ANNE B skrifaði:
Bonjour, ai du mal à comprendre les 9 mailles restantes en texturé? le diagramme A4 n'a pas la même inclinaison que A2? et que faire avec A1 A ou B? Merci m'expliquer comment arriver à ces 9 mailles? Merci,
29.04.2019 - 15:40DROPS Design svaraði:
Bonjour Anne B, quand on a diminué le point texturé (avec A.2 et A.3) et qu'il reste 9 mailles, on va les tricoter comme dans A.4 (= 1 jeté, 1 m (diminution), point texturé sur 5 m, 1 dim, 1 jeté). La maille endroit au milieu de A.4 doit être la maille du milieu du côté = mettez un marqueur dans cette maille (= 2 marqueurs au total, 1 pour chaque côté). Bon tricot!
29.04.2019 - 15:59
Karin Brinch-Nielsen skrifaði:
Tusind tak for hjælpen, men nu har jeg et nyt problem: Jeg er på forstykket ved v- udskæringen og har strikket højre halvdel. Hvordan skal jeg strikke venstre halvdel ? De 7 kantmasker retstrik mod midten er jo brugt brugt til højre halvdel. Skal der strikkes 7 nye kantmasker ? Jeg ser frem til svaret ! Mvh Karin Brinch-Nielsen
09.04.2019 - 21:41DROPS Design svaraði:
Hei Karin. Når du setter maskene fra tråden tilbake på pinnen skal du i tillegg strikke opp 1 maske i hver av de 7 kantmaskene mot midt foran (strikk opp på baksiden av maskene) slik at de 2 rillekantene vil overlappe hverandre helt nederst. God fornøyelse
10.04.2019 - 07:56
Karin Brinch-Nielsen skrifaði:
Str M. Jeg er på forstykket efter de 4 pinde glatstrikning. 1 kantm i retstrik A.5A, 52 m glatstrik, sæt disse 57 m på en tråd. Det forstår jeg ikke. Hvordan kan 52 masker bliver til 57 m ?
25.03.2019 - 11:02DROPS Design svaraði:
Hei Karin. 1 kantmaske i rille + A.5A (4 masker) + 52 masker glattstrikk = 57 masker. Det er disse du setter på en tråd. God fornøyelse
02.04.2019 - 09:45
Ani Leiggi skrifaði:
Ganz herzlichen Dank für die schnelle Aufklärung, jetzt steht meinem ersten V-Ausschnitt nichts mehr im Wege. Top Service hier, so macht stricken richtig doll Spass.DANKE!
12.03.2019 - 19:15
Ani Leiggi skrifaði:
Guten Abend, meine Frage betrifft den V- Ausschnitt, ich stricke Grösse S. Habe die 52 M. der rechten Seite vor mir, stillgelegt. Auf der linken Nadel beginne ich nun direkt mit den mittigen 7 Krausmaschen, wie kann ich denn da vor 7 kraus rechten Maschen abnehmen: 2 Maschen vor den 7 kraus rechten Maschen beginnen und 2 Maschen rechts zusammenstricken? Ich hab da keine 2 Maschen davor?! Hab ich was falsch gemacht?
11.03.2019 - 20:31DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Leiggi, die Abnahmen für den V-Ausschnitt wird beim linken Vorderteil nach den 7 Maschen Kraus rechts gestrickt (= bei einer Hinreihe). Die Hinreihe der Verteilung stricken Sie zuerst ohne Abnahme, dann bei der nächsten Hinreihe (die vom Halsausschnitt beginnt), beginnen Sie die Abnahmen. Beim rechten Vorderteil nehmen Sie dann vor den 7 Maschen kraus rechts (auch bei einer Hinreihe). Viel Spaß beim stricken!
12.03.2019 - 09:47
Nicole Polzin skrifaði:
Vielen, vielen Dank!!! Bin wirklich irgendwie nicht von selbst drauf gekommen 🙈. Aber jetzt klappt es. Eure kurzfristigen Antworten sind SUPER!!!!!! So konnte ich direkt weitermachen.
05.10.2018 - 19:33
Nicole Polzin skrifaði:
Stricke ich die Muster A.1A, A.1B und A.1C nur 1x in der Höhe (also 10 Runden) und dann über diese Maschen nur noch re Maschen oder solange bis ich die Muster A.2 und A.3 1x in der Höhe gestrickt habe?
05.10.2018 - 16:01DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Polzin, Sie stricken im Muster mit A.1, A.2 und A.3 und die Maschen glatt rechts wie beschrieben, nach A.2 und A.3 einmal in der Höhe gestrickt wurden, wiederholen Sie diese Diagramme wie zuvor aber mit weniger Maschen im Muster und mehr Maschen glatt rechts. Viel Spaß beim stricken!
05.10.2018 - 16:08
Nicole Polzin skrifaði:
Aber ich habe doch die ganzen Maschen von A.1A u d A.2.B unter den Armen und die Maschena Zahl bleibt doch gleich. Hab ich irgendwie einen Denkfehler?
05.10.2018 - 13:06DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Polzin, die Maschenanzahl der ganze Runde bleibt gleich, aber wegen A.2/A.3 gibt es immer mehr Maschen, die glatt gestrickt sind und weniger die im Muster gestrickt sind. - das Muster macht so ein Dreicke an beiden Seiten - siehe auch Foto. Viel Spaß beim stricken!
05.10.2018 - 14:38
Nicole Polzin skrifaði:
Ich verstehe folgendes nicht: „Wenn noch insgesamt 9 Maschen im Strukturmuster an beiden Seiten des Rumpfteils übrig sind, je 1 Markierungsfaden an der mittleren dieser 9 Maschen an beiden Seiten des Rumpfteils anbringen – die Markierungsfäden beim Stricken mitführen. Nun im Muster A.4 über die mittleren 9 Maschen an beiden Seiten des Rumpfteils stricken, die übrigen Maschen glatt rechts weiterstricken.“ Wo genau sollen die 9 Maschen übrig sein?
04.10.2018 - 21:54DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Polzin, wegen A.2 und A.3 wir das Muster auf die Seiten verschoben (= immer mehr Maschen glatt rechts und dazu weniger Maschen im Muster), wenn dann nur noch 9 Maschen im Muster übrig sind (= unter beiden Ärmel), setzen Sie eine Markierung in die mittlere Masche an der Seite (= 4 M im Muster, 1 M im muster mit Markierer und 4 M im Muster). Jetzt stricken Sie A.4 über diese 9 Maschen (die mittlere M in A.4 = je die Masche mit der Markiereung). Viel Spaß beim stricken!
05.10.2018 - 07:52
Edwige Coquema skrifaði:
COMBIEN DE PELOTE POUR UNE TAILLE 40 AVEC LE FIL FLORA ? MERCI DE VOTRE R2PONSE \r\nCORDIALEMENT
16.09.2018 - 20:46DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Coquema, vous trouverez la quantité de laine pour chaque taille dans l'en-tête, au poids: soit par ex 300 g en taille S divisé par 50 g la pelote de Flora = il vous faudra 6 pelotes en taille S et donc 7 pelotes en taille M et en taille L, et ainsi de suite. Bon tricot!
17.09.2018 - 09:54
Morven#morvensweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með v-hálsmáli, áferð og gatamynstri úr DROPS Flora. Stærð S - XXXL.
DROPS 184-28 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um v-hálsmál): Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli innan við 7 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 7 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 7 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan 7 kantlykkjum og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi): Byrjið 5 lykkjur á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, A.4 (= 9 lykkjur), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón í stykkjum til enda á klauf, síðan er stykkið prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg, þá er haldið áfram fram og til baka á hringprjón í stykkjum til loka. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón til enda á klauf, síðan er prjónað í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 109-119-129-141-155-169 lykkjur á hringprjón 2,5 með Flora. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í 6 cm (endið eftir 1 umferð slétt frá röngu). Geymið stykkið og prjónið framstykki. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 109-119-129-141-155-169 lykkjur og prjónið garðaprjón eins og á bakstykki í 6 cm (endið eftir 1 umferð slétt frá röngu). Setjið nú stykkin saman eins og útskýrt er undir FRAM- OG BAKSTYKKI: FRAM- OG BAKSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 109-119-129-141-155-169 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 1 nýja lykkju á prjóninn, prjónið 109-119-129-141-155-169 lykkjur frá bakstykki slétt og fitjið upp 1 nýja lykkju á prjóninn = 220-240-260-284-312-340 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.1A yfir fyrstu 24-27-30-33-33-36 lykkjur (= 8-9-10-11-11-12 mynstureiningar með 3 lykkjum), A.2 (= 19 lykkjur), 23-27-31-37-51-59 lykkjur í sléttprjóni, A.3 (= 19 lykkjur), A.1B yfir næstu 24-27-30-33-33-36 lykkjur (= 8-9-10-11-11-12 mynstureiningar með 3 lykkjum), A.1C (= 1 lykkja), A.1A yfir næstu 24-27-30-33-33-36 lykkjur, A.2 (= 19 lykkjur), 23-27-31-37-51-59 lykkjur sléttprjón, A.3 (= 19 lykkjur), A.1B yfir næstu 24-27-30-33-33-36 lykkjur og endið með A.1C (= 1 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur (A.2 og A.3 kemur á ská eins og þríhyrningur út í hvorri hlið og það verður meira og meira sléttprjón við miðju að framan og við miðju að aftan). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar eftir eru alls 9 lykkjur með áferðamynstri í hvorri hlið á fram- og bakstykki er sett 1 prjónamerki í miðju á þessum 9 lykkjum í hvorri hlið – látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Nú er A.4 prjónað yfir miðju 9 lykkjur í hvorri hlið, aðrar lykkjur halda áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 35-36-37-39-40-41 cm fellið af 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg, þ.e.a.s. fellið af lykkju með prjónamerki í. Klippið frá. Prjónið síðan fram- og bakstykki til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 109-119-129-141-155-169 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (mynstur í hvorri hlið heldur áfram eins og áður) og fitjið JAFNFRAMT upp 1 nýja lykkju í hvorri hlið fyrir saum = 111-121-131-143-157-171 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.5A (= 4 lykkjur), prjónið sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.5B (= 4 lykkjur) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 52-54-56-59-61-63 cm fellið af miðju 25-25-27-27-29-29 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í sléttprjóni, A.5 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið. Að auki er felld af 1 lykkja fyrir hálsmáli í byrjun á 2 næstu umferðum frá hálsi = 41-46-50-56-62-69 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 54-56-58-61-63-65 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Prjónið hina öxlina alveg eins. FRAMSTYKKI: = 109-119-129-141-155-169 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (mynstur í hvorri hlið heldur áfram eins og áður) og fitjið JAFNFRAMT upp 1 nýja lykkju í hvorri hlið fyrir saum = 111-121-131-143-157-171 lykkjur. Prjónið síðan 4 umferðir sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni og A.5A/A.5B í hvorri hlið – JAFNFRAMT eru 7 miðju lykkjur prjónaðar í garðaprjóni. Næsta umferð er prjónuð frá réttu eftir 4 umferðir í garðaprjón þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.5A (= 4 lykkjur), 47-52-57-63-70-77 lykkjur í sléttprjóni, setjið þessar 52-57-62-68-75-82 lykkjur á þráð eða látið þær hvíla á prjóni, prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.5B (= 4 lykkjur) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið til baka frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.5B (= 4 lykkjur) og brugðnar lykkjur þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni við miðju að framan, þessar 7 lykkjur eru prjónaðar slétt. Haldið svona áfram fram og til baka með 7 kantlykkjum í garðaprjóni við miðju að framan, sléttprjón, A.5B og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 5-5-6-6-7-7 sinum, í 4. hverri umferð alls 4 sinnum í öllum stærðum og síðan í 6. hverri umferð 2 sinnum í öllum stærðum = 48-53-57-63-69-76 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-61-63-65 cm – stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjur. Í næstu umferð (ranga), fellið af fyrstu 41-46-50-56-62-69 fyrir öxl, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 5. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af = 7 lykkjur eftir á prjóni, prjónið þessar lykkjur slétt. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka yfir 7 lykkjur þar til kantur í garðaprjóni mælist ca 7-7-8-8-8-8 cm frá öxl og fellið af (= kantur í hálsi). Setjið til baka lykkjur í annarri hlið á stykki á hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 7 lykkjum í garðaprjóni við miðju að framan (prjónið upp á bakhlið á lykkjum). Prjónið fram og til baka alveg eins í hinni hliðinni, en haldið áfram með A.5A við handveg og fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli á undan 7 kantlykkjum við miðju að framan (frá réttu). Þegar stykkið mælist 54-56-58-61-63-65 cm og prjónuð hefur verið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 41-46-50-56-62-69 lykkjur = 7 lykkjur eftir á prjóni, prjónið þessar lykkjur slétt. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka yfir 7 lykkjur þar til kantur í garðaprjóni mælist ca 7-7-8-8-8-8 cm frá öxl og fellið af (= kantur í hálsi). ERMI: Fitjið upp 51-53-55-57-59-61 lykkjur á hringprjón 2,5 með Flora. Prjónið garðaprjón fram og til baka í 6 cm. Prjónið síðan stykkið í hring, þ.e.a.s. skiptið lykkjunum upp á sokkaprjón 3 – byrjun umferðar, þ.e.a.s. op í kanti með garðaprjóni = mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn með A.4 yfir miðju 9 lykkjur undir ermi. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju í A.4 og látið prjónamerkin fylgja áfram með í stykkinu. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út alls 19-21-22-24-25-26 sinnum, í S: Í 7. hverri umferð, í M og L: Í 6. hverri umferð, í XL: Í 5. hverri umferð, í XXL: Til skiptis í 4. og 5. hverri umferð, í XXXL: Í 4. hverri umferð = 89-95-99-105-109-113 lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-50-49-47-45-44 cm fellið af allar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn þannig að það verða 4 umferðir garðaprjón mitt ofan á öxl. Saumið saman kant í hálsmáli við miðju að aftan (saumurinn á að snúa inn að röngu). Saumið kant í hálsmáli við hálsmál aftan í hnakka. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #morvensweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 184-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.