Bernadine Harrar skrifaði:
I would like to make this pattern (Winter Love) with an alternative yarn: Wool Ease , made by Lion Brand. Please advise me how many yards or meters are necessary in your suggested yarn. I don't see it written anywhere. I will make an XL size. Thank you.
12.02.2024 - 18:50DROPS Design svaraði:
Hi Bernadine, The Drops Air yarn comes in 50 g balls each with a yardage of approx. 150 m. In size XL you need 450 g (9 balls). Happy crafting!
13.02.2024 - 06:49
Lise Firth skrifaði:
Drops Nepal is 17st x 22rows, needles 4.5mm and 5mm. If I use Drops Air, which is 16st x 20 rows instead with needles 5mm and 5.5mm, do I have to use the same needle sizes as I would with Drops Nepal? Thank you.
22.01.2024 - 18:26DROPS Design svaraði:
Dear Lise, you need to work a swatch and check which needles will help you obtain the gauge stated in the pattern, regardless of the yarn used. So you can try the needles recommended for Nepal and change to a larger number if necessary. Happy knitting!
22.01.2024 - 23:11
Lise Firth skrifaði:
Why are there no bottom up Nordic patterns for men’s sweaters knitted with Drops Air?
20.01.2024 - 19:17DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Firth, please find all our jumpers worked bottom up with nordic pattern and a yarn group C, just as Air here - use the yarn converter to get the new amount of yarn for the desired size. Happy knitting!
22.01.2024 - 08:38
Yvonne Buist skrifaði:
Dit is een mooie trui, Wordt de achterkant ook met kabel gebreid??
24.11.2021 - 13:27DROPS Design svaraði:
Dag Yvonne,
Nee, de kabel wordt alleen op het voorpand gebreid.
26.11.2021 - 17:10
Annalisa Doedens skrifaði:
Why is the band so much wider than the body? I started this in size L for someone who normally wears an L and the band has seemed too wide. Going to restart with just the body amount of stitches- will this be OK?
14.08.2021 - 23:34DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Doedens, if your tension is right (= 18 sts x 23 rows = 10 x 10 cm), then you will get the correct measurements for each size as shown in chart with the number of sts to cast on; you need more stitches when working in rib with smaller needles than working stocking stitch with larger needles, reason why more sts are cast on and then sts are decreased after ribbing edge to get the correct width on body. Hope this will help, happy knitting!
16.08.2021 - 08:44
Ester skrifaði:
Hej hvad menes der med "SAMTIDIG når arbejdet måler 5-6-7-4-5-6 cm tages der 1 maske ud på hver side af mærketråden i hver side ". det er mærketråden jeg ikke er helt med på. er det de mærkemasker man har sat ved siden af mønstret?
02.10.2020 - 15:57DROPS Design svaraði:
Hei Ester. Ja, det er det. De markerer sidene av genseren og hvor det skal økes, les ØKETIPS om hvordan det økes. God Fornøyelse!
05.10.2020 - 10:46
Debbie skrifaði:
Hi I am knitting size large and ready to knit back and front separately-how does a total of 216 stitches reduce to 98 sets for the back and 110 for the front with only 4 st reduction for armhole - help pls thnx
16.07.2020 - 05:43DROPS Design svaraði:
Dear Debbie, at the beg you got 92 sts for each front and back, then increase in A.1 = 104 sts front/92 sts back (= 196 sts). Then increase on the sides (4 sts 5 times) = 114 sts front/102 sts back = 216 sts and then cast off 4 sts for armholes = 110 sts for front piece/98 sts for back piece. Happy knitting!
16.07.2020 - 10:43
Jo skrifaði:
Hi! This is a lovely pattern, but I am unsure as to what measurements the size small garment would make? Yes this is a wonderful pattern Thank you
02.07.2020 - 15:10DROPS Design svaraði:
Dear Jo, compare a similar garment you have (or the person who will get the jumper has) and like the shape and compare them to the measurements in the chart, this will help you to choose size and ajdust if necessary - read more about sizing here. Happy knitting!
02.07.2020 - 17:20
Hanne skrifaði:
Jeg strikker denne til mannen min nå, og har et (mulig litt dumt) spørsmål. Når jeg skal strikke forstykket står det at jeg skal fortsette mønsteret som før. Men nå strikker jeg jo frem og tilbake! Hvordan strikker jeg da mønsteret på vrangen? Savner et par setninger om det ...
23.01.2020 - 02:01DROPS Design svaraði:
Hei Hanne, Når man strikke fra vrangen leser man diagrammet fra venstre til høyre. Alle rad på vrangen er kun med rett eller vrang masker (følge symbolinstruks) God fornøyelse!
23.01.2020 - 07:11
Karine skrifaði:
Tõsta 2 silmust palmikuvardale töö taha, 5 pahempidi, koo 2 pahempidi palmikuvardalt 5 silma pahempidi ?
10.12.2019 - 20:59DROPS Design svaraði:
Aitah Kaire, viga parandatud !
13.12.2019 - 11:58
Winter Love#winterlovesweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra með köðlum að framan úr DROPS Air. Stærð S - XXXL.
DROPS 185-5 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA/ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 196 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 36) = 5,4. Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis ca 4. og 5. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 5. og 6. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ prjónanúmeri grófari prjónum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 196-214-226-242-258-288 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 36-42-42-42-42-48 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING að ofan = 160-172-184-200-216-240 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar og 1 prjónamerki eftir 80-86-92-100-108-120 lykkjur (= hliðar) og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónið mynstur þannig: Prjónið 23-26-29-33-37-43 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 34 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir þær 103-112-121-133-145-163 lykkjur sem eftir eru. Þegar A.1 er lokið á hæðina eru 172-184-196-212-228-252 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 23-26-29-33-37-43 lykkjur sléttprjón, A.2 (= 46 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir þær 103-112-121-133-145-163 lykkjur sem eftir eru. Haldið svona áfram með mynstur, A.2 er endurtekið á hæðina til loka, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5-6-7-4-5-6 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út með 8-8-8-9-9-9 cm millibili alls 5 sinnum = 192-204-216-232-248-272 lykkjur. Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm fellið af 4 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið (= 2 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Fram- og bakstykki er síðan prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 86-92-98-106-114-126 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið). Haldið áfram með sléttprjón eins og áður, með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm fellið af miðju 24-24-26-26-26-28 lykkjurnar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 30-33-35-39-43-48 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm. Prjónið 2 umferðir garðaprjón og fellið af – lesið AFFELLING. Stykkið mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 98-104-110-118-126-138 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið). Haldið áfram með mynstur eins og áður, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 56-58-60-61-63-65 cm fækkið um 12 lykkjur jafnt yfir A.2 – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 86-92-98-106-114-126 lykkjur. Í næstu umferð eru miðju 12-12-14-14-14-16 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig í sléttprjóni, kantlykkjur eru prjónaðar eins og áður. Fellið af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsmáli þannig: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 30-33-35-39-43-48 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm. Prjónið 2 umferðir garðaprjón og fellið af. Stykkið mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. Fitjið upp 48-50-54-56-58-58 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-10-12-12-14-14 lykkjur jafnt yfir = 38-40-42-44-44-44 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi) og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 9-8-11-10-12-8 cm aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – munið eftir ÚTAUKNING! Aukið svona út í 6.-6.-5.-5.-4.-4. hverri umferð alls 15-15-16-16-18-19 sinnum = 68-70-74-76-80-82 lykkjur. Þegar stykkið mælist 55-54-53-52-50-47 cm fellið af allar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkant þannig að það verða 4 umferðir garðaprjón ofan á öxl. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 78-100 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þræði að framan) á stuttan hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 78-78-84-84-90-90 lykkjur. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 12 cm. Prjónið síðan 1 umferð brugðið, fellið af. Brjótið uppá kant í hálsmáli inn þannig að kanturinn verði ca 6 cm hár, saumið kantinn niður með smáu, fínu spori á innanverða peysu. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterlovesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 185-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.