Telegram#telegramsweater |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð peysa fyrir herra með norrænu mynstri og laskalínu úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð S - XXXL.
DROPS 185-11 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því. ÚRTAKA: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 272 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 44) = 6,1. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 5. og 6. hver lykkja saman. ÚTAUKNING: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, það á ekki að myndast gat. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við hvert A.4 þannig: Fækkið um 1 lykkju á eftir A.4 þannig: Takið síðustu lykkju í A.4 af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). Fækkið um 1 lykkju á undan A.4 þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan A.4, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Þ.e.a.s. fækkað er um 2 lykkjur við hvert A.4 og alls 8 lykkjur í umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf. Stykkin eru sett saman og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 248-272-288-300-332-372 lykkjur á hringprjón 3 með litnum svartur Merino Extra Fine. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 5 cm, skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 44-44-48-48-56-60 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA = 204-228-240-252-276-312 lykkjur. Prjónið 1 umferð þannig: Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju, prjónið 101-113-119-125-137-155 lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Prjónamerkin merkja hliðar í flík. Prjónið síðan A.1 (= 6 lykkjur) yfir allar lykkjur (= 34-38-40-42-46-52 mynstureiningar á breidd) – lesið LEIÐBEININGAR. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.1a á hæðina. Þegar stykkið mælist 39-41-41-43-41-43 cm, prjónið A.2 yfir A.1. Þegar prjónað hefur verið að ör í A.2 er næsta umferð prjónuð þannig: Fellið af 4 lykkjur, prjónið næstu 95-107-113-119-131-149 lykkjur eins og áður, fellið af næstu 7 lykkjur, prjónið næstu 95-107-113-119-131-149 lykkjur eins og áður, fellið af síðustu 3 lykkjur. Stykkið mælist ca 43-43-43-44-44-44 cm. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf. Fitjið upp 48-52-56-60-64-64 lykkjur á sokkaprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 5 cm, skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 6-8-8-10-12-10 lykkjur jafnt yfir = 42-44-48-50-52-54 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Prjónið 1 umferð með svartur, prjónið síðan næstu umferð þannig: Prjónið 0-1-0-1-2-0 lykkjur A.3, prjónið A.1 yfir næstu 42-42-48-48-48-54 lykkjur (= 7-7-8-8-8-9 mynstureiningar), endið með 0-1-0-1-2-0 lykkjur A.3. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.1a endurtekið. Þegar stykkið mælist 8-10-10-10-8-6 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin (= 2 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út með 2½-2-1½-1½-1½-1½ cm millibili alls 15-17-21-23-22-24 sinnum = 72-78-90-96-96-102 lykkjur. Lykkjur í A.3 og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1. Þegar stykkið mælist 44-45-43-44-40-41 cm prjónið A.2 yfir A.1. Þegar allar lykkjur undir ermi hafa verið auknar út er A.2 prjónað alls 12-13-15-16-16-17 sinnum á breidd. Þegar prjónað hefur verið til og með umferð með ör í A.2 prjónið næstu umferð þannig: Fellið af 4 lykkjur, prjónið næstu 65-71-83-89-89-95 lykkjur eins og áður, fellið af síðustu 3 lykkjur. Ermin mælist ca 48-47-45-45-43-43 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg = 320-356-392-416-440-488 lykkjur. Byrjið umferð í skiptingunni á milli hægri ermi og bakstykkis. Prjónið þannig: Prjónið A.4 (= 2 lykkjur, byrjið við ör sem merkt er í þinni stærð), haldið áfram með mynstur eins og áður yfir næstu 91-103-109-115-127-145 lykkjur, A.4 (= bakstykki), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 65-71-83-89-89-95 lykkjur (= ermi), A.4, haldið áfram með mynstur eins og áður yfir næstu 91-103-109-115-127-145 lykkjur, A.4 (= framstykki), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 65-71-83-89-89-95 lykkjur (= ermi). Prjónið 6-4-5-4-10-3 umferðir með mynstri, fækkið síðan lykkjum fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, í annarri hverri umferð alls 25-29-31-33-33-39 sinnum = 120-124-144-152-176-176 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, skiptið yfir í litinn svartur. Prjónið 1 umferð með litnum svartur. Berustykki mælist ca 20-22-24-25-27-29 cm. Nú er hægt að prjóna smá upphækkun að aftan í hnakka til að flíkin passi betur þá verður berustykki hærra í hnakka. Hægt er að sleppa við þessa upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan. Prjónið upphækkun aftan í hnakka eða farið beint í að prjóna kant í hálsi ef ekki á að prjóna upphækkun. UPPHÆKKUN AFTAN Í HNAKKA: Hoppið yfir þennan kafla ef ekki á að prjóna upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (þetta merkir byrjun á umferð eftir að upphækkun hefur verið prjónuð). Prjónið að miðju að aftan, setjið 1 prjónamerki. Byrjið frá réttu með litnum svartur og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 30-30-34-34-40-40 lykkjur fram hjá prjónamerki. Snúið, herðið á þræði og prjónið 60-60-68-68-80-80 lykkjur brugðið til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 54-54-61-61-72-72 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 48-48-54-54-64-64 lykkjur brugðið til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 42-42-48-48-56-56 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 36-36-42-42-48-48 lykkjur brugðið til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 30-30-35-35-40-40 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-28-28-32-32 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið að miðju að aftan. Klippið frá. Umferðin byrjar nú við prjónamerki, þ.e.a.s. í skiptingu á milli hægri ermi og bakstykkis. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Í næstu umferð er lykkjum fækkað þannig: Prjónið * 40-42-52-56-68-68 lykkjur slétt og fækkið um 0-0-8-8-18-16 lykkjur jafnt yfir, prjónið næstu 20 lykkjur 2 og 2 saman (= 10 lykkjur færri) *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum = 100-104-108-116-120-124 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 0-4-8-16-0-4 lykkjur eru eftir, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir þær lykkjur sem eftir eru = 120-124-128-136-144-148 lykkjur. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í stroffi (þ.e.a.s. 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 3 cm. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir hvorri ermi í ystu lykkjubogana. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #telegramsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 185-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.