DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10406.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Nordic Fling

Hekluð peysa með lituðu mynstri og hringlaga berustykki, hekluð ofan frá og niður með 3/4 löngum ermum og A-formi úr DROPS Cotton Merino. Stærð S - XXXL.

DROPS 186-34
DROPS Design: Mynstur cm-074
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500-550-600-650 g litur 01, natur
150-150-150-150-200 g litur 16, gallabuxnablár

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 stuðlar og 9 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

Samsetning lita sem sýndar eru:
A) DROPS Cotton Merino 01, 13.
B) DROPS Cotton Merino 01, 15.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10406.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Stykkið er heklað fram og til baka, en heklað saman í hverri umferð þ.e.a.s. heklað er frá réttu og röngu, en hver umferð er hekluð saman með 1 keðjulykkju.
Allar umferðir með stuðlum byrja með 3 loftlykkjum (koma í stað fyrsta stuðul). Umferð endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
Allar umferðir með fastalykkjum byrja með 1 loftlykkju (koma ekki í stað fyrstu fastalykkju). Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
1. umferð í A.1 byrjar og endar umferð þannig: Heklið 3 loftlykkjur (koma ekki í stað fyrsta stuðuls), umferð endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju.
1. umferð í A.2, A.6 og A.7 byrjar og endar umferð þannig: Heklið 1 keðjulykkju í hverja og eina af 2 fyrstu lykkjum, 3 loftlykkjur (koma ekki í stað fyrsta stuðul), umferð endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju.
Allar umferðir með hálfum stuðlum byrjar með 2 loftlykkjum (koma í stað fyrsta hálfa stuðul).
Umferð endar með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun á umferð.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 4,8.
Í þessu dæmi er aukið út ca til skiptis í 4. og 5. hverja lykkju. Aukið er út um 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í sömu lykkju.
Ef lykkjum er fækkað jafnt yfir þá eru heklaðar til skiptis 3. og 4. hver lykkja saman og 4. og 5. hver lykkja saman.

LITAMYNSTUR:
Þegar skipt er um lit í byrjun á umferð er hekluð keðjulykkja í lok fyrri umferðar með nýja litnum.
Þegar heklað er með mörgum litum í umferð er heklað þannig:
Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðasta stuðul/fastalykkju með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin með nýja litnum, heklið síðan næsta stuðul/fastalykkju.
Þegar heklað er með tveimur litum er þráðurinn á þeim lit sem ekki er heklað með látinn liggja yfir lykkjur frá fyrri umferð og heklað er utan um þráðinn þannig að hann sjáist ekki og er alltaf til taks, þráðurinn fær nú að fylgja með hringinn. Passið uppá að fylgi þræðirnir herði ekki á stykki og að þráðurinn sé ekki of stífur þegar hann er tekinn upp frá fyrri umferð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:

----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stykkið er heklað fram og til baka, ofan frá og niður, en heklað saman í hverri umferð.

BERUSTYKKI:
Heklið 108-113-117-127-131-136 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum gallabuxnablár og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 1 loftlykkju – lesið HEKLLEIÐBEININGAR, 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 2-0-4-0-4-2 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 6 loftlykkjum *, heklið frá *-* = 92-96-100-108-112-116 fastalykkjur. Í næstu umferð frá réttu: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og aukið út um 0-20-16-16-12-24 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 92-116-116-124-124-140 fastalykkjur.
Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig (umferðin byrjar í skiptingunni á milli bakstykkis og hægri ermi) – lesið LITAMYNSTUR:
ATH: Þegar heklað er frá röngu er mynsturteikning lesin frá vinstri að hægri.
Bakstykki: Heklið A.2 (= 4 lykkjur) yfir 28-32-32-36-36-40 lykkjur (= 7-8-8-9-9-10 sinnum).
Vinstri ermi: Heklið A.1 (= 1 lykkja) yfir næstu lykkju, endurtakið A.2 yfir 16-24-24-24-24-28 lykkjur (= 4-6-6-6-6-7 sinnum), A.1 yfir næstu lykkju.
Framstykki: Heklið A.2 yfir 28-32-32-36-36-40 lykkjur (= 7-8-8-9-9-10 sinnum).
Hægri ermi: Heklið A.1, endurtakið A.2 yfir 16-24-24-24-24-28 lykkjur (= 4-6-6-6-6-7 sinnum), A.1 yfir næstu lykkju.
Í síðustu umferð í A.1 og A.2 er aukið út um 8-0-20-28-10-26 fastalykkjur jafnt yfir. Þegar A.1 og A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 116-132-152-168-150-182 fastalykkjur í síðustu umferð. Stykkið mælist ca 4 cm.
Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig:
Bakstykki: Heklið A.5a (= 8 lykkjur) yfir 32-32-40-40-40-48 lykkjur (= 4-4-5-5-5-6 sinnum).
Vinstri ermi: Heklið A.3 (= 2 lykkjur), A.4 (= 1 lykkja), A.3 yfir 2 lykkjur, endurtakið A.5a yfir 16-24-16-16-16-16 lykkjur (= 2-3-2-2-2-2 sinnum), A.4 yfir 0-0-0-0-1-1 lykkju, A.3 yfir 0-0-2-2-0-0 lykkjur, A.5a yfir 0-0-8-16-8-16 lykkjur (= 0-0-1-2-1-2 sinnum), A.3 yfir 2 lykkjur, A.4 yfir 1 lykkju, A.3 yfir 2 lykkjur.
Framstykki: Heklið A.5a yfir 32-32-40-40-40-48 lykkjur (= 4-4-5-5-5-6 sinnum).
Hægri ermi: Heklið A.3 (= 2 lykkjur), A.4 (= 1 lykkja), A.3 yfir 2 lykkjur, endurtakið A.5a yfir 16-24-16-16-16-16 lykkjur (= 2-3-2-2-2-2 sinnum), A.4 yfir 0-0-0-0-1-1 lykkju, A.3 yfir 0-0-2-2-0-0 lykkjur, A.5a yfir 0-0-8-16-8-16 lykkjur (= 0-0-1-2-1-2 sinnum), A.3 yfir 2 lykkjur, A.4 yfir 1 lykkju og A.3 yfir 2 lykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar A.5a og A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er næsta umferð hekluð frá réttu þannig:
Hægri ermi: Heklið A.5b (= 8 lykkjur), A.4 eins og áður, A.5b yfir 32-40-48-56-24-24 lykkjur (= 4-5-6-7-3-3 sinnum), A.4 alls 0-0-0-0-1-1 sinni eins og áður, A.5b yfir 0-0-0-0-16-24 lykkjur (= 0-0-0-0-2-3 sinnum), A.4 eins og áður, A.5b yfir 8 lykkjur.
Framstykki: Heklið A.5b yfir 32-32-40-40-40-48 lykkjur (= 4-4-5-5-5-6 sinnum).
Vinstri ermi: Heklið A.5b, A.4 eins og áður, A.5b yfir 32-40-48-56-24-24 lykkjur (= 4-5-6-7-3-3 sinnum), A.4 alls 0-0-0-0-1-1 sinni eins og áður, A.5b yfir 0-0-0-0-16-24 lykkjur (= 0-0-0-0-2-3 sinnum), A.4 eins og áður, A.5b yfir 8 lykkjur.
Bakstykki: Heklið A.5b yfir 32-32-40-40-40-48 lykkjur (= 4-4-5-5-5-6 sinnum).
Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar A.4 og A.5b hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 244-260-292-308-318-350 fastalykkjur í síðustu umferð. Stykkið mælist ca 18 cm.
Heklið nú A.5c hringinn yfir allar lykkjur JAFNFRAMT í 1. umferð er aukið út um 0-0-0-0-2-2 lykkjur jafnt yfir (= 61-65-73-77-80-88 sinnum á breidd) = 244-260-292-308-320-352 lykkjur. Aukið út um 2-4-2-0-0-0 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð = 246-264-294-308-320-352 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki við miðju að aftan (= hér byrjar umferðin síðar).

STÆRÐ S – M:
Þegar A.5c hefur verið heklað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 21-21 cm. Stykkið er núna heklað til loka með natur.
Berustykkið hefur eiginlega verið heklað til loka, en þar sem heklfestan á hæðina passar ekki og stykkið mælist ekki 21-21 cm þá heklað A.6 (= 3 lykkjur) yfir allar lykkjur (= 88 sinnum á breidd). Heklið þar til stykkið mælist 21-21 cm. Heklið nú fram- og bakstykki og ermar.

STÆRÐ L:
Þegar A.5c hefur verið heklað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 21 cm. Stykkið e heklað til loka með natur.
Heklið A.6 (= 3 lykkjur) yfir allar lykkjur (= 98 sinnum á breidd). Heklið þar til stykkið mælist 22 cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

STÆRÐ XL-XXL-XXXL:
Þegar A.5c hefur verið heklað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 21 cm. Síðan er heklað áfram þannig:
Hægri ermi: Heklið A.2 yfir næstu 20 lykkjurnar (= 5 sinnum), A.1 yfir næstu lykkju, A.2 yfir 72-80-88 lykkjur (= 18-20-22 sinnum), A.1 yfir næstu lykkju, A.2 yfir 20 lykkjur (= 5 sinnum).
Bakstykki: Heklið A.2 yfir 40-36-44 lykkjur (= 10-9-11 sinnum).
Vinstri ermi: Heklið A.2 yfir næstu 20 lykkjurnar (= 5 sinnum), A.1 yfir næstu lykkju A.2 yfir 72-80-88 lykkjur (= 18-20-22 sinnum), A.1 yfir næstu lykkju, A.2 yfir 20 lykkjur (= 5 sinnum).
Framstykki: Heklið A.2 yfir 40-40-48 lykkjur (= 10-10-12 sinnum).
Í síðustu umferð í A.1 og A.2 er aukið út um 0-15-13 lykkjur jafnt yfir.
Þegar A.1 og A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 324-351-381 fastalykkjur í síðustu umferð. Stykkið mælist ca 24 cm (berustykki í stærð XL er eiginlega lokið, en ef heklfestan passar ekki á hæðina og stykkið mælist ekki 24 cm er heklað áfram). Stykkið er nú heklað til loka með natur. Heklið A.6 yfir allar lykkjur (= 108-117-127 sinnum á breidd). Heklið þar til stykkið mælist 24-26-28 cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

ALLAR STÆRÐIR:
Stykkið er nú heklað til loka með litnum natur.
= 246-264-294-324-351-381 lykkjur. Klippið frá. Heklið síðan frá miðju að aftan (þ.e.a.s. frá prjónamerki) þannig: Heklið A.6 yfir 36-39-42-45-51-57 lykkjur (= 12-13-14-15-17-19 sinnum = ca hálft bakstykki), hoppið yfir næstu 54-57-66-72-75-78 lykkjur (= ermi), heklið 6 loftlykkjur undir ermi, heklið A.6 yfir 69-75-81-90-99-111 lykkjur og aukið út um 0-0-0-0-3-3 lykkjur jafnt yfir (= 69-75-81-90-102-114 lykkjur = 23-25-27-30-34-38 sinnum = framstykki), hoppið yfir næstu 54-57-66-72-75-78 lykkjur (= ermi), heklið 6 loftlykkjur undir ermi og A.6 yfir 33-36-39-45-51-57 lykkjur (= 11-12-13-15-17-19 sinnum = ca hálft bakstykki). Ermar og fram- og bakstykki er nú heklað til loka fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 150-162-174-192-216-240 lykkjur. Heklið A.6 (= 50-54-58-64-72-80 sinnum á breidd). Þegar stykkið mælist 2 cm frá þar sem stykkið skiptist frá ermum, stillið af að næsta umferð sé einungis með stuðlum, aukið út jafnt yfir í 3. hverjum cm (passið uppá að öll útaukning sem eru gerðar í umferð séu einungis með stuðlum) þannig:
Aukið út um 6 stuðla alls 5-5-5-5-6-6 sinnum, síðan 3 stuðla alls 1-1-1-1-0-0 sinnum = 183-195-207-225-252-276 stuðlar. Útauknar lykkjur eru heklaðar í A.6. Þegar öll útaukning hefur verið gerð er A.6 endurtakið alls 61-65-69-75-83-91 sinnum á breidd. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 28-30-31-31-31-31 cm, passið uppá að enda með umferð einungis með stuðlum. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist alls ca 53-55-57-59-61-63 cm.

ERMI:
Stykkið er heklað fram og til baka, en heklað er saman í hverri umferð. Stykkið er heklað til loka með natur.
Byrjið á að hekla í 4. loftlykkju af 6 loftlykkjum sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki með litnum natur þannig: Heklið 1 keðjulykkju, 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 2 loftlykkjum, A.6 yfir næstu 54-57-66-72-75-78 stuðla og 1 stuðull í hverja af síðustu 3 loftlykkjum undir ermi = 60-63-72-78-81-84 stuðlar. Heklið A.6 yfir allar lykkjur (= 20-21-24-26-27-28 sinnum á breidd).
Þegar stykkið mælist 2 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki er fækkað um 3 stuðla jafnt yfir! Fækkið stuðlum með 4-4-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 6-6-9-10-11-11 sinnum = 42-45-45-48-48-51 lykkjur. A.6 er endurtekið alls 14-15-15-16-16-17 sinnum á breidd. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 25-26-25-23-22-20 cm frá þar sem stykkið skiptist frá fram- og bakstykki. Heklið A.7 yfir allar lykkjur (= 14-15-15-16-16-17 sinnum á breidd).
Klippið frá og festið enda þegar A.7 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. Ermin mælist ca 29-30-29-27-26-24 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki.
Heklið hina ermina á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Stykkið er heklað fram og til baka, en heklað saman í hverri umferð. Heklað er yfir loftlykkjuumferðir í hálsmáli með litnum gallabuxnablár þannig:
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Heklið 1 hálfan stuðul í bilinu á milli hverra fastalykkja = 92-96-100-108-112-116 hálfir stuðlar.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Heklið 1 fastalykkju í hvern hálfan stuðul = 92-96-100-108-112-116 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist alls ca 54-56-58-60-62-64 cm.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 22.05.2019
Leiðrétting - stærð S:Berustykkið er heklað þar til það er 21 cm. Fram- og bakstykki: Heklið A.6 þar til stykkið mælist 28 cm frá skiptingu. Ermar: Heklið A.6 þar til stykkið mælist 25 cm frá skiptingu

Mynstur

symbols = fastalykkja í lykkju með litnum gallabuxnablár
symbols = stuðull í lykkju með litnum natur
symbols = loftlykkja með litnum natur
symbols = fastalykkja um/á milli lykkja með litnum gallabuxnablár
symbols = fastalykkja í lykkju með litnum natur
symbols = fastalykkja í aftari lykkjubogann á lykkju með litnum gallabuxnablár (= þessi lykkja er alltaf hekluð frá réttu)
symbols = stuðull í lykkju með litnum gallabuxnablár
symbols = fastalykkja í aftari lykkjubogann á lykkju með litnum natur (= þessi lykkja er alltaf hekluð frá réttu)
symbols = heklið 3 stuðla saman með litnum natur þannig: Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar í hvora af 2 næstu lykkjum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, dragið þráðinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = heklið 2 stuðla saman með litnum natur þannig: Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í næstu lykkju, dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = heklið 3 stuðla saman með litnum gallabuxnablár
symbols = heklið 2 stuðla saman með litnum gallabuxnabár
symbols = umferðin er nú þegar hekluð, byrjið á næstu umferð
symbols = heklið 1 með litnum gallabuxnabláum: Heklið 1 stuðul í næstu lykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í næstu lykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar í sömu lykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, dragið þráðinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = 1 stuðull um loftlykkju/á milli 2 stuðla með litnum natur
symbols = heklstefna
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (47)

country flag Veronika wrote:

Ja danke ich habe es jetzt verstanden, ich stricke ja lieber. Ich wollte aber mal etwas mit Herausforderung machen. Nochmals vielen liebendank👍🤗

07.03.2023 - 22:27

country flag Veronika wrote:

Hallo, ich fange die Hinreihe doch mit 40 Maschen(Größe xxl) an, da muss ich doch auch wieder mit den 40 Maschen anfangen ofer nicht😳🤔

07.03.2023 - 12:23

DROPS Design answered:

Liebe Veronika, die 1. Hinreihe nach A.3/A.5a häkeln sie so: A.5b über die 8 Maschen von vorrigen A.3, A.4 häkeln Sie wie zuvor (= einfach nächste Reihe), dann häkeln Sie A.5b über die 8 M von vorrigen A.3 + die 2 A.5a = 24 M insgesamt, usw. Die Maschen, die früher mit A.3 gehäkelt waren, sind jetzt wie A.5b gehäkelt, A.4 häkeln Sie weiter wie zuvor. Hoffentlich kann das Ihnen helfen.

07.03.2023 - 14:44

country flag Veronika wrote:

Hallo\r\nIch habe eine Frage, wenn ich 5A zuende gehäkelt habe fange ich 5B an mit der Hinreihe, wieso dann bei 5B mit dem rechten Ärmel 🤔 habe ich jetzt ein Denkfehler?!

07.03.2023 - 08:39

DROPS Design answered:

Liebe Veronika, die 1. Reihe A.5B ist eine Hinreihe und beginnt dann mit dem rechten Ärmel - oder misverstehe ich Ihre Frage?

07.03.2023 - 10:34

country flag Veronika wrote:

Hallo\r\nIch habe eine Frage, wenn ich 5A zuende gehäkelt habe fange ich 5B an mit der Hinreihe, wieso dann bei 5B mit dem rechten Ärmel 🤔 habe ich jetzt ein Denkfehler?!

07.03.2023 - 08:38

country flag Karuna Lulla wrote:

Where can I find the size chart for the pattern jn terms of the dimensions?

25.02.2022 - 06:02

DROPS Design answered:

Dear Mrs Lulla, you will find the measurement chart at the very bottom of the written pattern, below the diagrams. Read more about charts here. Happy crocheting!

25.02.2022 - 09:32

country flag Lauranne Crickx wrote:

Bonjour, Vous pouvez me dire comment on passe de 92mailles au début à 116mailles à la fin de A1/2 ? je fais la taille S, il n'y a donc pas d'augmentation au 2ème rang, mais seulement à la fin de A1/2 de 8 mailles 92+8 = 100 , ils sont où les 16 mailles manquantes?

14.10.2021 - 15:56

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Crickx , avez-vous vu bien fait les augmentations de A.1? vous devez avoir 5 mailles au dernier rang, autrement dit: dos: 28 m, manche (5+16+5), devant: 28 m, manche (5+16+5) = 108 m + 8 m à augmenter à intervalles réguliers au dernier rang de A.1/A.2 = 116 m. Bon crochet!

14.10.2021 - 16:50

country flag Pat Floyd wrote:

This is the first time I have crocheted from a diagram. Pattern: DROPS / 186 / 34 After completing the yoke section for a large (ch 117) you have 116 stitches. Starting on the wrong side with A 2 and increasing 20 on the last row would be136 stitches (116 +20 ). The pattern instructions indicate you should have 152 stitches. ?? The total stitches after completing A 1 and A 2 are 116-132-152-168-150-182. How Can a larger size (2X ) have fewer stitches than a small.

07.02.2021 - 04:13

DROPS Design answered:

Dear Mrs Floyd, you will increase a total of 4 stitches in each A.1 = 116 sts + (4 sts inc x 4 repeats of A.1) = 132 sts + 20 sts evenly increased = 152 sts. In size XXL you will then have only 150 sts but you will increase later more stitches to get 351 sts at the end of yoke while you will have only 294 sts in L. Happy crocheting!

08.02.2021 - 09:20

country flag Tatiana wrote:

My mom is an avid crochet knitter and she is having issues understanding this pattern. She doesn’t understand the instructions to follow after the first circle. It’s very strange. Could you help? The patter is not explicit. Normally she finds instructions per row. Thank you

21.01.2021 - 21:33

DROPS Design answered:

Dear Tatiana, she should here follow the written explainations and work the diagrams as explained for the size at the same time. She will find how to read crochet diagrams here. Happy crocheting!

22.01.2021 - 08:22

country flag Holly Gardner wrote:

Thank you for your response. I found this lovely sweater as a free pattern . I already had yarn in my stash and so did not need to buy the yarn from a store. I have viewed tutorials on how to read graph patterns but even tho I have been crocheting for 50 years i am not finding this pattern clear. i have joined the facebook group in hopes that i may find some answers.

18.12.2020 - 01:37

country flag Holly Gardner wrote:

I am having great difficulty following the pattern diagram as broken into segments. i am not seeing row numbers and some stitches appear to be missing? Sadly, i am defeated before i have begun. I would like to know if there is an accompanying WRITTEN pattern available? This would allow cross references that may help me get thru this beautiful pattern successfully. Thank you for your assistance.

14.12.2020 - 20:46

DROPS Design answered:

Dear Mrs Gardner, we only have diagrams to this pattern - but you will find how to read crochet diagrams here - that might help you. Should you need any further individual assistance you are welcome to contact the store where you bought the yarn - even per mail or telephone. Happy crocheting!

15.12.2020 - 08:32