DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14850.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Autumn Charm

Hekluð peysa með röndum úr 2 þráðum DROPS Alpaca. Stykkið er heklað ofan frá og niður með röndum. Stærð S - XXXL.

DROPS 205-46
DROPS Design: Mynstur z-857
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-150-150-200-200 g litur 9020, ljós perlugrár
150-150-150-200-200-200 g litur 501, ljós grár
150-150-150-200-200-200 g litur 517, milligrár
150-150-150-150-200-200 g litur 3900, tómatrauður
150-150-150-150-150-200 g litur 2925, appelsína

HEKLFESTA:
14 stuðlar á breidd og 8,5 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14850.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur, þ.e.a.s. hoppið yfir 1. lykkju frá fyrri umferð.

RENDUR Á BAK-/FRAMSTYKKI
Rendurnar eru heklaðar ofan frá og niður þannig:
9½-9½-10-10-11-11 cm (mælt frá uppfitjunarkanti) með 1 þræði ljós grár og 1 þræði milligrár (= 2 þræðir)
9½-9½-10-10-11-11 cm með 1 þræði ljós perlugrár og 1 þræði milligrár (= 2 þræðir).
9½-9½-10-10-11-11 cm með 1 þræði appelsína og 1 þræði ljós grár (= 2 þræðir).
9½-9½-10-10-11-11 cm með 1 þræði appelsína og 1 þræði tómatrauður (= 2 þræðir).
9½-9½-10-10-11-11 cm með 1 þræði tómatrauður og 1 þræði perlugrár (= 2 þræðir).
Heklið síðan með 1 þræði ljós grár og 1 þræði milligrár (= 2 þræðir) til loka.

RENDUR ERMI:
Rendurnar eru heklaðar ofan frá og niður þannig:
9½ cm með 1 þræði ljós perlugrár og 1 þræði milligrár (= 2 þræðir).
9½ cm með 1 þræði appelsína og 1 þræði ljós grár (= 2 þræðir).
9½ cm með 1 þræði appelsína og 1 þræði tómatrauður (= 2 þræðir).
9½ cm með 1 þræði tómatrauður og 1 þræði ljós perlugrár (= 2 þræðir).
Heklið síðan með 1 þræði ljós grár og 1 þræði milligrár (= 2 þræðir) til loka.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar alveg eins. Bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar lykkjur á heklunálinni (= 1 stuðull færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka í stykkjum, ofan frá og niður og frágangur er gerður á meðan stykkið er í vinnslu. Ermar eru heklaðar frá handveg fram og til baka, ofan frá og niður og saumaðar saman í lokin.

VINSTRI ÖXL AFTAN (þegar flíkin er mátuð):
Heklið 18-20-20-22-25-28 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA, með heklunál 5 með 1 þræði í litnum ljós grár og 1 þræði í litnum milligrár (= 2 þræðir). Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 16-18-18-20-23-26 stuðlar. Haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar heklaðar hafa verið 2 umferðir er aukið út um 1 stuðul í byrjun á næstu umferð fyrir hálsmáli (aukið út með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul), heklið út umferðina = 17-19-19-21-24-27 stuðlar. Klippið frá.

HÆGRI ÖXL AFTAN (þegar flíkin er mátuð):
Heklið 18-20-20-22-25-28 loftlykkjur með heklunál 5 með 1 þræði í litnum ljós grár og 1 þræði í litnum milligrár (= 2 þræðir). Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 16-18-18-20-23-26 stuðlar. Haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar heklaðar hafa verið 2 umferðir er aukið út um 1 stuðul í byrjun á næstu umferð fyrir hálsmáli (aukið út með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul), heklið út umferðina = 17-19-19-21-24-27 stuðlar. Endið með 20-20-22-22-24-24 loftlykkjur fyrir hálsmáli og festið við vinstri öxl með 1 keðjulykkju í hálsmáli. Klippið frá.

BAKSTYKKI:
Næsta umferð er hekluð þannig (rétta): Heklið 1 stuðul í hvern stuðul, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju í hálsmáli og 1 stuðul í hvern stuðul út umferðina = 54-58-60-64-72-78 stuðlar.
Heklið síðan stuðla og RENDUR BAK-/FRAMSTYKKI – sjá útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm á að fitja upp nýjar loftlykkjur í hvorri hlið fyrir handveg. Klippið frá. Setjið 1 prjónamerki mitt í þessa umferð – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið 3-3-5-7-7-8 lausar loftlykkjur fyrir handveg, heklið 1 stuðul í hvern stuðul og heklið 3-3-5-7-7-8 lausar loftlykkjur fyrir handveg = 60-64-70-78-86-94 lykkjur.
Heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul/loftlykkja þar til stykkið mælist ca 39-40-41-42-43-44 cm frá prjónamerki. Klippið frá og festið enda.

VINSTRI ÖXL FRAM (þegar flíkin er mátuð):
Heklið 18-20-20-22-25-28 loftlykkjur með heklunál 5 með 1 þræði í litnum ljós grár og 1 þræði í litnum milligrár (= 2 þræðir). Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 16-18-18-20-23-26 stuðlar. Haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar heklaðar hafa verið3-3-3-5-5-5 umferðir er aukið út um 1 stuðul í byrjun á næstu umferð fyrir hálsmáli (aukið út með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul). Endurtakið útaukningu við hálsmál í næstu 2-2-2-2-1-1 umferðum = 19-21-21-23-25-28 stuðlar. Klippið frá.

HÆGRI ÖXL FRAM (þegar flíkin er mátuð):
Heklið 18-20-20-22-25-28 loftlykkjur með heklunál 5 með 1 þræði í litnum ljós grár og 1 þræði í litnum milligrár (= 2 þræðir). Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 16-18-18-20-23-26 stuðlar. Haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar heklaðar hafa verið3-3-3-5-5-5 umferðir er aukið út um 1 stuðul í byrjun á næstu umferð fyrir hálsmáli (aukið út með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul). Endurtakið útaukningu við hálsmál í næstu 2-2-2-2-1-1 umferðum = 19-21-21-23-25-28 stuðlar.
Endið með 16-16-18-18-22-22 loftlykkjur fyrir hálsmáli og festið veið vinstri öxl með 1 keðjulykkju í hálsmáli. Klippið frá.

FRAMSTYKKI:
Heklið á sama hátt og BAKSTYKKI, en næsta umferð byrjar frá röngu.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með sama lit og uppfitjunarkantur – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur.

ERMI:
Heklið fram og til baka með byrjun frá handveg og niður að köntum á ermi.
Heklið 48-50-54-56-58-62 stuðla jafnt yfir um ystu stuðlaumferðina meðfram öllum handveginum (en ekki yfir loftlykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið á fram- og bakstykki) með heklunál 5 með 1 þræði í litnum ljós grár og 1 þræði í litnum milligrár (= 2 þræðir). Heklið síðan 1 umferð með stuðlum.
Heklið síðan stuðla og RENDUR ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar heklaðar hafa verið alls 4 umferðir á ermi, fækkið um 1 stuðul í hvorri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA. Fækkið með 7-7-5-5-5-3½ cm millibili alls 7-7-9-9-9-11 sinnum = 34-36-36-38-40-40 stuðlar. Heklið áfram þar til ermin mælist ca 54-54-54-53-52-50 cm. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermi í botn á handveg. Saumið síðan saum undir ermum og hliðar saum í eitt – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið kant í kringum hálsmál frá miðju upp að öxl með 1 þræði í litnum ljós perlugrár og 1 þræði í litnum milligrár (= 2 þræðir) þannig: Heklið 1 fastalykkju, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja *, heklið frá *-* í kringum allt hálsmálið og stillið af þannig að endað sé með 3 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð, passið uppá að kanturinn verði ekki stífur. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.03.2022
VINSTRI ÖXL AÐ FRAMAN + HÆGRI ÖXL AÐ FRAMAN:..Endurtakið útaukningu við háls í næstu 2-2-2-2-1-1 umferðum = 19-21-21-23-25-28 stuðlar...

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-46

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Elisabeth wrote:

Jeg mangler mål på denne model, så jeg kan finde den rigtige størrelse?

18.12.2023 - 11:10

DROPS Design answered:

Hei Elisabeth. Nederst på oppskriften finner du målskissen med alle mål i de 6 forskjellige størrelsene. mbh DROPS Design

18.12.2023 - 11:12

country flag Gea wrote:

Ik denk dat Myrthe gelijk heeft. De onderste banen zijn lichtgrijs mix en grijs mix, net als de bovenste baan. En niet zoals in het patroon staat: zeer lichtgrijs en grijs mix. Als je nog een baan met zeer lichtgrijs doet, kom je garen tekort en houd je van lichtgrijs mix heel veel over.

30.10.2023 - 01:25

country flag Myrthe wrote:

Hallo, Ik heb een paar vragen over de kleuren. Ik zie namelijk wat verschillen tussen het patroon en de foto, volgens mij. Ik wil graag de kleuren van de foto gebruiken. Voor- en achterpand en mouwen, laatste kleurband: zijn de kleuren van de foto lichtgrijs mix en grijs (patroon zegt zeer lichtgrijs en grijs)? Mouwen: begin je meteen met de kleuren zeer lichtgrijs en grijs, of maak je eerst één/enkele toeren met lichtgrijs mix en grijs? Hartelijk dank, Myrthe

17.10.2022 - 17:05

DROPS Design answered:

Dag Myrthe,

De mouwen en de panden hebben hetzelfde kleurpatroon en de kleuren op de foto komen overeen met de aangegeven kleurnummers bij het patroon.

19.10.2022 - 19:57

country flag Eta Simon wrote:

Can you please clarify /show with video/photograph how to "cast on new chain stitches in each side for armholes". What is the purpose of these stitches and do they show at the end? Because the chain stitches seems to block my ability to "work the treble crochets evenly around outermost treble crochet row along the entire armhole (but not over chain stitches cast on on each side on front and back piece)? Thank you!

23.06.2022 - 10:48

DROPS Design answered:

Dear Mrs Simon, before working this row, you cut the yarns. Now you need to increase new stitches on each side of piece, so that you start with chain stitches, then crochet the piece exactly as before (= 1 treble in each treble), and end the row with new chain stitches = you have h=now 3-5-7 or8 chain stitches on each side of the piece. Turn, and work 1 treble in each chain stitch + in each treble + in each chain stitch at the other side of piece, your piece looks like a T with increases on each side = for the armhole on each side. Hope it will help. Happy crocheting!

23.06.2022 - 13:02

country flag CHANTAL LAGOUTTE wrote:

Bonjour, cette version existe t-elle avec des aiguilles droites ? je ne suis pas à l'aise du tour avec le crochet ! Merci pour votre aide. Bien cordialement chantal

07.06.2022 - 12:46

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lagoutte, retrouvez tous nos pulls rayés ici - n'hésitez pas à affiner votre recherche si besoin - et n'hésitez pas à consulter cette leçon. Bon tricot!

07.06.2022 - 16:41

country flag Eta Simon wrote:

Following instructions carefully, it looks like there are 4 treble crochets less across the front than across the back(for size L). The back piece after the shoulders are worked specifies 60 treble crochets. The front piece after the shoulders are worked will have only 56 treble stitches across.Is this a mistake? Thank you for a lovely pattern and for your help!

05.03.2022 - 22:47

DROPS Design answered:

Dear Mrs Simon, thanks for noticing, a correction has been done. Happy crocheting!

07.03.2022 - 19:12

country flag Greetje Bekker wrote:

Drops alcapa wat voor haaknaald moet je daarvoor gebruiken. Heb n sjaalpatroon,en daar staat haaknaald 4,5 word t dan niet veel te los. Alvasr dank je wel voor antwoord.

11.10.2021 - 13:51

DROPS Design answered:

Dag Greetje,

Dit patroon wordt met 2 draden Alpaca gehaakt, vandaar de afwijkende naalddikte. Je houdt altijd de naalddikte aan die in het patroon staat aangegeven en niet de naalddikte die bij het garen zelf staat. Maak wel altijd een proeflapje om te controleren of de stekenverhouding klopt en pas, indien nodig, de naalddikte hierop aan.

13.10.2021 - 08:47

country flag Els Van Lit wrote:

Bij de schouder voor moet 3x gemeerderd worden, wat het aantal stokjes niet op 17 brengt zoals het patroon zegt voor maat S, maar op 20 stokjes.

24.06.2020 - 15:47

country flag Angel Coldiron wrote:

This pattern states that either yarn weight A+A or C can be used. However it does not give a yarn suggestion for C weight or gram requirements.. I first thought the yardage would simply be half, however with the color combinations I realized this may not be the case. Please provide yarn and gram requirements for C weight yarn. My second question is; If I use C weight yarn would I be able to add a lace weight yarn as a second color for the combining of two colors for a similar effect?

30.01.2020 - 11:35

DROPS Design answered:

Dear Mrs Coldiron, this pattern has been worked with 2 yarns group A ( 2 strands Alpaca), but you can work it with only 1 strand yarn group C - use our yarn converter to get amount of new yarn. Note that stripes are worked with 2 strands different colours, with a yarn group C you won't get same kind of stripes. Read more about alternatives here. Happy crocheting!

30.01.2020 - 13:22

country flag Kia wrote:

Yes please! This is really cool

27.08.2019 - 01:00