Marika skrifaði:
Le tre catenelle iniziali dello scaldacollo sono considerate primo punto o no? Grazie
12.08.2022 - 19:48DROPS Design svaraði:
Buonasera Marika, deve lavorare come indicato nel GIRO 1, 3 catenelle e poi proseguire come indicato. Buon lavoro!
12.08.2022 - 21:17
Samantha skrifaði:
La traduction de ce patron du français en anglais ne correspond pas. Dans les premières rangées, il est question de mailles serrées, alors qu’en anglais c’est “double crochet”. Cela crée une différence majeure. J’ai trouvé ce patron en version française, mais je travaille qu’avec les patrons en anglais, et j’ai remarqué l’erreur.
19.12.2021 - 15:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Samantha, attention à la terminologie anglaise en crochet: 1 double crochet = 1 maille serrée en anglais britannique et 1 bride en anglais US. Le point texturé se crochète ici bien comme indiqué dans le modèle français. Bon crochet!
20.12.2021 - 08:26
Lise skrifaði:
Que veux dire .... diagramme 1b "6 fois au total en largeur"......??? Et comment arriver à 66 mailles au 11e rang quand en calculant les augmentations sur diagramme 1a ça fait au total 44 mailles seulement???
02.05.2020 - 03:22DROPS Design svaraði:
Bonjour Lise, crochetez ainsi: A.1a (début du tour), 6 x A.1b, A.1a (fin du tour). Au 1er tour, on commence par 1 ms x 6 = 6 ms + A.1a et on termine par 11 ms (= 1 ms dans les 8 premières m, 2 ms dans la ms suivante) au dernier rang de A.1b soit: 11 x 6 = 66 ms + A.1a. Bon crochet!
04.05.2020 - 11:23
Madde skrifaði:
I tegnforklaring for diagram står det at A.1b skal bestå av 4 luftmasker. I hekleforklaring under lue står det at det skal heklet 6 ganger på omgangen. Skulle ikke A.1b da bestått av 6 luftmasker?
25.03.2018 - 15:33DROPS Design svaraði:
Hej Madde, Nej, du får let plads med 6 masker i en ring som består af 4 luftmasker. God fornøjelse!
07.05.2018 - 15:27
Auruna#aurunaset |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Heklaðri húfu og hálsskjóli með gatamynstri og röndum úr DROPS Nepal.
DROPS 182-10 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.2. HEKLLEIÐBEININGAR: Hver umferð með fastalykkjum byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun umferðar. LITIR: Heklið * 2 umferðir með litnum hindber, 2 umferðir með litnum grár *, endurtakið frá *-* til loka. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. HÚFA: Byrjið með heklunál 5,5 og Nepal og heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.1b alls 6 sinnum í umferð – mynsturteikning A.1a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð til viðbótar við A.1b. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar öll mynsturteikning A.1a og A.1b hefur verið hekluð til loka á hæðina eru 66 fastalykkjur í umferð. Heklið nú áfram þannig: Stærð S/M: UMFERÐ 12: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 32 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 68 fastalykkjur. Stærð M/L: UMFERÐ 12: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið * 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 10 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 72 fastalykkjur. UMFERÐ 13: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. BÁÐAR STÆRÐIR: Stykkið mælist nú ca 7-8 cm. Heklið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.2b alls 34-36 sinnum í umferð – mynsturteikning A.2a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðauki við A.2b. Endurtakið síðan 2 síðustu umferðirnar. Þegar stykkið mælist ca 24-25 cm – endið eftir eina umferð með stuðlum, heklið 3 umferðir með 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá og festið enda. Húfan mælist ca 27-28 cm. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. HÁLSSKJÓL: Heklið 107-115 loftlykkjur með heklunál 5,5 með litnum grár og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 3 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hverja af fyrstu 6-4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 4 loftlykkjum, endurtakið frá *-* alls 20-22 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 86-92 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið síðan mynstur eftir mynsturteikningu A.2b alls 43-46 sinnum í umferð – mynsturteikning A.2a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðauki við A.2b – lesið LITIR. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 25-27 cm, endið eftir eina umferð með stuðlum með litnum hindber. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #aurunaset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 182-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.