Tammy skrifaði:
These were fun to knit and with good result!
13.02.2022 - 14:09
Liv Tone skrifaði:
Hei. Hva er målene på de forskjellige størrelsene på denne oppskriften?
01.01.2022 - 19:53DROPS Design svaraði:
Hei Liv Tone. Vi har ingen målskisse på denne shortsen, men strikkefastheden er 24 masker på 10 cm, så du deler antall masker med 2,4, men husk at vrangbord blir meget elastisk, så velg den størrelse du normalt bruker :) mvh DROPS Design
04.01.2022 - 15:53
Noona skrifaði:
Eikö tähän ohjeeseen ole olemassa koko mittataulukkoa?
30.12.2021 - 20:50DROPS Design svaraði:
Hei, valitettavasti tähän ohjeeseen ei löydy mittapiirrosta.
20.01.2022 - 17:43
Arete skrifaði:
Wo finde ich eine Schnittzeichnung für das Modell bzw. Maßangaben für die jeweiligen Größen? Wenn ich 168 Maschen auf cm-Maß umrechne, komme ich auf 64 cm Umfang. Ist das so richtig?
20.09.2021 - 18:19DROPS Design svaraði:
Liebe Arete, es gibt zu diesem Modell keine Maßskizze, wählen Sie die Größe, die Sie normaleweise verwenden, das Rippenmuster ist sehr elastisch daher sollte es Ihnen passen. Viel Spaß beim stricken!
21.09.2021 - 08:40
Hanne Larsen skrifaði:
Jeg savner et hoftemål på denne opskrift for at bestemme størrelsen.
25.02.2021 - 18:55DROPS Design svaraði:
Hej Hanne, strikkefastheden er 24 masker på 10 cm, så du deler antal masker med 2,4, men husk at ribstrik bliver meget elastisk, så vælg den størrelse du normalt bruger :)
26.02.2021 - 07:53
Anita Kjellin skrifaði:
I str. M er bakstykket 96m etter deling. Nå skal det lages forhøyning bak og dette skal gjøres til det er strikket over 122m. Det vil derfor si at vi øker på bakstykket til vi er 13m inne på forstykket på hver side. (122-96=26:2=13). Har jeg forstått dette rett? Mvh Anita (Kul shorts forresten!)
11.01.2021 - 12:38DROPS Design svaraði:
Hei Anita. Ja, du har forstått det riktig. God Gornøyelse!
15.01.2021 - 11:47
Victoria skrifaði:
Thank you very much for such an excellent pattern!
19.11.2020 - 10:56
Aina Sætermo skrifaði:
Hei. Har strikket denne og den ble helt super. Har en 5-åring som også ønsker seg en slik. Finnes oppskriften i barnestørrelser ? Hilsen Håpefull
02.03.2020 - 10:25DROPS Design svaraði:
Hej Aina, her har du lignende model til børn, men de kan selvfølgelig bare strikkes kortere. Sweet Promenade og her finder du alle bukser til børn: Bukser til børn
03.03.2020 - 15:02
Anna Rekofsky skrifaði:
Hallo, ich würde die Hose gern für einen Mann stricken. Muss ich beim Vorderteil das dann anders stricken oder kann die Hose so auch von Männern getragen werden? Hat da jemand schon Erfahrung gesammelt? Viele Grüße, Anna
17.12.2019 - 12:56DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Rekofsky, leider haben wir dafür keine Erfahrung, aber gerne können Sie bei der DROPS Workshop fragen. Viel Spaß beim stricken!
17.12.2019 - 15:05
Lissy skrifaði:
Hallo, ich würde diese tolle Hose gerne für meine Tochter stricken. Gibt es die Anleitung auch für Kindergrößen (116)? Vielen Dank vorab. VG Lissy
07.10.2019 - 11:55DROPS Design svaraði:
Liebe Lissy, hier finden Sie unsere Anleitungen für Shorts in Kindergröße. Viel Spaß beim stricken!
07.10.2019 - 13:12
Why Not#whynotshorts |
|
![]() |
![]() |
Stuttbuxur, prjónaðar ofan frá og niður úr DROPS Flora. Stærð S - XXXL.
DROPS 182-13 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. í aftari lykkjubogann í stað fremri) til að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- STUTTBUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Prjónað er í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. STUTTBUXUR: Fitjið upp 168-192-216-240 lykkjur á hringprjón 2,5 með Flora. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= miðja að aftan) og 1 prjónamerki eftir 84-96-108-120 lykkjur (= miðja að framan). Prjónið stroffprjón frá miðju að aftan þannig: Stærð XS/S og L/XL: 1 lykkja brugðin, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkja brugðið. Stærð M og XXL/XXXL: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjum brugðið, 1 lykkja slétt. Þegar stykkið mælist 5 cm, prjónið upphækkun að aftan þannig: Prjónið 11 lykkjur stroff, snúið, herðið á þræði, prjónið 22 lykkjur stroff til baka, snúið, herðið á þræði, prjónið 32 lykkjur stroff. Haldið svona áfram með að prjóna 10 lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 122-122-142-142 lykkjur. Snúið í síðasta skipti til að koma að réttu á stykkinu. Prjónið að prjónamerki við miðju að aftan = byrjun á umferð. Haldið áfram með stroff hringinn þar til stykkið mælist 20-22-24-26 cm mitt að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið síðan þannig: 27-33-39-45 lykkjur í sléttprjóni, 30 lykkjur stroff eins og áður, 54-66-78-90 lykkjur sléttprjón, 30 lykkjur stroff eins og áður og 27-33-39-45 lykkjur í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 24-26-28-30 cm mitt að framan er aukið út um 2 lykkjur að framan og að aftan – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í 4. hverri umferð alls 10 sinnum – útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni = 208-232-256-280 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 35-37-39-41 cm frá miðju að framan eru felldar af fyrstu 8-8-10-10 lykkjur eftir prjónamerki við miðju að aftan, prjónið næstu 88-100-108-120 lykkjur og setjið þær síðan á þráð (= skálm), prjónið næstu 16-16-20-20 lykkjur og látið þær verða eftir á prjóni (= op), prjónið næstu 88-100-108-120 lykkjur og setjið þær síðan á þráð (= skálm), fellið af þær 8-8-10-10 lykkjur sem eftir eru, klippið frá. Prjónið síðan 11-12-13-14 cm sléttprjón fram og til baka yfir 16-16-20-20 lykkjurnar á prjóni, fellið af og saumið niður opið við 16-16-20-20 lykkjur sem felldar voru af við miðju að aftan. HÆGRI SKÁLM: Setjið 88-100-108-120 lykkjur af þræði í hægri hlið á stuttan hringprjón 3, prjónið að auki upp 24-28-32-32 lykkjur meðfram annarri hliðinni á opi = 112-128-140-152 lykkjur. Prjónið síðan stroff yfir 30 lykkjur á hlið eins og áður, aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið svona þar til skálmin mælist 3 cm. Skiptið yfir í stuttan hringprjón 2,5 og prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið yfir allar lykkjur, passið uppá að stroffið haldi áfram eins og áður yfir 30 lykkjur í hlið. Prjónið stroff í 6 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. VINSTRI SKÁLM: Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið eins og fyrri skálm. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whynotshorts eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 182-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.