DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6050.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 181-13
DROPS Design: Mynstur ee-604
Garnflokkur E eða C + C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
550-600-700-750-800-900 g litur 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 10 – eða þá stærð sem þarf til að 9 lykkjur og 12 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 9 – eða þá stærð sem þarf til að 10 lykkjur og 14 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6050.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón neðan frá og upp. Stykkið skiptist þegar fellt er af fyrir handveg og bakstykki og framstykki eru prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Lykkjur eru prjónaðar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar fram og til baka, ofan frá og niður. Kraginn er prjónaður á stutta hringprjóna í lokin.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 99-107-115-123-131-143 lykkjur á hringprjón 9 með Snow. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff mismunandi eftir stærðum þannig:
S-L- XXL-XXXL:
Prjónið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir fyrstu 12-16-20-24 lykkjur, 2 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 25 lykkjur), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, yfir þær 60-72-84-92 lykkjur sem eftir eru.
M-XL:
Prjónið * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir fyrstu 16-20 lykkjur, prjónið A.1 (= 25 lykkjur), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 64-76 lykkjur og endið með 2 lykkjur slétt.

ALLAR STÆRÐIR:
Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 10. Prjónið 0-0-0-0-0-1 lykkju sléttprjón, umferðin byrjar nú hér, setjið 1 prjónamerki (umferðin hefur nú færst til um 0-0-0-0-0-1 lykkju). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 14-16-18-20-22-25 lykkjur, A.2 (= 25 lykkjur) yfir A.1, sléttprjón yfir næstu 14-16-18-20-22-25 lykkjur, setjið 1 prjónamerki (= framstykki), prjónið sléttprjón yfir síðustu 46-50-54-58-62-68 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm fellið af lykkjur fyrir handveg í næstu umferð þannig (passið uppá að næsta umferð sé 1.-3.-5.-7.-9.-11. eða 13. umferð í A.2): Fellið af 2-2-2-2-2-3 fyrstu lykkjur í umferð, prjónið næstu 49-53-57-61-65-69 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af 4-4-4-4-4-6 næstu lykkjur, prjónið þar til 2-2-2-2-2-3 lykkjur eru eftir, fellið þessar lykkjur af. Klippið frá. Nú er hvort stykki prjónað til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 42-46-50-54-58-62 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm frá þar sem felldar voru af lykkjur fyrir handveg (stykkið mælist alls 52-54-56-58-60-62 cm) fellið af miðju 16-16-18-18-20-20 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 13-15-16-18-19-21 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 12-14-15-17-18-20 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm frá þar sem felldar voru af lykkjur fyrir handveg (stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm). Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 49-53-57-61-65-69 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 48-50-50-52-52-54 cm (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Setjið nú lykkjur á þráð fyrir hálsmáli þannig: Prjónið 16-18-19-21-22-24 lykkjur eins og áður, prjónið næstu 17-17-19-19-21-21 lykkjur eins og áður og fækkið um 7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, setjið þær síðan á þráð (= 10-10-12-12-14-14 lykkjur á þræði), prjónið yfir 16-18-19-21-22-24 lykkjur sem eftir eru eins og áður.
Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur eins og áður yfir þær lykkjur í A.2 sem eftir eru og fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 12-14-15-17-18-20 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, stillið af við bakstykki. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka, ofan frá og niður. Prjónið upp 34-36-38-40-42-44 lykkjur meðfram handveg í ystu lykkju/umferð á hringprjóna 10 með Snow. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 4 cm er felld af 1 lykkja hvoru megin á stykki (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 9-7-5-6-5-4 cm millibili alls 5-6-7-6-7-8 sinnum = 24-24-24-28-28-28 lykkjur. Þegar stykkið mælist 45-44-43-41-40-39 cm, skiptið yfir á hringprjón 9 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar ermin mælist 50-49-48-46-45-44 cm, skiptið yfir á hringprjón 10 og fellið af með sléttum lykkjum yfir allar lykkjur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

KRAGI:
Stykkið er prjónað í hring. Prjónið upp 56-56-60-60-64-64 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði) á stutta prjóna 9 með Snow. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 12 cm. Fellið LAUST af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma undir ermum, saumið í ystu lykkjubogana á ystu lykkju.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.11.2018
Leiðrétting: FRAMSTYKKI:...Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur eins og áður yfir þær lykkjur í A.2 (ekki A.1) sem eftir eru og fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsi þannig:

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur af kaðlaprjóni
symbols = Setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Dorothy wrote:

I wish your paterns were more condensed i have to print out so many pages. can they be easier to read love most of your top down patterns

13.04.2023 - 22:18

country flag Anne-Marie Madsen wrote:

Tak for svaret … DET ER LØBELÆNGDEN, jeg ønsker at få svar på. Så jeg kan lære noget mere om at skifte garn.

27.03.2023 - 13:13

country flag Anne-Marie wrote:

Cozy Weekend med Snow gruppe E vil jeg gerne strikke i c+c . Hvordan regner jeg forbruget ud. Er det løbelængde jeg beregner fra. Og når jeg sætter c+c sammen forbliver løbelængden den angivet, fra c, eller bliver den kortere? Bedste hilsner fra Anne-Marie

23.03.2023 - 12:16

DROPS Design answered:

Hei Anne-Marie Til høyre eller under bildet vil du finne en link til: Garnforbrug ved alternativt garn – Brug vores garn-omregner her. Klikk på den og fyll inn informasjon. Velg DROPS Snow (det garnet du vil erstatt) og i f.eks str S er det brukt 550 gram og det strikkes med 1 tråd. Klikk på Finn alternativ. I garngruppe C kommer det opp 8 alternativer (2 tråder) og antall gram du må bruke. mvh DROPS Design

27.03.2023 - 11:46

country flag Maria Paola Gastaldi wrote:

Buongiorno, vorrei eseguire il modello lavorando davanti e dietro separatamente il numero delle maglie è lo stesso o devo mettere 46 maglie per il dietro e 53 per il davanti? Grazie

17.09.2021 - 16:08

DROPS Design answered:

Buonasera Maria Paola, purtroppo in questa sede non possiamo riprogettare il modello per la lavorazione in piano, ma può sicuramente rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

17.09.2021 - 20:04

country flag Jackie Manley wrote:

What is the quantity of wool I need to do this jumper

04.01.2021 - 10:44

country flag Susan Haugaard wrote:

Hej, Har lige læst opskrift igennem, og forstår ikke, at man skal skifte til strømpepinde 10, inden man lukker af? Man strikker jo frem og tilbage på rundpind 9 /10 på ærmet? Hvis jeg kan udgå at købe 4 slags pinde til enkelt trøje.

11.11.2019 - 12:29

DROPS Design answered:

Hei Susan. Her er det blitt feil oversatt i den danske oppskriften, du kan bruke rundpinne nr 10 til å felle av (du kan også felle av med settp nr 9, bare da husk å felle av løst). mvh DROPS design

11.11.2019 - 15:06

country flag Mimi wrote:

Hi, I am a bit confused about the sleeves. Do I pick up stitches aound the whole armhole, work back and forth and then sew the edges of the sleeves only or do I work them separately back and forth and then sew them on? I am doing the XL size. Thanks

20.05.2019 - 17:36

DROPS Design answered:

Dear Mimi, you pick up the stitches for sleeves along armholes and work back and forth and sew then the first 4 cm of the sleeve to the cast off sts for armholes then sew the sleeve to the wrist edge. Happy knitting!

21.05.2019 - 09:26

country flag Patrycja wrote:

Witam, w jaki sposób zamykać oczka na dekolt w tym wzorze? Czy redukując oczka mam przerobić 2o. razem?

23.02.2019 - 11:08

DROPS Design answered:

Witaj Patrycjo! Aby zamknąć oczka na dekolt tyłu, zamykasz 1 raz 1 o. z każdej strony dekoltu - aby zamknąć 1 o. należy przerobić 2 o. razem. Z przodu zaś zamykamy na początku każdego rzędu od strony dekoltu: 1 raz 2 oczka (przerabiając 3 o. razem) i 2 razy 1 oczko (2 o. razem). Powodzenia!

25.02.2019 - 07:18

country flag Renie wrote:

3. At the beginning it should also say that the back piece is only knitted in stocking stitch (that's why there are less stitches than for the front piece with the special). 4. At the beginning of "Front Piece" please say that the cable stitch pattern A.2 requires more stitches (so you prevent another possible confusion). 5. The description of the first round re.: the front piece (when A.2 cable pattern begins) should be directly placed under "Front Piece", it only belongs there.

16.12.2018 - 09:07

country flag Renie wrote:

2. I understand why those quite simple ribs are being made an extra pattern "A.1". But by placing it directly under the main pattern A.2 without a certain note right by the pattern (NOT only in the text, the description) that A.1 is only to be knitted for 6 cm whereas A.2 is to be repeated until the respective piece ends (at the shoulders), this seems to confuse, obviously. Additionally, what about a small space between A.1 and A.2 for better optics? -> 3.

16.12.2018 - 08:43