Anneli Ljunggren skrifaði:
Hej. Angående mönstret och diagrammet, finns inte med reliefstolpe i diagram eller diagramförklaring!
29.07.2020 - 09:04DROPS Design svaraði:
Hej Anneli, Jo RELIEFSTOLPEN findes med nederst på mössan. God fornøjelse!
29.07.2020 - 15:30
Annelies Veldkamp skrifaði:
Ik ben bezig met patroon smiles of indigo en dan de rolkraag. Ik heb moeite hoe een toer te eindigen en te beginnen volgens patroon a 4a. Dit komt bij niet uit. Alvast dank
19.11.2019 - 12:17DROPS Design svaraði:
Dag Annelies,
Nadat je 180-200 lossen hebt gehaakt en deze gesloten hebt met een ring, haak je 3 lossen (van A.4a) vervolgens haak je 2 stokjes + 2 lossen + 2 stokjes in de 3e losse op de lossenring. Haak dan 2 lossen, sla 4 stokjes over en haak 1 half stokje in de volgende losse van de ring. Nu haak je weer 2 lossen en sla je weer 4 stokjes over en maak je weer een groep van 2 keer 2 stokjes met 2 lossen er tussen. Let er op dat je dus vanaf nu steeds 4 lossen over slaat.
23.11.2019 - 15:56
Sine Taaning Dedenroth skrifaði:
Hej Drops. Hvor finder jeg videoen "sådan hækles huen 182-2"?, der er kun links til andre videoer, men ingen video der viser hvordan selve huen hækles efter diagrammerne. Håber meget I vil ligge videoen ud. mvh. Sine
25.01.2019 - 17:44DROPS Design svaraði:
Hej Sine, vi skriver den på ønskelisten. Her finder du andre hæklede huer som vi har video til, det kan være du kan bruge en af dem? huer - hæklet
30.01.2019 - 09:41
Smiles of Indigo#smilesofindigoset |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Húfu og hálsskjóli með sólfjaðramynstri, heklað ofan frá og niður úr DROPS Merino Extra Fine.
DROPS 182-2 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. STUÐLAKRÓKUR: Heklið 1 stuðul í kringum 1 stuðul frá fyrri umferð (þ.e.a.s. ekki er heklað í lykkjubogana, heldur utan um stuðulinn) þannig: Bregðið þræðinum um heklunálina (alveg eins og þegar heklaður er 1 venjulegur stuðull), stingið heklunálinni á milli þess stuðuls sem er heklaður og stuðul sem á að hekla um og upp á milli stuðuls sem á að hekla um og næsta stuðul (þ.e.a.s. á milli 2 stuðla og utan um stuðul), sækið þráðinn, heklið afgang af stuðli eins og venjulega. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. HÚFA: Byrjið með heklunál 4 og Merino Extra Fine og heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.1b alls 6 sinnum í umferð – mynsturteikning A.1 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og heklað er sem viðauki við A.1b. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1a og A.1b hefur verið heklað til loka á hæðina er hekla þannig: Heklið A.2b alls 12 sinnum í umferð – mynsturteikning A.2a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er heklað sem viðauki við A.2b. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 20 cm. Þegar A.2a og A.2b hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað þannig: Heklið A.3b alls 12 sinnum í umferð – mynsturteikning A.3a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og heklað er sem viðauki við A.3b = 96 hálfir stuðlar/stuðlar í umferð. Heklið síðan þannig: Heklið * 1 stuðul, 1 STUÐLAKRÓKUR – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram, passið uppá að stuðlakrókarnir komi ofan á hvern annan á hæðina. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 24 cm. Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja lykkju, klippið frá og festið enda. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. HÁLSSKJÓL: Heklið 180-200 loftlykkjur með heklunál 4 með Merino Extra Fine og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan mynstur eftir mynsturteikningu A.4b alls 18-20 sinnum í umferð – A.4a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og heklað er sem viðauki við A.4b. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.4a og A.4b hefur verið heklað til loka á hæðina er 2 síðustu umferðirnar endurteknar þar til stykkið stykkið mælist ca 25-28 cm. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #smilesofindigoset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 182-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.