Doris skrifaði:
Hallo. Mir gefällt dieses Modell wirklich sehr gut und möchte es nacharbeiten. Kann ich dafür auch Drops Merino Extra Fine verwenden? Oder ist diese Wolle zum Häkeln weniger geeignet? Ich habe gelesen Merino Extra Fine sollte man eher fest stricken, da sie beim Waschen angeblich weiter wird. Danke schon jetzt für Ihre Hilfe! LG Doris
25.08.2017 - 09:07DROPS Design svaraði:
Liebe Doris, gerne können Sie Merino Extra Fine auch hier häkeln (= Garngruppe B wie Karisma), und wie immer, Ihre Maschenprobe zuerst häkeln, und dann waschen - so können Sie eventuel die Häkelnadel anpassen. Viel Spaß beim häkeln!
28.08.2017 - 13:38
Hanneke skrifaði:
I really love this pattern but it seems a little short to my liking. If I want a longer version, do I just continue in pattern, and continue the increases?
25.08.2017 - 08:20DROPS Design svaraði:
Dear Hanneke, continue in pattern and the increases. Kind regards from DROPS Design.
25.08.2017 - 10:57
Åsa skrifaði:
Fantastiskt vacker, vill börja direkt!!
12.07.2017 - 09:51
Sylvie skrifaði:
Très intéressant le mélange crochet et Jacquard arrondi .bel effet de modernité.
28.06.2017 - 19:13
Rebecca Gibbs skrifaði:
I love the fair isle look. This is a treat of us crocheters. Nice warm sweater for the weekend or those nights by the fire light. this will be a sweater on my to do list. thank you
20.06.2017 - 02:29
Kiki Svee skrifaði:
Åhhh en virkad tröja på detta vis - underbart! Den vill jag verkligen göra. När kommer dessa mönster ut?
19.06.2017 - 18:47
Katarina Hagelberg skrifaði:
Underbar tröja! Jag har länge letat efter ett liknande mönster för virkning!
19.06.2017 - 12:44Carson McFarlane skrifaði:
Really great to see such a great sweater pattern for CROCHET! Love this design. Look forward to hooking!
10.06.2017 - 15:39
Karen Bavouset skrifaði:
This is beautiful! I have been looking for a pattern like this in crochet for a long time. Thank you!
07.06.2017 - 00:39
Ursula skrifaði:
Magnifique!
06.06.2017 - 14:43
Winter Sunshine#wintersunshinesweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Peysa með hringlaga berustykki og norrænu marglitu mynstri, hekluð ofan frá og niður úr DROPS Karisma. Stærð S - XXXL.
DROPS 180-15 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Þegar A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.4a endurtekið til loka. HEKLLEIÐBEININGAR: Stykkið er heklað allan tímann bæði í hring og fram og til baka. Heklað er til skiptis frá réttu og frá röngu og hver umferð endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. Hver umferð með stuðlum byrjar með 3 loftlykkjum (kemur í stað fyrsta stuðuls) og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar, snúið stykkinu. Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, er skipt út fyrstu fastalykkjunni með 1 loftlykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun umferðar. LITAMYNSTUR Þegar skipt er um lit í byrjun á nýrri umferð er heklað þannig: Heklið síðasta stuðulinn með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin. Skiptið yfir í nýjan lit, dragið þráðinn í gegn í lokin og heklið 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. Snúið stykkinu og heklið 3 loftlykkjur (= byrjun á nýrri umferð). Þegar skipt er um lit í umferð er heklað þannig: Heklið 1 stuðul með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin. Skiptið yfir í nýjan lit, dragið þráðinn í gegn í lokin með nýja litnum. Þegar heklað er með tveimur litum, leggið þráðinn á þeim lit sem ekki er heklað með yfir lykkjurnar frá fyrri umferð, heklið utan um þráðinn þannig að hann sjáist ekki og fylgi með hringinn. Passið uppá að fylgiþræðirnir dragi ekki stykkið saman og að þráðurinn herði ekki að þegar hann er tekinn upp frá fyrri umferð. ÚTAUKNING-1 (á við um berustykki): Heklið 2 stuðla í sama lit í 1 stuðul frá fyrri umferð. ÚTAUKNING-2 (á við um fram- og bakstykki): Heklið þar til 3 stuðlar eru eftir á undan prjónamerki, heklið 2 stuðla í næsta stuðul, 1 stuðul í hvern af næstu 4 stuðlum (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), 2 stuðlar í næsta stuðul (= 2 stuðlar fleiri). Endurtakið við næsta prjónamerki (= alls 4 stuðlar fleiri í umferð). ÚRTAKA (á við um ermar): Heklið þar til 4 stuðlar eru eftir á undan prjónamerki, heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er það dregið í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 4 stuðlum (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), heklið 2 næstu stuðla saman alveg eins (= 1 stuðull færri = alls 2 stuðlar færri í umferð). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður, hringinn fram og til baka. Heklað er saman í lok hverrar umferðar. Stykkið er heklað frá miðju að aftan. BERUSTYKKI: Heklið 106-110-115-120-124-129 loftlykkjur með heklunál 4,5 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), - lesið HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 0-4-2-0-4-2 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja og eina af næstu 6 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* = 92-96-100-104-108-112 stuðlar. Heklið A.1 og A.2 þannig: Heklið mynstur, aukið út í mynstri (sjá útaukning í mynsturteikningu) og aukið út jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 1 (rétta): Heklið A.1 (= 2 stuðlar) yfir fyrstu 14-14-16-17-18-18 stuðla og aukið út 2-2-2-3-4-4 stuðla jafnt yfir (= hálft bakstykki). Heklið A.2 (= 4 stuðlar), A.1 yfir næstu 10 stuðla og aukið út 2-4-4-4-4-6 stuðla jafnt yfir. A.2 yfir næstu 4 stuðla (= hægri ermi). Heklið A.1 yfir næstu 28-30-32-34-36-38 stuðla og aukið út 4-4-4-6-8-8 stuðla jafnt yfir (= framstykki). Heklið A.2 yfir næstu 4 stuðla, A.2 yfir næstu 10 stuðla og aukið út 2-4-4-4-4-6 stuðla jafnt yfir, A.2 yfir næstu 4 stuðla (= vinstri ermi). Heklið A.1 yfir síðustu 14-16-16-17-18-20 stuðla og aukið út 2-2-2-3-4-4 stuðla jafnt yfir (= hálft bakstykki) = 112-120-124-132-140-148 stuðlar (meðtalin útaukning í A.2) – LESIÐ LITAMYNSTUR! UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.1 yfir fyrstu 16-18-18-20-22-24 stuðla, A.2, endurtakið A.1 yfir næstu 12-14-14-14-14-16 stuðla, A.2, endurtakið A.1 yfir næstu 32-34-36-40-44-46 stuðla, A.2, endurtakið A.1 yfir næstu 12-14-14-14-14-16 stuðla, A.2, endurtakið A.1 yfir síðustu 16-16-18-20-22-22 stuðla = 120-128-132-140-148-156 stuðlar (meðtalin útaukning í A.2). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið mynstur = 8 stuðlar fleiri í A.2 = 128-136-140-148-156-164 stuðlar. UMFERÐ 4 (= ranga): Heklið A.1 yfir fyrstu 16-18-18-20-22-24 stuðla og aukið út 2-0-0-3-4-4 stuðla jafnt yfir, A.2, heklið A.1 yfir næstu 12-14-14-14-14-16 stuðla og aukið út 0-4-4-4-4-6 stuðla jafnt yfir, A.2, heklið A.1 yfir næstu 32-34-36-40-44-46 stuðla og aukið út 4-2-4-6-8-8 stuðla jafnt yfir, A.2, heklið A.1 yfir næstu 12-14-14-14-14-16 stuðla og aukið út 0-4-4-4-4-6 stuðla jafnt yfir, A.2, heklið A.1 yfir síðustu 16-16-18-20-22-22 stuðla og aukið út 2-2-2-3-4-4 stuðlar jafnt yfir = 144-156-162-176-188-200 stuðlar (meðtalin útaukning í A.2). UMFERÐ 5 (= rétta): Heklið A.1 yfir fyrstu 18-18-20-23-26-26 stuðla, A.2, heklið A.1 yfir næstu 12-18-18-18-18-22 stuðla, A.2, heklið A.1 yfir næstu 36-36-40-46-52-54 stuðla, A.2, heklið A.1 yfir næstu 12-18-18-18-18-22 stuðla, A.2, heklið A.1 yfir síðustu 18-18-18-23-26-28 stuðla = 152-164-170-184-196-208 stuðlar (meðtalin útaukning í A.2). Stykkið mælist nú ca 7 cm. Heklið nú A.2 áfram eins og áður og A.3 er heklað yfir A.1 þannig: UMFERÐ 6 (= ranga): Heklið A.3 yfir fyrstu 18-18-18-23-26-28 stuðlana og aukið út 3-3-3-4-4-2 stuðla jafnt yfir, A.2, heklið A.3 yfir næstu 12-18-18-18-18-22 stuðla og aukið út 0-0-3-3-3-5 stuðla jafnt yfir, A.2, heklið A.3 yfir næstu 36-36-40-46-52-54 stuðla og aukið út 3-6-5-5-8-9 stuðla jafnt yfir, A.2, heklið A.3 yfir næstu 12-18-18-18-18-22 stuðla og aukið út 0-0-3-3-3-5 stuðla jafnt yfir, A.2, heklið A.3 yfir síðustu 18-18-20-23-26-26 stuðla og aukið út 0-3-4-4-4-4 stuðla jafnt yfir = 162-180-192-207-222-237 stuðlar (meðtalin útaukning í A.2). UMFERÐ 7 (= rétta): Heklið A.3 yfir fyrstu 18-21-24-27-30-30 stuðla, A.2, heklið A.3 yfir næstu 12-18-21-21-21-27 stuðla, A.2, heklið A.3 yfir næstu 39-42-45-51-60-63 stuðla, A.2, heklið A.3 yfir næstu 12-18-21-21-21-27 stuðla, A.2, heklið A.3 yfir síðustu 21-21-21-27-30-30 stuðla = 166-184-196-211-226-241 stuðlar (meðtalin útaukning í A.2). UMFERÐ 8 (= ranga): Heklið mynstur eins og áður. UMFERÐ 9 (= rétta): Heklið mynstur eins og áður og aukið út 2-0-4-5-6-7 stuðla jafnt yfir í umferð = 168-184-200-216-232-248 stuðlar. Stykkið mælist ca 11 cm. Heklið síðan eftir mynsturteikningu A.4 (= 8 stuðlar) – sjá útaukning í mynsturteikningu, alls 21-23-25-27-29-31 sinnum á breidd þar til stykkið mælist 25-26-28-30-32-34 cm. Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 252-276-300-324-348-372 stuðlar í umferð. Nú skiptist fram- og bakstykki og ermar þannig: Heklið A.4 yfir fyrstu 36-41-45-49-54-57 stuðla (= hálft bakstykki), 8-8-8-10-10-10 loftlykkjur, setjið 1 merkiþráð í miðju á þessum lykkjum, hoppið yfir næstu 53-56-60-63-65-71 stuðla (= ermi), heklið A.4 yfir næstu 73-82-90-99-109-115 stuðla (= framstykki, 8-8-8-10-10-10 loftlykkjur, setjið 1 merkiþráð í miðju á þessum lykkjum, hoppið yfir næstu 53-56-60-63-65-71 stuðla (= ermi), heklið A.4 yfir síðustu 37-41-45-50-55-58 stuðla (= hálft bakstykki). Klippið frá. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 146-164-180-198-218-230 stuðlar og 16-16-16-20-20-20 loftlykkjur (= alls 162-180-196-218-238-250 lykkjur). Stykkið er nú heklað með byrjun frá merkiþræði í hlið. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, merkiþráðurinn í hlið fylgir áfram með í stykkinu. Haldið áfram með A.4. Stuðlarnir sem ekki ganga upp í mynstri í hvorri hlið eru heklaðir með litnum ljós brúnn. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 2 stuðla við hvort prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING-2! Aukið svona út með 5-9-9-9-9-9 cm millibili alls 4-3-3-3-3-3 sinnum = 178-192-208-230-250-262 stuðlar. Jafnóðum í útaukningu eru stuðlar heklaðir inn í mynstur, stuðlar sem ekki ganga upp í mynstrið í hlið eru heklaðir með litnum ljós brúnn. Haldið áfram þar til stykkið mælist 29-30-30-30-30-30 cm frá prjónamerki (= 54-56-58-60-62-64 cm frá kanti í hálsi) – endið eftir 4 umferðir með litnum ljós brúnn. Klippið frá og festið enda. ERMI: = 53-56-60-63-65-71 stuðlar. Haldið áfram með A.4. Byrjið á að hekla í 5.-5.-.5-6.-6.-6. loftlykkju í þær 8-8-8-10-10-10 loftlykkjur sem heklaðar voru i handveg á fram- og bakstykki þannig: Heklið 1 keðjulykkju, 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3-3-3-4-4-4 loftlykkjum, 1 stuðull í hvern stuðul yfir ermi, 1 stuðull í hverja og eina af síðustu 4-4-4-5-5-5 loftlykkjum undir ermi = 61-64-68-73-75-81 stuðlar. Stuðlar sem ekki ganga upp í mynstri undir ermi eru heklaðir með litnum ljós brúnn. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Látið prjónamerkið vera eftir í stykkinu, merkiþráðurinn fylgir með í stykkinu. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 2 stuðla hvoru megin við prjónamerkið – LESIÐ ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 2½-2-2-1½-1½-1 cm millibili alls 10-12-12-14-13-16 sinnum = 41-40-44-45-49-49 stuðlar. Haldið áfram þar til stykkið mælist 36-36-34-33-31-30 cm frá prjónamerki (61-62-62-63-63-64 cm frá kanti í hálsi) – endið eftir 4 umferðir með ljós brúnn. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. HÁLSMÁL: Stykkið er heklað í hring frá miðju að aftan. Heklið loftlykkju þar sem 1. umferð með stuðlum var hekluð (þ.e.a.s. loftlykkjur sem hoppað var yfir er ekki heklað í = 92-96-100-104-108-112 lykkjur). Heklið með ljós brúnn þannig: UMFERÐ 1: Heklið upphækkun aftan í hnakka þannig: Festið þráðinn með 1 keðjulykkju og heklið 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul, heklið 1 stuðul í hverja og eina af fyrstu 18-19-20-21-22-23 lykkjum, 1 hálfur stuðull í hverja og eina af næstu 10 lykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 34-36-38-40-42-44 lykkjum, 1 hálfur stuðull í hverja af næstu 10 lykkjum, 1 stuðull í hverja af síðustu 19-20-21-22-23-24 lykkjum. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju og fækkið um 12 lykkjur jafnt yfir = 80-84-88-92-96-100 fastalykkjur. Klippið frá og frestið enda. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wintersunshinesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.