-68-74-76-82-86 lykkjur. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem ermar skiptu fram- og bakstykki er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur færri) – lesið ÚRTAKA! Skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf. Fækkið lykkjum svona með 3 cm millibili alls 4-4-5-5-6-6 sinnum = 54-60-64-66-70-74 lykkjur. Aukið síðan um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 3-3-3-3-2-2 cm millibili alls 7-6-6-7-7-7 sinnum = 68-72-76-80-84-88 lykkjur. Þegar stykkið mælist 37-37-36-36-34-33 cm frá þar sem ermi skiptist frá fram- og bakstykki, skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið 1 umferð þar sem allar lykkjur voru prjónaðar 2 og 2 slétt saman = 34-36-38-40-42-44 lykkjur. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) JAFNFRAMT er aukið út um 2-0-2-0-2-0 lykkjur jafnt yfir = 36-36-40-40-44-44 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þegar stykkið mælist 42-42-41-41-39-38 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki og alls 63-65-65-67-67-68 cm frá kanti í hálsi. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tornadesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.